Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 27
nemendur og kennum á bilinu 30 til 40
nemendum frá öllum heimshornum.
Við kennum þeim forníslensku, förum
í fornsögurnar og í helstu viðfangsefni
fræðanna, s.s. á sviði heimildagildi,
málsögu, trúarbragða og sagnfræði
svo eitthvað sé nefnt.
Það er athyglisvert hvað þessi
menningararfur okkar vekur mikinn
og vaxandi áhuga og ástríður um allan
heim. Það hafa 50 nemendur frá okkur
verið teknir í doktorsnám, víða um
heim, þ. á m. í Oxford og Cambridge.
Sumir fyrrverandi nemendur okkar
eru nú þegar farnir að kenna í háskól-
um víða um heim. Þessi uppbygging
hefði því líklega einhvern tíma verið
kölluð mikilvæg landkynning.“
Torfi var forseti Alliance Francaise
1982-92, sat í stjórn BHM um skeið og
í stjórn Félags prófessora við ríkishá-
skóla, var skorarformaður rómanskra
mála við HÍ og er að taka við sem
deildarforseti Íslensku- og menning-
ardeildar HÍ.
Þegar kemur að hugðarefnum seg-
ist Torfi hafa áhuga á ferðalögum inn-
anlands, ekki síst sögufrægum slóðum.
Hann er töluvert pólitískur, segist
vera vinstri krati, spilar á gítar og
syngur með af hjartans lyst þegar sá
gállinn er á honum.
Fjölskylda
Eiginkona Torfa er Guðbjörg Vil-
hjálmsdóttir, f. 14.12. 1956, prófessor í
náms- og starfsráðgjöf. Foreldrar
hennar voru Vilhjálmur Árnason, f.
15.9. 1917, d. 8.3. 2006, hrl, í Reykjavík,
og k.h., Sigríður Ingimarsdóttir, f.
1.10. 1923, d. 28.4. 2008, ritstjóri í
Reykjavík.
Börn Torfa og Guðbjargar eru 1)
Kári Torfason Tulinius, f. 26.2. 1981,
skáld og rithöfundur í Helsinki en
kona hans er Vilja-Tuulia Huotarinen,
skáld og rithöfundur og sonur þeirra
Kasper Leo Tulinius, f. 2015, og 2) Sig-
ríður Torfadóttir Tulinius, f. 13.3. 1986,
lögfræðingur í sérfræðiteymi SNP á
breska þinginu, búsett í London en
unnusti hennar er Steinar Örn Jóns-
son lögfræðingur.
Systkini Torfa eru Már Tulinius, f.
29.7. 1953, prófessor í barnalækn-
ingum í Gautaborg; Þór Tulinius, f.
22.6. 1959, leikari og leikstjóri í
Reykjavík; Guðný Helga Tulinius, f.
1.1. 1967, d. 17.6. 1986, og Sif Margrét
Tulinius, f. 25.3. 1970, fiðluleikari í
Berlín..
Foreldrar Torfa: Hrafn Tulinius, f.
20.4. 1931, d. 31.7. 2015, yfirlæknir og
prófessor í Reykjavík, og k.h., Helga
Brynjólfsdóttir Tulinius, f. 1.10. 1931,
píanókennari í Reykjavík.
Úr frændgarði Torfa H. Thulinius
Torfi H. Tulinius
Helgi Sveinsson
bankastj. og bæjarfulltr. á Ísafirði
Guðný Helgadóttir
húsfr. í Rvík
Brynjólfur Jóhannesson
leikari í Rvík
Helga Brynjólfsdóttir
Tulinius píanókennari í Rvík
Pálína Brynjólfsdóttir
húsfr. í Rvík
Jóhannes Jensson
skósmíðam. í Rvík
Einar Oddur
Kristjánsson
alþm. og
form. VSÍ
Teitur Björn
Einarsson
fyrrv. alþm.
og nú vþm.
María
Jóhannsdóttir
stöðvarstj.
