Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
á sótthitabreytist eftir aldri?
Thermoscaneyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
Síðumúli 11 - 108 Reykjavík | Dalshraun 13 - 220 Hafnarfjörður
560-8888 • www.vfs.is
Þegar þig vantar alvöru hörkutól
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Kvartbuxur
Verð 7.900.-
Str. 36-52
Litir: blátt, hvítt, beige
„Ljóst er að þörfin er gríðarleg fyr-
ir aðstoð á svæðinu og verður um
ókomin ár, bæði vegna átaka og
einnig uppbyggingar,“ segir Atli
Viðar Thorstensen, sviðsstjóri
hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða
krossins á Íslandi.
Það sem af er ári hefur Rauði
krossinn á Íslandi sent samtals
142,6 milljónir króna til mannúðar-
aðstoðar í Sýrlandi og öðrum ríkj-
um sem tengjast átökunum þar í
landi. Þar af hafa 20 milljónir króna
farið til mannúðaraðstoðar Al-
þjóðaráðs Rauða krossins og Rauða
hálfmánans í Sýrlandi, með sér-
staka áherslu á aðstoð og vernd fyr-
ir almenna borgara. Aðrar 20 millj-
ónir króna voru sendar í lok janúar
en þær átti að nýta í baráttu gegn
kynferðislegu ofbeldi. Þá fóru 20,5
milljónir króna til blóðbanka Rauða
krossins í Líbanon sem tryggir
örugga blóðgjöf handa sýrlensku
flóttafólki sem og berskjölduðu fólki
í Líbanon, 32,5 milljónir króna til
fjárhagsaðstoðar til einstæðra
mæðra í Líbanon, 31 milljón króna
hefur farið til Rauða hálfmánans í
Jórdaníu og 18,6 milljónir króna
hafa farið til Rauða hálfmánans í
Tyrklandi. Almenningur getur stutt
við starf Rauða krossins í Sýrlandi
með því að senda SMS-ið HJALP í
1900 og 2.900 krónur dragast af
símreikningi.
AFP
Sýrland Rauði krossinn á Íslandi hefur það sem af er ári sent um 143 millj-
ónir króna út til mannúðaraðstoðar vegna stríðsins í Sýrlandi.
143 milljónir til
mannúðaraðstoðar
Nýtt 7,6 kílómetra utanvegahlaup
frá Jarðböðunum í Mývatnssveit, í
gegnum Vogaland og með enda-
mark í Dimmuborgum 25. maí
verður tengt Mývatnsmaraþoninu
daginn eftir. Reiknað er með 30-40
þátttakendum í utanvegahlaupinu,
sem kallað er Hraunhlaupið (Lava
Run).
Þar sem Dimmuborgir eru frið-
lýstar sem náttúruvætti þarf sér-
stakt leyfi frá Umhverfisstofnun
fyrir viðburðinum og hefur það nú
verið veitt með ákveðnum skil-
yrðum um framkvæmd. Samkvæmt
gjaldskrá stofnunarinnar verða inn-
heimtar 39.400 krónur vegna
vinnslu og afgreiðslu umsókn-
arinnar. Fyrirhugað er að kynna
Hraunhlaupið á næstunni.
Mývatnsmaraþonið hefur hins
vegar verið haldið síðan 1995 og er
keppt í nokkrum lengdar- og ald-
ursflokkum. Soffía Kristín Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Mývatns-
stofu, segir að bókanir í maraþonið
gangi vel og fjöldinn sé þegar orð-
inn meiri en í fyrra, en þá voru
þátttakendur 112 talsins og eru
bókanir í fullum gangi. Meira en
helmingur hlauparanna kemur frá
útlöndum, en maraþonið hefur ver-
ið haldið frá árinu 1995.
Tæplega 40 þúsund krónur
fyrir „Hraunhlaupið“
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Mývatnsmaraþon Hátt í 200 keppendur voru í hlaupinu vorið 2007.
Notendur Hugarafls og Geðheilsu –
Eftirfylgdar (GET) hafa boðað til
þögulla mótmæla við Velferðar-
ráðuneytið í dag kl. 13, skv. frétta-
tilkynningu. Nokkur hundruð
manns höfðu tilkynnt komu sína á
facebook-síðu mótmælanna í gær.
Tilefnið sé að slíta eigi 15 ára sam-
starfi GET og Hugarafls. Í skýrslu
Sameinuðu þjóðanna, „Réttindi
hvers manns til þess að njóta bestu
mögulegrar líkamlegrar og and-
legrar heilsu“ og skv.„Stefnu og að-
gerðaráætlun í geðheilbrigð-
ismálum“, sem Alþingi á að vinna
eftir , er samvinnu sem þessari lýst
sem framtíð geðheilbrigðisþjónustu
en nú sé verið að hverfa til fortíðar.
Í lok mótmælanna verði afhent
áskorun til ráðherra um að axla
ábyrgð og tryggja notendum sam-
bærilega þjónustu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í fyrra Mótmæli vegna fjárveitingar.
Boðað til þögulla
mótmæla í dag