Morgunblaðið - 11.04.2018, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018
✝ Gestur Helga-son fæddist á
Akureyri 14. maí
1960. Hann lést 29.
mars 2018. For-
eldrar hans eru
Helgi Hallgrímsson
frá Droplaugarstöð-
um í Fljótsdal, f.
11.6. 1935, og Ninna
Kristbjörg Gests-
dóttir frá Múla í Að-
aldal, f.,19.10. 1932,
d. 1.1. 2008. Systkini Gests eru
Björk Þorgrímsdóttir, f. 1953, d.
2013, Hallgrímur Helgason, f.
1958, og Heiðveig Agnes Helga-
dóttir, f. 1970.
Gestur giftist Hólmfríði I. Ei-
ríksdóttur árið 1981, þau skildu
árið 1995. Stjúpbörn Gests eru 1)
Árný Þóra Ármannsdóttir, f.
1978, gift Herði Flóka Ólafssyni,
f. 1978. Börn þeirra eru Elísabet,
Sara Ragnheiður, Guðbjörg
Hólmfríður og Ólaf-
ur Gestur. 2) Allan
Haywood Roberts-
son, f. 1984.
Gestur ólst upp á
Akureyri og Vík-
urbakka á Árskógs-
strönd. Hann gekk í
Árskógsskóla og
Gagnfræðaskóla
Akureyrar. Hann
starfaði lengi við
Gúmmívinnsluna á
Akureyri. Árið 1988 fluttu hann
og fjölskylda hans að Fosshóli í
Bárðardal. Þar stofnuðu þau
ferðaþjónustufyrirtæki sem
Gestur byggði upp og rak allt til
dauðadags. Gestur starfaði einn-
ig við skógrækt og rak jafnframt
vefverslun er seldi skógrækt-
arvörur.
Útför Gests fer fram frá Þor-
geirskirkju í dag 11. apríl 2018,
klukkan 14.
Það var mín gæfa í lífinu er þú
gekkst mér í föðurstað þegar ég
var ársgömul, þú tókst mér sem
þinni eigin og lést ekki blóðbönd
breyta því. Þú hafðir þann hæfi-
leika að láta mér alltaf líða vel ná-
lægt þér, þú gafst af þér algjör-
lega áreynslulaust. Það sama má
segja um Allan bróður, þú gekkst
honum einnig í föðurstað og gafst
okkur svo ómælda ást, leiðsögn og
einstakt uppeldi. Þín stærsta gjöf
var tíminn, þú áttir alltaf nóg af
honum handa mér og öðru sam-
ferðafólki þínu. Þú varst hlýr, tal-
aðir ekki illa um neina manneskju
þó að þér væri meinilla við ýmsa
annmarka reglugerðarþjóðfélags-
ins, í þínum huga voru allir menn
jafnir. Þú hafðir alltaf trú á hinu
góða í fólki og því að allir væru að
gera sitt besta miðað við þær að-
stæður sem uppi voru. Þér fannst
gaman að ræða trúmál og barst
virðingu fyrir þeim öllum. Þegar
Vottar Jehóva bönkuðu upp á
bauðstu þeim alltaf inn í kaffi og
svo voru trúmál rædd í marga
klukkutíma, ég man að ég sat
gjarnan í fanginu þínu og hlustaði
á þar til ég lognaðist útaf. Eitt
sinn vorum við fjölskyldan á leið í
útilegu og búin að pakka öllu í bíl-
inn þegar trúboðarnir mættu. Þá
fórum við inn aftur, ferðinni frest-
að um stund því þú vildir ekki vísa
fólkinu á dyr. Þú vísaðir aldrei
neinum á dyr. Það var alltaf gott
að leita til þín með vandamál, þú
sást alltaf annað sjónarhorn og
gast komið með aðra sýn. Eitt
sinn ræddum við mistök, ég sagð-
ist vera fífl, að gera mistök. Þú
sagðir með þinni blíðu röddu „já
Adda mín, þú ert fífl“ en allt fólk
er fífl, það er í eðli okkar mann-
anna, en fífl geta ekki gert mistök
og því hefur þú ekki gert neitt
rangt. Þegar ég byrjaði í háskóla-
námi mínu spurðir þú mig til
hvers ég væri að brasa í þessu og
ég sagðist vilja verða eitthvað. Þú
sagðir mér að ég þyrfti engan
skóla til þess, því ég væri bara al-
veg nóg. Á þessum tíma bjó ég á
Fosshóli og leitaði til þín með
fyrsta verkefnið mitt, það fussaði í
þér en þú hjálpaðir mér þetta
kvöld og mörg kvöld þennan vet-
ur. Þú hefðir getað farið í gegnum
