Morgunblaðið - 29.03.2018, Page 36

Morgunblaðið - 29.03.2018, Page 36
FIMMTUDAGUR 29. MARS 88. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Ég ætla að binda þig fasta … 2. Í lífshættu eftir nálastungur 3. Áttu ekkert með að setja … 4. Fær 1.000 dollara á viku … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarmennirnir Ólafur Arnalds og Halldór Eldjárn afhjúpa í dag í Hörpu nýstárlega innsetningu á al- þjóðlegum degi píanósins. Í innsetn- ingunni sem þeir kalla STRATUS er beitt hugbúnaði sem þeir félagar hafa þróað í tvö ár. Tvö píanó eru tengd heimasíðunni stratuspiano.is og geta gestir á síðunni haft áhrif á verkið sem þau spila og Ólafur samdi sérstaklega fyrir innsetninguna. Þá munu píanóin stjórna lýsingunni á glerhjúp Hörpu fram á laugardag. STRATUS-píanóin koma nú í fyrsta skipti fyrir augu almennings en þau verða síðan miðpunktur tónleika- ferðalags Ólafs um heiminn sem hefst í maí. Gagnvirk píanó Ólafs og Halldórs í Hörpu Á föstudag (föstudagurinn langi) Hæg norðaustlæg eða breyti- leg átt og dálitlar skúrir eða él í flestum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 5-10 og dálítil rigning eða slydda með köflum A-til en annars hæg breytileg átt og þurrt að kalla. Hiti 1 til 9 stig að deginum, hlýjast syðst. VEÐUR Deildarmeistarar Hauka tryggðu sér síðasta lausa sætið í undanúrslitum Dom- inos-deildar karla í körfu- knattleik í gærkvöldi. Hauk- ar unnu þá Keflavík í æsispennandi oddaleik lið- anna í Schenkerhöllinni á Ásvöllum, 72:66, að við- stöddum liðlega 2.000 áhorfendum. Haukar mæta Íslandsmeisturum KR í und- anúrslitum en Tindastóll leikur við ÍR. »3 Haukar síðastir í undanúrslit Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur er á meðal keppenda á fyrsta risamóti ársins í golfinu sem fram fer á Palm Springs- svæðinu í Kaliforníu. Ólafía fer á teig klukkan 14:10 í dag, sem er 7:10 að staðartíma. Hún hefur áður spilað völlinn og gerði það í úrtökumóti fyrir einu og hálfu ári. » 1 Ólafía Þórunn með á fyrsta risamótinu í dag Arnar Pétursson og lærisveinar hans í ÍBV eru hæfilega bjartsýnir fyrir síð- ari leikinn við SKIF Krasnodar í 8-liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu í handknattleik karla. Eftir tveggja marka sigur ÍBV í Krasnodar síðasta sunnudag stendur Eyjaliðið þó betur að vígi. Arnar segir að lið sitt verði að ná viðlíka varnarleik á heimavelli og í fyrri leiknum til að vinna. »2 Eyjamenn eru með báða fætur á jörðinni ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fimm þekktar leikkonur flytja Passíusálmana í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd á morgun, föstudaginn langa. Yfirskrift upplestrarins, sem hefst klukkan 13.30, er „Svoddan ljós mætti fleirum lýsa“ og er gert ráð fyrir að honum ljúki um kl. 18.30. Passíusálmarnir eru eitt þekktasta verk trúar- skáldsins séra Hallgríms Péturssonar. Hann var prestur í Saurbæ 1651-1669, orti þar Passíusálmana og er talið að hann hafi lokið verkinu 1659 en þeir voru fyrst gefnir út 1666. Vorið 1660 sendi hann hefðarkonunum Ragnhildi Árnadóttur í Kald- aðarnesi, Kristínu Jónsdóttur í Einarsnesi og Helgu Árnadóttur í Hítardal handrit, sem nú eru glötuð, með þeirri ósk að þær kynntu sálmana, verðu þá fyr- ir gagnrýni og sæju til þess að þeim yrði ekki stung- ið undir stól. Ári síðar sendi hann Ragnheiði Brynj- ólfsdóttur í Skálholti