Morgunblaðið - 21.03.2018, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Skipulagsstofnun telur aðbygging nýrrar þjónustu-miðstöðvar í Land-mannalaugum í Friðlandinu
að Fjallabaki geti haft í för með sér
umtalsverð umhverfisáhrif og skuli
framkvæmdin því háð mati á um-
hverfisáhrifum. Stofnunin telur að
óvissa sé um áhrif framkvæmdanna,
en að þær kunni að hafa varanleg
áhrif á ásýnd og náttúru svæðisins og
verndargildi þess. Því beri að horfa
til ákvæðis laga um náttúruvernd þar
sem kveðið er á um að beita skuli var-
úðarreglunni í því tilviki þegar ekki
er nægileg vissa um hvaða áhrif
ákvörðun kann að hafa á náttúruna.
Í gögnum frá Rangárþingi ytra
kemur fram að áhersla sé á að færa
meginþunga þjónustu í Landmanna-
laugum að Námshrauni og dag-
aðstöðu norður fyrir Námskvísl og
draga þannig úr álagi við Lauga-
hraun þar sem núverandi aðstaða er.
Þar kemur fram að Landmanna-
laugar séu fjölsóttasti ferðamanna-
staður á hálendinu og áætlað að
þangað hafi komið yfir 140 þúsund
ferðamenn 2016, flestir daggestir að
sumarlagi. Fyrirhuguð uppbygging
geri ráð fyrir lítilli eða óverulegri
fjölgun ferðamanna í Laugum. Einn-
ig kemur fram í gögnunum að Ferða-
málastofa áætli að árið 2017 hafi 199
þúsund gestir komið í Land-
mannalaugar.
Uppbygging gæti
valdið auknu álagi
Í skýrslu Skipulagsstofnunar
kemur fram að áformað sé að reisa
ýmis mannvirki; byggingar, palla,
skýli, stíga, brýr og baðlaug auk
tjaldsvæðis og bílastæða. Áformuð
heildaruppbygging sé um tvö þúsund
fermetrar fyrir utan palla og stíga.
Flatarmál svæða sem fari undir ný
mannvirki er áætlað um 4.900 fer-
metrar og aðrir manngerðir fletir svo
sem bílastæði, göngu- og aðkomu-
leiðir þeki samtals um 17.000 fer-
metra. Rofvarnir eru áætlaðar alls
um 1,8 km langar. Þessum mann-
virkjum er ætlað að koma í stað nú-
verandi mannvirkja í Land-
mannalaugum nema skála
Ferðafélagsins sem muni standa
áfram.
Náttúrufræðistofnun benti í um-
sögn sinni um tillögu að deiliskipulagi
fyrir Landmannalaugar á að þótt að
tilgangur með uppbyggingu á nýjum
svæðum væri að draga úr álagi á
Landmannalaugasvæðið og um leið
að skapa bætta þjónustu við ferða-
menn kunni uppbyggingin að hafa
þveröfug áhrif og valda auknu álagi
m.a. vegna aukins gistirýmis.
Í skýrslu Skipulagsstofnunar
segir að stofnunin geti tekið undir
það sem kom fram í umsögn Um-
hverfisstofnunar við tillögu að deili-
skipulagi Landmannalauga um að
fyrirhugaðar framkvæmdir séu spor
í rétta átt í þeirri viðleitni að stýra að-
gengi og umferð ferðamanna en að
frekari umræðu sé þörf um þessa
álagsstýringu og fjölda þeirra ferða-
manna sem á svæðinu geti dvalið á
sama tíma.
Jafnframt að þar sem fyrirhug-
uð uppbygging kunni að leiða til auk-
innar aðsóknar ferðamanna í Land-
mannalaugar telur Skipulagsstofnun
að fram þurfi að fara nánari greining
og mat á áhrifum uppbyggingar
þjónustusvæðanna.
Una niðurstöðunni um mat
Á fundi sveitarstjórnar Rangár-
þings ytra í síðustu viku var sam-
þykkt samhljóða að una niðurstöðu
Skipulagsstofnunar um mat á um-
hverfisáhrifum vegna framkvæmda í
Landmannalaugum í samræmi við
tillögu skipulags- og umferðar-
nefndar sveitarfélagsins, en kæru-
frestur var til 21. mars. Sveitarstjórn
hefur í meðferð málsins svarað ýms-
um þeim athugasemdum sem fram
hafa komið.
Náttúran njóti vafans
í Landmannalaugum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Friðland að Fjallabaki Gengið niður að Landmannalaugum.
