Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 100. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Látin fjölskylda í faðmlögum 2. Reyndu að koma heillegum munum út 3. Óttuðust afleiðingar þess að stíga fram 4. Misstu af flugi vegna millinafns »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Camus-kvartettinn kemur fram á tónleikum vordagskrár Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu, í kvöld kl. 21. Kvartettinn var stofnaður árið 2014 af skólasystkinum í Tónlistar- skóla FÍH. Hljómsveitin mun leika djassstandarda sem eru í uppáhaldi hjá liðsmönnum hennar auk frum- samins efnis. Kvartettinn skipa Sölvi Kolbeinsson á saxófón, Rögnvaldur Borgþórsson á gítar, bassaleikarinn Birgir Steinn Theodórsson og Óskar Kjartansson sem leikur á trommur. Camus-kvartettinn leikur á Múlanum Morgunblaðið/Þórður  Fílharmóníuhljómsveit New York- borgar, undir stjórn Esa-Pekka Sal- onen, frumflutti 4. apríl sl. nýtt verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur tónskáld og var það flutt á þrennum tón- leikum í síðustu viku, auk 3. píanó- konserts og Eroica-sinfóníu Beet- hovens. Tónverk Önnu nefnist „Metacosmos“ og í gagnrýni dag- blaðsins New York Times, sem birt var 5. apríl, skrifar gagnrýnandi, Ant- hony Tommassini, að hann hafi verið hugfanginn af flókinni samsetningu tóna og lita í verkinu. „Fröken Þor- valdsdóttir fór vissulega með okkur í drungalegt ferðalag, kaflaskipt en þó skýrt,“ skrifar hann meðal annars og greinilegt af gagnrýn- inni í heild að hann hreifst mjög af verkinu. Drungalegt ferðalag í „Metacosmos“ Önnu Á miðvikudag Víða suðaustanátt, 10-15 m/s, og rigning á vestan- verðu landinu en hægari vindur og þurrt austanlands. Hiti verður víða 2 til 8 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-15 m/s vestantil, annars hæg- ari. Víða skúrir, einkum um landið sunnanvert, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 8 stig. VEÐUR KR-ingar jöfnuðu metin gegn Haukum í undan- úrslitaeinvígi liðanna á Ís- landsmóti karla í körfu- knattleik í gærkvöld á ævintýralegan hátt. Allt stefndi í annan sigur Hauka í jafnmörgum leikjum þegar Björn Kristjánsson jafnaði fyrir KR með magnaðri þriggja stiga körfu og Vesturbæingar voru síðan sterkari í framlengingu. »3 Ævintýralegur sigur KR-inga „Þetta hefur verið mikið ævintýri hjá okkur síðustu þrjú árin. Við fórum óvænt upp úr deildinni fyrir ári og höfum átt á brattann að sækja á þessari leiktíð sem kom svo sem ekk- ert á óvart. Hüttenberg er það lið deildarinnar sem hefur úr minnstu að moða fjárhagslega. Við erum að- eins fjórir atvinnu- menn hjá lið- inu,“ segir Ragnar Jó- hannsson, nýliði í landsliðinu í handbolta, sem leikur með Hütten- berg í efstu deildinni í Þýskalandi. »4 Mikið ævintýri undanfarin þrjú ár Haukakonur eru komnar í góða stöðu í undanúrslitum Íslands- móts kvenna í handknattleik eftir sigur gegn Val í fram- lengdum leik á útivelli í gær- kvöld, 23:22. Valur virtist vera kominn með undirtökin í fram- lengingunni en Haukar skoruðu þrjú síðustu mörkin og eru nú 2:1 yfir í einvígi liðanna. »2 Haukakonur eru komn- ar með undirtökin ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Undanfarna mánuði hafa