Morgunblaðið - 29.03.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
VISTVÆNAR
BARNAVÖRUR
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Sundföt
2018
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Ný sending af
sundfatnaði frá
Calvin Klein
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík
Sími 569-6000 - www.os.is
Ársfundur
Orkustofnunar 2018
Fundurinn verður haldinn 11. apríl
14:00 - 17:00 - Grand Hótel Reykjavík
D A G S K R Á
13:45 Mæting
14:00 Ávarp ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
14:15 Ávarp orkumálastjóra - Dr. Guðni A. Jóhannesson
14:30 Nordic EV Outlook 2018 and electrification of the
Nordic energy system - Sacha Scheffer, Analyst,
Energy Efficiency Division/Energy Technology Perspectives
Division, International Energy Agency
15:00 Rafmagn sem orka í samgöngum
Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar
15:15 Kaffihlé
15:30 Kolefnishlutlaus Eyjafjörður
GuðmundurHaukur Sigurðarson, framkvæmdastjóri Vistorku
15:45 Evrópusamstarf umtækniþróun í orkumálum, SET-Plan
Dr. Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri,
fulltrúi Íslands í SET-Plan
16:00 Geothermica - fjölþjóðlegar rannsóknir á sviði
jarðvarma innan EES / ESB
Hanna Björg Konráðsdóttir, verkefnisstjóri GEORG
og Geothermica
16:15 Orkuskipti í almenningssamgöngum
Jóhannes S. Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó
16:30 Fundarlok / Léttar veitingar
Fundarstjóri: Baldur Pétursson, verkefnisstjóri
- fjölþjóðleg verkefni og kynningar, Orkustofnun
Fundurinn verður sendur út á netinu á os.is
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@mbl.is
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þing-
maður Framsóknarflokksins, hefur
lagt fram frumvarp á Alþingi um
breytingar á barnaverndarlögum
og almennum hegningarlögum,
sem miða að því að hægt verði að
auka eftirlit með dæmdum barna-
níðingum og skylda þá til að gang-
ast undir áhættumat, ásamt því að
styrkja stöðu
Barnaverndar-
stofu.
„Þetta gengur
í raun út á að
tengja saman að-
ila sem hafa með
þessi mál að
gera og þar með
tryggja eftirlit,
ásamt því að
flokka þennan
hóp brotamanna.
Það gengur út á að finna hvaða að-
ilar það eru sem eru líklegir til að
brjóta af sér að nýju. Það eru ekki
margir einstaklingar sem falla í
þennan hættulegasta hóp en það er
mjög mikilvægt að ná utan um
hópinn og veita þessum ein-
staklingum aukið eftirlit,“ segir
Silja Dögg í samtali við mbl.is.
Ef frumvarpið nær fram að
ganga mun Barnaverndarstofa
m.a. geta tilkynnt viðkomandi
barnavernd ef dæmdur kynferðis-
brotamaður, sem gerst hefur brot-
legur gagnvart börnum og veruleg
hætta er talin stafa af, flytur í um-
dæmið. Ef rík barnaverndarsjónar-
mið mæla með getur barnavernd
einnig gert öðrum viðvart að
fengnu samþykki Barnaverndar-
stofu.
Þá verður einnig hægt að gera
kröfu um að viðhafðar séu
ákveðnar öryggisráðstafanir eftir
að einstaklingur sem brýtur kyn-
ferðislega gagnvart barni afplánar
dóm sinn, ef verulegar líkur eru
taldar á því, samkvæmt mati heil-
brigðisstarfsmanns, að viðkomandi
brjóti aftur gagnvart barni.
Eftirfarandi öryggisráðstafanir
verður hægt að kveða á um í dómi:
Skyldu til að sinna nauðsynlegri
meðferð á vegum heilbrigðisstarfs-
manna, skyldu til að mæta í skipu-
lögð viðtöl hjá félagsþjónustu, eft-
irlit með netnotkun og notkun
samskiptamiðla og -forrita, að ein-
staklingur haldi sig frá neyslu
áfengis og vímuefna, eftirlit með
heimili og bann við búsetu á heim-
ili þar sem börn eru búsett eða
dvelja reglulega.
