Morgunblaðið - 29.03.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
Rafrænt stjórnarkjör 9. til 13. apríl
Rafrænt stjórnarkjör fer fram á vef sjóðfélaga á www.lifsverk.is
dagana 9. – 13. apríl. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal
kjósa um tvö laus stjórnarsæti, karls og konu, til þriggja ára.
Í framboði eru Eva Hlín Dereksdóttir, Freyr Ólafsson, Gnýr
Guðmundsson, Helga Viðarsdóttir, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir,
Sverrir Bollason og Unnar Hermannsson. Kynning frambjóð-
enda er á vefsvæði sjóðsins. Sjóðfélagar eru hvattir til að nýta
kosningarétt sinn.
Um Lífsverk lífeyrissjóð:
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða en allir geta
greitt til séreignardeilda sjóðsins. Sérstaða sjóðsins er m.a. sjóðfélaga-
lýðræði, rafrænt stjórnarkjör, góð réttindaávinnsla og hagstæð sjóð-
félagalán. Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok 2017 var samtals 80,9
milljarðar kr. og hækkaði um 7,9 milljarða kr. á árinu. Í árslok 2017
var heildartryggingafræðileg staða samtryggingardeildar jákvæð um
1,5%. Hrein raunávöxtun sl. 5 ár er 5,0%
Nánari upplýsingar á www.lifsverk.is.
Hrein raunávöxtun samtryggingardeildar
Aðalfundur Lífsverks lífeyrissjóðs
Engjateigi 9 – Reykjavík - Þriðjudaginn 17. apríl kl. 17:00
5 ára meðaltal
Hrein raunávöxtun – Samtryggingardeild
Dagskrá fundar:
Hefðbundin aðalfundarstörf
Niðurstaða rafræns stjórnarkjörs
Tillögur til breytinga á samþykktum
Önnurmál, löglega upp borin
Engjateigur 9 105 Reykjavík
www.lífsverk.is
Hrein nafnávöxtun Hrein raunávöxtun
Samtryggingardeild 5,3% 3,6%
Lífsverk 1 6,2% 4,4%
Lífsverk 2 7,4% 5,6%
Lífsverk 3 4,9% 3,1%
Ávöxtun 2017:
9,0%
8,0%
7,0%
6,0%
5,0%
4,0%
3,0%
2,0%
1,0%
0,0%
2013 2014 2015 2016 2017
Það bárust um það óljósarfréttir í vikunni að dularfull,
hægfara skotheld járnbrautarlest
hefði silast að norðan til Kína og
væri ólík öðrum
lestum í þessum
heimshluta. Gam-
alreyndir frétta-
haukar töldu sig
þar þekkja lestina
sem Kim Jong-il,
faðir hins nú elsk-
aða leiðtoga Norð-
ur-Kóreu, notaði á
ferðalögum til Kína og Rússlands.
Var Kim Jong-il sagður flug-hræddur og notaði því að-
eins jarðbundin farartæki. Kim
Jong-un á hins vegar forsetaþotu
og notar hana innanlands. Hann
hafði ekki ferðast til útlanda frá
því að hann erfði forsetaemb-
ættið frá pabba.
Þegar fréttist af gulgrænu lest-inni var spurt hvers vegna
ekki hefði verið sagt fyrirfram
frá hinni opinberu heimsókn al-
valdsins til Kína. Svarið fannst
einnig með því að gramsa í for-
tíðinni.
Kim Jong-il lét aldrei upplýsaum sínar ferðir fyrr en hann
var kominn heim aftur. Talið var
að hann óttaðist að þeir hershöfð-
ingjar sem elskuðu hann jafnvel
enn meir en þjóðin kynnu að
hugsa sitt, eins og mýs gera þeg-
ar kötturinn er að heiman.
Góðu fréttirnar eru þær aðKim ungi á að hafa sagt Xi
Jingpin forseta Kína að hann sé
nú reiðubúinn að setja kjarn-
orkuáætlanir sínar á hilluna. Það
kann að skyggja nokkuð á þessa
frábæru frétt að fullyrt er að
þeir eigi það sameiginlegt Kim-
ararnir Il-sung, Jong-il og Jong-
un að lítið sé að marka loforð
þeirra um kjarnorkumál.
Kim Jong-un
Karlleggirnir Kim
líka óöruggir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.3., kl. 18.00
Reykjavík 8 skýjað
Bolungarvík 4 hagl
Akureyri 5 alskýjað
Nuuk -2 heiðskírt
Þórshöfn 4 rigning
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 0 skýjað
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki -1 skúrir
Lúxemborg 8 rigning
Brussel 8 súld
Dublin 6 skúrir
Glasgow 6 rigning
London 7 skúrir
París 10 skýjað
Amsterdam 5 skúrir
Hamborg 3 rigning
Berlín 1 skýjað
Vín 9 skýjað
Moskva -4 léttskýjað
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 20 heiðskírt
Barcelona 19 heiðskírt
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 15 léttskýjað
Aþena 12 skýjað
Winnipeg -7 snjóél
Montreal 3 þoka
New York 6 alskýjað
Chicago 4 þoka
Orlando 24 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:56 20:10
ÍSAFJÖRÐUR 6:58 20:18
SIGLUFJÖRÐUR 6:41 20:01
DJÚPIVOGUR 6:25 19:40
Eigandi hlutabréfa í útgerðinni Hvalur hf. hefur
farið þess á leit við stjórn félagsins að 20% af
hlutabréfum í félaginu verði gerð ógild þar sem
þau hafa glatast, og að ný bréf verði gefin út í stað-
inn.
Í Lögbirtingablaðinu birtist auglýsing um
beiðnina og eru handhafar hlutabréfanna sem um
ræðir beðnir að gefa sig fram við stjórn félagsins
innan þriggja mánaða ellegar falli niður öll réttindi
á hendur félaginu samkvæmt hlutabréfinu og ný
hlutabréf verði gefin út handa skráðum eigendum.
3,3 milljarðar af eigin fé
Hlutabréfin sem um ræðir eru 59 talsins og
nafnvirði þeirra um 21% af nafnvirði félagsins. Í
ársreikningi Hvals hf. fyrir árið 2016 er eigið fé fé-
lagsins 15,8 milljarðar króna og samsvarar eign-
arhlutur týndu bréfanna því um 3,3 milljörðum af
eigin fé þess.
Hvalur hf. er eigandi Vogunar hf. og Væntingar
hf. og á 33,7% hlut í HB Granda, 38,7% hlut í
Hampiðjunni og 16,6% hlut í Origo gegnum þessi
félög. Ekki náðist í Kristján Loftsson, stjórn-
arformann Hvals, við gerð fréttarinnar.
20% hlutabréfa í Hval talin glötuð