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Eitt af yfir-lýstummark-
miðum sam-
ræmdu prófanna
er að þau eigi að
gefa nemendum
kost á að sjá hvar
þeir standa. Á vef-
síðu Menntamálastofnunar
segir að meta eigi „hvernig
markmiðum aðalnámskrár
hefur verið náð og veita end-
urgjöf til nemenda, foreldra,
kennara og fræðsluyfir-
valda“. Þannig fáist „upplýs-
ingar um þekkingu og hæfni
hvers nemanda“ og nemandi,
forráðamenn og kennarar
geti „þannig notað niður-
stöður prófsins til að ígrunda
frekari áherslur í náminu í
framhaldinu“.
Raunin hefur hins vegar
verið allt önnur. Þeir sem
þreyta prófin fá einkunn, en
engar upplýsingar um hvað
gekk vel og hvað gekk illa. Í
raun hefur endurgjöfin engin
verið. Hulda D. Proppé kenn-
ari lýsti stöðunni í viðtali í
Sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins um helgina: „En þar
sem við fáum aldrei að sjá
prófin er erfitt að undirbúa
þau og einnig er erfitt að
hjálpa þeim sem þurfa á því
að halda að bæta sig eftir
prófið því ég veit ekki hvað
það var sem gerði að verkum
að ákveðinn nemandi fékk
svona eða hinsegin einkunn.“
Í fyrradag birtist á mbl.is
frétt um að úr-
skurðarnefnd um
upplýsingamál
hefði í liðinni viku
gert Mennta-
málastofnun að af-
henda föður
stúlku, sem
þreytti samræmd
könnunarpróf í september
2016, aðgang að úrlausnum
hennar í íslensku og stærð-
fræði ásamt fyrirgjöf fyrir
hverja spurningu.
Stofnunin hafði neitað að
afhenda föðurnum prófið með
þeim rökum að ríkir almanna-
hagsmunir lægju að baki því
að spurningarnar yrðu ekki
birtar þar sem íslenska
grunnskólakerfið lægi undir.
Úrskurðarnefndin sagði í
niðurstöðu sinni að foreldrar
bæru ábyrgð á námi barna
sinni og bæri að fylgjast með
námsframvindu. Til að geta
rækt það hlutverk þyrftu þeir
að geta aflað upplýsinga um
námsframvinduna.
Samræmdu prófin eru
könnunarpróf. Þau veita
vissulega upplýsingar um
breytingu og framvindu í
námi eftir landshlutum og
milli ára. Þeim er hins vegar
ekki síst ætlað að hjálpa nem-
endum að bæta sig þar sem
þeir eru veikastir fyrir. Það
er hins vegar ekki hægt
vegna almannahagsmuna og
þar er allt grunnskólakerfið í
húfi! Þetta gengur einfald-
lega ekki upp.
Samræmdu prófin
eiga að hjálpa nem-
endum að bæta sig
en þeir fá ekki upp-
lýsingar vegna
þjóðarhags}
Markmiðið sniðgengið
Fréttir berastorðið reglu-
lega af rann-
sóknum eða
ákærum á hendur
ráðamönnum ein-
stakra ríkja, ým-
ist fyrrverandi eða núverandi.
Stundum er þetta af pólitísk-
um toga, líkt og Íslendingar
hafa fengið að kynnast, en
stundum eru eðlilegar for-
sendur fyrir málunum.
Ríkissaksóknari Suður-
Afríku hefur tilkynnt að
ákveðið hafi verið að ákæra
Jacob Zuma, fyrrverandi for-
seta landsins, fyrir spillingu.
Honum er gert að sök að hafa
þegið fúlgur fjár frá franska
vopnaframleiðandanum
Thales til að greiða fyrir sölu
vopna til Suður-Afríku.
Þessi niðurstaða kemur svo
sem ekki á óvart, þar sem
skuggi spillingar hefur elt
Zuma um langa hríð og ekki
ólíklegt að eðlilegar for-
sendur séu fyrir málarekstr-
inum. En þó að
Zuma hafi verið
ákærður mun
hann víst eiga
einn ás uppi í erm-
inni, nefnilega
þann að sjálfur
ríkissaksóknarinn, Shaun
Abrahams, hefur verið settur
til hliðar af hæstarétti Suður-
Afríku, þar sem sá sem skip-
aði hann í embætti, Zuma
sjálfur, hafi ekki verið hæfur
til verksins. Sá sérkennilegi
möguleiki er því í stöðunni að
vanhæfi Zuma til þess að
skipa Abrahams í embætti
muni í það minnsta tefja það
að hægt verði að sækja
spillingarmálið gegn honum
og hugsanlega ónýta það.
Óvíst er þó, og jafnvel ólík-
legt, að svo fari. Hitt er víst
að fylgst verður með því
hvort að mál Zuma fær af-
greiðslu sem sæmir réttar-
ríki. Mál hans verður án efa
talið ákveðinn prófsteinn á
ástandið í Suður-Afríku.
