Morgunblaðið - 29.03.2018, Síða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MARS 2018
Þeir farsar sem ratað hafa ásvið Borgarleikhússins ásíðustu árum hafa nær und-antekningarlaust komið úr
smiðju breska leikskáldsins Rays
Conney. Þau verk hans sem rýnir
hefur séð hafa átt það sameiginlegt
að mikið fer fyrir neðanbeltishúmor
og hommabröndurum, sem er vægast
sagt orðið þreytt grín. Það er því af-
skaplega þakklátt að Borgarleikhúsið
skuli bjóða upp á ferskan skopleik á
Nýja sviðinu, en þar var um helgina
frumsýnd Sýningin sem klikkar eftir
Henry Lewis, Jonathan Sayer og
Henry Shields í þjálli þýðingu Karls
Ágústs Úlfssonar og prýðilegri leik-
stjórn Halldóru Geirharðsdóttur.
Leikritið var frumsýnt í Old Red
Lion-leikhúsinu í London 2012 og fór
í framhaldinu í leikferð um landið
sem endaði í Duchess-leikhúsinu á
West End haustið 2014. Viðtökur í
heimalandinu voru góðar og hlaut
verkið Laurence Olivier-verðlaunin
sem besti gamanleikurinn í Bretlandi
árið 2015.
Í Sýningunni sem klikkar birtist
leikhúsgestum sannkölluð martröð
leikarans. Dregin er upp skopstæld
mynd af leikhópi sem nálgast efnivið
sinn meira af kappi en kunnáttu, leik-
munir eru ekki á réttum stöðum sem
skapar kostulegt grín, leikarar
gleyma textanum á ögurstundu og
leikmyndin stelur iðulega senunni
þegar aðaldyrnar hrökkva á víxl í og
úr baklás, leikmunir hrynja fyrir-
varalaust af veggjum og undirstöður
bresta. Allt er þetta þó með ráðum
gert með það að markmiði að
skemmta áhorfendum sem best – og
miðað við hláturrokurnar á frumsýn-
ingu má ljóst vera að ætlunarverkið
hefur tekist með prýði.
Ófarir leikara á leiksviðinu hafa
verið vinsælt yrkisefni allt frá því
Shakespeare lét hóp handverks-
manna leika Pýramus og Þispu í
Draumi á Jónsmessunótt til gaman-
leikja Michaels Green, en bók hans
um ofleik (The Art of Coarse Acting)
mun vera meðal þess sem veitti höf-
undum Sýningarinnar sem klikkar
innblástur við skrif sín. Af öðrum
augljósum áhrifavöldum mætti nefna
glæfrabrögð gamanleikarans Busters
Keaton og vandræðaganginn á Hótel
Tindastóli (Fawlty Towers).
Óneitanlega kemur meistara-
stykkið Noises off eftir Michael
Frayn líka upp í hugann. En ólíkt því
verki fá áhorfendur Sýningarinnar
sem klikkar litla innsýn í persónuleg
samskipti leikara leikritsins í leikrit-
inu (sem hefðu kannski útskýrt betur
þann mikla ríg sem skapast milli
tveggja leikkvenna verksins), hvað
gangi í raun á að tjaldabaki eða
ávæning af því hvernig framvindan
gæti lukkast ef hlutirnir gengju ekki
svona skelfilega á afturfótunum. Því í
Sýningunni sem klikkar klikkar allt
sem klikkað getur frá fyrstu stundu
og þaðan liggur leiðin aðeins niður á
við fyrir leikhópinn meðan munnvik
áhorfenda leita æ oftar upp á við.
Kosturinn við að byrja á fullum
dampi er að áhorfendur eru auðveld-
lega hrifnir með frá fyrstu stundu, en
á móti verður svigrúmið til að skapa
stígandi minna. Oftast nær er aug-
ljóst í hverju mistök eða vandræða-
gangur leikhópsins felst, en rýnir
saknaði þess á stundum að fá ekki
betri samanburð á því sem klikkaði
og klikkaði ekki. Samtímis hefði mátt
huga betur að innri lógík, því skrýtið
var að persóna sem eina stundina
þurfti að stauta sig fram úr textanum
kunni hann utan að í næstu andrá.
