Morgunblaðið - 10.04.2018, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018
✝ SteingrímurJónsson fædd-
ist 14. september
1928 á Stokkseyri.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun
Suðurlands á Sel-
fossi 1. apríl 2018.
Foreldrar hans
voru Oddný Jónína
Pétursdóttir, f.
17.1. 1892 í Víkur-
gerði í Fáskrúðs-
firði, d. 15.8. 1982, og Jón Hall-
dórsson, f. 3.1. 1901 á
Stokkseyri, d. 26.12. 1932.
Bræður Steingríms voru
Stefán Anton, f. 16.11. 1922, d.
16.11. 2014, Halldór, f. 30.9.
1927, d. 16.7. 2005, og Sig-
urjón, f. 12.10. 1929, d. 25.9.
2017.
Steingrímur kvæntist Ás-
laugu Jónsdóttur, f. 23.6. 1931,
d. 6.11. 1975, hinn 15.11. 1952.
Þau eignuðust þrjár dætur: 1)
Oddný, f. 18.10. 1952, gift Hin-
riki Inga Árnasyni, f. 11.11.
1951, börn þeirra eru a) Garð-
ar, f. 1971, b) Ásgrímur, f.
1974, c) Áslaug Ósk, f. 1977, og
d) Oddný Jónína, f. 1983. 2)
Guðleif Erna, f. 20.9. 1953, gift
Jóni Karli Haraldssyni, f. 1.7.
1952. Börn þeirra eru a) Stein-
grímur, f. 1972, b) Áslaug, f.
1977, og c) Guðjón, f. 1985. 3)
Anna Margrét, f. 29.9. 1956,
gift Nikulási Ívarssyni, f. 21.1.
Arilíusdóttir, f. 18.12. 1966,
gift Skarphéðni Ómarssyni, f.
9.9. 1963. synir þeirra eru a)
Ari Steinn, f. 1992, og b) Sindri
Snær, f. 1993. Barnabarnabörn
Steingríms eru 37.
Steingrímur ólst upp á
Stokkseyri og lauk barnaskóla-
prófi þaðan, hann útskrifaðist
sem meistari í múrsmíði frá
Iðnskólanum á Selfossi 1965.
Steingrímur vann við múr-
verk hjá ýmsum aðilum á ár-
unum 1954-1964. Hann var
gjaldkeri Stokkseyrarhrepps,
sveitarstjóri Stokkseyrar-
hrepps 1970-1975, trésmiður
hjá Sigurjóni bróður sínum
1976-1986, skrifstofumaður hjá
Hitaveitu Eyra. Frá 1991 var
hann rekstrarstjóri hjá Hita-
veitu Eyra, rafveitu Stokks-
eyrar og Eyrarbakka. Árin
1968-2002 var Steingrímur
stefnuvottur í Stokkseyrar-
hreppi. Hann var formaður
Bjarma 2000-2002 þar til það
var sameinað Bárunni á Sel-
fossi, þá í stjórn Bárunnar til
ársins 2012. Steingrímur var
formaður UMF Stokkseyrar.
Stjórnarmaður í Sjálfstæðis-
félagi Stokkseyrar 1961-1974.
Formaður Björgunarsveitar-
innar Drafnar Stokkseyri 1967-
1971. Steingrímur sat í hrepps-
nefnd Stokkseyrar 1959 og var
hreppstjóri Stokkseyrarhrepps
frá 1971. Fulltrúi skattstjóra í
Stokkseyrarhreppi frá 1971.
Oddviti Stokkseyrarhrepps
1978-1982. Stjórnarformaður í
hitaveitu Eyra frá 1986.
Útför Steingríms fer fram
frá Stokkseyrarkirkju í dag,
10. apríl 2018, klukkan 14.
1954. Börn þeirra
eru a) Baldvin Ald-
ar, f. 1972. b) Ívar,
f. 1977, og Sig-
urður Kristján, f.
1987. Fóstursonur
Steingríms af
fyrra hjónabandi
var Sigurður
Kristján Jónasson,
f. 25.10. 1950, d.
16.10. 1984. Hann
var kvæntur Guð-
björgu Elsie Einarsdóttur, f.
18.3. 1957, d. 11.10. 2014, sonur
þeirra er Jón Oddur, f. 1984.
Þrír synir af fyrri samböndum
eru: Davíð Már, f. 1971, Sig-
björn, f. 1972, og Gunnar, f.
1981.
Steingrímur og Áslaug slitu
samvistum.
Steingrímur kvæntist Jó-
hönnu Erlu Sigurþórsdóttur, f.
5.4. 1944, d. 13.8. 2015, hinn
12.12. 1975. Börn Erlu af fyrra
hjónabandi eru: 1) Marteinn S.
Arilíusson, f. 23.10. 1962,
kvæntur Sigríði B. Birgis-
dóttur, f. 4.12. 1964, synir
þeirra eru a) Arilíus, f. 1984, b)
Birgir, f. 1987, og c) Andri, f.
