Morgunblaðið - 29.03.2018, Blaðsíða 13
Yfirlitssýning Á sýningunni List fyrir fólkið gefst gestum kostur á að sjá fjölbreytt verk höggmyndarans. Mörg
minni verk Ásmundar eru ekki eins þekkt og þau en sjá má frummyndir stærri verka í minni útgáfum á sýningunni.
ur hús sín við Freyjugötu og Sigtún.
Hjálmar segir að í dag séu lista-
menn ekki mjög spenntir fyrir því að
búa til listaverk sem eru bara til
skrauts.
„Þátttaka Ólafs Elíassonar í
hönun Hörpu þar sem hann vann
með arkitektum og verkfræðingum
er dæmi um það. Sama má segja um
verk Ólafar Nordal, Þúfu, niðri við
gömlu höfn.“
Hjálmar segir að Ásmundur
hafi búið nokkuð lengi erlendis og
listsköpun hans hafi meðal annars
mótast af því sem var að gerast í Sví-
þjóð og París á 3. og 4. áratug síð-
ustu aldar.
„Sum verka Ásmundar voru
gríðarlega umdeild á sínum tíma og
má þar nefna Vatnsberann, sem mér
þykir skrýtið í dag að hafi verið um-
deilt verk,“ segir Hjálmar og rifjar
það upp að Fegrunarfélag Reykja-
víkur, með menntaða góðborgara í
fararbroddi, vildi á fimmta áratugn-
um fá styttu frá Ásmundi í almenn-
ingsgarð sem náði frá Bankastræti
neðan við torfuna að Mæðragarð-
inum á móts við Iðnó.
„Þar átti að setja niður Vatns-
berann. Við gerð hans var Ásmund-
ur á hraðleið frá hlutbundinni list yf-
ir í óhlutbundna það er að segja
abstrakt list. Skrifuð voru stóryrt
lesendabréf gegn þessari afmyndun
líkamans og sagt að ekki mætti setja
styttuna niður á fyrirhuguðum stað.
Þetta gekk eftir og hætt var við að
setja Vatnsberann þarna nið-
ur,“segir Hjálmar og bætir við að
styttan hafi verið sett upp löngu síð-
ar í Öskjuhlíðinni en í tíð Jóns Gnarr
sem borgarstjóra hafi Vatnsberinn
verið færður á hornið við Banka-
stræti og Lækjargötu, mjög nálægt
upphaflegri staðsetningu.
Hjálmar segir að góð list í op-
inberu rými geti átt mikinn þátt í því
að gera umhverfi í borgum áhuga-
verðara, skemmtilegra og mann-
eskjulegra.
„Í uppbyggingu þétting-
arsvæða í Reykjavík er nú gert ráð
fyrir listum í opinberu rými eins og
til dæmis á Kirkjusandi og í Voga-
byggð. Listsköpunin þar verður
fjármögnuð með ákveðnum hætti og
samningum við lóðarhafa á hverju
svæði. Samkeppnin hefur þegar ver-
ið auglýst. Listköpun mun því gegna
mikilvægu hlutverki í þessum nýju
hverfum,“ segir Hjálmar og bætir
við að Ásmundi hefði líkað það.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
Námskeiðið um
Ásmund
Sveinsson
byggist á
rannsóknar-
vinnu sem unn-
in var í
tengslum við
bókina um
hann sem gefin
var út árið
2017.
Á fyrsta
hluta nám-
skeiðsins 7.
apríl mun
Kristín Guðna-
dóttir listfræð-
ingur fjalla um
líf og feril Ás-
mundar og
taka fyrir
ákveðin tímabil
í list hans, per-
sónulega hagi
og samfélags-
lega þætti sem
höfðu áhrif á
þróun listar
hans.
Eiríkur Þorláksson listfræð-
ingur fjallar 14. apríl um al-
þjóðleg áhrif í myndlist Ásmund-
ar en höggmyndir hans eru
tengdar almennri þróun evr-
ópskrar högmyndalistar.
Hús Ásmundar Sveinssonar
við Freyjugötu og Sigtún og
áhugi hans á húsagerð og list-
rænni mótun borgarumhverfis
verða til umfjöllunar hjá Pétri H.
Ármannssyni 21. apríl.
Botninn í námskeiðið slær
Hjálmar Sveinsson, heimspek-
ingur og borgarfulltrúi, hinn 28.
apríl en hann mun fjalla um list
Ásmundar í almenningsrými.
Hjálmar ræðir hvaða hlutverki
útilistaverk gegni í Reykjavík og
veltir því upp hvers konar listar
samfélagið þarfnist.
Námskeið um skemmtilegan
og alþýðlegan listamann
LÍF OG LIST ÁSMUNDAR
Fyrirlesarar Kristín Guðnadóttir, Eiríkur Þorláksson, Pétur H.
Ármannson og Hjálmar Sveinsson þekkja vel til Ásmundar.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Klassísk gæða húsgögn
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
á góðu verði
Sófasett
Borðstofuborð
Stólar
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
Kommóður/hillur
o.m.fl.
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL VIKTOR
Hvíldarstóll
BELLUS VISBY
Hornsófi
PIERUS
2ja og 3ja sæta sófar
fáanlegt í leði og tauáklæði.
KRAGELUND K371
Kragelund stólar
K 406