Morgunblaðið - 29.03.2018, Síða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
Að krossinum þínum,
Kristur, ég kem. Krjúp-
andi bið um miskunn og
náð. Að krossinum, þar
sem þú dóst í minn stað.
Í vanmætti ég kem,
þiggjandi styrk. Í auð-
mýkt að krossinum ég
kem.
Faðmur þinn opinn er,
týndu barni þú býður þar
stað. Með nafni þú kallar
á mig.
Þú greiddir gjaldið fyrir sekt mína
og synd svo í þakklæti ég lifa vil þér.
Að krossinum þínum, Kristur, ég
kem.
Speglun
Það var ekki fyrr en ég speglaði
mig í krossinum og sá pínu þína
dregna á langinn að mér varð loks
ljóst hversu syndugur ég er.
Fyrirgefðu mér, Jesús. Miskunna
þú mér. Stilltu mig af og hjálpaðu
mér að lifa þér í þakklæti. Helgaðu
mig þér og hjálpaðu mér að biðja í
einlægni og af auðmýkt: Verði þinn
vilji.
María Magdalena og englarnir
Veistu, að það voru englarnir sem
veltu steininum forðum frá hinni dul-
arfullu austurlensku gröf. Það var
ekki svo Jesús kæmist út, heldur til
þess að við sæjum inn. Gröfin var
tóm.
Og veistu, að þú get-
ur fengið þessa sömu
engla í lið með þér. Til
að vaka yfir þér og
leiða, vegna þess sem
gerðist inni í gröfinni.
Jesús var uppvakinn
frá dauðum. Hann lifir
og þú munt lifa! Ef þú
vilt.
Og munið þið hver
það var sem kom fyrst
að hinni tómu gröf og
mætti síðan Jesú upp-
risnum eftir að vinir
hans, strákarnir, læri-
sveinarnir höfðu flúið frá honum, af-
neitað og læst sig inni af ótta, allir
nema kannski einn. Það var einmitt
kona, takið eftir því. Það var kona að
nafni, María Magdalena, sem fór til
þeirra og sagði þeim frá.
Og við erum enn að tala um þennan
atburð sem sett hefur meiri svip á
menningu okkar vestræna heims en
nokkuð annað enda miðum við tímatal
okkar við hann, það er að segja við
fæðingu frelsarans Jesú.
Lykillinn að lífinu
Aftur og aftur er það kraftur Krists
sem kemur heiminum til bjargar þeg-
ar allt er að komast í þrot og erindi
lífsins virðist í dauðateygjunum.
Lykillinn að lífinu er ljósið sem
blásið var á en lifnaði aftur og logar
nú blítt.
Það er ljósið leið minni á. Lampi
sem yljar og vermir. Hönd sem leiðir,
líknar og blessar. Friðelskandi hjarta
sem uppörvar mig og styður. Andi
sem fær mig til að vilja halda áfram.
Leggja það á mig að lifa og njóta í
þakklæti.
Leyfum kærleikanum að stilla sína
strengi í okkar viðkvæmu hjörtum
svo hann fái notið sín, flögrað um og
borið birtu og yl með sínum fögru,
umvefjandi og hlýju vængjum. Og við
þannig orðið farvegur friðar og far-
sældar á vegum okkar.
Kærleikans ylur í hjartað streymir
þegar við gerum það að vöggu frels-
arans. Þá upplifum við himininn
kyssa jörðina. Leyfum honum að setj-
ast þar að og þroskast og dafna til ei-
lífs lífs.
Lifið er dásamleg himnesk gjöf.
Missum ekki af því. Það elskar okkur
öll. Látum því eftir okkur að þiggja
það og njóta þess í stað þess að bölva
því og hallmæla. Því lífið er í eðli sínu
fallegt og gott.
Gleðilega páska! Með kærleiks- og
friðarkveðju.
Lifi lífið!
Lífið hefur sigrað
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
» Það voru englar sem
veltu steininum forð-
um frá hinni dularfullu
austurlensku gröf. Það
var ekki svo Jesús kæm-
ist út, heldur til þess að
við sæjum inn.
