Morgunblaðið - 10.04.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 10.04.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 Aukin lífsgæði án verkja og eym Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. „Ég er búin að æfa mikið síðustu ár; hlaupa, stöðvarþjálfun, tabata ofl. og varð alltaf þreytt og aum í liðum og beinum eftir æfingar. Mér var bent á að prufa Nutrilenk Gold og byrjaði ég á að taka 6 töflur á dag í nokkrar vikur. Ég fann ótrúlega fljótt mun til hins betra svo ég ákvað að prufa að taka líka 1 töflu af Nutrilenk Active því ég var enn með verki og eymsl í höndum. Active virkar eins og smurning fyrir liðina en ég fann mikinn mun á mér og eru verkirnir nú horfnir. Í dag tek ég 4 Gold og 1 Active og ekki má gleyma Nutrilenk gelinu sem ég nota á axlir og hné en það kælir og dregur úr bólgum. Ég get því hiklaust mælt með öllum Nutrilenk vörunum, án þeirra gæti ekki hreyft mig eins mikið og ég geri í dag, verkjalaus.“ Erna Geirlaug Árnadóttir, 42 ára innanhúsarkitekt NUTRILENK ACTIVE sla Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fasteignaþróunarfélagið Festir áformar í samstarfi við Mannverk að hefja uppbyggingu íbúða á Héðins- reit í byrjun næsta árs og setja fyrstu 40 íbúðirnar í sölu um mitt ár 2020. Alls áform- ar félagið að byggja um 200 íbúðir á reitnum og verslunarrými á jarðhæð. Íbúð- irnar koma á markað á árunum 2020-2024. Héðinsreitur skiptist í tvo hluta; Seljaveg 2 og Vesturgötu 64. Síðarnefndi hlut- inn tilheyrir Festi og Mannverki. Reiturinn af- markast af Vest- urgötu, Ána- naustum, Mýrar- götu og Seljavegi. Á sínum tíma voru hugmyndir um að byggja tvö hótel, hvort á sín- um hluta Héðinsreits. Nú er ljóst að Festir áætlar ekki byggingu hótels en CenterHotels-keðjan áformar hótel á hinum hlutanum. Jónas Þór Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Festis, segir nýja deiliskipulagstillögu verða kynnta á næstunni. Hann segir aðspurður að fallið hafi verið frá fyrri hug- myndum um litla verslunarmiðstöð á þeim hluta Héðinsreits sem snýr að Festi. Nýja KEA-hótelið langt komið Skammt frá eru Festir og Mann- verk langt komin með byggingu 106 herbergja hótels á Tryggvagötu- reitnum. Jónas Þór segir hótelið verða opnað í júní eða júlí. KEA- hótelin munu sjá um reksturinn. Nýtt veitingahús, Fiskhöllin, verður svo opnað í haust. Viðræður við veit- ingamenn standa yfir. Loks verða fimm íbúðir á Vesturgötu 14-18 lík- lega leigðar til ferðamanna. Það mun skýrast hvort KEA-hótelin munu reka þær íbúðir. Festir er með fleiri járn í eldinum. Undirbúningur þess að nýju hóteli á Suðurlandsbraut 18 er þannig langt kominn. Áformað er að opna fyrsta áfanga hótelsins fyrir sumarið 2019. Jónas Þór segir að byggt verði við þetta „formsterka kennileiti“ á horni Vegmúla og Suðurlands- brautar. Það var hannað af arkitekt- unum Guðmundi Kr. Kristinssyni og Ferdinand Alfreðssyni undir höfuð- stöðvar Olíufélagsins árið 1973. Aðalhönnun breytinganna er í hönd- um ASK arkitekta. Byggð verður ný álma fyrir hótelið til suðurs með hót- elherbergjum, starfsmannaaðstöðu og bílageymslu. Suðurlandsbraut 18 er 3.300 fer- metra hús og er ætlunin að bæta við 2.200 fermetrum með viðbyggingu. Herbergin verða allt að 170 Á hótelinu verða 150-170 her- bergi. Jónas Þór segir stefnt að því að ganga frá samningum við rekstr- araðila á næstu vikum. Festir hafi rætt við erlenda og innlenda aðila varðandi rekstur hótelsins. Hann segir hótelið verða opnað í tveimur áföngum. Fyrst verði opnuð veitingarými og móttaka í núverandi byggingu með 80-90 herbergjum, sumarið 2019. Síðan verði bætt við 70-80 herbergjum í viðbyggingunni til suðurs, með haustinu 2019. Festir undirbýr einnig byggingu Rauða lónsins á Eiðhúsum á Snæ- fellsnesi. Þar stendur til að byggja síðar lúxushótel, líkt og fjallað var um í Morgunblaðinu nýverið. Af öðr- um verkefnum félagsins má nefna að það kemur að uppbyggingu Voga- byggðar í Reykjavík. Athafnahjónin Ólafur Ólafsson, gjarnan kenndur við Samskip, og Ingibjörg Kristjáns- dóttir eru aðaleigendur Festis. Fyrstu íbúðirnar í sölu 2020  Fasteignafélagið Festir hyggst setja íbúðir á Héðinsreit á markað 2020-2024  Opnar senn nýtt hótel