allt nám ef þú hefðir viljað en þú
hafðir engan áhuga á því, sagðist
ekki vilja mennta þig í fjötra. Þú
varst sjálfmenntaður, enda mjög
hrifinn af öllu námi en ekki skól-
um, þú hafðir stutta skólagöngu
en vissir allt og ef þú vissir það
ekki þá lastu þér til og hættir ekki
fyrr þú vissir það. Þú fylgdist með
afabörnunum þínum og hafðir
gaman að því að heyra hvað þau
voru að gera. Ég hef aldrei séð þig
jafn montinn og þegar ég gaf þér
nafna. Ég vona að Ólafur Gestur
fái þó ekki nema nokkra af þínum
mannkostum. Minningu þinni
verður haldið á lofti um ókomin ár,
um afa sem var svolítið öðruvísi en
aðrir afar. Þann sem kom ekki
með innpakkaðar gjafir á jólunum
heldur mætti alltaf 23. desember
með það allra fallegasta jólatré
sem við höfðum séð. Minningarn-
ar eru margar og ég er full af
þakklæti fyrir tímann, ástina og
heillyndið sem þú gafst mér. Þú
kenndir mér að fjarlægðin skilur
fólk ekki að, því ef þú vilt vera hjá
þeim sem þú elskar, þá ertu þegar
þar.
Árný Þóra.
Gesti Helgasyni á Fosshóli var
allt mögulegt og fleira til lista lagt
en öðru fólki. Hann var t.d. arki-
tekt, skógarhöggsmaður, smiður,
bóksali, hönnuður og tölvufræð-
ingur. Hann var hænsnabóndi, bý-
flugnabóndi, skógarbóndi og
ferðaþjónustubóndi. Hann var
listamaður fram í fingurgóma,
hugsuður og heimspekingur. Fjöl-
skyldumaður og einsetumaður.
Sjálfmenntaður en fullnuma í öllu
þessu og mörgu fleiru fór hann
aldrei troðnar slóðir heldur lagði
sínar eigin. Og nú er komið að
leiðarlokum, svo óvænt og allt of
fljótt.
Fyrir mér var Gestur þó fyrst
og fremst vinurinn, félaginn og
fóstbróðirinn sem mér áskotnaðist
á unglingsárum. Frá upphafi var
ég þiggjandinn og Gestur fræðar-
inn. Hann byrjaði á því að kenna
mér að drekka kaffi. Skömmu síð-
ar að reykja Sweet Dublin úr pípu
sem hann hjálpaði mér að velja hjá
Birnu í Tóbaksbúðinni og saman
lærðum við að verða okkur úti um
brennivín og gera því skil. Hann
gerði mig pólitískan, byltingar-
sinnaðan kommúnista að sjálf-
sögðu, þótt ég léti hann um að lesa
fræðin. Mér nægði að meðtaka
boðskapinn frá þeim mæðginum,
honum og Kristbjörgu. Ekki síst
kenndi Gestur mér á tónlist. Ég á í
hausnum skýra mynd af kjallaran-
um á Víkurbakka þegar ég heyrði
í fyrsta sinn í Leonard Cohen,
mynd sem framkallast í hvert sinn
sem ég heyri Suzanne eða Bird on
the Wire. Og þar voru Dylan og
Pink Floyd – nýjasta plata þeirra
var The Dark Side of the Moon.
Enn leita ég í þessa sömu tónlist.
Allt þetta kenndi hann mér
sumarið 1975 þegar við vorum
fimmtán ára á Árskógsströnd og
veturinn þar á eftir á Akureyri og
markaði þannig upphafið á ævi-
langri, djúprættri vináttu sem
krafðist þess ekkert að við værum
í stöðugu sambandi.
Við tóku ævintýraleg ár þar
sem við brölluðum ótalmargt með-
an við fullorðnuðumst smám sam-
an og stofnuðum hvor sína fjöl-
skyldu. Fjarlægðumst hvor annan
þó ekki meira en svo að tuttugu og
þriggja ára keyptum við ásamt
sambýliskonum okkar íbúðina við
Spítalaveg á Akureyri, sem við
áttum saman þangað til Gestur og
Fía keyptu Fosshól og fluttu aust-
ur. Eðli málsins samkvæmt urðu
samfundir strjálli eftir að heiðin
og skarðið skildu okkur að en æði
oft brunaði maður austur til að
kjafta í nokkra klukkutíma við
kaffiþamb í reykjarkófi. Rýndum í
heimsmálin og leystum lífsgátuna
í hverri törn.