1992. 2) Óskar V. Arilíusson, f.
13.6. 1965, kvæntur Þórhildi D.
Ingvadóttur, f. 12.5. 1972. Syn-
ir þeirra eru a) Ingvi Rafn, f.
1993, b) Arilíus, f. 1998, c) Jó-
hann Fannar, f. 2004, og d)
Steinþór Blær, f. 2011. 3) Linda
Það var hann afi sem kynnti
okkur fjöruna og öll þau undur og
stórmerki sem eiga sér stað þar
sem land mætir sjó. Hann kenndi
okkur allt um sjóinn, flóð og fjöru,
og kynnti okkur fjölskrúðugt
dýralífið. T.d. hvar best var að
veiða krabba og hornsíli. Þetta
fannst okkur mikið sport. Ein af
hinum fjölmörgu fjöruferðum er
okkur sérstaklega minnisstæð, en
það var þegar öll frændahersingin
var með í för og við komum að
litlu lóni sem var yfirfullt af horn-
sílum. Eini vandinn var sá að við
áttum í miklum erfiðleikum með
að ná til þeirra. Afi, vopnaður
engu öðru en rauðri skúringafötu,
tók sig þá til og tæmdi svo gott
sem allt lónið með tilþrifum ein-
ungis til að einfalda okkur verkið.
Fyrir okkur kunni afi allt.
Hann sagði okkur alltaf mjög
skemmtilegar sögur og maður var
alltaf fróðari eftir hverja heim-
sókn á Helgó. Hann var sérlega
handlaginn og tálgaði t.a.m. kart-
öflubyssur úr tré og fjöðurstaf
handa okkur frændum. Fórum við
oft í kartöflubyssustríð í stóra
garðinum á Helgó, sem var algjör
draumagarður fyrir fjóra fjöruga
frændur. Afi kunni ótal ljóð og
söngva og oft á tíðum brast hann
óvænt í söng við mikla kátínu okk-
ar bræðra þar sem hann sat við
eldhúsborðið á Helgó og lagði
kapal af miklu kappi. Hann var
einnig hnyttinn með eindæmum
og var ávallt stutt í grín og glens.
Afi vildi alltaf allt fyrir okkur
gera og á stóran þátt í því hvernig
menn við erum í dag. Hann bjó yf-
ir svo mörgum eiginleikum sem
hann miðlaði áfram til okkar sem
og annarra, svo sem og
umburðarlyndi og réttsýni. Við
erum afar þakklátir fyrir allt það
sem hann hefur kennt okkur og
skilur eftir.
Elsku afi, þín verður sárt sakn-
að og við munum geyma þær
minningar sem við eigum með þér
um ókomna tíð. Nú ertu kominn
þangað sem þú vilt vera, í faðm
ömmu Erlu.
Ari Steinn og Sindri Snær.
Elsku afi. Takk fyrir dýrmæt-
ustu gjafirnar sem þú gafst mér
en það voru ljóðin sem þú ortir í
afmæliskortin mín.
Takk fyrir að hafa arfleitt Odd-
nýju Erlu að einu af hálsmenum
ömmu. Henni þykir rosalega
vænt um það enda hafði hún það á
sér á fermingardaginn.
Þið Theodór takið skákina
seinna – hann var alltaf svo
áhugasamur um pennasafnið þitt
og þér fannst líka gaman að sýna
honum það. Í hverri heimsókn var
það skoðað.
Ég veit að þér líður vel núna,
loksins kominn til ömmu Erlu
sem þú saknaðir svo sárt.
Takk fyrir allt og góða ferð
elsku afi.
Áslaug Ósk Hinriksdóttir
og fjölskylda.
Elsku Steini okkar, nú ert þú
fallinn frá og komið að kveðju-
stund. Við systkinin erum óend-
anlega þakklát fyrir að þú komst
inn í líf mömmu og gekkst okkur í
föðurstað. Þú reyndist okkur allt-
af vel, studdir okkur í einu og öllu.
Nú er jarðvist þinni lokið og þú
horfinn á braut í faðm mömmu
okkar, sem hefur tekið fallega á
móti þér. Við höldum áfram með
allar þær mörgu og góðu minn-
ingar sem við munum varðveita í
hjörtum okkar.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Guð veri með þér, elsku Steini
okkar.
Marteinn, Óskar og Linda.
Steingrímur
Jónsson
✝ Björn HelgiJónsson fædd-
ist á Bakka í Við-
víkursveit í Skaga-
firði 31. október
1921. Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 1. apríl
2018.
Foreldrar hans
voru Jón Björnsson
bóndi og Guðrún
Jóhanna Guð-
mundsdóttir. Systkin Björns
Helga voru Björn Helgi, Helga,
Jóhanna Guðrún, Guðmundur,
gríms Björnssonar fyrri manns
hennar eru Ingibjörg Sigríður,
hún á fjögur börn, Benedikta
Sigríður, hún á tvo syni, og
Birna, lætur eftir sig þrjár
dætur.