Höfundur er ljóðskáld og
rithöfundur og aðdáandi lífsins.
Leitar þú að traustu
Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi
Sími 587 1400 |www. motorstilling.is
ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Lífslíkur bílsins margfaldast
ef hugað er reglulega
að smurningu.ENGAR
tímapantanir
MÓTORSTILLING
fylgir fyrirmælum
bílaframleiðanda um
skipti á olíum og síum.Verð frá 89.500,-
Mikill viðsnúningur
hefur átt sér stað á yf-
irstandandi kjör-
tímabili í rekstri og
fjármálum Hafn-
arfjarðarbæjar eins og
síðustu ársreikningar
og fjárhagsáætlanir
sveitarfélagsins bera
með sér.
Þetta hefur gerst í
kjölfar fjárhagslegrar
endurskipulagningar í
sveitarfélaginu sem við Sjálfstæð-
ismenn boðuðum í aðdraganda síð-
ustu sveitarstjórnarkosninga og
höfðum lagt mikla áherslu á í bæj-
arstjórn í áraraðir sem og að skuldir
yrðu greiddar hraðar niður en gert
var ráð fyrir í áætlunum. Gegnd-
arlaus skuldasöfnun hafði komið
bæjarfélaginu á ystu nöf, sem var
undir sérstöku eftirliti eftirlits-
nefndar með fjár-
málum sveitarfélaga
og fjármagnskostnaður
að sliga reksturinn.
Auk þess að leggja
áherslu á að nið-
urgreiða skuldir var
ljóst að ýmis tækifæri
til að hagræða í rekstr-
inum voru fyrir hendi
en viljann hafði vantað.
Strax í upphafi yf-
irstandandi kjör-
tímabils var kosninga-
loforðið efnt. Fengnir
voru utanaðkomandi
aðilar til að gera úttekt á rekstri og
fjármálum sveitarfélagsins og koma
með tillögur til úrbóta. Umbæt-
urnar sem síðan var ráðist í skiluðu
fljótt árangri og hægt var að efla
þjónustuna við bæjarbúa á ýmsum
sviðum. Árangurinn má ekki síst
meta í aukinni ánægju íbúa með
flesta þá þjónustu sem boðið er upp
á og kemur fram í árlegum þjón-
ustukönnunum Gallup sem Hafn-
arfjörður tekur þátt í. Einnig eru
starfsmenn bæjarins ánægðari í
vinnunni en áður samkvæmt nið-
urstöðum kannana á meðal þeirra.
Brýnt að sýna áfram
ráðdeild í fjármálunum
Nú er svo komið að rekstrar-
afkoma bæjarins hefur verið jákvæð
síðastliðin tvö ár eftir að hafa verið
neikvæð frá árinu 2008 til 2015.
Verði haldið áfram á sömu braut við
fjármálastjórnunina og undanfarin 3
til 4 ár ætti hagurinn að batna
áfram en áætlun sem unnið er eftir
gerir ráð fyrir jákvæðri rekstrar-
afkomu árin 2018 til 2021.
Samhliða því að bæta rekstrar-
afkomuna hafa álögur á íbúa sveit-
arfélagsins verið lækkaðar.
Útsvarsprósenta var lækkuð og er
nú ekki í heimilaðri hámarks-
prósentu en það hefur ekki gerst
áður í Hafnarfirði a.m.k. frá árinu
1998 að útsvarsprósentan hafi ekki
verið í hámarki. Álagning fasteigna-
gjalda hefur ekki verið lægri í sjö ár
og tekjutengdur afsláttur elli- og ör-
orkulífeyrisþega á fasteignaskatti er
nú orðinn mestur hjá Hafnarfjarð-
arbæ, samanborið við önnur sveit-
arfélög á höfuðborgarsvæðinu. Það
er brýnt að halda þessari vegferð
áfram við stjórnun fjármálanna; að
sýna ráðdeild í rekstrinum, fjár-
magna framkvæmdir fyrir eigið fé
og greiða niður skuldir. Þannig get-
um við haldið áfram að efla þjón-
ustuna og lækka gjöld, hafið ný
verkefni og látið bæinn okkar
blómstra til framtíðar. Hafnfirð-
ingar eiga ekkert annað skilið en að
vel sé farið með fjármuni þeirra og
að bærinn verði í allra fremstu röð
sveitarfélaga í öllu tilliti.