Pósts og síma
á Flateyri
Ragnar Aðalsteinsson hrl. Sólveig Helgadóttir húsfr. í Rvík
Helgi Þorláksson sagnfræðingur Þorlákur Helgason verkfr. í Rvík
inar Eiríksson
kaupmaður
EEiríkur Bergmann Einarsson
stjórnmálafræðingur
Helga Helgadóttir
húsfr. í Rvík
Brynjólfur Bjarnason
fyrrv. forstj. Granda
og Símans
Kristjana
Brynjólfsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðrún Torfadóttir
símststj. á Flateyri í Önundarfirði, dóttir Torfa
Halldórssonar skipstjóra og kaupmanns á Flateyri
Jóhann Lúther Sveinbjarnarson
prófastur á Hólmum í Reyðarfirði
Margrét Jóhannsdóttir Tulinius
húsfr. í Rvík
Hallgrímur Axel Tulinius
stórkaupm. í Rvík
Guðrún Tulinius
húsfr. á Eskifirði og í
Rvík, dóttir Hallgríms
Sveinssonar biskups
Þórarinn E. Tulinius stórkaupmaður og stofnandi Thorefélagsins
Jakobína Margrét
Tulinius kennari
í Rvík
gný Thoroddsen
sálfr. í Rvík
SiKatrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Ottó Friðrik Tulinius
útgerðarm. og
kaupm. á Akureyri
Axel V. Tulinius
sýslum. í Múlasýslum, forstj. Sjóvátryggingafél.
Íslands, forseti ÍSÍ og skátahöfðingi Íslands
Hrafn Tulinius
læknir og prófessor í Rvík
Kristjana Jónsdóttir,
dóttir Jóns Sigurðssonar alþm. á Gautlöndum
ebekka Jónsdóttir
húsfr. á Ísafirði
R
Haraldur Guðmundsson alþm. og ráðherra
Sigurður Guðmundsson
bakarameistari á Ísafirði
Jón Sigurðsson fyrrv. alþm.,
ráðherra og bankastj.
Kristján Jónsson ráðherra og háyfirdómari
Pétur Jónsson alþm. og ráðherra
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018
www.gilbert.is
Framleıtt í takmörkuðu upplagı
Aðeıns 300 stk í boðı
JS WATCH
WORLD CUP
MMXVIII
20 18G
erður Helgadóttir fæddist að
Tröllanesi í Norðfirði 11.4.
1928, dóttir Helga Pálssonar,
kaupfélagsstjóra og tónskálds, og
Sigríðar Erlendsdóttur húsfreyju.
Gerður ólst þar upp til níu ára ald-
urs er fjölskyldan flutti til Reykjavík-
ur.
Gerður stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskólann 1945-47 en
aðalkennarar hennar þar voru Kurt
Zier og Kjartan Guðjónsson. Hún
fékk einnig tilsögn um meðferð
áhalda við höggmyndagerð hjá Sig-
urjóni Ólafssyni myndhöggvara,
stundaði nám við Acccademia di Belle
arte í Flórens í tvö ár, og við Académ-
ic de la Grande-Chaumiére í París
1949-50, en aðalkennari hennar þar
var Ossip Zadkine sem var rúss-
neskur myndhöggvari. Þá stundaði
hún nám við einkaskóla Ossip Zadk-
ine veturinn 1950-51.
Gerður hélt einkasýningu í Lista-
mannaskálanum 1951, sýningu í
Bogasalnum með André Enard 1956,
og aðra sýningu í Bogasalnum, ásamt
eiginmanni sínum, Jean Leduc, árið
1962.
Meðal þekktra verka Gerðar eru
steindir gluggar í Hallgrímskirkju í
Saurbæ; steindir gluggar í Kópa-
vogskirkju; steindir gluggar í Skál-
holtskirkju; mósaíkmynd á Tollstöðv-
arhúsinu við Tryggvagötu í
Reykjavík; bronsmynd í Landsbank-
anum við Strandgötuna í Hafnarfirði;
bronsmynd í Menntaskólanum við
Hamrahlíð og steindir gluggar í Nes-
kirkju í Reykjavík.
Gerður var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 1974. Elín
Pálmadóttir, blaðamaður, rithöf-
undur og góð vinkona Gerðar, skrif-
aði bókina Gerður – Ævisaga mynd-
höggvara, en bókin varð metsölubók
1985, var síðan endurútgefin og átti
stóran þátt í því að opna augu manna
fyrir mikilvægi Gerðar í íslenskri
myndlist. Þá gaf Listasafn Kópavogs,
Gerðarsafn, sem kennt er við Gerði,
út bókina Gerður. Meistari glers og
málma.
Gerður lést 17.5. 1975.
