Morgunblaðið - 29.03.2018, Side 2

Morgunblaðið - 29.03.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018 OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL.14:00 -14:30 HEIÐARBÆR– Þingvöllum. Sérlega notalegt, fallegt og veglegt 4ra her­ bergja sumarhús á einni hæð með glæs­ ilegu útsýni yfir Þingvallavatn. Húsið var endurbyggt árið 2008 og er mjög skemmti­ lega skipulagt. Húsið stendur á mjög róleg­ um stað á leigulóð í eigu ríkisins í u.þ.b. 30 mín. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Framhjá húsinu rennur Móakotsá. Útsýninu frá húsinu má líkja við málverk sem skiptir litum á hverjum degi. Sjón er sögu ríkari! Þegarekiðer fráReykjavíkumÞingvallavegnr.36, þáerbeygt tilhægri innáfyrstavegslóðaeftirað ekiðer framhjáGrafningsveginr.360.Húsiðblasir viðþegarkomiðer innávegslóðann. Herbergi: 4 Stærð: 83 fm. Endurbyggt: 2008 Verð: 39.700.000 Skipholt 50b | 105 Reykjavík | s 510 3500 | www.eignatorg.is Björgvin Guðjónsson lg.fs. s 615-1020 / bjorgvin@eignatorg.is s 510-3500 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Mikil umferð er um vegi landsins um páskana. Dagurinn í gær var líklega þyngsti umferðardagurinn það sem af er ári. Mikil umferð var um Húnavatns- sýslur í gærdag og fram á kvöld, bíll við bíl, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Blönduósi. Flestir væntanlega að fara norður á skíði. Sama er að segja um Suðurlands- veg. Þá er fjöldi fólks á Skíðaviku á Ísafirði og tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem þar er haldin um helgina. Stórhríð var á Fjarðarheiði og vegurinn til Seyðisfjarðar lokaðist. Útgerð Norrænu ákvað að bíða með brottför þar til snemma í dag en þá ætlaði Vegagerðin að opna veginn fyrir farþega ferjunnar. Bíll við bíl á Norðurlandsvegi Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Björt Ólafsdóttir, formaður Bjartrar framtíðar, og Páll Magnússon, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, byrja með glænýjan þjóðmálaþátt á K100 á sunnudögum. Er fyrsti þátturinn núna á páskadag kl. 10. Þættirnir bera heitið Þingvellir og verða pólitík og málefni líðandi stundar í for- grunni. Nýju þáttastjórnendurnir voru spenntir fyrir verkefninu þegar Morgunblaðið náði af þeim tali og voru sammála um að hlutirnir yrðu ræddir á mannamáli. „Við erum bæði þekkt fyrir það að vera ekkert að sykurhúða hlutina neitt sérstaklega mikið og fáum nátt- úrulega rými til þess þarna því við er- um ekki fjölmiðlamenn, heldur stjórnmálamenn sem og manneskjur með miklar skoðanir,“ segir Björt. „Ég held að þetta verði mjög skemmtilegt. Samsetningin er áhuga- verð, Björt er formaður í stjórn- málaflokki, ég ekki, ég sit inni á þingi, hún ekki, þannig að við komum að þessari pólitík og samfélagsmálum hvort úr sinni áttinni og auðvitað hvort úr sínum flokknum,“ segir Páll og bætir við að það skemmtilegasta við þetta sé að þau séu ósammála. „Það er alveg vitað og þess vegna stillum við þessu þannig upp,“ segir Björt. Þarf ekki að þykjast lengur Páll starfaði áratugum saman í fjöl- miðlum áður en hann varð þingmaður en segir að þessi þáttur verði við- brigði fyrir sig. „Ég hef verið alla æv- ina í fjölmiðlum og alltaf verið að keppast við það að halda aftur af þeim skoðunum sem ég hef og unnið þannig að ekki megi lesa úr því hvor- um megin hryggjar ég er. Nú er ég ekkert að þykjast neitt; nú er ég bara þar sem ég er og Björt er þar sem hún er,“ segir Páll. Þau eru sammála um að fyrirkomulagið veiti þeim meira frelsi til að komast að kjarna hvers máls og verður þátturinn þann- ig öðruvísi en aðrir helgarmorg- unþættir. „Við viljum ekki vera að fara mikið í kringum hlutina og komast úr þess- ari froðu sem svona umræður eru oft sveipaðar í, við tölum bæði hreina ís- lensku, við Páll,“ segir Björt. Þáttunum verður skipt á milli þeirra en þau útiloka ekki að verða saman í hljóðverinu í einhverjum þáttum. Þau munu þó vinna þættina í mikilli sameiningu. Verða stjórn- málamenn og aðrir góðir gestir í hverjum