Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á allt
NÝTT
HEAL VISIBLE
SIGNS OF TIME
LYFT IR , MÝK IR , GEFUR L JÓMA
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
AFSLÁTTUR AF BIOTHERM
DÖMU OG HERRAVÖRUM20%
GLÆSILEGUR KAUPAUKI FYLGIR ÞEGAR KEYPTAR ERU BIOTHERM
VÖRUR FYRIR 7.800 KR EÐA MEIRA Á MEÐAN BIRGÐIR ENDAST.
BIOTHERM KYNNING
MIÐVIKUDAG TIL FÖSTUDAGS
NÝTT Í BLUE THERAPY LÍNUNNI
Líffræðingar Biotherm hafa fangað lífskraft dýrmæts rauðs sjávarþörungs í einstaka
formúlu. Eftir því sem við eldumst fækkar collagen og elastin þráðum húðarinnar
verulega. BLUE THERAPY RED ALGAE UPLIFT hefur sjáanleg yngjandi og styrkjandi
áhrif á húðina: Útlínur andlitsins verða skýrari, húðin mýkri, stinnari og með meiri ljóma.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli
Íslands í ár hafa Samtök sunn-
lenskra sveitarfélaga (SASS) ákveð-
ið að fara í sameiginlegt sunnlenskt
átak í almennri tiltekt og umhverf-
isþrifum. Verkefnið ber heitið Um-
hverfis Suðurland og er það vilji
SASS að Suðurland verði leiðandi í
umhverfismálum á landsvísu. Verk-
efnið snýst að hluta um fræðslu til
íbúa og að virkja þá til þátttöku í
ýmsum viðburðum tengdum um-
hverfismálum. Hvert sveitarfélag á
Suðurlandi hefur einn tengilið í
verkefninu.
Þórður Freyr Sigurðsson, sviðs-
stjóri þróunarsviðs SASS, segir að
þessi hugmynd hafi komið fram á
ársþingi SASS í haust og í framhaldi
verið mótuð sem eitt af áhersluverk-
efnum Sóknaráætlunar Suðurlands
2018. „Það er búið að móta ákveðna
dagskrá yfir árið. Þar er lögð
áhersla á ýmis atriði eins og strand-
hreinsun, að draga úr plastnotkun
og almenna tiltekt. Við ætlum að
tengja verkefnið við helstu daga sem
tengjast umhverfismálum yfir árið,“
segir Þórður Freyr. Hafist verður
handa í næsta mánuði með hreinsun
strandlengjunnar á Suðurlandi.
Ætla að gera enn betur
„Markmiðið með þessu er bæði að
vekja athygli á umhverfismálum og
að fegra sveitir landsins. Suðurland
á að fara í sparifötin á fullveld-
isárinu. Á sama tíma spilar þetta
með okkar stefnumörkun fyrir
svæðið. Tvær af megináherslum
Sóknaráætlunar Suðurlands eru
annars vegar að skapa jákvæða
ímynd af Suðurlandi sem byggist á
gæðum og hreinleika og hinsvegar
að vinna að umhverfisvakningu með
sjálfbærni að leiðarljósi. Við höfum
verið að vinna að umhverfismálum
og héldum t.d. ráðstefnu í fyrra sér-
staklega um útgangsmál.“
Þórður Freyr segir það ekki eitt
umfram annað sem þurfi að bæta í
umhverfismálum á Suðurlandi,
svæðið sé fallegt ásýndar en mark-
miðið með átakinu Umhverfis Suð-
urland sé að gera enn betur.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Reynisfjara Sveitarfélög á Suðurlandi ætla í sameiginlegt átak í umhverfis-
málum. Hafist verður handa í maí með hreinsun strandlengjunnar.
Í sparifötin á full-
veldisafmælinu
„Þetta er komið í höfn og maður er
auðvitað enn alveg í skýjunum með
það, enda ótrúlega góð tilfinning að
hafa náð þessum árangri,“ segir
Bragi Þorfinnsson í samtali við
Morgunblaðið, en hann var um
helgina formlega útnefndur stór-
meistari í skák á fundi Alþjóða-
skáksambandsins (FIDE). Er Bragi
fjórtándi íslenski stórmeistarinn.
Lokaáfanganum náði hann á
móti í Noregi í febrúar síðast-
liðnum, en áður hafði hann náð
áföngum á Íslandsmóti skákfélaga
og í keppni skákfélaga á Bretlandi.
Hefur hann einnig uppfyllt það skil-
yrði að hafa náð 2.500 skákstigum.
„Ég setti mér snemma það mark-
mið að ná þessum árangri, en það
má kannski segja að ég sé búinn að
stefna að þessu af fullri alvöru í um
10 til 15 ár,“ segir hann og bætir
við að með titlinum rætist gamall
æskudraumur. „Ungur sagðist ég
ætla að verða heimsmeistari. Mað-
ur sýndi því snemma mikinn metn-
að,“ segir hann og hlær við. „Ég
sætti mig við það að vera stórmeist-
ari – maður er orðinn raunsærri nú
en þegar maður var yngri.“
Bragi kennir íslensku í Folda-
skóla í Reykjavík. Spurður hvað
taki nú við segist hann vonast til
þess að geta sinnt skákinni enn bet-
ur. „Ég sé fyrir mér að starfa sem
kennari í hálfu starfi og kenna síð-
an og stúdera skák,“ segir hann og
bendir á að mikil vinna sé fram-
undan við að viðhalda og bæta
skákfærnina. „Framundan er Ís-
landsmót í byrjun júní og það held-
ur mér við efnið.“ khj@mbl.is
Stefndi snemma á titilinn
Morgunblaðið/Ómar
Stórmeistari Bragi segist nú ætla að einbeita sér enn frekar að skákinni.
Bragi Þorfinnsson er 14. íslenski stórmeistarinn í skák
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Wow air, segir að verkfall
flugvallarstarfsmanna í Frankfurt
hafi ekki haft áhrif á flug Wow í gær
því flogið hafi verið á tíma til Frank-
furt og aftur heim.
Þýska flugfélagið Lufthansa hefur
þurft að aflýsa yfir 800 flugferðum
sínum vegna verkfalls flugvall-
arstarfsmanna í Frankfurt, m.a. flugi
frá Frankfurt til Íslands og flugi frá
Íslandi til Frankfurt.
„Við flugum á tíma til Frankfurt í
dag og verkfallið hafði ekki áhrif á
okkur,“ sagði Svanhvít í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Það sem við
höfum boðið farþegum okkar síðustu
daga er að þeir geti annars vegar
hætt við flug sitt með okkur og fengið
miðann að fullu endurgreiddan eða
breytt miðanum yfir í aðrar dagsetn-
ingar vegna óvissunnar í tengslum við
verkfallið og það hafa nokkrir far-
þega okkar nýtt sér þessi boð.“
Svanhvít segir að Vow hafi ekki
orðið vart við aukningu í sölu frá
Frankfurt frá því að verkfall flugvall-
arstarfsmannanna hófst og ekki sé
búið að gefa út frekari tímasetningar
um verkfallið. Hún segir að áhrifanna
gæti einungis í flugi til og frá Frank-
furt, Vow flýgur einnig til og frá Berl-
ín en þar séu engar verkfallsaðgerðir
í gangi.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að enn sem kom-
ið væri hefði verkfall flugvallarstarfs-
manna í Frankfurt ekki haft nein
áhrif á flug Icelandair, hvorki til né
frá Frankfurt.
Nokkrir hafa
breytt bókunum
Lufthansa aflýsir yfir 800 flugferðum