Morgunblaðið - 29.03.2018, Side 12

Morgunblaðið - 29.03.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018 Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Við höfum boðið upp á nám-skeið fyrir börn og ung-linga og verið að prufaokkur áfram í nokkurn tíma með lengri námskeið fyrir full- orðna. Af því tilefni vorum við með skapandi skrif á Kjarvalsstöðum í tengslum við sýningu þar og í fyrra- sumar með námskeið í tengslum við sýningu Ragnars Kjartanssonar í Listasafni Reykjavíkur. Námskeiðin hafa gengið ljómandi vel. Í apríl verðum við með námskeið í fjórum hlutum sem fram fer alla laugardaga í þeim mánuði. Námskeiðið er um líf og list Ásmundar Sveinssonar, myndhöggvara Námskeiðið er í tengslum við sýninguna List fyrir fólkið sem er yfirlitssýning á verk- um Ásmundar í Ásmundarsafni,“ segir Sirra Sigrún Sigurðardóttir, verkefnastjóri viðburða hjá Lista- safni Reykjavíkur. „Ásmundur Sveinsson er skemmtilegur, hann var alþýðlegur listamaður og margir hafa mikinn áhuga á honum. Námskeiðið tekur jafnt yfir líf hans og feril sem og áherslur hans í arkitektúr og skipu- lagsmálum og tengsl hans við alþjóð- legar stefnur á þeim tíma sem hann var uppi,“ segir Sirra og bætir við að unga kynslóðin sé nýr hópur gesta og þau hafi fengið tækifæri til þess að kynnast Ásmundi í gegnum sýn- ingar á safninu þar sem listamenn hafi boðið upp á sýningar með verk- um Ásmundar í ólíkum listformum. „Það er ánægjulegt að sjá að draumur Ásmundar sem vildi að list- in væri fyrir fólkið og út um alla borg sé nú að rætast því nú er gert ráð fyrir listinni í almannarými við skipulag nýrra hverfa í höfuðborg- inni,“ segir Sirra sem vill benda á að nauðsynlegt sé að skrá sig á nám- skeiðið um Ásmund Sveinsson á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur eða í síma 4116400. Kynnti nýjar hugmyndir Í kynningu Listasafns Reykja- víkur kemur fram að Ásmundur hafi verið einn af frumkvöðlum íslenskr- ar höggmyndalistar og kynnt fyrir landsmönnum nýjar hugmyndir um myndlist 20. aldar. Verk Ásmundar eru á opinberum stöðum víða um land og setja svip sinn á Reykjavík. Í tilefni yfirlitssýningari á verkum Ás- mundar sem staðið hefur yfir frá maí 2017 var gefin út bók sem ætlað var að varpa ljósi á feril Ásmundar og stöðu hans í íslenskri listasögu út frá ólíkum sjónarhornum. Myndlist hluti af umhverfinu Hjálmar Sveinsson hefur lengi haft áhuga á verkum Ásmundar. Hjálmar segir Ásmund hafa frá upp- hafi verið með mjög skýra sýn á að listamenn hefðu mikilvægu hlut- verki að gegna í mótun borga. Ás- mundur hafi í raun verið á sama báti og Bauhaus-skólinn í Þýskalandi sem stofnaður var árið 1919. Skólinn kynnti og kenndi háleitar hug- myndir um að listamenn, arkitektar og verkfræðingar ættu að vinna saman að uppbyggingu nútímaborga í nútímaheimi. Hjálmar segir að sú hugsjón Ásmundar hafi aldrei orðið að veru- leika, hvorki í Reykjavík né annars staðar. Hann segir að uppbygging borga lúti að miklu leyti efnahags- legum öflum og miklum þrýstingi um sem hraðasta og skilvirkasta uppbyggingu á íbúðarhúsnæði og listræn sýn fái lítið pláss. „Ásmund- ur gerði það sem hann gat til þess að láta drauminn raungerast. Hann taldi að myndlistin ætti að vera hluti af hinu byggða umhverfi en ekki sem montstyttur uppi á stalli, eins og hann orðaði það sjálfur,“ segir Hjálmar og bætir við að sennilega ætti enginn íslenskur listamaður jafnmikið af verkum í almennings- rými í Reykjavík og Ásmundur. Ekki nóg með það, heldur hefði hann hannað og byggt að miklu leyti sjálf- Vildi að listin væri út um allt fyrir fólkið Í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, List fyrir fólkið, í Ásmundarsafni býður Listasafn Reykjavíkur upp á námskeið um líf og list Ásmundar alla laugardaga í apríl. Ásmundur er talinn vera einn af frumkvöðlum íslenskar höggmyndalistar og kynnti landsmönnum nýjar hugmyndir um myndlist 20. aldar. Hann var afkastamikill myndhöggvari og eru verk hans á opinberum stöðum víða í Reykjavík og um allt land. Afkastamikill Verk Ásmundar má finna í Ásmundarsafni, á opinberum stöðum í Reykjavík og á landsbyggðinni.Þannig vildi Ásmundur hafa það. Fræðsla Tekið er á móti hópum í Ásmundarsafni, allt frá leikskólabörnum til eldri borgara. Á myndinni er Klara Þórhallsdóttir, verkefnastjóri fræðslu hjá Listasafni Reykjavíkur, með áhugasaman hóp að kynna sér listina. Fjölhæfur Verk Ásmundar eru af mörgum stærðum og gerðum. Ljósmyndir/Listasafn Reykjavíkur Bjartmar Guðlaugsson, hinn eini sanni, spilar á kvöldvöku í Gamla kaupfélaginu á Akranesi laugardag- inn 31. mars kl. 21.00. Bjartmar þekkja flestir Íslend- ingar vel enda hefur hann starfað í íslensku tónlistarlífi sem flytjandi og höfundur frá unga aldri. Bjart- mar hefur á ferlinum samið ótal vin- sæl lög og ljóð sem átt hafa sam- leið með þjóðinni en hann er t.a.m. höfundur lagsins Þannig týnist tím- inn, sem valið var óskalag þjóð- arinnar árið 2014. Á tónleikunum á laugardaginn munu margar af perlum Bjartmars hljóma í bland við spaugilegar sögur með grátbroslegum undirtóni. Fastlega má reikna með því að í Gamla kaupfélaginu hljómi lög eins og Sumarliði, Fúll á móti, Týnda kynslóðin, Súrmjólk í hádeginu, Bissí Krissí, Kótilettukarlinn og Æskan með vottorð í leikfimi. Aðstandendur kvöldvökunnar bú- ast við að ástarljóð, kærleikur og undur heimsins muni fljúga um sal- inn og rokkið lifi. Páskar með Bjartmari Tónlistin hljómar í gamla Kaup- félaginu á Akranesi á páskum Tónskáld Bjartmar Guðlaugsson hefur glatt landann með lögum og textum um langt skeið. Bjartmar spilar fyrir Skagamenn á laugardaginn fyrir páska. Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt Nýtt og fallegt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.