Morgunblaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018 Verð á páska- eggjum hefur lít- ið hækkað síðan í fyrra og reyndar er algengara að það hafi staðið í stað eða lækkað lítillega. Þetta sýnir ný könnun verðlagseftirlits ASÍ á verðlagi á páskaeggjum í ár og í fyrra. Undantekning voru verðhækk- anir í Hagkaup, þar hækkuðu sjö páskaegg af 15 og var mesta verð- hækkunin 26%, eða 700 kr., á Freyju-ríseggi nr. 9 og næstmesta hækkunin þar var á Góu-eggi nr. 4, sem hafði hækkað um 25%. Mest lækkuðu páskaeggin í Nettó, þar lækkuðu tíu páskaegg í verði af þeim 15 sem voru í könnuninni. Mest lækkaði sterkt Freyju-djúpuegg, um 12%. Í öðrum verslunum sem kannaðar voru mátti finna smávægilegar hækkanir og lækkanir á víxl og í mörgum tilfellum stóð verðið í stað. Borið var saman verð úr verðlags- könnun ASÍ sem gerð var 6. apríl í fyrra og verð hinn 20. mars síðastlið- inn. Könnunin náði til eftirtalinna verslana: Bónuss, Krónunnar, Nettó, Fjarðarkaupa, Hagkaupa og Ice- land. Hvorki er lagt mat á gæði né þjónustu söluaðila, eingöngu er um beinan verðsamanburð að ræða. Páskaeggin hækk- uðu lítið á milli ára Páskaegg Lítil breyting á milli ára. Ranghermt var í frásögn blaðsins sl. þriðjudag um hleðslustöð Orku nátt- úrunnar í Mývatnssveit að Fosshót- elið væri í Reykjahlíð. Hið rétta er að hótelið er í Grímsstaðalandi og er beðist velvirðingar á rangherminu, sem rekja má til tilkynningar frá Orku náttúrunnar. LEIÐRÉTT Fosshótel í landi Grímsstaða www.heimavellir.is LANGTÍMASAMBAND Á LEIGUMARKAÐI Heimavellir bjóða 60 íbúðir til leigu í Boðaþingi 14-16 og 18-20 í Kópavogi. Þetta er fyrsta verkefni Heimavalla sem er sérstaklega ætlað fólki sem er 55 ára og eldra. Um er að ræða glæsilegar og vel hannaðar íbúðir í rólegu og friðsælu umhverfi rétt við Elliðavatn og Heiðmörk. Húsin eru í nágrenni við þjónustu fyrir eldri borgara. Kynntu þér málið á www.heimavellir.is Traustur leigumarkaður sem byggir á langtímasambandi er mikilvægur partur af heilbrigðum og stöðugum húsnæðismarkaði. Markmið okkar er að taka þátt í að byggja upp leigumarkað á Íslandi eins og þekkist á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. Um tvö þúsund fjölskyldur búa nú þegar í öruggri langtímaleigu hjá okkur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land. Sérhannaðar leiguíbúðir fyrir 55 ára og eldri Morgunblaðið/Eggert Kjaramál Verðandi hjúkrunarfræð- ingar krefjast hærri grunnlauna. frá 1. júní á þessu ári 395.991 kr. samkvæmt gerð- ardómi sem er nú í gildi. Hjúkrunar- fræðinemar áttu fund með Páli og stjórnendum Landspítala á þriðjudag þar sem kom fram að Landspítali hefði ekki umboð til að breyta grunnlaunum vegna gildandi Landspítali getur ekki samið um laun hjúkrunarfræðinga og annarra stétta en hefur svigrúm til að ráð- stafa fjármunum í verkefni sem snúa að starfsmönnum sem starfa í fram- línu spítalans og vinna vaktavinnu. Þetta segir Páll Matthíasson, for- stjóri Landspítalans, í svari við fyr- irspurn Morgunblaðsins en hjúkrun- arfræðinemar á lokaári hafa tilkynnt að þeir hyggist ekki sækja um á spít- alanum verði grunnlaun þeirra ekki hækkuð upp í 450 þúsund krónur. Grunnlaun hjúkrunarfræðinga eru gerðardóms. Páll segir hins vegar að spítalinn hafi ráðist í verkefni sem snúa að hærri grunnröðun í launa- töflu tengt breyttum vinnutíma og vinnuskipulagi, sérstökum álags- auka fyrir utan dagvinnutíma og sér- stakri umbun fyrir helgarvinnu á sumrin. „Hjúkrunarfræðingur sem hagar sinni vinnu þannig að hann taki þátt í öllum þessum verkefnum fær hærri laun en markmið nemanna kveður á um og auk þess er greitt kjarasamn- ingsbundið vaktaálag fyrir vinnu ut- an dagvinnutíma,“ segir Páll. Hann segir skort á hjúkrunar- fræðingum þegar mjög alvarlegan á Landspítala og mikilvægi þess að hjúkrunarfræðinemarnir komi til starfa á spítalanum að lokinni út- skrift sé því óumdeilt. „Að þessi hóp- ur starfi ekki á Landspítala mun auka vandann enn frekar,“ segir Páll en í dag starfa tæplega þúsund hjúkrunarfræðingar í vaktavinnu á Landspítalanum og skrifuðu 96 und- ir yfirlýsingu nemenda til stjórnend- anna. ash@mbl.is Verkefni til að toga laun upp  Páll segir laun starfsmanna á Landspítala hækkuð með sérstökum verkefnum Páll Matthíasson „Við munum að sjálfsögðu fylgj- ast náið með mál- unum og bregð- ast við ef þörf krefur,“ segir Svanhvít Frið- riksdóttir, upp- lýsingafulltrúi WOW air, um boðað verkfall opinberra starfs- manna í Danmörku frá 4. apríl. Meðal þeirra sem þá gætu lagt nið- ur störf eru veðurfræðingar og flugumferðarstjórar. Spurð hvort verkfallið muni hafa áhrif á ferðir WOW air til Kaupmannahafnar segir Svanhvít svo ekki vera. „Flug- afgreiðsluaðili okkar í Kaupmanna- höfn metur að svo stöddu að boðað verkfall muni ekki hafa áhrif á flugferðir WOW air til og frá Kaup- mannahöfn,“ segir Svanhvít. Ekki náðist í Guðjón Arn- grímsson, upplýsingafulltrúa Ice- landair. Verkfallið hefur ekki áhrif á flugferðir Svanhvít Friðriksdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.