Leikhópurinn í verkinu baksar,
með ýktum ofleik, við að setja upp
sakamálaleikritið Morð á meðal vor
sem minnir um margt á morðgátu úr
smiðju Agöthu Christie. Stórfínir
búningar Helgu I. Stefánsdóttur gefa
til kynna að verkið gerist á þriðja ára-
tug síðustu aldar og leikmynd hennar
vísar með skemmtilegum hætti í leik-
mynd Músagildrunnar eftir Christie,
sem gengið hefur fyrir fullu húsi á
West End frá frumsýningu 1952, með
málverk fyrir ofan arininn á vinstri
hönd, loftháan glugga með rauðum
flauelsgluggatjöldum aftast fyrir
miðju sviði og sófa/legubekk á sviðinu
miðju.
Líkt og í Músagildrunni eru per-
sónur leiksins innlyksa á óðalssetri
meðan úti geisar stórhríð. Gestum
setursins og starfsfólki er vandi á
höndum þegar húsráðandinn, ungi
auðkýfingurinn Charles Haversham
(Davíð Þór Katrínarson), finnst látinn
kvöldið sem tilkynnt er um trúlofun
hans og Florence Colleymoore (Birna
Rún Eiríksdóttir). Bróðir unnust-
unnar, Thomas Colleymoore (Hilmar
Guðjónsson), hefur samband við
rannsóknarlögreglumanninn Carter
(Bergur Þór Ingólfsson) sem svo
heppilega vill til að er staddur í næsta
nágrenni og tekur hann að sér rann-
sókn morðgátunnar. Fljótlega kemur
í ljós að Florence og Cecil (Hjörtur
Jóhann Jónsson), bróðir hins látna,
höfðu átt í leynilegu ástarsambandi,
en áður en yfir lýkur hafa nær allar
persónur verksins legið undir grun,
þeirra á meðal ráðskonan frú Perkins
(Kristín Þóra Haraldsdóttir) og garð-
yrkjumaðurinn Arthur (Hjörtur
Jóhann Jónsson). Framvinda og
lausn morðgátunnar fellur að stórum
hluta í skuggann af vandræðagangi
leikhópsins, þar sem sýningarstjór-
inn (Katrín Halldóra Sigurðardóttir)
þarf óvænt að stökkva inn í sýn-
inguna vegna forfalla.
Í viðtali við leikstjórann sem birtist
í Morgunblaðinu daginn fyrir frum-
sýningu líkti Halldóra uppfærslunni
við bæði tónverk og íþróttaleik. Sú
samlíking á vel við því leikhópur
hennar býr yfir úthaldi og snerpu
sem jafnast á við fremsta íþróttafólk
þegar leikararnir framkvæma
hnökralaust hinn gáskafulla líkam-
lega gamanleik, svonefnt „slapstick“,
sem gegnir lykilhlutverki í útfærslu
verksins. Á sama tíma krefst sam-
hæfingin í samleiknum tæknilegrar
kunnáttu sem jafnast á við þraut-
þjálfaða hljóðfæraleikara sinfóníu-
hljómsveitar og þar er hvergi slegin
feilnóta.
Hilmar og Hjörtur Jóhann fóru á
kostum í „luftskylmingum“, Bergur
Þór og Hilmar sýndu stórkostlega
fimi í glímu sinni við svikula leik-
mynd, Hjörtur og Kristín Þóra út-
færðu grimma varðhundinn með
snilldarhætti, Katrín Halldóra var
dásamlega vandræðalegur sýningar-
stjóri, Birna Rún kom örvæntingu og
þrautseigju persónu sinnar vel til
skila, Davíð Þór hafði góða takta í
hlutverki líksins sem reyndi árang-
urslaust að komast hjá líkamlegum
sársauka og Kristín Þóra greip til
skapandi lausna í samspili við legu-
bekkinn. Sú hugmyndaauðgi sem þar
birtist og kom ánægjulega á óvart
hefði að ósekju mátt gilda víðar, en
höfundar leikritsins leggja upp með
persónur sem einkennast af ótrúlegu
fattleysi á sama tíma og þær eru stað-
ráðnar í að leika morðgátuna eins og
fyrir þær hefur verið lagt óháð því
hvað fari úrskeiðis. Fyrir vikið verður
grínið á köflum aðeins of vélrænt og
ýkt í stað þess að vera sjálfsprottið
viðbragð við því sem raunverulega
fer úrskeiðis.