Björn Helgi lauk stúdents-
prófi frá MA 17. júní 1947. Varð
guðfræðingur frá Háskóla Ís-
lands 1951 og var vígður prest-
ur í Árnesi á Ströndum sama ár.
Hann var sóknarprestur á Húsa-
vík í 23 ár og þjónaði síðustu
fimm árin í Staðarfellspresta-
kalli þar til hann lét af störfum
1991. Jafnhliða stundaði hann
kennslu ásamt ýmsum öðrum
störfum. Hann var þekktur fyrir
söfnun á blöðum, tímaritum og
bókum.
Útför Björns Helga fer fram
frá Fossvogskirkju í dag, 10.
apríl 2018, og hefst klukkan 13.
Jón Bakkmann og
Sigrún Ingibjörg.
Fyrri kona
Björns Helga var
Fríða Björg Ólafs-
dóttir. Sonur þeirra
er Björn og á hann
fjögur börn. Þau
skildu.
Seinni kona
Björns Helga var
Ásta Sigurdís
Valdimarsdóttir.
Þeirra börn eru Guðrún Auður,
á hún fimm börn, og Jón Hrafn,
barnlaus. Dætur Ástu og Stein-
Kynni okkar séra Björns hóf-
ust fyrir um tveimur áratugum.
Björn var þá kominn á eftirlaun
sem prestur á Húsavík og var
fluttur suður til Reykjavíkur.
Þar opnaði hann fornbókasöl-
una sína, Pistilinn við Hjarðar-
haga. Í viðtali sem birtist þá við
Björn í Morgunblaðinu kom
fram að hann ætti stórt safn
blaða og tímarita og átti ég því
erindi við hann, þar sem mig
vantaði eitt og annað blaða- og
bókakyns sem hann gæti
hugsanlega hjálpað mér með.
Það kom á daginn að það var
ekkert smáræðis safn sem
Björn flutti með sér suður.
Safnið fyllti ekki aðeins heila
íbúð á Hjarðarhaganum, hann
var einnig með bílskúr á leigu.
Fæstir sem fást við fornbóka-
sölu leggja í það þrekvirki að
safna blöðum og tímaritum, því
að þau taka endalaust pláss. En
séra Björn sá aldrei ljón og
birni á veginum. Það fer ekki á
milli mála að með þessari söfn-
un sinni hefur Björn bjargað
mörgu blaðinu frá glötun. Ég
veit til þess að hann gaf Lands-
bókasafninu ýmislegt sem ekki
var þar til fyrir.
Á Hjarðarhaganum var
Björn í essinu sínu innan um öll
blöðin sem hann hafði sankað
að sér. Björn var ekki safnari
sjálfur, hann var fyrst og
fremst miðlari. Hann var að
þjónusta bókasafnarastéttina,
sem nú er á miklu undanhaldi,
en endurnýjun í þeirri stétt
meðal yngra fólksins er lítil sem
engin. Í dag eru komnir aðrir
miðlar.
Það var alltaf gaman að
koma á Hjarðarhagann og
gramsa. Björn tók alltaf bros-
andi á móti manni. Ekki var síð-
ur gaman að ræða við Björn,
hvort sem verið var að ræða
málefni líðandi stundar, bækur,
blöð eða trúmál, en þar var
Björn á heimavelli. Björn bjó
yfir gífurlegum fróðleik um
blaðaútgáfu, vissi alltaf upp á
hár hve margir árgangar komu
út, hvaða eintök var erfiðast að
ná í og áður en blöðin komu á
netið sló maður upp í Birni.
Minni hans var nær óbrigðult,
hann var með þetta allt á
hreinu. Ég hefi lýst bókamann-
inum séra Birni, en það var afar
margt annað í Björn spunnið
sem er frásagnarvert en hér læt
ég staðar numið. Eftir að Björn
lokaði Pistlinum var gott að
sækja hann heim í Lönguhlíð-
ina. Undanfarin ár höfum við
hjónin farið á vorin með Björn
austur yfir fjall. Í þeim ferðum
færði hann Konubókastofu á
Eyrarbakka bókagjafir. Björn
hafði kímnigáfu í ríkum mæli og
við hlógum oft mikið saman.
Á þessari kveðjustund eru
okkur hjónunum efst í huga
þakkir til Björns fyrir góð
kynni og ánægjulegar samveru-
stundir. Aðstandendum vottum
við innilega samúð. Blessuð sé
minning hans.
Sigfús A. Schopka.
Kveðja samstúdenta MA ’47
Vakti af mildi
vörslumaður hjarðar.
Góð var í gildi
gerð sem miklu varðar.
Vildarkveðju verður,
vinur dygðafróður,
genginn er góður.
Halldóra Ásgeirsdóttir.
Björn Helgi
Jónsson
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
LOK
Á POTTA
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast
bæði í Mogganum og á mbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?