Í janúar 2002 fórum við Gestur
saman til Kanarí, bara við tveir
kallarnir, og töluðum saman fram
á nótt í hálfan mánuð. Frjó hugs-
un hans og galopin sýn á tilveruna
kom mér enn einu sinni á óvart, að
ég tali nú ekki um dökkan húm-
orinn. Beinlínis heyri hneggið, sé
glottið.
Ekki fullyrði ég að Gestur hafi
gert mig að betri manni þótt ég
trúi því en kynni mín af honum
gerðu mig sannarlega að öðrum
og meiri manni en ég væri hefði
áhrifa hans ekki notið við. Vinátt-
an við hann mótaði mig í svo
mörgu tilliti að ég tala einatt um
hann sem mentor minn og mesta
áhrifavald. Umfram allt var hann
náinn vinur – aufúsugesturinn
sem ég mun sakna allt til loka og
þakka fyrir allt.
Fjölskyldu hans og ástvinum
öllum votta ég mína dýpstu sam-
úð.
Aðalsteinn Svanur
Sigfússon.
Gestur Helgason
Fleiri minningargreinar
um Gest Helgason bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
✝ Katrín Hildurfæddist 24. júní
1921 að Hvammi í
Skaftártungu. Hún
lést á Sólvangi 28.
mars 2018.
Hún var dóttir
hjónanna Sigurðar
Gestssonar, f. 12.12.
1884, d. 11.10. 1977,
og Sigríðar
Sigurðardóttur, f.
17.6. 1894, d. 9.5.
1957. Bræður hennar voru 1)
Bárður, f. 13.3. 1918, d. 18.2.
2008, 2) Sigurjón, f. 25.8. 1923, d.
15.7. 2001, og 3) Björn, f. 9.10.
1926, d. 1.5. 1986.
Katrín Hildur giftist 18.4.
1946 Olivert Andreas Thor-
stensen, f. 27.7. 1918, d. 25.1.
1981, rennismið. Hann var sonur
hjónanna Ole Thorstensen, f.
24.10. 1874, d. 7.4. 1951, skó-
smiðs, og Anine Thorstensen, f.
26.2. 1880, d. 8.11. 1974, húsfrú-
kennari, sambýliskona hans er
Hrefna Jónsdóttir, f. 26.10. 1992,
aðstoðarleikskólakennari. Dóttir
þeirra er Katrín Ebba, f. 14.2.
2017, og c) Egill Björn, f. 28.12.
1987, viðskiptafræðingur, sam-
býliskona hans er Þóra Kristín
Gunnarsdóttir, 23.10. 1987, pí-
anókennari; 2) Anný, f. 28.8.
1949, d. 18.11. 1953; 3) Ágúst, f.
26.5. 1956, matvælafræðingur,
kona hans er Helga Linda Gunn-
arsdóttir, f. 22.7. 1960, skrif-
stofumaður. Synir þeirra eru a)
Davíð, f. 22.2. 1982, flugmaður,
sambýliskona hans er Erna Jóna
Jakobsdóttir, f. 27.7. 1988, flug-
freyja, sonur þeirra er drengur,
f. 6.4. 2018; b) Daníel, f. 21.2.
1989, sölumaður, sambýliskona
hans er María Mikaelsdóttir, f.
2.11. 1989, háskólanemi, börn
þeirra eru 1) Díana Líf, f. 2.1.
2014, og 2) Tómas Máni, f. 15.6.
2017, og c) Adam, f. 25.8. 2002; 4)
Rikard, f. 15.10. 1957, sérfræð-
ingur, eiginkona hans er Sigríð-
ur Steinunn Sigurðardóttir, f.
9.3. 1964, bókari, börn þeirra eru
a) Hildur Kristín, f. 25.10. 1992,
b) Sigurður Þór, f. 3.7. 1995, og
c) Anína Marín, f. 3.3. 2003; 5) Öl-
ver, f. 15.2. 1962, bifvélavirki,
eiginkona hans er Kristín Egg-
ertsdóttir, f. 20.9. 1963,
hjúkrunarfræðingur, barn
þeirra er Olivert Andreas, f.
24.12. 1998. Fyrir átti Ölver Guð-
rúnu Hildi, f. 5.5. 1985, barns-
móðir er Signý Einarsdóttir, f.
