Morgunblaðið - 29.03.2018, Page 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is
Bjóðum uppá húsgögn
eftir marga fræga
húsgagnahönnuði.
Mörg vörumerki.
Berlín. AFP. | Frakkinn Thomas
Cazeneuve fagnaði ákaft með
varnargóminn í munninum og
ógleði í maganum eftir að hafa mát-
að andstæðing sinn í óvenjulegri
íþrótt, skákhnefaleikum.
Cazeneuve fór með sigur af hólmi
í einvígi gegn Úkraínumanni í Berl-
ín, höfuðborg skákhnefaleikanna.
Íþróttin varð til fyrir sextán árum
þegar Iepe Rubingh, 43 ára Hol-
lendingur, ákvað að fylgja eftir
hugmynd sem hann fékk að láni úr
myndasögunni Froid Équateur eft-
ir franska listamanninn og rithöf-
undinn Enki Bilal. Rubingh stefnir
nú að því að skákhnefaleikar verði
viðurkenndir sem ólympíuíþrótt.
Reglurnar í skákhnefaleikum eru
einfaldar. Einvígið hefst með
þriggja mínútna lotu í skák á tafl-
borði í hnefaleikahringnum. Henni
fylgir þriggja mínútna hnefa-
leikalota og þannig koll af kolli.
Loturnar í einvíginu eru alls ellefu
– sex í skák og fimm í hnefaleikum.
Til að sigra þarf annaðhvort að rota
eða máta andstæðinginn. Kepp-
endur eru þó dæmdir úr leik ef þeir
brjóta hnefaleikareglurnar eða falla
á tíma í skákinni. Rubingh segir að
taflmennskan ráði úrslitum í 60%
einvígjanna en hnefarnir í 40%.
Iðkuð í ellefu löndum
Skákhnefaleikar voru álitnir for-
vitnilegt uppátæki í fyrstu frekar
en raunveruleg íþrótt en skák-
hnefaleikamönnunum hefur fjölgað
á síðustu árum. Margir þeirra
höfðu teflt í mörg ár þegar þeir
ákváðu að bæta hnefaleikunum við.
Þeirra á meðal er Alina Rath, 29
ára þýsk kona, sem hafði verið í
skákfélagi í 20 ár þegar hún byrjaði
að æfa hnefaleika í ágúst síðast-
liðnum. Hún hafði þá æft blandaðar
bardagaíþróttir í fimm ár. „Skák-
hnefaleikar kveða niður klisjuna
um hörkutólið sem kunni bara að
berja á fábjánum,“ segir hún. Hún
segist vera meiri „Kasparov en
Tyson“.
Alþjóðaskákhnefaleika-
sambandið var stofnað í Berlín árið
2004. Um 3.500 manns eru nú full-
gildir félagar í skákhnefaleika-
samböndum sem hafa verið stofnuð
í ellefu löndum, meðal annars Bret-
landi, Íran og Rússlandi.
Sýningareinvígi hafa verið skipu-
lögð reglulega. „Markmið okkar í
ár er að stofna atvinnumannadeild í
íþróttinni með stuðningi fjárfesta
og bakhjarla,“ segir Rubingh.
Hann kveðst beita sér fyrir því að
keppt verði í skákhnefaleikum á Ól-
ympíuleikunum í Frakklandi árið
2024. Hann stefnir einnig að því að
skipuleggja hörkuspennandi einvígi
árlega milli manna og róbóta í sam-
vinnu við vélmennaframleiðendur
þegar fram líða stundir.
Skákhnefaleikar ryðja sér til rúms
Rot eða mát? Berjast fyrir því að
keppt verði í íþróttinni á Ólympíuleikum
AFP
Bardagi Biman og Kadija berjast
með hnúum og hnefum í Berlín.
AFP
Hörkuskák Mohamad Kadija (t.v.) og Daniel Biman tefla í hnefaleikahring í
einvígi í Vitræna bardagaklúbbnum í Berlín, höfuðborg skákhnefaleikanna.
