Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018
Nánari upplýsingar áwww.geosilica.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
Unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil og
mangan í hreinu íslensku vatni.
Repair er sérstaklega hannað og þróað fyrir
uppbyggingu beina og styrkingu bandvefjar þ.m.t.
liðbönd, liðþófar og krossbönd.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við þurfum að halda vel utan um
vörumerkið Ísland. Það færist í
aukana að það séu aðilar að reyna að
tengja sig við Ísland og nota nafnið.
Það eru auðvitað fjárhagslegir hags-
munir í húfi en líka meira en það,“
segir Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra.
Utanríkisráðuneytið hefur síðasta
áratug sinnt vörumerkjavöktun
vegna orðsins Íslands um heim allan.
Með því er gætt að réttmætri notkun
orðsins í viðskiptum enda talið mik-
ilvægt að íslensk fyrirtæki geti
kennt sig við Ísland og hið opinbera
geti notað landsheiti sitt í viðskipta-
tengdar landkynningar. Umfang
þessarar vöktunar hefur aukist hratt
síðustu ár. Ráðuneytið kaupir þjón-
ustu vöktunarfyrirtækis á sviði hug-
verkaréttar og á undanförnum árum
hefur skráningum á orðinu Íslandi
sem vörumerki fjölgað mjög. Kostn-
aður vegna þessa hefur að sama
skapi margfaldast. Árið 2012 nam út-
lagður kostnaður vegna vöktunar og
andmæla tæpum 900 þúsund krón-
um, árið 2016 var hann kominn í
rúmar þrjár milljónir króna og í
fyrra slagaði hann hátt í átta millj-
ónir.
„Sem betur fer er Ísland eftirsótt
og þá vilja menn tengja sig við landið.
En við getum ekki látið hvað sem er
viðgangast og þurfum því að fylgjast
með þessum málum. Það er verkefni
sem kostar bæði vinnu og fjármuni.
Þetta er mjög mikilvæg hagsmuna-
gæsla,“ segir Guðlaugur Þór.
Í skýrslu ráðherra um utanríkis-
og alþjóðamál sem lögð var fram á
Alþingi í gær kemur fram að skrán-
ingum sem innihéldu orðið Ísland
hafi fjölgað mjög eftir velgengni ís-
lenska karlalandsliðsins á Evrópu-
meistaramótinu í knattspyrnu fyrir
tveimur árum. „Gera má ráð fyrir
svipaðri þróun á næstunni, m.a.
vegna þátttöku íslenska karlalands-
liðsins í heimsmeistaramótinu í fót-
bolta í Rússlandi næsta sumar,“ seg-
ir í skýrslunni.
Guðlaugur Þór sagði við Morgun-
blaðið í gær að umfang umræddrar
vöktunar og kostnaður myndu að lík-
indum vaxa að sama skapi: „Umfang-
ið mun örugglega ekki minnka,“
sagði hann.
Afhentu þjóðinni Icelandic
Forsvarsmenn Icelandic Group
ehf. afhentu í gær Katrínu Jakobs-
dóttur forsætisráðherra vörumerkin
Icelandic og Icelandic Seafood til
eignar fyrir hönd íslensku þjóðarinn-
ar. Vörumerkin eru í eigu Icelandic
Trademark Holding ehf. sem heldur
utan um skráningu, vernd og notkun
vörumerkjanna og tryggir að þau séu
nýtt í tengslum við sölu og markaðs-
setningu íslenskra afurða og þjón-
ustu.
„Mjög mikilvæg hagsmunagæsla“
Kostnaður og umfang við vörumerkjavöktun vegna hugtaksins Íslands hefur margfaldast síðustu ár
Búist við auknu umfangi vegna HM í knattspyrnu í sumar Vörumerkið Icelandic í eigu þjóðarinnar
Morgunblaðið/Valli
Afhending Forsvarsmenn Icelandic Group ehf. afhentu ráðherrum vöru-
merkin Icelandic og Icelandic Seafood til eignar í Þjóðmenningarhúsinu.