handritið sem hefur varðveist. Upplestur í níunda sinn Upplesturinn fer nú fram í níunda sinn föstudag- inn langa frá 2009. Séra Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknarprestur í Saurbæ, segir að upphafið megi rekja til þess að Sigurður Skúlason leikari hafi haft samband og óskað eftir því að fá að lesa Passíusálm- ana í heild í kirkjunni, en sú venja hafi verið orðin nokkuð útbreidd í kirkjum landsins á þessum degi. Sigurður las síðan sálmana 2009-2013 og svo aftur 2016, en upplesturinn féll niður 2015. Georg Magn- ússon tæknimaður hljóðritaði lesturinn í fyrstu fimm skiptin. Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leik- kona, kemur nú að skipulagningu og flutningi Passíusálmanna í Saurbæ í þriðja sinn, en Zsuzs- anna Budai, organisti Saurbæjarprestakalls, leikur á orgel kirkjunnar í fjórum stuttum hléum. 2014 voru leikkonurnar Helga E. Jónsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Ragnheiður K. Steindórsdóttir með henni, en þær hafa allar verið í hlutverki Guð- ríðar Símonardóttur, eiginkonu sr. Hallgríms. Nú flytja Halla Guðmundsdóttir, Margrét Guðmunds- dóttir, Kristbjörg Kjeld og Edda Þórarinsdóttir sálmana með henni. „Þetta er afskaplega gaman,“ segir Kristbjörg, sem las úr Passíusálmunum í Kópavogskirkju fyrir nokkrum árum og var í hlutverki Ragnheiðar Brynj- ólfsdóttur í Skálholti fyrir margt löngu. „Pass- íusálmarnir eru dásamlegur skáldskapur og eftir því sem ég kafa meira í hann því helteknari verð ég af þessum versum.“ Kristbjörg segir að það sé annað að hlusta á upplesturinn en lesa sálmana opinberlega. Þær hafi æft sig hver í sínu horni og auk þess lesið í kirkjunni, þegar þær fóru að kanna aðstæður. „Atvinnumenn í upplestri hafa alltaf séð um flutninginn,“ segir Kristinn og bætir við að at- burðinum hafi verið vel tekið. Þannig hafi hátt í 300 manns hlýtt á lestur Steinunnar og Sigurðar Karlssonar leikara í fyrra. „Eðlilega veltur að- sóknin oft á veðri og vindum og sem betur fer er veðurútlitið okkur hagstætt að þessu sinni,“ segir hann og minnir á að gestir geti komið og farið að vild meðan á lestrinum stendur. „Svoddan ljós mætti fleirum lýsa“  Fimm leikkonur flytja Passíusálmana í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd  Athygli vakin á hlutverki kvenna við fyrstu kynningu á sálmunum Ljósmynd/Hilmar Þorsteinn Hilmarsson Leikkonurnar fimm Frá vinstri: Margrét Guðmundsdóttir, Halla Guðmundsdóttir, Steinunn Jóhannesdóttir, Kristbjörg Kjeld og Edda Þórarinsdóttir. Morgunblaðið/Ómar Athöfn Upplestur í Hallgrímskirkju í Hvalfirði. Morgunblaðið kemur næst út laug- ardaginn 31. mars. Fréttaþjónusta verður um páskana á mbl.is. Hægt er að koma ábendingum um fréttir á netfangið netfrett@mbl.is. Áskrifendaþjónustan er opin í dag frá kl. 8-12. Lokað verður föstudag- inn langa en opið á laugardag frá kl. 8-12. Símanúmer áskrifendaþjónust- unnar er 569-1122 og netfang: askrift@mbl.is. Blaðberaþjónustan er opin í dag frá kl. 6-12 en lokuð á morgun, föstu- daginn langa. Á laugardag er opið frá kl. 6-12. Símanúmer blaðbera- þjónustunnar er 569-1440 og net- fangið er bladberi@mbl.is. Bóka má dánartilkynningar á mbl.is. Skila- frestur minningargreina til birt- ingar 3. og 4. apríl er til hádegis á páskadag, 1. apríl. Fréttaþjónusta mbl.is um páskana

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.