á Tryggvagötu og annað á Suðurlandsbraut 2019 Teikning/ASK arkitektar Bar og móttaka Drög að hóteli á Suðurlandsbraut 18. Teikning/Mannverk Nýtt hótel Tryggvagötureitur er nú langt kominn. Teikning/Ivantspijker Héðinsreitur Fyrstu íbúðirnar koma á markað 2020. Jónas Þór Þorvaldsson Ólafur Ólafsson Nýtt útlit Byggt verður við Suðurlandsbraut 18. Teikning/ASK arkitektar Kristbjörg Þórhalls- dóttir leiðsögumaður lést á Landspítalanum 28. mars sl., 79 ára að aldri. Hún fæddist í Laufási í Bakkadal, Ketildalahreppi í Arn- arfirði, 22. október árið 1938, dóttir Mörtu Guð- mundsdóttur og Þór- halls Guðmundssonar. Eignuðust þau níu börn og eftirlifandi eru Sig- urður og Guðmundur Þórhallssynir. Eiginmaður Kristbjargar var Ósk- ar Maríusson efnaverkfræðingur, d. 2011. Eignuðust þau þrjá syni; Mar- íus, Ragnar og Þórhall. Kristbjörg sótti nám að Skógum undir Eyjafjöllum og Laugavatni þar sem hún tók landspróf. Hún vann við verslunarstörf í Reykjavík til hausts- ins 1958 að hún giftist Óskari og flutti til Darmstadt í Þýskalandi, en þar var hann við nám í efnaverkfræði. Þar bjuggu þau til ársloka 1961. Í Darmstadt eignaðist hún tvo eldri syni sína og þann yngsta í Reykjavík 1963. Hún sinnti börnum og búi næstu árin. Í lok áttunda áratugarins hóf Kristbjörg nám við Mennta- skólann við Hamrahlíð og síðar við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og lauk stúdentsprófi þaðan vorið 1984. Það var árið 1971 að hún sótti leið- sögunámskeið hjá Ferðaskrifstofu ríkisins og hóf störf við leiðsögn þýskumælandi ferðamanna sama ár. Hún stundað það starf á hverju sumri næstu 33 árin, þó að ekki hafi allt- af verið um fullt starf við leiðsögn að ræða. Jafnhliða leiðsögn tók hún að sér ýmis sérstök verkefni fyrir Ferða- skrifstofuna Atlantik. Þegar Félag leið- sögumanna var stofnað var hún ein af stofn- félögum þess og gegndi hún ýmsum trúnaðarstörfum í stjórn og nefndum félagsins. Kristbjörg var meðal ann- ars fulltrúi leiðsögumanna í Fræðslu- nefnd ferðaþjónustunnar og Ferða- málaráði Íslands. Eftir að Leiðsöguskóli Íslands var settur á laggirnar kenndi hún ýmis námskeið við skólann í hartnær 25 ár. Hún var gerð að heiðursfélaga í Félagi leið- sögumanna árið 2000. Árið 1982 gerðist Kristbjörg sjálfboðalið í Samhjálp kvenna, sem er stuðningshópur til aðstoðar konum sem greinast með brjóstakrabba- mein, en hún greindist sjálf með þann sjúkdóm árið 1980. Leiddi hún það starf í 14 ár eða til ársins 2001. Hún er heiðursfélagi í Samhjálp kvenna og hefur hlotið Gullmerki Krabba- meinsfélags Íslands fyrir störf í þágu þess. Andlát Kristbjörg Þórhallsdóttir Nýnemum á framhaldsskólastigi fækkar, sérstaklega í starfsnámi. Nýnemar á framhaldsskólastigi voru fæstir árið 2002, eða 4.268, en flestir árið 2006, 5.429 talsins. Fjöldi nýnema helst í hendur við fjölda 16 ára íbúa, en haustið 2006 hóf fjöl- mennur árgangur 16 ára nám í fram- haldsskóla. Haustið 2016 voru ný- nemar á framhaldsskólastigi 4.595 talsins. Hagstofa Íslands birti í fyrsta sinn tölur um nýnema á fram- haldsskólastigi á árunum 1997-2016. Á fyrri hluta tímabilsins hóf um fjórðungur nýnema á framhalds- skólastigi nám á starfsnáms- brautum. Hlutfallið hefur lækkað á undanförnum árum en árið 2016 völdu rúmlega 16% nýnema starfs- nám. Hluti skýringarinnar sé að sumir nemendur í starfsnámi hefja framhaldsskólanám með námi á bók- námsbraut, t.d. almennri braut, áður en þeir hefja starfsnám og teljast því með nýnemum í bóknámi. Piltar eru í meirihluta meðal ný- nema í starfsnámi en stúlkur voru stærri hluti nýnema í bóknámi. Munurinn á milli kynjanna í bók- námi minnkaði þó á tímabilinu. Nán- ar um málið á mbl.is. Færri ný- nemar í starfsnám  Stúlkur velja frekar bóknám Bragi Þorfinns- son hefur form- lega verið út- nefndur stór- meistari í skák. Lokaáfanganum náði hann á móti í Noregi í febr- úar sl. en áður hafði hann náð áföngum á Ís- landsmóti skákfélaga og í keppni skákfélaga á Bretlandi. Bragi var síðan útnefndur stórmeistari á fundi Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, um helgina. Hann er fjórt- ándi íslenski stórmeistarinn. Fjórtándi íslenski stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.