úrsmiðir og hönnuðir hjá JS Watch Company Reykjavik og Gilbert úrsmiði unnið að hönnun sérstaks HM-úrs, WORLD CUP MMXVIII, eins og það heitir, og verður það kynnt í dag, þriðjudaginn 10. apríl, en það fer í sölu í takmörkuðu upplagi í byrjun maí. Sömu sérfræð- ingar framleiddu EM-úr 2016 og fékk það sérlega góðar við- tökur, sem varð til þess að ákveðið var að halda áfram á sömu braut. Fyrir úrslitakeppni Evrópu- mótsins í knattspyrnu 2016 var hannað sérstakt EM-úr í sam- starfi við landsliðsmennina. Það var gert með góð- um árangri og þegar ljóst var að Ísland yrði með í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Rússlandi í sumar óskaði fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson fyrir hönd leikmanna í landsliðinu eftir því við Sig- urð Gilbertsson úrsmið að búin yrði til ný útgáfa af úri og nú í tengslum við HM. Framleitt í 300 númeruðum eintökum EM-úrið var framleitt í 100 númeruðum eintök- um og varð uppselt mjög fljótt, en HM-úrið verður framleitt í 300 númeruðum eintökum og eru við- skiptavinir nú þegar byrjaðir að taka frá númer þó að úrið hafi ekki verið sýnt fyrr en nú. Grímkell P. Sigurþórsson hönnuður segir að hönnun svona úrs sé mikið vandaverk og huga þurfi að mörgum smáatriðum. Þannig séu til dæmis tölurnar frá einum og upp í ellefu silfraðar. Þær tákni leikmennina. Tólfan eða tölustafurinn 12 á skífunni sé rauð og tákni áhorfendur eða stuðningsmenn, 12. leikmanninn. „EM-úrið var blátt, tónað í lit landsliðstreyjanna, en HM-úrið er hvítt með blá mínútustrik upp í 45 en síðustu 15 mínúturnar eru afmarkaðar með rauðum strikum og á því svæði hringsins stendur „HALF TIME“ með vísun í leiktímann,“ segir Grímkell. Hann segir að hugmyndin hafi komið frá markatöflunni á gamla Melavellinum þar sem Gilbert spilaði fót- bolta með Fylki í gamla daga, en klukkan sýndi einungis 45 mínútur. Sekúnduvísirinn á úrinu er svo blár og í laginu eins og víkingaspjót. Á botn- inum á skífunni stendur ritað „FYRIR ÍSLAND“ og fyrir neðan miðju er nafn úrsins, WORLD CUP MMXVIII, þar sem R-ið snýr öfugt. „Það er til marks um það að keppnin fer fram í Rúss- landi,“ bendir Grímkell á. Á bakhliðinni stendur nafn framleiðandans, nafn úrsins og „VAR ÞAÐ EKKI“. Gilbert segir að það sé til að minna á fagnaðarsöng landsliðsins eftir sigurleiki. Fyrstu 30 númerin eru frátekin fyrir landsliðshópinn. Gilbert úrsmiður framleiðir úr undir merkjum JS Watch Co. Reykjavik og ARC-TIC Iceland. Grímkell segir að algengt verð á JS-úrunum sé 250.000 til 400.000 og verð á sérútgáfum sé upp í 1,8 milljónir kr., en EM-úrið hafi kostað um 370.000 kr. og HM-úrið verði á svipuðu verði. „Þótt um takmarkað upplag sé að ræða og úrin verði ekki framleidd aftur höldum við verðinu á svipuðum stað og algengustu úrin frá okkur,“ segir hann. Dýrgripur fangar HM-tímann Morgunblaðið/RAX Sérfræðingarnir Grímkell P. Sigurþórsson, Gilbert Guðjónsson með HM-úrið og Sigurður Gilbertsson.  Úrsmiðir og hönnuðir hjá JS Watch Company Reykja- vik og Gilbert úrsmiði hafa hannað sérstakt HM-úr Framhliðin Hugað er að hverju smáatriði. Bakhliðin Fögnuðurinn leynir sér ekki. Trekkjarinn Bolti á enda krónunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.