Morgunblaðið - 10.04.2018, Page 4

Morgunblaðið - 10.04.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Allt bendir til þess að ísjakar haldi áfram að prýða Jökulsárlón á Breiðamerkursandi á komandi ár- um. Breiðamerkurjökull kelfir í lónið, það þýðir að jökuljaðarinn gengur út í lónið þar sem ís brotn- ar af sporðinum og myndar ísjaka. Kelfandi sporðurinn hefur lítið hörfað frá árinu 2015. Það bendir til þess að nærri jafn mikill ís hafi brotnað af jöklinum og skreið inn í lónið að jafnaði. Áætlað er að ísinn sem brotnar af sé um hálfur rúm- kílómetri (km3) á ári. Skriðhraði á blásporðinum hefur mælst um 500 metrar á ári. Kelfandi jökultungan er um þriggja kílómetra löng. Sporðurinn rís 25-30 metra yfir vatnsborðið og því má ætla að hann sé allt að 300 metra þykkur í endann. Finnur Pálsson, verkefnastjóri jöklarannsókna hjá Jarðvísinda- stofnun HÍ, segir að Breiðamerk- urjökull sé frekar að þynnast í heildina. Neikvæð afkoma veldur þynningu um allan jökul en ís sem skríður að kelfandi sporðinum veldur aukinni þynningu ofan hans. Talið er að á löngum tíma geti þetta leitt til þess að það myndist eins konar „hilla“ fremst í jöklinum sem flýtur fram. Það getur svo leitt til þess að jökullinn brotni hraðar upp á einhverju tímabili. Eftir það gæti jökullinn orðið brattari um tíma þar til atburða- rásin endurtekur sig. Tíminn mun leiða í ljós hvort þróunin verður þessi eða önnur. Jökulstífluð lón Þrjú jökulstífluð lón, hið minnsta, geta hlaupið til Jökuls- árlóns. Vatnið rennur þá undir Breiðamerkurjökli til lónsins. Um 2 km2 lón er við jökuljaðarinn í Veðurárdal. Það er í um 300-400 metra hæð yfir sjó. Þá er lítið lón í yfir 500 metra hæð yfir sjó við enda Skálabjarga í Esjufjöllum. Milli Skálabjarga og Vesturbjarga er mikill dalur. Þar myndaðist lón sem er orðið um 1 km2 og stækkar enn. Gervihnattamyndir sýna að úr því hleypur. Vatn sem safnast í þessi lón er bræðsluvatn og úr- koma en lónin hafa ekki myndast vegna teljanlegs jarðhita, að sögn Finns. Öll þessi lón eru mjög lítil samanborið við Jökulsárlón. Lón lík þessum hafa verið víðar á og við jaðar Vatnajökuls. Veðurgagna er aflað á jöklinum til að auka skilning á samhengi veðurs og jöklabreytinga. Þetta svæði er eitt hið úrkomumesta á landinu. Tvær veðurstöðvar eru nú í rekstri allt árið á Breiðamerk- urjökli. Að sumrinu er einnig rekin veðurstöð í um 1.250 metra hæð á jöklinum. Mælingar eru einnig gerðar á lofthita og vindhraða við norðausturjaðar Jökulsárlóns og þar var búnaður til sjálfvirkrar myndatöku. Hálfur km3 af ísjökum á ári  Afkoma og hreyfing Breiðamerkurjökuls var rannsökuð í fyrra  Jökulsporðurinn hafði lítið hörfað frá árinu 2015  Að minnsta kosti þrjú jökulstífluð lón eru ofar og geta hlaupið til Jökulsárlóns Morgunblaðið/RAX Jökulsárlón á Breiðamerkursandi Jökulsporðurinn kelfir fram í lónið og ísjakar brotna frá jöklinum. Hlýr sjór streymir inn í lónið á flóði og orkan frá honum bræðir megnið af jökunum í lóninu en suma rekur til sjávar. Jöklahópur Jarðvísindastofn- unar Háskóla Íslands hefur skilað greinargerð til Vega- gerðarinnar sem styrkti verk- efnið „Afkoma og hreyfing