Morgunblaðið - 08.03.2018, Qupperneq 1
MIKILTÆKIFÆRI ÍTÖLVUTÆKNINNI
Reiðhjólaljós sem hleður sig með segulkrafti. 4
Unnið í samvinnu við
Skapa má meiri verðmæti í sjávarút-
vegi með því að búa til „sögu“ sem
dýpkar upplifun neytendanna. 6
VIÐSKIPTA
Niclas Walter, forstjóri InfoMentor, segir að margir átti
sig ekki á þeim gríðarlegu möguleikum sem
tæknin skapar til þess að bæta menntun
VERÐMÆTFISKISAGA
tölvu
. 4
FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Þrír milljarðar í viðbótarkostnað
Kostnaður tryggingafélaga við öku-
tækjatryggingar gæti aukist um 3-
3,5 milljarða á ári ef breytt skaða-
bótalög ná fram að ganga. Iðgjöld
meðalfjölskyldu með tvo bíla gætu
aukist um 30-60 þúsund krónur,
samkvæmt útreikningum Samtaka
fjármálafyrirtækja. Á meðal breyt-
inga á löggjöfinni eru ákvæði um
lágmarks- og hámarkstekjur.
„Þetta er stórt neytendamál,“ seg-
ir Katrín Júlíusdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, í
samtali við ViðskiptaMoggann. „Því
kostnaðarauki á borð við þennan er
líklegur til að hafa áhrif á iðgjöldin.“
Samkvæmt kostnaðargreiningu
sem gerð var á frumvarpsdrögum
getur kostnaðarauki vegna slysa-
tryggingar ökumanns og eiganda
verið 26% á meðan kostnaðaraukinn
í ábyrgðartryggingum ökutækja er
um 16%.
Af öllum örorkumatsmálum þá
eru 92% allra mála og 75% allra
bótagreiðslna vegna slysa þar sem
varanleg örorka er metin undir 15%.
„Að sjálfsögðu eiga þeir sem verða
fyrir varanlegu tjóni að fá það bætt.
Aftur á móti má spyrja hvort þeir
sem metnir eru með örorku undir
15% eigi að fá tjónabætur sem
byggjast á því að þeir geti ekki unnið
fullt starf frá slysi og það sem eftir
er af starfsævinni. Í dag eru greidd-
ar miskabætur og kostnaður er
bættur.
Okkar aðaltillaga er þó sú að
matsferillinn verði endurskoðaður
þannig að tryggt sé að samræmi sé í
matsferlum, miðlægur aðili líkt og
örorkumatsnefnd verði styrkt til
þess að gefa út leiðbeiningar, úthluta
matsfólki og vera þannig faglegur
leiðtogi í ferlinu öllu. Hjá slíkum að-
ila safnast þannig þekking og yfirsýn
t.d. yfir starfs- og tekjuþróun hjá
þessum lágörorkuhóp sem vantar
sárlega svo byggja megi ákvarðanir
á gögnum og raunverulegum upplýs-
ingum í framtíðinni,“ segir Katrín.
Að hennar sögn er nauðsynlegt að
skoða hvort það sé samfélagslega
réttlætanlegt að greiða slíkar bætur
þar sem hinn almenni vátrygginga-
taki sé með þessu að greiða tjón hjá
þeim hópi sem oftar en ekki heldur
aflahæfi sínu. „Ákvæði dönsku lag-
anna byggjast á því að örorka undir
15% leiði sjaldnast til fjárhagslegs
tjóns og beri því að líta á sem
miska,“ segir hún.
Í umsögn SFF um breytingar á
skaðabótalögunum er greint frá
dómi Héraðsdóms sem féll í október.
Maður sem nýlega var metinn með
30% örorku lenti aftur í slysi
skömmu síðar. Í dómnum var tekið
undir það að viðkomandi hefði verið
búinn að jafna sig á slysinu og aftur
dæmdar 30% örorkubætur. „Þessi
nýlegi dómur sýnir vel í hvers konar
ógöngur kerfið er komið,“ segir í
umsögn SFF.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Iðgjöld meðalfjölskyldu með
tvo bíla gætu aukist um 30
til 60 þúsund krónur á ári
nái breytt skaðabótalög
fram að ganga.
Morgunblaðið/Hari
Aukinn kostnaður vegna skaðabótalaga mun hækka tryggingaiðgjöld.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
8.9.‘17
8.9.‘17
7.3.‘18
7.3.‘18
1.679,69
1.802,34
130
125
120
115
110
127,25
123,55
Vegna hreinnar orku, langtíma raf-
orkusamninga, hagkvæmrar raforku
og góðs aðgengis að henni er Ísland
aðlaðandi kostur fyrir erlend stórfyr-
irtæki er kemur að hátæknigagna-
vinnslu. Þröskuldurinn er hinsvegar
gagnatengingar landsins við útlönd.
„Við heyrum að útlendingar hafa
mestar áhyggjur af því. Það er því
stærsti þröskuldurinn fyrir uppbygg-
ingu iðnaðarins,“ segir Þorsteinn G.
Gunnarsson, forstjóri Opinna kerfa.
Spurður að því hvort að nýr gagna-
strengur sé í pípunum, segir Þor-
steinn að hann gæti orðið að veru-
leika innan 24 mánaða. „Það eru
samtöl í gangi, og þeir sem taka þátt í
því samtali eru bæði stjórnvöld og
aðrir. Þetta yrði þá þriðji strengurinn
en hinir tveir eru komnir til ára sinna.
Farice-strengurinn er til dæmis að
verða 15 ára. Það verður ódýrara með
hverju árinu að leggja slík-
an streng.“
Strengur stærsti þröskuldurinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þorsteinn segir að nýr strengur
skapi kjöraðstæður í samkeppninni.
Margt er hagfellt hér fyrir
hátæknigagnavinnslu, en
útlendingar hafa áhyggjur
af gagnatengingum.
8
Yfirlýsing forseta Bandaríkj-
anna um að „viðskiptastríð
eru góð og auðunnin“ ætti að
skelfa allt vel
upplýst fólk.
Allir tapa á vernd-
artollum Trumps
10
Þegar Blackstone skilar inn af-
komutölum sínum keppast
markaðsgreinendur við að
reikna út hlut Stev-
es Schwarzmans.
Hærri skattur
meira ríkidæmi?
11