Zuma hefur, líkt og
fleiri ráðamenn,
sætt rannsókn og nú
ákæru saksóknara}
Ákært á æðstu stöðum
Á
neyðarmóttöku fyrir þolendur
kynferðisofbeldis á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi geta þau kom-
ið sem hafa verið beitt kynferðis-
ofbeldi. Á neyðarmóttökunni er
veittur stuðningur og ráðgjöf, auk læknisskoð-
unar og meðferðar. Þjónustan stendur öllum
til boða, jafnt konum sem körlum, og mark-
miðið er að tryggja velferð og stöðu þeirra sem
þangað leita vegna nauðgunar, tilraunar til
nauðgunar eða annars kynferðisofbeldis.
Árið 2017 voru komur á neyðarmóttöku fyr-
ir þolendur kynferðisofbeldis 187 talsins. Þar
af voru 96% konur og 4% karlar. Komur á mót-
tökuna hefur fjölgað um 40% á aðeins tveimur
árum. Tilgangur með þjónustu neyðarmóttök-
unnar er að draga úr eða koma í veg fyrir and-
legt og líkamlegt heilsutjón sem oft er afleið-
ing kynferðislegs ofbeldis. Einn liður í þeirri þjónustu er
sálfræðiaðstoð. Árið 2017 var 80% þeirra sem leituðu til
neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis vísað í
sálfræðiþjónustu. Þeir sem ekki fá formlega meðferð fá
stuðning eftir þörfum en öðrum er veitt áfallahjálp og sál-
fræðiþjónusta. Ef áfallastreituröskun greinist er ein-
staklingum boðið upp á sérhæfða áfallamiðaða hugræna
atferlismeðferð.
Ég hef hitt sálfræðinga sem sinna þjónustu við þol-
endur kynferðisofbeldis á Landspítala og fengið innsýn í
það góða starf sem fram fer á móttökunni. Auk þess var
ég viðstödd formlega opnun nýrrar aðstöðu
fyrir neyðarmóttökuna á Landspítala. Veitt er
einstaklingsmiðuð sálfræðiþjónusta og
áhersla lögð á að þörfum hvers og eins sé
mætt. Því er viðtalafjöldi ólíkur auk þess sem
þolendum kynferðisofbeldis býðst einnig sál-
fræðiaðstoð síðar í ferlinu, til dæmis í
tengslum við framlagningu kæru eða meðferð
máls fyrir dómi.
Bætt aðstaða og fagleg þjónusta við þennan
hóp er gríðarlega mikilvæg. Það er ekki bara
heilbrigðismál að þolendum kynferðisofbeldis
bjóðist viðeigandi þjónusta. Það er nefnilega
líka jafnréttismál. Það er jafnréttismál að þol-
endum kynferðisofbeldis bjóðist fagleg og
vönduð heilbrigðisþjónusta og að langtíma-
afleiðingar kynferðisofbeldis séu lágmarkaðar
eins og kostur er. Fjölgun þeirra sem koma á
neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis endur-
speglar hugsanlega að fleiri þolendur kynferðisofbeldis
treysta sér til þess að segja frá upplifunum sínum af of-
beldi og þar hafa byltingar á borð við #metoo vafalaust
áhrif.
Fyrst og síðast þarf þó að vinna gegn ofbeldi í nánum
samböndum, til dæmis með aukinni opinni umræðu um
náin sambönd og fræðslu. Það er barátta sem við megum
ekki gleyma.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Mikilvægi neyðarmóttöku
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Móttökuhús er fyrirhugað á upp-
byggðum bakka við Jökulgilskvísl,
austan við Námshraun. Húsið
verður 338 fermetrar og stór
útivistarpallur umhverfis það. Við
Námshraun er jafnframt gert ráð
fyrir sex gestaskálum með gisti-
aðstöðu fyrir 16-20 manns í hverj-
um skála, samtals 510 fermetrar,
og fjórum starfsmannaskálum
með svefnaðstöðu fyrir allt að 28
manns, samtals 340 fermetrar.
Verða gistirúm fyrir 120 ferða-
menn í skálagistingu í stað 78 í
dag. Auk þess er gert ráð fyrir að-
stöðu fyrir allt að 28 landverði og
aðra starfsmenn.
Í greinargerð kemur fram að
áhersla verði lögð á samræmt og
heildstætt svæði. Byggingar skuli
staðsettar þannig að þær trufli
útsýni sem minnst en myndi skjól
fyrir veðri og vindum.
Aðstaða verður fyrir a.m.k. 150
tjöld og 50 húsbíla. Bílastæði
verða samtals fyrir 220 ökutæki
en í gögnum framkvæmdaraðila
kemur fram að eitt síðdegi sum-
arið 2016 hafi verið 176 bílar og 12
rútur í Landmannalaugum.
Gistiaðstaða
og bílastæði
MIKIL UPPBYGGING
VIÐ NÁMSHRAUN