Morgunblaðið - 21.03.2018, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2018
Sinfóníuhljómsveit Gauta-borgar, stofnuð 1905 ogskv. tónleikaskrá ,þjóðar-hljómsveit Svíþjóðar‘ (hvað
nánar í því felst kom ekki fram), varð
fyrst erlendra sinfóníusveita til að
heimsækja Hörpu haustið 2011 und-
ir stjórn Gustavos Dudamel, en hlaut
því miður enga gagnrýna umfjöllum
á síðum Morgunblaðsins.
Hún kom nú hingað í annað sinn
undir forystu núverandi aðalstjórn-
anda, hins unga finnska Santtu-
Matiasar Rouvali (33), nemanda
Leifs Segerstam, til að endurgjalda
vel heppnaða Gautaborgarferð SÍ
s.l. apríl með Tortelier og Víking
Heiðar í broddi fylkingar.
Eftirvænting hlustenda var því að
vonum mikil eins og á aðsókn mátti
sjá er stappaði nærri húsfylli. Og
frammistaða Svíanna stóð fyllilega
undir henni. Alltjent man undirrit-
aður ekki í fljótu bragði eftir annarri
eins snerpu. Ofursamtaka strengja-
hljómurinn var smellandi þéttur í
heilsteyptri gæðablöndun við glamp-
andi lúðraköll og kliðfagran tréblást-
ur. Hið magnaða samspil krafts og
mýktar var sannarlega fyrirmynd til
eftirbreytni og lýsti norrænum
metnaði á heimsmælikvarða.
Galdurinn birtist mönnum þegar í
fyrsta atriði kvöldsins, Svítu úr
Rósariddara R. Strauss, og dró fram
orkestrunarsnilld verksins af ein-
stæðum tærleika þrátt fyrir oft
hnausþykka áferð. Að ekki sé minnzt
á lunkna Vínarkammerstemmningu
í valsaþáttum, þar sem hljómsveitin
gældi ísmeygilega við hlustendur að
hætti þokkafullra yngismeyja Dón-
árborgar.
4. Píanókonsert Beethovens galt
þess e.t.v. að vera í eldfornu uppá-
haldi undirritaðs með kostum þess
og göllum. Staðarpíanisti Gauta-
borgarsinfóníunnar, Hélène Grim-
aud, sá um einleikshlutverkið og
gerði því í mörgu vel skil, með t.d.
ljóðrænni mótun og styrkbrigðum
en algengt er. Á hinn bóginn fannst
mér hún stundum rása fullmikið á
rúbatói. Virtúósu runur slaghörp-
unnar hefðu sömuleiðis mátt vera
skýrari með minni fetilbeitingu, og
„undirleikspartar“ píanósins við
hljómsveitina áttu auk þess til að
kæfa fiðlurnar.
Einnig smullu snörp hlutverka-
skipti einleiks og hljómsveitar ekki
alltaf nógu hnífjafnt saman á viðeig-
andi núllpunkti, og má vera að hefði
tekizt betur til með fleiri sam-
æfingum í framandi ómvist en kost-
ur gafst á. Engu að síður var leik
þeirra Hélène tekið með fagnaðar-
látum á fæti.
1. Sinfónía Sibeliusar frá 1899
kom til framkvæmda eftir hlé og hef-
ur jafnan verið sögð undir sterkum
áhrifum frá Tjækovskíj. Eftir langa
fjarveru frá hljómkviðunni rann hins
vegar upp fyrir manni ljós við frá-
bæra meðferð Rouvalis og SG: Tsjæ-
kovskíj-hrifin eru ekki nándar nærri
eins mikil og frumsérkenni Sibelius-
ar sjálfs! Þvert á móti þóttist maður
hvað eftir annað kannast við forboða
2. sinfóníu Jeans, með öllum hennar
sérkennilegu blæbrigðum af niði
finnskra vatnaskóga í tré- og lúðra-
blæstri, er skera sig úr tónamáli
annarra sinfónista ef nánar er gáð.
Þetta var eftirminnileg heimsókn.
Þó eyða mætti mörgum orðum í ná-
kvæmari útlistun á flutningi Gauta-
borgaranna nægir að segja að túlkun
þeirra var stórkostleg. Hvílík spila-
mennska – og hvílíkir kostagestir!
Morgunblaðið/Hari
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikar bbbbm
Richard Strauss: Svíta úr Rósariddar-
anum. Beethoven: Píanókonsert nr. 4.
Sibelius: Sinfónía nr. 1. Einleikari: Hél-
ène Grimaud píanó. Stjórnandi: Santtu-
Matias Rouvali. Sunnudaginn 18.3. kl.
19.30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Sænskir kostagestir
Hyllt Einleikarinn Grimaud og stjórn-
andinn Rouvali með hljómsveitinni;
„…túlkun þeirra var stórkostleg.“
Víða um lönd er haldið í dag, 21.
mars, upp á alþjóðlegan dag ljóðs-
ins. Bókmenntaborgin Reykjavík
heldur daginn hátíðlegan í fyrsta
sinn með því að lyfta fram nýjum
ljóðskáldum í borginni en boðið er
upp á þrjá viðburði.
