Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Skýrsla Samtaka ríkja gegn spillingu
(GRECO) um fimmtu úttekt samtak-
anna á Íslandi verður birt í dag eftir
að það var heimilað á ríkis-
stjórnarfundi í gærmorgun. Verður
hún birt á vef Stjórnarráðsins, skv.
vef forsætisráðuneytisins.
Þar segir að úttektin taki til lög-
gæslu og æðstu handhafa fram-
kvæmdavalds, en skýrslunni fylgja 18
ábendingar til úrbóta, níu til hvors að-
ila. Til æðstu handhafa framkvæmda-
valds teljist ráðherrar, ráðuneytis-
stjórar og aðstoðarmenn ráðherra.
Stjórnvöldum er veittur frestur til 30.
september 2019 til að bregðast við
ábendingunum.
Stefna og fræðsla um heilindi
Í tillögunum kemur fram að vinna
þurfi stefnu til að bæta heilindi og
varnir gegn hagsmunaárekstrum hjá
æðstu handhöfum framkvæmda-
valds. Tryggja þurfi lögreglu aðbún-
að til að sinna störfum og framfylgja
stefnu á sviði heilinda. Siðareglur,
hvort tveggja fyrir æðstu handhafa
framkvæmdavalds og löggæsluna,
verði samræmdar og uppfærðar, unn-
ar leiðbeiningar með skýringum og
raunhæfum dæmum um öll svið spill-
ingar og hægt verði að leita ráðgjafar
um þær í trúnaði. Eftirlit og viður-
lagakerfi með framkvæmd siðaregln-
anna. Fræða þurfi æðstu handhafa
framkvæmdavalds og starfsmenn
löggæslu um opinber heilindi, hags-
munaárekstra og varnir gegn spill-
ingu með tilliti til eðlis starfanna, fjöl-
breytni og veikleika.
Hagsmunir, samskipti og störf
Settar verði reglur um samskipti
æðstu handhafa framkvæmdavalds
við hagsmunaaðila og aðra sem leitast
við að hafa áhrif á undirbúning lög-
gjafar og önnur störf stjórnvalda.
Reglur um aukastörf æðstu hand-
hafa framkvæmdavalds og starfs-
manna löggæslu verði endurskoðaðar
og gerð skýrari grein fyrir hvaða
störf eru óheimil, einnig eftir að störf-
um fyrir hið opinbera lýkur. Hlutverk
hæfnisnefndar við skipun í störf lög-
reglu verði eflt og komið verði á fót
heilindamati. Meginregla verði að
stöður innan lögreglu verði auglýstar
og skipað í þær á grundvelli gagnsæs
ferils. Skýr, sanngjörn og gegnsæ
viðmið liggi fyrir við ákvörðun um að
endurnýja ekki skipun í löggæslu-
starf og skýrt kæruferli verði fyrir
hendi vegna slíks.
Skýrari reglur þurfi um gjafir og
önnur fríðindi fyrir starfsmenn lög-
gæslu. Einnig fyrir æðstu handhafa
framkvæmdavalds, með skýrum far-
vegi fyrir tilkynningar, birtingu upp-
lýsinga og ráðgjöf.
Hagsmunaskráning æðstu hand-
hafa framkvæmdavalds verði bætt,
með tilliti til verðmætis eigna, fjár-
hæðar framlaga, skuldbindinga og at-
hugað verði með víkkun skráningar-
skyldu til maka og barna. Eftirlit,
ráðgjöf, fræðsla og viðurlagakerfi
verði sett á laggirnar til að tryggja
fullnægjandi skráningu og auka trú-
verðugleika.
Eftirlit með störfum lögreglu
Aðili sem sér um innra eftirlit og
rannsóknir verði til staðar undir
ábyrgð ríkislögreglustjóra, sem ætti
að hafa skýrt leiðtogahlutverk í innri
stefnumálum í tengslum við heilindi,
áhættustjórnun og eftirlit með lög-
reglunni. Endurskoða þurfi valda-
uppbyggingu innan lögreglunnar til
að tryggja skilvirka innleiðingu
stefnumótunar án afskipta ráðuneytis
eða stjórnmála. Settar verði skýrar
reglur um vernd uppljóstrara til við-
bótar tilkynningarskyldu sem sé til
staðar samkvæmt siðareglum.
GRECO með átján
ábendingar í skýrslu
Úrbóta þörf hjá framkvæmdavaldi og löggæslu eftir úttekt
Morgunblaðið/Golli
Framkvæmdavald og löggæsla Fá frest til septemberloka 2019 til úrbóta.
Varnir gegn spillingu
» Stefnumótun, siðareglur og
regluleg fræðsla um heilindi.
» Hagsmunaskráningar, sam-
skipti og störf meðfram og eft-
ir að opinberu starfi lýkur.
» Skýrar reglur um gjafir og
fríðindi í starfinu.
» Sjálfstætt eftirlit með störf-
um lögreglu og gagnsæi við
skipun í löggæslustörf.
» Vernd uppljóstrara.
Albert Jónsson,
fv. sendiherra,
verður ræðumað-
ur á hádegisfundi
Varðbergs á
morgun í fyrir-
lestrarsal Þjóð-
minjasafns við
Suðurgötu um
utanríkisstefnu
Rússlands, áhrif
á norðurslóðum
og stöðu Íslands. Albert var sendi-
herra Íslands í Rússlandi 2011 til
2016.
„Viðfangsefni Alberts á fundinum
er ekki aðeins tímabært vegna þess
hve mikil athygli beinist að utanrík-
isstefnu Rússa um þessar mundir
heldur er einnig brýnt að átta sig á
hvert stefnir á norðurslóðum og
hver áhrifin kunna að verða á stöðu
Íslands,“ segir m.a. í tilkynningu um
fundinn.
Albert var framkvæmdastjóri ör-
yggismálanefndar á árunum 1987-
1991. Frá 1992 til 2004 var hann ráð-
gjafi forsætisráðherra í utanríkis- og
öryggismálum. Hann hóf störf í
utanríkisráðuneytinu árið 2004,
fyrst sem sérlegur ráðgjafi
utanríkisráðherra og síðar sendi-
herra m.a. í Washington og Moskvu
til 2016. Hann lét af störfum í utan-
ríkisþjónustunni árið 2018 og sinnir
nú ráðgjöf og kennslu.
Fundurinn á morgun stendur frá
kl. 12-13 og er öllum opinn.
Fundað um
Rússana
Albert
Jónsson
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 8.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu.
Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur.
Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt
úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig.
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570
VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR
Norskir bátar hafa að undanförnu
landað samtals 11 þúsund lestum af
kolmunna hjá Loðnuvinnslunni á
Fáskrúðsfirði. Hefur þessi afli farið
í bræðslu hjá fyrirtækinu.
Skip fyrirtækisins, Hoffell SU,
hélt til kolmunnaveiða eftir
páskana í færeysku lögsögunni og
varð það fyrst íslenskra skipa til að
fá fullfermi. Er Hoffell nú á leið til
hafnar í Fáskrúðsfirði með aflann í
bræðslu. Á meðan þess er beðið var
landað um 100 tonnum af bolfiski
úr Ljósafelli SU, sem sést á mynd-
inni, en skipið hélt síðan á veiðar á
ný þegar löndun var lokið.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Góð kolmunnaveiði