Morgunblaðið - 22.03.2018, Síða 26

Morgunblaðið - 22.03.2018, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Uppfærsla ofurtölvu Dönsku veður- stofunnar (DMI), sem er til húsa hjá Veðurstofu Íslands, gengur vel. Þrír sérfræðingar frá DMI og einn frá tölvuframleiðandanum Cray eru hér vegna verkefnisins. Við uppfærsluna verða afköst ofurtölvunnar um 700 TFLOPS á sekúndu, það eru um 700 þúsund milljarðar aðgerða á sek- úndu. DMI er eigandi ofurtölvunnar en Veðurstofan leggur til húsnæði og innviði sem tölvureksturinn krefst auk þess að hafa daglega umsjón með búnaðinum. Veðurstofan fær veðurgögn sem unnin eru í ofurtölv- unni til að nota við gerð veðurspáa. Thomas Kjellberg, yfirmaður upp- lýsingamála og fjármálastjóri DMI, og Hafdís Þóra Karlsdóttir, fram- kvæmdastjóri fjármála- og rekstr- arsviðs og staðgengill forstjóra Veð- urstofu Íslands, kynntu blaðamanni og ljósmyndara Morgunblaðsins uppfærslu ofurtölvunnar. „Við erum að þrefalda vinnsluget- una frá því sem hún var,“ sagði Thomas. Hann lofaði því ekki að auk- in afköst tölvunnar verði til þess að veðrið batni, en veðurspárnar eiga að verða nákvæmari. Spásvæðin eru gríðarstór og þekja annars vegar Grænland og Ísland og hins vegar svæði sem nær frá Fær- eyjum og austur fyrir Danmörku. Ná útreikningarnir yfir lofthjúpinn, þ.e. frá yfirborði og upp að ystu mörkum lofthjúpsins. Veðurlíkönin gefa af sér spár um veður og sjólag fyrir þau svæði sem reiknuð eru. Með aukinni reiknigetu er hægt að gera nákvæm- ari spálíkön fyrir smærri svæði en áður og gera betur ráð fyrir stað- bundnum áhrifum landslags og land- gerðar á veðrið á hverjum stað. Nefndi Thomas sem dæmi að á Ís- landi væri sandur yfirleitt svartur og drægi því í sig hitageisla sólar, en sunnar í Evrópu væri sandur yf- irleitt ljós á lit og endurkastaði því hitageislum sólar líkt og íslensku jöklarnir gera. Þetta hefur í för með sé staðbundin áhrif á veður. Aukin reiknigeta getur einnig gert kleift að spá betur fyrir um hina skæðu fall- vinda (Piteraq) sem koma stundum ofan af Grænlandsjökli og eira engu sem fyrir verður. Tryggilega geymd neðanjarðar Ofurtölvan er geymd neðanjarðar í húsi Veðurstofunnar við Bústaða- veg, þar sem stjórnstöð Landsvirkj- unar og síðar Landsnet var áður til húsa. Það er svalt að koma inn í tölvusalinn þar sem niður í kælivift- um fyllir loftið. Ofurtölvueiningarnar Freyja og Þór standa þar rækilega merktar. Nú er þar einnig þriðja tölvan sem leysir hinar tvær af til skiptis meðan á uppfærslunni stend- ur. Önnur tölvan er endurnýjuð í einu og síðan keyrð til prufu í 30 daga áður en hin er endurnýjuð. Undirbúningur uppfærslunnar hófst fyrir um einu ári síðan. Verkefnið tekur því nokkuð langan tíma. Gagnageymslan, eða harðdisk- arnir, er í þriðju einingunni og rúma 1.500 terabæti. Ekki þarf að uppfæra gagnageymsluna. Gólfið í tölvusalnum er upp- hækkað og þar undir liggja raf- magns- og tölvukaplar og aðrar lagn- ir vegna viðamikils kælikerfis tölvubúnaðarins. Vatnið í kælikerf- inu er blandað með sérstökum frost- legi og rennur í lokuðu hringrás- arkerfi. Vökvinn flytur varmann frá tölvubúnaðinum út fyrir húsið þar sem svalt íslenskt loft kælir vökvann. Íslenski svalinn er einmitt einn kost- urinn við að hafa svona tölvuver hér. Það er mun auðveldara og ódýrara að kæla tölvubúnaðinn hér en í heit- ari löndum. Tölvusalurinn er rammlega læstur og kemst enginn þar inn nema með aðgangsheimild og öryggiskóða. Hreyfiskynjarar gera viðvart ef ein- hver er þar inni. Eftirlitsmyndavélar horfa stöðugt á hina ýmsu hluta of- urtölvunnar. Með