Merkir Íslendingar
Gerður
Helgadóttir
95 ára
Fjóla Eggertsdóttir
90 ára
Stefán Valdimarsson
85 ára
Guðrún Bergsdóttir
80 ára
Guðrún Sveinbjörnsdóttir
Hjalti Einarsson
75 ára
Elín M. Höskuldsdóttir
Margrét K. Finnbogadóttir
Ragnar Jónsson
Sólrún J. Steindórsdóttir
70 ára
Ásgeir Sigurbergsson
Birgir K. Bernhöft
Elinborg Jónsdóttir
Eygló Antonia Óladóttir
Guðborg Tryggvadóttir
Jón Hansson
Jón Ólafsson
Karl Hjartarson
Kristinn Lund
Margrét Einarsdóttir
60 ára
Grazyna Bozena Bargiel
Guðrún J. Hreinsdóttir
Hafdís Ólafsdóttir
Hólmfríður A. Pálmadóttir
Jóhanna S. Hannesdóttir
Jón Stefán Kristjánsson
Katrín Kristjánsdóttir
Kristbjörg Jörgensdóttir
Kristján Sigurðsson
Margrét Bára Hjaltadóttir
Ragnhildur B. Erlingsdóttir
Torfi Tulinius
50 ára
Gunnar Jökull Þórðarson
Heiða Steingrímsdóttir
Hildur H. Imsland
Hugborg P. Erlendsdóttir
Jósef Pálsson
Magnús G. Jóhannesson
Nína Mikaelsdóttir
Przemyslaw W. Lakomski
Rósa Kristín Pálsdóttir
Sigrún Valdimarsdóttir
Snorri Gunnarsson
Soffía M. Sigurðardóttir
40 ára
Anna Heiður Baldursdóttir
Arsénio Orlando Martins
Morais
Ásgeir Már Andrésson
Baldur Gunnarsson
Bjarki Þór Hallvarðsson
Björn Þór Guðmundsson
Dragan Popovic
Einar Valur Aðalsteinsson
Guðbjörg Brá Gísladóttir
Haraldur Geir Valsteinsson
Heiðrún Sigurðardóttir
Helena Dögg Haraldsdóttir
Hilmar Erlingsson
Ingi Sölvi Arnarson
Ingvar Erlingsson
Marcin Szafranowicz
Mouhcine Ait Youssef
Natalia Gonzalez Hidalgo
Róbert Örn Arason
30 ára
Alexandru Stoian
Gints Strautmanis
Guðný Sjöfn Þórðardóttir
Hermann V. Valbjörnsson
Ingibjörg B. Ísberg
Jóhann Finnsson
Leifur Grétarsson
Milda Pilkiené
Robert-Florin Bajan
Rósa Sigurðardóttir
Sveinn Orri Símonarson
Vigdís Sverrisdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sveinn býr í
Garðabæ, lauk prófi í
kvikmyndagerð og er leik-
stjóri.
Systkini: Jóhanna Sím-
onardóttir, f. 1970, sem
rekur Sjá ehf, og Vil-
hjálmur Styrmir Sím-
onarson, f. 1984, vinnur
við eftirvinnslu í kvik-
myndagerð.
Foreldrar: Símon Páls-
son, f. 1948, d. 2000, og
Þuríður Vilhjálmsdóttir, f.
1956.
Sveinn Orri
Símonarson
30 ára Leifur ólst upp í
Garðabæ, er búsettur þar,
lauk prófi í viðskiptafræði
frá Háskóla Íslands og er
starfsmaður hjá Credit
Info.
Maki: Lára Sif Christian-
sen, f. 1988, flugmaður.
Foreldrar: Jóna Sæ-
mundsdóttir, f. 1958, líf-
eindafræðingur hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu,
búsett í Garðabæ, og
Grétar Leifsson, f. 1957,
verkfræðingur í Kópavogi.
Leifur
Grétarsson
30 ára Jóhann ólst upp í
Keflavík, býr í Reykja-
nesbæ og er vaktstjóri hjá
Airport Associates í Leifs-
stöð.
Maki: Ása Sigurðardóttir,
f. 1989, starfsmaður við
Fríhöfnina í Leifsstöð.
Börn: Emma Karen, f.
2009; Frosti Freyr, f.
2015, og Arnar Logi, f.
2017.
Móðir: Elísabet Guð-
mundsdóttir, f. 1957,
fyrrv. símavörður.
Jóhann
Finnsson