Morgunblaðið - 29.03.2018, Page 10

Morgunblaðið - 29.03.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018 Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist á rúðuna / sólaselluna u Eykur öryggi og útsýni allt að tvöfalt í bleytu og rigningu u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla, snjór og ísing safnist á rúðuna u Heldur regnvatni frá rúðunni u Býr til brynju á rúðunni fyrir leysiefnum og vökvum u Þolir háþrýstiþvott u Virkar við -30°C til + 30°C u Endingartími er 6 – 12 mánuðir Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Fækkaðu hleðslu- tækjunum á heimilinu, skrifstofunni eða sumar- bústaðnum. Tengill með USB KRINGLU OG SMÁRALIND S C S Ö S Ó DÖMUSKÓR KE HER FLEX APPEAL D MU K R MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI. STÆRÐIR 36-41 VERÐ: 12.995 Búið er að veiða um 28.600 tonn af kol- munna í ár samkvæmt yfirliti á vef Fiskistofu og er þá eftir að veiða 286 þúsund tonn af aflaheimildum ársins, að meðtöldum sérstökum úthlutunum og flutningi á milli ára. Að lokinni loðnuvertíð fóru uppsjáv- arskipin til veiða á alþjóðlegu hafsvæði vestur af Írlandi og aflaðist ágætlega þar fram eftir mánuðinum. Undir 20. mars var kolmunninn hins vegar geng- inn inn í skoska lögsögu og skipin héldu heim á leið. Mörg þeirra náðu 1-2 túrum áður en kolmunninn hvarf. Aflahæst er Guðrún Þorkelsdóttir frá Eskifirði með tæplega 5.700 tonn, en skipið var ekki á loðnuveiðum í vetur. Takmarkanir á kolmunna- veiðum við Færeyjar Í reglugerð um kolmunnaveiðar sem gefin var út í byrjun febrúar er kveðið á um að a.m.k. 25% af kol- munnaveiði íslenskra skipa skuli fara fram í íslenskri lögsögu eða á al- þjóðahafsvæði, en Ísland og Færeyjar hafa með sér samning um gagn- kvæman aðgang að lögsögum til kol- munnaveiða. Reikna má með að íslensku skipin haldi á Færeyjamið í vikunni eftir páska, en þar hefur kolmunni byrjað að veiðast nokkuð reglulega um 10. apríl. Veiðar íslenskra skipa eru tak- markaðar við 15 skip á sama tíma. Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) ráðlagði síðastliðið haust að hámarks- afli á kolmunna á þessu ári skyldi ekki vera umfram 1.387.872 tonn og var það viðmið samþykkt af öllum hlutaðeig- andi strandríkjum. Reglugerð sjávar- útvegsráðuneytisins kveður á um að hlutur Íslands verði 293 þúsund tonn, sem nemur 21,1% af ráðlögðum heild- arafla. Samkvæmt eldri kolmunna- samningi, sem ekki er lengur virkur, hafði Ísland 16,23% hlutdeild í heildar- aflamarki. Aukningin í 21,1% endur- speglar vegið meðaltal á þeirri aukn- ingu sem önnur strand- og veiðiríki hafa tekið sér í ár, sagði í frétt ráðu- neytisins 1. febrúar sl. aij@mbl.is Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Vertíð Á kolmunnaveiðum á Víkingi AK 100 í færeyskri lögsögu í fyrravor. Næst til kolmunna- veiða við Færeyjar  Búið að veiða tæplega 30 þús. tonn Hjá Kirkjugörðum Reykjavíkurpró- fastsdæma ráða aðstandendur því hvað er sett á leiði til að prýða það. Finni vinur eða fjarskyldur ættingi hjá sér hvöt til að setja blómsveig eða krans á leiði eftir jarðsetningu þarf viðkomandi að fá til þess leyfi hjá nán- ustu aðstandendum hins látna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófasts- dæma sem Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri kirkjugarðanna, sendi fjöl- miðlum í gær. Tilefnið er fréttaflutn- ingur um áhöfn grænlenska togarans Polar Nanuk, sem lagði nýverið blóm- sveig á leiði Birnu Brjánsdóttur í Fossvogskirkjugarði. „Ég er ekki með þessu að segja að blómsveigur áhafnarinnar hafi ekki verið virðingarvottur, ég er hér að tala um framkvæmdina. Hún var röng,“ segir Þórsteinn. Hefði áhöfnin kynnt sér viðhorf að- standenda hefði komið í ljós að þeir kærðu sig ekki um slíkt. Fjölskylda Birnu hafi sett sig í samband við kirkjugarðinn og lagt fram kvörtun. Aðspurður segir Þórsteinn regl- urnar um umgengni í kirkjugörðum borgarinnar vera óskrifaðar, en starfsmenn reyni að breiða þær út. Ekki sé þó nokkur leið að fylgja þeim eftir. „Kirkjugarðarnir eru um 70 hektarar með þúsundum leiða sem fólk hefur frjálsan aðgang að.“ Þá tekur Þórsteinn fram að myndatökur séu bannaðar í kirkju- görðum nema tryggt sé að ekki komi fram nöfn og áletranir á minningar- mörkum. Þetta hafi verið þverbrotið í þessu tilviki, þar sem mynd af leiði Birnu var birt í fjölmiðlum. alexander@mbl.is Kransinn lagður í óþökk foreldra Birnu  Foreldrar lögðu fram kvörtun  Myndatökur bannaðar Morgunblaðið/Ómar Fossvogskirkjugarður Leyfi þarf hjá ættingjum til að skreyta leiði. Fyrstu lóurnar sáust í Flóanum í gær, væntanlega til að kveða burt snjóinn, og þar með er vorið komið í augum margra. Aðeins tvisvar hafa lóurnar komið seinna en núna, það var árin 1999 og 2001 en meðalkomudagur þeirra á tímabilinu 1998-2017 er 23. mars. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræð- ingur segir að ástæða þessarar sein- komu lóunnar í ár geti verið að und- anfarið hafi áttirnar ekki verið fuglinum hagstæðar. „Norðaust- anáttin, sem verið hefur að und- anförnu, blæs á móti lóunni á leið hennar frá vetrarheimkynnum. Það er ekkert vit fyrir hana að leggja af stað í mótvindi, fuglar bíða hann gjarnan af sér,“ segir Jóhann Óli. Vetarheimkynni lóunnar eru í Vestur-Evrópu, aðallega á Írlandi en einnig í Frakklandi, Portúgal og á Spáni. Spurður hversu lengi fuglinn sé á leiðinni þaðan og hingað heim segir Jóhann Óli það ekki vitað með vissu. „Lóan er of lítil til að hægt sé að festa á hana staðsetningartæki og sendi eins og stærri fugla, en sé mið- að við hversu langan tíma það tekur t.d. álftir að fljúga frá þessum slóð- um má giska á að lóan sé 10-16 klukkutíma á leiðinni,“ segir Jóhann Óli. Lóan er komin til landsins  Hefur tvisvar verið seinna á ferðinni Ljósmynd/Alex Máni Guðríðarson Hún er komin Vorboðinn ljúfi kom til landsins í gær og sást sá fyrsti í Flóan- um. Lóan er vaðfugl og útbreiddur varpfugl um landið, einnig á hálendinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.