þætti. Sem fyrr segir er fyrsti þátturinn á sunnudag, páskadag, kl. 10. Morgunblaðið/Eggert Samstarf Björt Ólafsdóttir, Magnús E. Kristjánsson útvarpsstjóri og Páll Magnússon eru spennt fyrir samstarfinu. Þjóðmálaþátturinn Þingvellir fer í loftið  Björt Ólafsdóttir og Páll Magnússon verða á K100 um helgar Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Hverfisráð Reykjavíkurborgar eru tíu talsins og kosta borgina um 38,7 milljónir króna á ári. Kosið er í ráð- in af borgarstjórn, til fjögurra ára í senn. Samkvæmt núverandi skipan á Samfylkingin formenn í fimm hverfisráðum, Björt framtíð á tvo formenn, VG á einnig tvo for- menn og Píratar eiga einn. Björn Gísla- son, formaður Fylkis í Árbæn- um og 8. maður á lista Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík, gerir hverf- isráðin að umræðuefni í grein sem hann skrifaði og birtist í nýjustu tölublöðum af Árbæjarblaðinu og Grafarvogsblaðinu. Í grein Björns kemur fram að formenn hverfisráða fái um 105 þúsund krónur á mánuði fyrir einn fund í mánuði og aðrir í hverfisráðum, fjórir stjórnarmenn í hverju, fái helming þeirrar upphæð- ar. Þannig er árskostnaður Reykja- víkurborgar við rekstur á hverf- isráðum um 38,7 milljónir króna. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir m.a. um hverfisráð: „Hlutverk þeirra er að stuðla að hvers konar samstarfi innan hverfis, móta stefnu og gera tillögur til borg- arráðs sem varða verksvið þeirra. Þá geta hverfisráð gert tillögur um samræmingu á þjónustu borgar- stofnana í einstökum hverfum. Hverfisráð eru vettvangur sam- ráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnu- lífs og borgaryfirvalda, og eru virk- ir þátttakendur í allri stefnumörkun hverfanna. Þannig eru hverfisráð ráðgefandi fyrir starfsemi þjónustu- miðstöðva í hverfum og eiga að stuðla að eflingu félagsauðs í hverf- um.“ Notuð sem pólitísk skiptimynt Björn segir m.a. í grein sinni: „Óánægju hefur gætt í hverfisráð- um í ljósi þess hversu litla tengingu þau hafa inn í stjórnsýslu Reykja- víkurborgar og eru aðallega umsagnaraðilar um ýmis mál en fá samt litlu ráðið … Sá háttur hefur verið hafður á að kosið er í hverfisráðin í Ráðhúsinu, í stað þess að íbúar í hverfinu fái sjálfir að kjósa sína fulltrúa í ráð- in.“ Og síðar segir Björn: „Hverfis- ráðin eiga ekki að vera notuð sem pólitísk skiptimynt fyrir gæðinga stjórnmálaflokkanna. Borgarbúar yrðu eflaust hissa ef þeir vissu hverjar launagreiðslur fyrir for- mennsku og setu í hverfisráðunum eru – sem eru tíu talsins – og hversu oft þau funda í hverjum mánuði. Almennum launamanni þætti það dágóð laun að fá 104.846 kr. fyrir einn fund í mánuði.“ Ekki náðist í S. Björn Blöndal, formann borgarráðs, í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hverfisráðin kosta um 40 milljónir  Meirihlutinn í borginni skiptir með sér formennskunni í tíu hverfisráðum Reykjavíkurborgar Björn Gíslason Morgunblaðið/Ernir Borgarstjórn Kosið er í hverfisráð í borgarstjórn, pólitískri kosningu. Séra Kristján Björnsson, sókn- arprestur í Eyrarbakkasókn, fékk flest atkvæði í kjöri vígslubiskups í Skálholtsumdæmi, 47,5% atkvæða. Vantaði hann 17 atkvæði upp á meirihluta greiddra atkvæða. Því þarf að greiða atkvæði að nýju og kj́ósa þá á milli hans og séra Eiríks Jóhannssonar, prests við Háteigs- kirkju, sem fékk næstflest atkvæði, eða 246 talsins. Kosið var á milli þeirra þriggja presta sem flestar tilnefningar fengu í forvali. Séra Axel Árnason, héraðsprestur á Suðurlandi, fékk 89 atkvæði og er því úr leik. Á kjörskrá voru 939 manns, bæði lærðir og leikir. Kosningaþátttaka var um 68%. Síðasta umferð vígslubiskups- kjörs hefst 20. apríl og stendur til 4. maí. Kemur þá í ljós hvort Kristján eða Eiríkur verður vígslubiskup í Skálholtsumdæmi. Kristján Valur Ingólfsson sinnir verkefnum fyrir embættið þangað til. helgi@mbl.is Kristján Björnsson Eiríkur Jóhannsson Vantar 17 atkvæði upp á að ná kjöri í Skálholti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.