Traust fjárhagsstaða
Hafnarfjarðarbæjar
Eftir Rósu
Guðbjartsdóttur » Gegndarlaus
skuldasöfnun
hafði komið bæjar-
félaginu á ystu nöf…
Rósa
Guðbjartsdóttir
Höfundur er formaður bæjarráðs
Hafnarfjarðar.
Rekstrarafkoma Hafnarfjarðarbæjar
*Áætlun
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
-500
milljónir kr.
2014 2015 2016 2017* 2018* 2019* 2020* 2021*
-512
538
76
554
740
1.362
1.873
2.442
Allir gera sér grein
fyrir mikilvægi þess að
láta enda ná saman í
heimilisbókhaldinu.
Okkur er kennt að
eyða ekki um efni fram
og safna skuldum. Það
kemur að skuldadög-
um hjá þeim sem slá
lán í bankanum. Í op-
inberum rekstri kjósa
sumir stjórnmálamenn
að líta fram hjá þessum lögmálum.
Oftar en ekki eru þeir hins vegar
horfnir af sjónarsviðinu þegar afleið-
ingarnar af slíku háttalagi birtast al-
menningi. Skuldasöfnun verður ekki
mætt nema með því að auka tekj-
urnar (hækka skattana og gjöldin)
og/eða skera niður útgjöldin (sem
oftar en ekki bitnar á þjónustunni).
Hegðun slíkra stjórnmálamanna
getur því haft í för með sér vítahring
þannig að sífellt fleiri krónur fara ár
hvert í greiðslu vaxta og verðbóta.
Sumir stjórnmálamenn eru síðan svo
bíræfnir að þeir ákveða að skera nið-
ur í viðhaldi, t.d. gatna og skóla-
bygginga, en eyða þess í stað pen-
ingunum í gæluverkefni.
Afleiðingarnar af slíkri hegðun dylj-
ast engum.
Því miður eiga þessar lýsingar við
um Dag B. Eggertsson,
borgarstjóra Reykja-
víkur. Í stjórnartíð hans
hafa skuldir A-sjóðs
Reykjavíkurborgar
aukist verulega. Degi
væri nokkur vorkunn ef
tekjur borgarinnar
hefðu staðið í stað en
svo er hins vegar ekki.
Skattar og gjöld hafa
hækkað verulega á
kjörtímabilinu. Dagur
hefur því haft úr nógu
að spila. Þegar skuldir
borgarinnar aukast þrátt fyrir gríð-
arlega tekjuaukningu þýðir það bara
eitt: Vonlaus fjármálastjórn.
Það er mikilvægt fyrir unga kjós-
endur að gera sér grein fyrir þessu.
Í framtíðinni þarf fleiri krónur frá
ykkur til að borga skuldirnar sem
Dagur B. Eggertsson safnar í dag.
Það er því þörf á „Soffíu frænku“ í
borgarstjórn.
Þörf á Soffíu
frænku
Eftir Sveinbjörgu
Birnu Svein-
björnsdóttur
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir
» Skattar og gjöld
hafa hækkað
verulega á þessu
kjörtímabili og skulda-
söfnun er staðreynd.
Höfundur er borgarfulltrúi.
sveinbjorgbs@reykjavik.is
Móttaka greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi um-
ræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu
greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt
í notkun og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf-
unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morg-
unblaðslógóinu efst í hægra horni for-
síðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið
birtist felligluggi þar sem liðurinn
„Senda inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er
notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem not-
anda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk
Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.