Morgunblaðið - 22.03.2018, Page 59

Morgunblaðið - 22.03.2018, Page 59
59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 Ásgeir Páll Ágústsson asgeirpall@k100.is Hilmar Björnsson íþróttastjóri RÚV heimsótti Magasínið á K100 í vikunni, en hann segir að íþróttafréttamenn RÚV séu í óða önn að undirbúa út- sendingar frá HM sem fram fer í Rússlandi í sumar. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá auk útsendinga frá öllum leikjum mótsins. Eiður Smári Guðjónsen verður sér- fræðingur RÚV á leikjum Íslands og mun að auki framleiða þrjá sjónvarps- þætti um andstæðinga Íslands. Hann mun fara til Króatíu, Nígeríu og Arg- entínu og ræða við gömlu fótbolta- stjörnurnar í þeim löndum og forvitn- ast um hvað þær vita um Ísland. Í febrúar byrjum við að sýna þætti sem heita saga HM. Leiðin á HM eru svo hefðbundnir þættir sem fjalla um að- dragandann að mótinu sjálfu. Edda Sif Pálsdóttir fylgir landslið- inu eftir um þessar mundir, kynnist leikmönnum, skyggnist inn í einkalíf þeirra og afraksturinn verður sýndur á skjánum innan tíðar. Stuttu áður en mótið sjálft hefst verður boðið upp á þætti úr myndveri með gestum sem ræða mótið, spá í möguleika liðsins til að ná langt og svo framvegis. Á leikjunum sjálfum verður helj- arinnar HM partý við Arnarhól. Þar að auki verður HM torg við Ingólfs- torg rétt eins og þegar liðið keppti á EM í Frakklandi fyrir tveim árum. Á báðum þessum stöðum verða starfs- menn RÚV með beinar útsendingar. Svo verður fólk í myndveri, auk allra þeirra sem verða í Rússlandi að fylgj- ast með. Það verður því öllu til tjaldað í þessum stærsta sjónvarpsviðburði sem verið hefur hér á landi. Gætum allteins náð langt Fram kom í máli íþróttastjórans að þó margir telji að Íslendingar ættu ekki að gera sér miklar vonir á mótinu úti er landsliðið okkar í 18. sæti á styrkleikalista FIFA. „Margir telja að við séum bara að fara út til að vera með, en FIFA metur það þannig að við ættum að lenda í 18. sæti af þeim 32 bestu þjóðum sem taka þátt. Þessir strákar hafa óbilandi trú á sjálfum sér og munu leggja allt í söl- urnar.“ Fleiri verða við sjónvarpstækin Hilmar segist búast við því að færri Íslendingar muni heimsækja Rúss- land en Frakkland fyrir tveim árum síðan og því verði áhorfið á leikina í sjónvarpinu mun meira. Ferðalag til Rússlands sé talsvert dýrara og svo geti ferðalögin innanlands verið löng og ströng. HM er gríðarleg veisla. „Þetta eru í heildina 64 leikir. Fyrstu 12 dagana eru spilaðir þrír leikir á dag með einni undantekingu þegar 4 leikir verða spilaðir einn daginn. Leiktímarnir eru kl. 12. 15:00 og 18:00 sem eru fínir tímar fyrir okkur hér á landi,“ sagði Hilmar Björnsson og greinilegt er að það er hugur í yfirmanni íþróttamála hjá RÚV.HM Eiður Smári Guðjohnsen verður sérfræðingur RÚV á leikjum Íslands. K100/AGÓ Stærsti sjónvarpsviðburður sögunnar Það styttist óðum í HM í knattspyrnu og það má með sanni segja að þjóðin bíði spennt eftir leikjum Íslands. RÚV mun sýna frá öllum leikjunum á mótinu og búist er við gríðarlegu áhorfi. Hilmar Björnsson íþróttastjóri RÚV fór yfir undirbúninginn í Magas- íninu á K100 í vikunni. Heimsókn Hvati, Hilmar Björnsson, íþróttastjóri RÚV, og Ásgeir Páll. FERMINGARGJÖFIN í ár? arc-tic Retro VERÐ FRá: 29.900,- Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. Getum boðið mjög gott verð á flugi, hótelum og rútu, svo og íslenskan fararstjóra ef þess er óskað. www.transatlantic Sími 588 8900 GLÆSILEGAR MIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Ein af fallegri borgum Evrópu, hún er þekkt fyrir sínar glæsibyggingar sem margar eru á minjaskrá Unesco, forna menningu og spa/heilsulindir. Búdapest hefur verið kölluð heilsuborg Evrópu en baðmenningu Ungverja má rekja hundruðir ára aftur í tímann. Þar hefur í árhundruði blandast saman ýmis menningar- áhrif sem gerir borgina svo sérstaka. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Hansaborgin Gdansk er elsta og fallegasta borg Póllands, saga hennar nær aftur til ársins 997. Þetta er borg með mikla sögu en hún var helsta vígi Hansakaupmanna í Evrópu. Glæsilegur arkitektúr, forn menning og fjölmargar tónlistarhátíðir hafa gert borgina við flóann að vinsælustu ferðamannaborg Póllands. Flogið er tvisvar í viku allt árið. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er verndaður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. Flogið er tvisvar í viku allt árið. RIGA Í LETTLANDI GDANSK Í PÓLLANDI BÚDAPEST NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vikuferðir sumarið 2018frá 125.000 kr. á mann í 2ja manna herb.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.