Þegar allt gengur á afturfótunum
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Samspil „Á sama tíma krefst samhæfingin í samleiknum tæknilegrar kunnáttu sem jafnast á við þrautþjálfaða
hljóðfæraleikara sinfóníuhljómsveitar og þar er hvergi slegin feilnóta,“ segir í rýni um Sýninguna sem klikkar.
Borgarleikhúsið
Sýningin sem klikkar bbbmn
Eftir Henry Lewis, Jonathan Sayer og
Henry Shields. Íslensk þýðing: Karl
Ágúst Úlfsson. Leikstjórn: Halldóra
Geirharðsdóttir. Leikmynd og búningar:
Helga I. Stefánsdóttir. Lýsing: Páll
Ragnarsson. Hljóð: Garðar Borgþórs-
son. Leikgervi: Helga I. Stefánsdóttir og
Margrét Benediktsdóttir. Leikarar:
Bergur Þór Ingólfsson, Davíð Þór
Katrínarson, Hilmar Guðjónsson,
Kristín Þóra Haraldsdóttir, Birna Rún
Eiríksdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson og
Katrín Halldóra Sigurðardóttir. Frum-
sýning á Nýja sviði Borgarleikhússins
laugardaginn 24. mars 2018.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Fönktónlistarmaðurinn George
Clinton mun koma fram á tónlist-
arhátíðinni Secret Solstice ásamt
hljómsveitinni Parliament-
Funkadelic. Þá hafa einnig bæst á
dagskrá hátíðarinnar Kollektiv
Turmstrasse, Stuðmenn, Gus Gus,
Aron Can, Reykjavíkurdætur,
Valdimar, Flóni, Birnir og Joey
Christ ásamt fleirum.
George Clinton er talinn einn af
helstu brautryðjendum fönktónlist-
arinnar og álíka áhrifamikill og
James Brown og Sly Stone. Hann
hefur gefið út fjölda platna og átt
margan fönksmellinn. Clinton var
vígður inn í frægðarhöll rokksins,
Rock and Roll hall of fame, af tón-
listarmanninum Prince árið 1997
og hljómsveitin sem fylgir honum
er æði fjölmenn en hana skipa 25
tónlistarmenn.
39 atriði hafa nú bæst við hátíð-
ina sem fram fer í Laugardal 21.-
24. júní en meðal þeirra sem hafa
áður verið kynnt til leiks eru Sla-
yer, Gucci Mane, Stormzy, Bonnie
Tyler, Clean Bandit, Death From
Above, Steve Aoki og Jet Black
Joe.
Stormzy hlaut fyrr á þessu ári
Brit-tónlistarverðlaunin fyrir plötu
ársins og sem besti tónlistarmaður
ársins í karlaflokki. Frekari upp-
lýsingar um hátíðina má finna á
secretsolstice.is.
George Clinton á Secret Solstice
Fönkaður Listamaðurinn George Clinton.
ICQC 2018-20
Við útvegum hæfa starfskrafta
í flestar greinar atvinnulífsins
Markmið okkar er að spara viðskiptavinum
tíma, fyrirhöfn og fjármuni.
VA N TA R Þ I G STA R FS F Ó L K
Handafl er traust
og fagleg
starfsmannaveita
með margra ára
reynslu á markaði þar
sem við þjónustum
jafnt stór sem smá
fyrirtæki.
Suðurlandsbraut 6, 108 Rvk. | SÍMI 419 9000 | info@handafl.is | handafl.is