Leikskólabörn halda upp á dag-
inn í Borgarbókasafninu í Grófinni
og verður þar ljóðastund í stað
sögustundar þar sem börnin velja
ólík ljóð til að hlusta á og leika sér í
ljóðagerð í framhaldinu.
Í hádeginu kl. 12.10 munu nem-
endur í ritlist í Háskóla Íslands lesa
upp í Bóksölu Stúdenta á Háskóla-
torgi. Skáldin Þórdís Helgadóttir,
Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir,
Þorvaldur Sigurbjörn Helgason,
Lára Kristín Sturludóttir, Ásta
Björk Sveinbjörnsdóttir, Hlín Leifs-
dóttir og Una Björk Kjerúlf lesa
þar frumsamin ljóð fyrir gesti og
gangandi. Ljóðabækur fá líka sér-
stakt rými í Bóksölunni. Streymt
verður frá viðburðinum á facebook-
síðum Bókmenntaborgarinnar,
Reykjavíkurborgar og Bóksölu
stúdenta.
Hátíðarhöldum lýkur síðan í
Hólavallakirkjugarði þar sem ljóða-
gjörningurinn „Áður en áður en“,
„The before the before“,verður kl.
18. Erin Honeycutt listfræðingur
og skáld hefur fengið til liðs við sig
skáld sem yrkja á íslensku og öðr-
um tungumálum og munu þau lesa
upp ljóð sín í kirkjugarðinum. Höf-
undarnir eru allir búsettir í Reykja-
vík en koma þó víða að og munu
þeir flytja frumsamin ljóð sín sam-
tímis á nokkrum stöðum í garð-
inum. Gestir geta því gengið á milli
skálda og hlýtt á ljóð í bland við
fuglasöng og önnur umhverfishljóð
á þessu síðdegi sem er daginn eftir
vorjafndægur hér á norðurhveli
jarðar. Dagskráin hefst við leiði
skáldsins Benedikts Gröndal sem er
eitt af mörgum skáldum sem hvíla í
garðinum. Gröf hans er í elsta hluta
garðsins, við Suðurgötu nálægt
Skothúsvegi.
Viðburðir í Bóksölu Stúdenta og
Hólavallakirkjugarði eru öllum
opnir og áhugasamir hvattir til að
fjölmenna.
Haldið upp á alþjóðlegan dag ljóðsins
Morgunblaðið/Hanna
Hólavallagarður Skáld munu lesa upp
ljóð sín víða í garðinum eftir kl. 18 í dag.
Rýnir breska
blaðsins Sunday
Times ber mikið
lof á enska þýð-
ingu glæpasög-
unar Dimmu eft-
ir Ragnar
Jónasson, sem
Victoria Cribb
hefur þýtt, segir
hana „stórkost-
lega“ og að
Hulda, aðalpersóna bókarinnar, sé
ein af mögnuðustu tragísku kven-
söguhetjum samtímaglæpasagna.
Þá segir jafnframt í samantekt
The Guardian um bestu nýju
glæpasögurnar á ensku að Dimma
sé „snilldarlega fléttuð og endalok
bókarinnar eru rosaleg. Þetta er
fyrsta bókin í þríleik um þessa geð-
þekku lögreglukonu og það eru góð
tíðindi.“ Sagan kom út í liðinni viku
hjá hinu virta og kunna forlagi
Penguin.
Þá er önnur skáldsaga eftir
Ragnar, frönsk þýðing Náttblindu,
næst mest selda glæpasaga vik-
unnar í Frakklandi en sagan kom
nýverið út í kilju þar í landi undir
heitinu Mörk. Önnur saga Ragnars,
Myrknætti, er í 36. sæti franska
listans en hún var gefin út inn-
bundin á dögunum, og fimm sætum
neðar er enn ein sagna hans, Snjó-
blinda. Á tveimur árum hafa hátt á
þriðja hundrað þúsund eintök af
bókum Ragnars selst í Frakklandi.
Dimma Ragnars
sögð stórkostleg
Ragnar
Jónasson
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Fös 18/5 kl. 20:00 36. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s
Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s
Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s
Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas.
Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s
Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s
Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s
Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Lau 22/9 kl. 20:00 144. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 15. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Fim 10/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 16. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fim 22/3 kl. 19:30 Auka Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn
Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn
Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn
Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn
Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn
Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn
Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Svartalogn (Stóra sviðið)
Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn
Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn
Heillandi verk um höfnun og hindranir.
Stríð (Stóra sviðið)
Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn
Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l
Efi (Kassinn)
Mið 21/3 kl. 19:30 Síðustu Fim 22/3 kl. 19:30 Síðustu Fim 5/4 kl. 19:30 Síðustu
Margverðlaunað og spennandi verk !
Faðirinn (Kassinn)
Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn
Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Ég get (Kúlan)
Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Oddur og Siggi (Á flakki um landið)
Mið 21/3 kl. 11:00
Reykjanes
Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 24/4 kl. 11:00
Hveragerði
Mán 9/4 kl. 11:00 Vík Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00
Vestm.eyjar
Þri 10/4 kl. 11:00
kirkjub.klaustur
Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss
Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning
Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00
Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30
Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30
Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Atvinna