Morgunblaðið - 22.03.2018, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018
Guðrún Selma
gudrunselma@mbl.is
Hvernig er þinn fatastíll?
„Ég myndi segja að hann sé mikið
af fínum fötum blandað við smá götu-
tísku. Ég fíla mjög mikið „pop of col-
or“ hér og þar og svo er ég oftast í
kápu eða jakka sem er „statement
piece“.“
Hvaða tískutímabil er í mestu
uppáhaldi hjá þér?
„Um þessar mundir er 70’s tímabil-
ið mikið í uppáhaldi hjá mér en það
breytist mjög oft, ég myndi segja að
stíllinn minn væri blanda af 70’s og
90’s stíl.“
Uppáhalds verslun?
„Uppáhalds verslunin mín er Zara
ég versla flest allt þar enda fer ég inn
í þá búð minnst tvisvar sinnum í viku
og þá annað hvort til að versla mér
smá eða bara að skoða úrvalið og fá
innblástur. Ég kíki stundum inn í
Gallerí 17 og finn mér einhvern gull-
mola þar og einnig inn í H&M, ég
flakka á milli þessara búða. Svo eru
uppáhalds verslanirnar mínar erlendis
Zara, Urban Outfitters, Mango og
River Island en svo er það mjög mis-
jafnt eftir því hvaða árstíð það er þeg-
ar ég er erlendis. Svo kaupi ég mér yf-
irleitt eitt merkjaveski þegar ég er
erlendis og eru þær búðir nokkrar,
meðal annars Gucci og YSL.“
Verslar þú mikið á netinu?
„Ég versla alltof mikið á netinu, ég
er ASOS sjúk. Ég fer inná Asos-appið
nokkrum sinnum á dag bara til þess að
skoða hvað er nýtt og oftast enda ég á
að kaupa mér bunka af fötum. Ég
myndi segja gróflega að fataskápurinn
minn sé helmingur frá Asos og hinn
helmingurinn frá Zara.“
Bestu kaup sem þú hefur gert?
„Eins og er er það Neverfull Louis
Vuitton taskan mín sem ég nota nán-
Er algjör
töskuperri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gott töskusafn Birgitta Ósk kaupir merkjatöskur þegar hún fer til útlanda.
Birgitta Ósk Harðardóttir er 22 ára gömul
og hóf nám í fatahönnun í Listaháskóla Ís-
lands síðasta haust. Birgitta sem er líka
menntaður förðunarfræðingur hefur gríð-
arlegan áhuga á öllu sem tengist tísku og
hönnun og segist fylgjast vel með tískunni
þrátt fyrir að halda alltaf í sinn stíl.
Uppáhalds-
taskan
Neverfull
Louis Vuitton-
taskan er í
uppáhaldi hjá
Birgittu.
Kaupir á netinu
Birgitta segist
versla mikið á
ASOS og í Zara.
Skrautlegir lokkar Eyrnalokkarnir setja punktinn yfir i-ið.
Kögrið keyrir upp stemningu
Birgitta í flottum jakka með kögri. SJÁ SÍÐU 52