Agnes Bragadóttir
Höskuldur Daði Magnússon
„Það er þung undiralda hérna í
Vestmannaeyjum. Það virðist vera
fótur fyrir þessu
framboði,“ segir
Leó Snær
Sveinsson, einn
skipuleggjenda
stofnfundar nýs
bæjarmálafélags
í Vestmanna-
eyjum.
Nokkur að-
dragandi er að
stofnun þessa fé-
lags og var stofnfundur þess aug-
lýstur í gær: „Markmið með stofn-
un félagsins er að bæta sam-
félagið. Vestmannaeyjar eru góður
staður til að búa á en við getum
alltaf gert betur. Allir velkomnir
sem vilja stuðla að betra sam-
félagi.“ Ofangreind fréttatilkynn-
ing birtist á forsíðu vefritsins eyj-
ar.is í gær og undirritun tilkynn-
ingarinnar var: „Áhugafólk um
betra samfélag.“
Íris mætir á fundinn
Íris Róbertsdóttir hefur verið
orðuð við sérframboð í sveitar-
stjórnarkosningunum í vor vegna
óánægju með það að ekki fór fram
prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í
Eyjum þegar framboðslistinn var
ákveðinn. Hún var í gær spurð
hvort hún væri forsvarsmaður
„áhugafólks um betra samfélag“ í
Eyjum:
„Nei, það er ég ekki, en hef hins
vegar hugsað mér að mæta á
þennan fund,“ sagði Íris í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Leó Snær sagði að á fundinum
yrði tekin ákvörðun um hvort nýtt
framboð yrði að veruleika. „Við
ætlum að sjá hvort það sé vilji hjá
fólki, það er ekkert hægt að
hinkra lengur,“ sagði hann.
Leó vildi ekki staðfesta að fram-
boðið stæði og félli með því að Íris
skipaði efsta sæti á lista þess: „Ír-
is er stór vinkill í þessu en hún er
ekki sú eina. Þetta snýst um meira
en það.“
„Þung undiralda í Eyjum“
Óánægjuframboð í Eyjum undirbúið Stofnfundur nýs
félags á fimmtudag Íris Róbertsdóttir boðar komu sína
Íris
Róbertsdóttir
Fjármála- og
efnahags-
ráðherra skipaði
nýja stjórn
Landsvirkjunar
á aðalfundi henn-
ar í gær, skv.
fréttatilkynningu
frá fyrirtækinu.
Jónas Þór
Guðmundsson
var endurkjörinn
stjórnarformaður. Aðrir aðalmenn
eru Álfheiður Ingadóttir, Jón
Björn Hákonarson, Guðfinna Jó-
hanna Guðmundsdóttir og Gunnar
Tryggvason. Varamenn eru Jens
Garðar Helgason, Ragnar Ósk-
arsson, Ásta Pálmadóttir, Hákon
Hákonarson og Arna Ír Gunnars-
dóttir. Úr stjórn fóru Haraldur
Flosi Tryggvason, Kristín Vala
Ragnarsdóttir og Ragnheiður Elín
Árnadóttir. Aðalfundur staðfesti
skýrslu fráfarandi stjórnar og sam-
stæðureikning fyrir liðið reiknings-
ár. Deloitte ehf. var kosið endur-
skoðandi að fenginni tillögu
Ríkisendurskoðunar. Samþykkt
var tillaga stjórnar um 1,5 millj-
arða króna arðgreiðslu fyrir árið
2017.
Ný stjórn
skipuð í gær
Jónas Þór
Guðmundsson
Aðalfundur
Landsvirkjunar
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar lenti síðdegis í
gær á Ísafirði til að sinna sjúkraflugi frá bænum.
Vegna sterkrar sunnanáttar gátu vélar Mýflugs
ekki lent á flugvellinum við Skutulsfjörð og því
var brugðið á það ráð að kalla þyrlu á vettvang.
Þegar sunnanáttin nær sér á strik og kemur æð-
andi yfir Kirkjubólsfjall, sem rís 706 metra yfir
sjávarmál, gerir það flugvélum erfitt fyrir að at-
hafna sig við flugtak og lendingu.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Þyrlan kölluð til þegar annað bregst