hjálp þeirra geta starfsmenn DMI í Danmörku fylgst með hvort allt er með eðlilegum hætti í tölvusalnum. Ef eitthvað kemur upp á þá geta þeir látið vita og haft samráð við starfsmenn Veð- urstofunnar um það sem þarf að gera. Sjálfstæð rafstöð Næsta herbergi hýsir varaaflgjafa ofurtölvunnar. Inn í það liggja sverir kaplar sem flytja hagkvæma og um- hverfisvæna íslenska raforku sem knýr búnaðinn alla jafna. Við fullt álag notar hann allt að 400 kW (kíló- vött) en við venjulega keyrslu er notkunin innan við 300 kW. Raf- geymar í hillum þekja nær heilan vegg. Þeir geta keyrt búnaðinn í um 40 mínútur ef rafmagnið fer. Þar inni er líka stjórnbúnaður fyr- ir dísilknúnar rafstöðvar. Þær fara sjálfkrafa af stað ef veiturafmagnið slær út. Það á því að vera nokkuð tryggt að ofurtölvan verði ekki raf- magnslaus. Þegar samið var um ofurtölvuna 2014 var áætlað að hún myndi kosta um 750 milljónir íslenskra króna. Hafdís benti á að síðan hefði gengið breyst mikið og þessi tala væri önnur í dag. Hún sagði að kostnaður við húsnæðið og innviði hefði verið um 220 milljónir íslenskra króna og Danska veðurstofan hefði borgað lungann af því. Thomas sagði að sjálfur tölvubúnaðurinn væri um helmingur heildarkostnaðarins. Kostnaður við rafmagn, viðhald, þjónustusamninga og annað næmi hinum helmingi kostnaðarins. Fjölþjóðlegt samstarf Samstarf Veðurstofu Íslands og DMI um rekstur ofurtölvunnar er áfangi á leiðinni til samvinnu fleiri landa um rekstur ofurtölvu veður- stofa. Viðræðurnar um þetta fram- tíðarverkefni eru á frumstigi líkt og könnun á fjármögnun og fleiru. Nú er reiknað með að Norðurlöndin fimm, Ísland, Danmörk, Noregur, Svíþjóð og Finnland sameinist um ofurtölvu í framtíðinni. Írar og Hol- lendingar hafa lýst áhuga á að ganga inn í samstarfið og eins Eistland, Lettland og Litháen. Verði af þessu samstarfi verður fyrsta skrefið tekið 2022 eða 2023 og það næsta fyrir árið 2027. Öflugri ofurtölva spáir nákvæmar  Unnið er að uppfærslu ofurtölvu Dönsku veðurstofunnar  Tölvan er í húsi Veðurstofu Íslands  Nýtir íslenskt rafmagn og íslenskan svala  Samstarf tíu þjóða um rekstur ofurtölvu er í skoðun Morgunblaðið/Eggert Ofurtölvan Thomas Kjellberg frá DMI sýndi hvernig vinnslueiningar Cray-ofurtölvunnar raðast saman. Verið er að þrefalda reiknigetu tölvunnar. Orkustöðin Hafdís Þóra Karlsdóttir við stjórnskáp varaaflsstöðvanna. Eftirlit Ingveldur Jónsdóttir, hópstjóri rekstrar, sér stöðu kerfisins á skjá. Kælikerfið Lagnir undir gólfinu leiða kælivökvann að og frá. Ofurtölva Dönsku veðurstofunnar (DMI) var byggð upp í tveimur áföngum. Tvö vökvakæld Cray XC- tölvukerfi mynda ofurtölvuna. Fyrri áfanginn innihélt tvær Cray XC30 tölvur. Hvor þeirra inni- hélt 280 afkastamiklar vinnsluein- ingar (nodes) og 16 einingar til al- mennra nota. Samtals afkastaði ofurtölvan í þessari útfærslu um 200 TFLOPS (teraflops). Hún var tekin í notkun í apríl 2016. Í öðrum áfanga er búnaðurinn uppfærður í tvö Cray XC50 kerfi sem afkasta samtals um 700 TFLOPS eða meira en þrefalt meira en tölvan gerði áður. Hvort kerfi inniheldur 152 afkastamiklar vinnslueiningar og átta einingar til almennra nota. Nýju vinnsluein- ingarnar eru mun hraðvirkari og sparneytnari en eldri einingar sem nú er skipt út. Annar áfanginn, sem nú er verið að setja upp, kemst í fullan rekstur í júlí 2018. Ofurtölvan er tengd við DMI um háhraðanetið og sæstrengina Da- nice og Farice. Vinnslugetan þrefölduð OFURTÖLVAN Ofurtölvan Litskrúðugir kaplar setja svip á tölvubúnaðinn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.