Breiðamerkurjökuls og af- rennsli leysingavatns til Jök- ulsárlóns á Breiðamerkur- sandi 2017“. Þar er lýst helstu niðurstöðum rann- sókna ársins 2017. Finnur Pálsson, verkefnastjóri í jökla- rannsóknum hjá Jarðvís- indastofnun HÍ hafði umsjón með verkefninu. Jöklahópurinn hefur aflað gagna um Breiðamerkurjökul og Jökulsárlón og Jökulsá á Breiðamerkursandi í áratugi. Það hefur lengst af verið gert í nánu samstarfi við Vegagerðina. Höfundar skýrslunnar bera ábyrgð á efni hennar. Niðurstöðurnar ber ekki að túlka sem yfir- lýsta stefnu Vegagerðar- innar. Skýrsluna má lesa á vef Vegagerðarinnar (vegagerdin.is) undir flip- anum Upplýsingar og útgáfa. Jökullinn og Jökulsárlónið RANNSÓKNIR 2017 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Alls fengu 6.965 einstaklingar lyfja- skírteini fyrir metýlfenídatlyfjum á árinu 2017 og voru umsóknirnar frá 357 læknum. Það er fjölgun um 955 lyfjaskírteini frá árinu áður en alls fengu 6.010 einstaklingar skírteini fyr- ir metýlfenídatlyfjum árið 2016. Rítalín, rítalín uno, concerta, metyl- fenidat actavis og methylphenidate sando eru meðal þeirra lyfja sem flokkast undir metýlfenídatlyf en met- ýlfenídat er virka efnið í lyfjunum og er örvandi lyf skylt amfetamíni. Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa heimild til að gefa út lyfjaskírteini sem veita greiðsluþátttöku í lyfjum sem annars hafa ekki greiðsluþátttöku og er metýlfenídat dýrasti einstaki al- menni lyfjaflokkurinn hjá þeim. Kostnaðarsamasti lyfjaflokkurinn hjá SÍ árið 2016 var jafnframt örvandi lyf en kostnaður vegna þessara lyfja nam 799 milljónum kr. árið 2016, þar af 613 milljónum vegna metýlfenídats. Kostnaður SÍ vegna örvandi lyfja í fyrra var 665 milljónir króna, þar af 521 milljón vegna metýlfenídatlyfja. Ástæða þess að kostnaður lækkaði milli ára ræðst m.a. af styrkingu krón- unnar en lyfjaverð er skráð í erlendri mynt og breytist því í hverjum mán- uði. Ný ódýrari samheitalyf hafa þar einnig áhrif. Notkun metýlfenídatlyfja hefur vaxið stöðugt á síðustu árum. Alls var skrifað upp á 2.452 skammta af metýlfenídatlyfjum árið 2014 en ár- ið 2017 var skrifað upp á 3.907 skammta af lyfjunum. Heildarkostn- aður SÍ vegna metýlfenídatlyfja frá árinu 2014 er rúmlega 2,3 milljarðar króna. Aðgerðir ekki skilað árangri Steingrímur Ari Arason, forstjóri SÍ, segir að þessi vöxtur hafi verið til umræðu árum saman. „Það eru vænt- anlega fimm ár síðan menn ætluðu að taka á þessu með tilteknum hætti í tengslum við fjárlagagerð, síðan var horfið frá þeim aðgerðum. Ráðuneytið setti á laggirnar ADHD-teymi á Landspítalanum sem sumir ætluðu að væri til þess að ná tökum á notkuninni, nú er það búið að starfa í nokkur ár en í raun heldur aukningin áfram,“ segir Steingrímur og bætir við að þessi stöð- uga aukning bendi til þess að fullorðið fólk noti lyfin í meira mæli. „Það liggur fyrir að í upphafi var þetta lyf, rítalín, sem er fyrsta lyfið sem var tekið í notkun undir þessum lyfjaflokki, eingöngu ætlað börnum. Það lá auðvitað fyrir að um tíma- bundna notkun væri að ræða. Hugs- unin var sú að þetta lyf hentaði vegna misþroska og væri þar af leiðandi bara í skammtímanotkun. Ég held að sú notkun hafi verið stöðug en það sem drífur áfram aukninguna núna er notkun fullorðinna á lyfinu, sem lyfið var alls ekki ætlað fyrir í upphafi.