3.4. 1965, eiginmaður Guðrúnar
Hildar er Jón Skjöldur Níelsson,
f. 21.1. 1982. Synir þeirra eru 1)
Samúel Einar, f. 22.9. 2013, og 2)
Ágúst Pálmi, f. 13.2. 2016. Fyrir
átti Kristín Hrafnhildi Ýr
Þrastardóttur, f. 20.7. 1983, eig-
inmaður hennar er Svavar Sig-
urðsson, f. 17.8. 1984. Börn
þeirra eru 1) Mímir Örn, f. 15.10.
2003, 2) Janetta Lind, f. 14.1.
2005, 3) Amíra Lind, f. 15.9. 2009,
og 4) Adrían Örn, f. 10.3. 2012.
Katrín Hildur lauk
barnaskólaprófi og stundaði nám
við Húsmæðraskóla Laugarvatns
1943-44. Hún var mestan hluta
ævinnar húsmóðir í Granaskjóli
9 en eftir fráfall eignmanns síns
árið 1981 vann hún m.a. í KR-
heimilinu við Frostaskjól. Hún
stundaði hestamennsku til
margra ára.
Útför hennar fer fram frá
Digraneskirkju í dag, 11. apríl
2018, klukkan 13.
ar. Bræður Oliverts
voru 1) Vilmar, f.
26.9. 1913, d. 25.5.
1992, 2) Trygve D.,
f. 11.10. 1914, d.
25.11. 1986, 3) Ek-
hardt, f. 15.3. 1922,
d. 13.11. 1996.
Börn Katrínar
Hildar og Oliverts
Andreasar eru 1)
Örn, f. 29.7. 1947,
læknir, kona hans er
Guðbjörg Grétarsdóttir, f. 12.5.
1948, kennari. Börn þeirra eru a)
Anný Berglind, f. 29.12. 1971,
viðskiptafræðingur og hjúkr-
unarfræðingur, eiginmaður
hennar er Halldór Ásgrímur Elv-
arsson, f. 9.9. 1968, grafískur
hönnuður. Synir þeirra eru 1)
Andreas Hilmir, f. 23.11. 1993, 2)
Nökkvi Freyr, f. 27.7. 1999, 3)
Elvar Örn, f. 17.3. 2002, og 4)
Fjölnir Logi, f. 23.4. 2009; b)
Bergþór Olivert, f. 8.8. 1979,
Börnin mín hafa ekki bara
misst ömmu, heldur einnig ynd-
islegan vin. Þú varst alltaf til
staðar og aldrei stóð á því að þú
gætir ekki litið eftir barnabörn-
unum mínum þegar þannig stóð
á. Þau munu minnast þín með
söknuði og kærleika. Þau geta
sagt sögur af þér og komið þeim
áfram til næstu kynslóðar. Það
voru forréttindi að kynnast þér
og fá að njóta þín.
Minning þín mun lifa í hjörtum
okkar.
Guð veri með þér, elsku
tengdamamma, og ég veit að þú
vakir yfir okkur.
Þín tengdadóttir
Steinunn
Sigurðardóttir.
Nú titra tregastrengir og tárin
falla af brá því kveðjustund er
komin sem hver einn reyna má.
En ég veit að þú varst sátt við að
þinn tími væri kominn.
Minningarnar hrannast upp er
ég hugsa til baka og það var
dásamlegt að fá að hafa þig hjá
okkur. Margar ferðir höfum við
farið saman, og ég tala nú ekki
um allar ferðirnar í sumar-
bústaðinn sem þið tengdapabbi
reistuð á sínum tíma og við dvöld-
um saman í skemmri og lengri
tíma með börnunum okkar
Rikka. Alltaf var tekið með nesti
og borðað úti í guðsgrænni nátt-
úrunni. Þú bakaðir pönnukökur
og smurðir nesti og passaðir allt-
af upp á að það væri nóg handa
öllum. Einnig minnumst við þess
er þú komst í mat til okkar um
helgar og dvaldir hjá okkur yfir
hátíðir.
Katrín Hildur
S. Thorstensen
Fleiri minningargreinar
um Katrínu Hildi Thorstensen
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
HÆTTUM MEÐ GÖTUSKÓ -
AÐEINS EITT VERÐ 7.990,-
Laugavegi 178, sími 551 2070.
Opið mán. - fös. kl. 10–18,
Laugardaga kl. 10 - 14
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryð á þökum
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
smið?
Þú finnur allt á
FINNA.IS
Vantar
þig