Ef í ljós kemur að einstaklingur
sinnir ekki fyrirmælum um örygg-
isráðstafanir getur það varðað allt
að tveggja ára fangelsi.
Skylt að tilkynna
um breyttan dvalarstað
Aðrar breytingar, sem kveðið er
á um í frumvarpinu, eru m.a. þær
að þegar dómar falla vegna kyn-
ferðisbrota gagnvart börnum skal
ríkissaksóknari láta Barnaverndar-
stofu dómana í té. Þá skal Fangels-
ismálastofnun veita upplýsingar
um upphaf og lok afplánunar, sem
og skilyrði sem sett eru fyrir
reynslulausn, fyrirhugaðan dval-
arstað viðkomandi einstaklings,
auk gagna frá heilbrigðisstarfs-
mönnum um einstaklinginn.
Níðingar geti ekki
farið huldu höfði
Silja Dögg með frumvarp til að auka
eftirlit með dæmdum barnaníðingum
Silja Dögg
Gunnarsdóttir
Íslendingur á fertugsaldri er al-
varlega slasaður eftir bílslys á
Möltu í fyrrakvöld. Sveinn H. Guð-
marsson, upplýsingafulltrúi utan-
ríkisráðuneytisins, staðfesti þetta
við mbl.is í gær. Maðurinn var far-
þegi í bíl en slysið varð þegar 24
ára kona missti stjórn á bifreið. Ís-
lendingurinn og annar farþegi, 26
ára heimakona, slösuðust töluvert.
Á vefsíðu lögreglunnar á Möltu
kom fram í gær að 32 ára gamall Ís-
lendingur væri alvarlega slasaður
eftir bílslys. Sveinn H. Guðmarsson
sagði í samtali við mbl.is að leitað
hefði verið til borgaraþjónustu
ráðuneytisins vegna málsins. Ekk-
ert væri hægt að segja til um líðan
mannsins að svo stöddu.
Slasaðist alvarlega
í bílslysi á Möltu
Embætti landlæknis barst nýlega
ábending frá Landspítala um alvar-
legt atvik þar sem sjúklingur með
svokallað loftbrjóst hafði leitað til
bráðamóttöku og gengist undir að-
gerð í kjölfar áverka eftir nálastung-
ur. Sjúklingurinn var ólétt kona og
var hún í bráðri lífshættu er hún kom
á bráðamóttökuna, að því er fram
kemur á vefsíðu Landlæknis.
Konan hafði farið í meðferðina til
að bæta úr meðgönguógleði, en loft-
brjóst er þekktur fylgikvilli nála-
stungna á bol- og hálssvæði. Loft-
brjóst verður er gat kemur á lungað
og það fellur saman en það getur
hindrað öndun.
Fylgikvillar eru sjaldgæfir
en alvarlegir
Landlækni hafa áður borist til-
kynningar um áverka af þessu tagi
og er, að mati landlæknis, fullt tilefni
til að vara við því að þjónustu eða
meðferðar sé leitað hjá ófaglærðum
áhugamönnum. Á það sérstaklega
við um viðkvæma einstaklinga, ólétt-
ar konur, börn og sjúklinga.
Í tilkynningu frá landlækni segir
enn fremur að gagnsemi nálastungu-
meðferðar sé umdeild. Þótt fylgi-
kvillar hennar séu fremur sjaldgæfir
geti afleiðingar þeirra verið mjög al-
varlegar og í sumum tilfellum lífs-
hættulegar, eins og í tilfelli konunn-
ar.
„Auk loftbrjósts og ástungu í önn-
ur viðkvæm líffæri, hafa komið upp
alvarlegar sýkingar í kjölfar slíkra
meðferða. Sem dæmi má nefna að
nýlega lést maður í Noregi af sýk-
ingu eftir nálastungur á hendi. Þá
vöruðu dönsk yfirvöld á síðasta ári
við áhættu af nálastungum eftir fjög-
ur alvarleg tilfelli það sama ár, þar af
eitt dauðsfall,“ segir í tilkynningunni.
Kona í lífshættu
eftir nálastungur
Barnshafandi kona hafði leitað í með-
ferðina vegna ógleði á meðgöngu