“ Samkvæmt upplýsingum frá Lyfju hefur metýlfenídat áhrif á miðtauga- kerfið þar sem það eykur athygli, ein- beitingu og sjálfstraust en minnkar þreytutilfinningu. Ef skoðaðar eru reglur Landlæknisembættisins um vinnulag við greiningu og meðferð ADHD er ljóst að matið við greiningu er að mörgu leyti huglægt. Aðspurður hversu ávanabindandi langtímanotkun getur verið, þar sem efnið er skylt amfetamíni, segir Stein- grímur að notkun á metýlfenídatlyfj- um geti verið mjög ávanabindandi ef ekki er haldið rétt utan um notkun þeirra. Ísland í algjörum sérflokki Notkun Íslendinga á örvandi lyfjum er mun meiri en í nágrannalöndum okkar. Nýjustu samanburðartölur SÍ eru frá árinu 2015 en þá tóku Íslend- ingar 26,09 ráðlagða dagskammta af örvandi lyfjum á hverja þúsund íbúa. Til samanburðar tóku Norðmenn 8,92 ráðlagða dagskammta á hverja þús- und íbúa og Svíar 11,74. Þar sem Dan- ir telja ekki notkun á elliheimilum með eru tölur þeirra ekki samanburðar- hæfar en samkvæmt upplýsingum frá SÍ er notkun Dana engu að síður mun minni en hér á landi. „Það liggur alveg fyrir og það sem menn hafa verið að horfa á er að það getur vel verið að þetta sé gagnlegt og réttlætanlegt, en það breytir því ekki að það er engin þjóð í heiminum sem notar þetta í jafn ríkum mæli og við nema kannski Bandaríkjamenn þar sem ekki er samræmt eftirlit og ekki greiðsluþátttaka sjúkratrygginga,“ segir Steingrímur. Notkun örvandi lyfja eykst enn  Sjúkratryggingar Íslands hafa greitt 2,3 ma. kr. með metýlfenídatlyfjum frá 2014 Notkun Íslendinga á örvandi lyfjum Fjöldi einstaklinga á örvandi lyfjum (N06B*) 2017 Notkun metýlfenídatlyfja 2014 til 2017 Notkun örvandi lyfja (N06B*) á Norðurlöndunum Kostnaður Sjúkratrygginga vegna tauga- og geðlyfja 4.000 3.000 2.000 1.000 0 1.800 1.500 1.200 900 600 300 0 Metýlfenídatlyf Örvandi lyf Tauga- og geðlyf samtals Karlar Konur Þúsundir skammta (DDD) Eftir kyni og aldri 2014 til 2017, milljónir króna** Fjöldi dagskammta á hverja þúsund íbúa á dag 2006 til 2015 2.452 2.908 3.480 3.907 Heimild: Sjúkra- tryggingar Íslands **Styrking krónunnar og tilkoma nýrra samheitalyfja veldur minni kostnaði þrátt fyrir meiri notkun 2014 2015 2016 2017 5-9 10-14 15-19 20-24 25-29 30-34 35-39 40-44 45-49 50-54 55-59 60-64 3.000 2.000 1.000 0 25 20 15 10 5 0 2014 2015 2016 2017 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 583 585 613 521 *Lyf notuð við ADHD og lyf sem efla heilastarfsemi Hafi einstaklingur færst milli aldursbila á árinu telst hann í báðum aldursbilum, þannig sýnir taflan ekki heildarfjölda einstaklinga Danmörku var sleppt því þeirra grunnur telur elliheimili með og er því ekki samanburðarhæfur *Lyf notuð við ADHD og lyf sem efla heilastarfsemi Ísland Noregur Svíþjóð 2.392 1.831 26 Morgunblaðið/Frikki Lyfjuð þjóð Notkun Íslendinga á metýlfenídatlyfjum eins og rítalíni er mun meiri en í nágrannalöndum okkar og hún eykst með hverju ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.