Morgunblaðið - 29.03.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 29.03.2018, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018 Flestir Íslendingar kannastvið persónurnar úr nor-rænni goðafræði, og raun-ar ættu flestir Vest- urlandabúar að kannast við einhverjar þeirra eftir að bandaríska afþreyingarfyrirtækið Marvel tók hann Þór okkar Óðinsson upp á sína arma. Þar sem Þór er þarf Loki líka að fylgja, svo hann er einnig orðinn heims- frægur. Í bókinni Norrænar goð- sagnir rekur Neil Gaiman þær nor- rænu sagnir sem hafa varðveist okkur í gegnum þjóðsögur, og fjalla þær um hin ýmsu ævintýri goðanna í Ásgarði og vina þeirra og fjandmanna í heim- unum í kring. Í inngangi bókarinnar segir Gaiman frá því hvernig hann hefur verið heillaður af norrænni goðafræði allt frá því að hann var sjö ára gamall, og svo virðist vera sem hann hafi kynnt sér allt sem hann hefur komist í sem fræðinni tengist. Þeir atburðir sem Gaiman rekur í bók sinni eru meðal annarra þeir sem urðu til þess að Yggdrasill og heimarnir níu urðu til, hvernig Óðinn fórnaði auga sínu fyrir visku, hvernig börn Loka urðu til, sagan um skálda- mjöðinn, óvenjulegt brúðkaup Freyju, ferð Þórs til Jötunheima, sagan um ódáinseplin, dauða Bald- urs og ragnarök, svo eitthvað sé nefnt. Undirrituð kannaðist við ein- hverjar þessara sagna, en þó ekki all- ar og þekkti þær heldur ekki sérlega vel. Þessi vel skrifaða og aðgengilega samantekt á sögnunum var því mjög velkomin viðbót í takmarkaða þekk- ingu á norrænu goðsögnunum. Gai- man hefur þó sjálfur ýmsu bætt við sögurnar, auðgað þær með hinum ýmsu samtölum og smáatriðum. Gai- man tekst einstaklega vel til í bók sinni og samtöl goðanna hljóma alls ekki ósennilega, heldur nánast eðli- lega. Það hlýtur að þurfa ákveðinn kjark til að leggja persónum eins og Óðni, Þór, Tý, Loka og Freyju orð í munn fyrir alla til að lesa og dæma. Höfundi tekst það þó af einstakri lagni, enda hefur hann talsverða reynslu af skrifum teiknimynda- sagna um ofurhetjur eins og The Sandman, auk þess sem hann skrif- aði teiknimyndaskáldsöguna Good Omens í samstarfi við metsöluhöf- undinn Terry Pratchett. Þá var hann meðhöfundur handritsins að kvik- myndinni Beowulf sem frumsýnd var í kvikmyndahúsum árið 2007. Því er ljóst að Gaiman hefur mikla reynslu af skrifum sem tengjast goðsögnum og ævintýraheimum og skín það vel í gegn í bók hans um goðin í Ásgarði og ævintýri þeirra. Frásögn Gaiman af goðunum í Ás- garði er einstaklega skemmtileg lesning fyrir allan aldur, og sögurnar eru ekki síður aðgengilegar fyrir yngri lesendur þar sem þær eru skrifaðar á einföldu nútímamáli. Þeir sem þekkja goðsagnirnar vel ættu heldur ekki að láta bókina fram hjá sér fara, enda tekst Gaiman af kost- gæfni að auðga sögurnar og gefa þeim aukið skemmtanagildi. Hvern hefur ekki langað að vita hvernig samskipti goðanna eru þeirra á milli, og við jötnana og skrímslin. Þessi endursögn Gaimans á ævintýrum goðanna, sem hefur notið talsverðra vinsælda og góða dóma, sýnir glögg- lega hversu vel goðsagnirnar eiga við okkur mennina enn í dag. Þá er ekki verra að ungdómur landsins fær með bókinni kjörið tækifæri til þess að kynnast Þór og Loka á annan hátt en þeir hafa verið sýndir í erlendum of- urhetjukvikmyndum. Aðgengilegar Frásögn Gaiman af goðunum í Ásgarði er einstaklega skemmtileg lesning fyrir allan aldur, og sögurnar eru ekki síður aðgengi- legar fyrir yngri lesendur þar sem þær eru skrifaðar á einföldu nútímamáli. Getið í eyður goðafræðinnar Goðsagnir Norrænar goðsagnir bbbbb Eftir Neil Gaiman. Urður Snædal íslenskaði. Benedikt bókaútgáfa, 2017. 270 bls. ÞORGERÐUR ANNA GUNNARSDÓTTIR BÆKUR Listviðburðahópurinn Huldufugl stendur fyrir sínum fjórða viðburði undir yfirskriftinni Rauða skálda- húsið í Iðnó í kvöld frá kl. 20 til 23. Þema kvöldsins að þessu sinni er dauðasyndirnar sjö. Mörg ljóðskáld munu bjóða upp á einkalestra og einnig verður lifandi tónlist, flutt af hljómsveitunum The Keystone Swingers og Gleðikonunum, spáð í tarot-spil og boðið upp á önnur skemmtiatriði. Í Rauða skáldahúsinu er eitt þekkt skáld hyllt hverju sinni og núna er það Sjón. Skáldin sem taka þátt í kvöld eru bæði þekkt og lítt þekkt en þau eru Elías Knörr, Lommi, Ragnheiður Erla, Þorvaldur S. Helgason, Ingunn Lára, Camila Hidalgo, Hlín Leifsdóttir, Kailyn Phoenix, Arthur Seefahrt og Ingi- mar Bjarni. „Frelsaðu og fullnægðu fýsnum þínum með ljóðlist í einrúmi á framandi málum þessa heims – og ef til vil þess næsta. Gerðu samning við Mephistopheles – seldu sálu þína fyrir syndsamlega líkamsmálningu Violet Fire,“ segir meðal annars um viðburðinn á Facebook. Dauðasyndirnar sjö í Iðnó Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjón Skáldið verður hyllt í Iðnó í kvöld í Rauða skáldahúsinu.  Sjón verður hylltur í Rauða skáldahúsinu Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Lau 22/9 kl. 20:00 144. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas. Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 13. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 14. s Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 15. s Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Fim 10/5 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 16. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Nýtt leikverk byggt á hrífandi skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur. Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Efi (Kassinn) Fim 5/4 kl. 19:30 Síðustu Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Margverðlaunað og spennandi verk ! Faðirinn (Kassinn) Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 32.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 33.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Mán 9/4 kl. 11:00 Vík Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Þri 10/4 kl. 11:00 kirkjub.klaustur Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get ð leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 SMARTLAND Matur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.