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Kim Jong-un, leiðtogi einræðis-
stjórnarinnar í Norður-Kóreu, sagði
á fundi með forseta Kína í Peking í
vikunni að hann myndi fallast á
kjarnorkuafvopnun með skilyrðum.
Í fréttum kínverskra og norður-
kóreskra fjölmiðla af fundinum kom
ekki skýrt fram hvaða skilyrði Kim
setur fyrir því að einræðisstjórnin
láti kjarnavopn sín af hendi önnur
en þau að allur Kóreuskagi verði án
kjarnavopna. „Hægt er að leysa
deiluna um kjarnorkuafvopnun
Kóreuskagans ef stjórnvöld í Suður-
Kóreu og Bandaríkjunum bregðast
við umleitunum okkar með velvilja,
skapa andrúmsloft friðar og stöðug-
leika og gera framsæknar og sam-
stilltar ráðstafanir til að koma á
friði,“ var haft eftir einræðisherr-
anum.
Fréttaskýrandi breska ríkisút-
varpsins í Peking, Stephen McDon-
ell, sagði að Kim hefði lofað kjarn-
orkuafvopnun gegn því að öryggi
Norður-Kóreu yrði tryggt og sú
staðreynd að einræðisherrann hefði
lýst þessu yfir fyrir framan forseta
Kína kynni að benda til þess að
Norður-Kóreumenn væru að greiða
fyrir samkomulagi um kjarnorkuaf-
vopnun.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
fagnaði fundinum á Twitter og sagði
að nú væru „góðar líkur“ á því að
Kim féllist á kjarnorkuafvopnun.
Hann kvaðst hlakka til að eiga fund
með Kim sem fyrirhugaður er síðar
á árinu, líklega í maí.
Efast um loforð Kims
Suðurkóreskir sérfræðingar í
málefnum Norður-Kóreu hafa þó
verið efins um að einræðisstjórnin
sé í raun og veru tilbúin að afsala sér
kjarnavopnum. Þeir telja að
Norður-Kóreustjórn kunni að reyna
að reka fleyg á milli Bandaríkja-
manna og Suður-Kóreumanna með
því að krefjast þess að öryggis-
tryggingarnar feli m.a. í sér að
bandarískir hermenn fari frá Suður-
Kóreu. Talið er að Norður-Kóreu-
menn stefni að samningi til langs
tíma um að þeir fái öryggistrygg-
ingar og að efnahagslegum refsi-
aðgerðum gegn þeim verði aflétt
gegn því að þeir hætti kjarnorku-
tilraunum og fallist á að eyða
kjarnavopnum sínum innan ákveð-
ins tíma. Efasemdamennirnir benda
á að Norður-Kóreustjórn hefur áður
gert samninga sem hún hefur brotið.
Kim fór með lest til Peking í vik-
unni til að ræða við kínverska ráða-
menn en þeir staðfestu ekki að hann
hefði komið þangað fyrr en hann
sneri aftur til Norður-Kóreu. Þetta
var fyrsta utanlandsferð Kims frá
því að hann komst til valda árið
2011.
Kínverjar hafa verið helstu
bandamenn Norður-Kóreustjórnar
en samskipti ríkjanna versnuðu eftir
að Kim tók við völdunum. Talið var
þó alltaf líklegt að Kína yrði fyrsta
landið sem Kim heimsækti vegna
gamalla tengsla ríkjanna. Um 90%
allra utanríkisviðskipta Norður-
Kóreu hafa verið við Kína og með
því að ræða við kínverska ráðamenn
fyrir fundinn með Trump vill Kim
tryggja sér stuðning þeirra í barátt-
unni fyrir afnámi refsiaðgerða.
Kim lofar afvopnun með skilyrðum
Leiðtogi N-Kóreu lofar kjarnorkuafvopnun gegn óljósum skilyrðum um öryggistryggingar á fundi
með forseta Kína Trump tístir að „góðar líkur“ séu á að einræðisstjórnin afsali sér kjarnavopnum
AFP
Kveðjustund Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, veifar í lest sinni áður en hún fór frá Peking í fyrradag.