Morgunblaðið - 11.04.2018, Side 26

Morgunblaðið - 11.04.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018 eldu á milli fimm girnilegra tegunda f Snack Pot frá Knorr. Réttirnir eru ægilegir, ljúffengir og fljótlegir. ynntu þér úrvaIið á KNORR.IS V a þ Framundan eru spennandi tímar. Ég og konan mín, Inga RutÓlafsdóttir, eigum von á okkar fyrsta barni í næsta mánuði ogþað verður gaman að takast á við foreldrahlutverkið. Sjálfum finnst mér ég vera gæfumaður því þau verkefni sem ég hef með hönd- um eru einkar áhugaverð og veita mér gleði,“ segir Baldur Rafnsson tónlistarkennari sem er 39 ára í dag. Heimaslóðir Baldurs eru í Mosfellsbæ en þangað sneri hann aftur fyrir hálfu þriðja ári eftir að hafa búið tíu ár í Grundarfirði. Hann starfar þar raunar enn, er fyrir vestan tvo daga í viku og kennir á blásturshljóðfæri og slagverk, jafnhliða því sem hann stjórnar stór- sveit og skólahljómsveit. Í annan tíma er Baldur rútubílstjóri hjá Kynnisferðum og keyrir þá meðal annars flugrútuna. „Mér finnst gaman að blanda ólíkum störfum saman, það skapar fjölbreytni. Annars hef ég alltaf verið mikið í félagsmálum. Fyrir vestan sá ég lengi um bæjarhátíðina Á góðri stundu, rak pylsuvagn- inn, var í karlakórnum Kára og fleira og hér fyrir sunnan er ég í stuðningsmannasveit Vals; er á trommunum og slæ taktinn á leikjum, hef séð um kótelettukvöldin og ýmis önnur fjáröflunarverkefni. Ég trúi því staðfastlega að ef hlúð er að sprotunum og fólk virkjað með jákvæðni megi gera skemmtilega hluti sem skipta miklu fyrir sam- félagið allt,“ segir Baldur sem verður með fjölskyldunni í kvöld og væntir þess að fá kjöt í karrí í matinn. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gæfumaður „Gaman að takast á við foreldrahlutverkið,“ segir Baldur. Rútubílstjórinn sem slær taktinn Baldur Rafnsson er 39 ára í dag T orfi fæddist í Reykjavík 11.4. 1958 og ólst þar upp fyrstu tvö árin: „Eftir það bjó fjölskyldan erlendis, nánast öll mín uppvaxt- arár, en faðir minn var í framhalds- námi í Þýskalandi og í Bandaríkjunum og starfaði síðar í Frakklandi. Við vor- um einn vetur í Færeyjum, annan í Þýskalandi og fimm ár í Texas og New York fylki í Bandaríkjunum, Við áttum síðan heima í Reykjavík þegar ég var níu til ellefu ára, vorum síðan í Frakk- landi, en komum heim er ég hóf menntaskólanám við MH. Ég talaði því með Texashreim í barnaskóla og síðan frönskum hreim í menntaskóla.“ Torfi lauk stúdentsprófi frá MH 1976 og var næstu árin við nám og störf, jöfnum höndum, á Íslandi og í Frakklandi. Hann var leiðsögumaður erlendra ferðamanna hér á landi, eink- um Frakka, í tjald- og gönguferðum, öll sumur, 1979-88. Torfi lauk B.Ed.-prófi frá KHÍ 1982 og BA-prófi í frönsku og íslensku við HÍ 1983, lauk meistaraprófi í frönsk- um miðaldabókmenntum við háskól- ann í Lyon 1985 og doktorsprófi í nor- rænum miðaldabókmenntum við Sorbonne í París 1992. Torfi varð lektor í frönsku við HÍ 1989, dósent þar í frönsku 1992, pró- fessor í frönskum miðaldabók- menntum við HÍ 2002 og hefur verið prófessor í íslenskum miðaldafræðum við HÍ frá 2008: „Starf mitt síðast lið- inn áratug hefur einkum snúist um að stýra og byggja upp við HÍ, ásamt Haraldi Bernharðssyni, alþjóðlegt meistaranám í svo kallaðri víkinga- og norrænni miðaldafræði sem starfrækt er í samvinnu við háskólana í Árósum, Kaupmannahöfn og í Osló. Þetta hefur verið afskaplega spenn- andi verkefni. Við fáum u.þ.b. hundrað námsumsóknir á ári, tökum inn um 60 Torfi H. Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum – 60 ára Skemmtileg fjölskyldumynd Torfi og Gugga með syni og dóttur, tengdadóttur og tengdasyni og Kasper litla Leo. Vaxandi áhugi á nor- rænni miðaldafræði Á söguslóðum Torfi og Gugga við Orkahaug á Orkneyjum (Maes Howe), grafhýsi sem var reist fyrir um 5000 árum. Getið er um það í Orkneyjasögu. Reykjavík Benjamín Hugi fæddist 28. janúar sl., kl. 00:55. Hann vó 3.718 grömm og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Þorbjörn Smári Ívarsson og Kolbrún Sjöfn Jóns- dóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.