Morgunblaðið - 11.04.2018, Blaðsíða 36
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 101. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Annar er alvarlega slasaður
2. Meirihlutinn fallinn
3. Uppáhaldsgræjan hennar Rikku
4. Hlýlegt hjá Jóni Jónssyni og Hafdísi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir
leiklestri á Lokaæfingu eftir Svövu
Jakobsdóttur í Hannesarholti í kvöld
kl. 20 og á sunnudag kl. 16. Leiklestr-
inum stýrir Jakob S. Jónsson, en leik-
arar eru Þórey Sigþórsdóttir, Íris
Tanja Flygenring og Valdimar Örn
Flygenring. Lokaæfing var frumflutt í
Þjóðleikhúsinu árið 1983.
Leiklesa Lokaæfingu
Tónlistarhópurinn Umbra fagnar
fyrsta diski sínum með útgáfu-
tónleikum í Listasafni Íslands á
morgun kl. 20. Diskurinn nefnist Úr
myrkrinu og þar eru áheyrendur
leiddir inn í dulúð fornrar tónlistar
frá Íslandi og frá meginlandi Evrópu.
Flytjendur eru Alexandra Kjeld, Arn-
gerður María Árnadóttir, Guðbjörg
Hlín Guðmundsdóttir og Lilja Dögg
Gunnarsdóttir.
Umbra með útgáfu-
tónleika á morgun
Skáldið og sagnaþulurinn Einar
Kárason leiðir gesti inn á Sturl-
ungaöld, þar sem
hann segist sjálfur
hafa dvalið lang-
dvölum síðustu
fimmtán árin, í dag
kl. 12.15 á Bókasafni
Kópavogs. Að-
gangur er
ókeypis.
Einar leiðir gesti inn
á Sturlungaöld
Á fimmtudag Suðlæg átt, 5-10 m/s og rigning með köflum vestra
en víða hægviðri og þurrt eystra. Hiti 3-8 stig. Á föstudag Vaxandi
suðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis. Víða rigning með köflum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 15-23 m/s, hvassast á Snæfells-
nesi, og rigning vestantil en hægari annars staðar og þurrt á Norð-
austur- og Austurlandi. Dregur heldur úr vindi í kvöld. Hiti 2-9 stig.
VEÐUR
Deildarmeistarar Hauka
leika til úrslita um Íslands-
meistaratitil kvenna í körfu-
bolta eftir 77:63-sigur á
Skallagrími í þriðja leik lið-
anna í Hafnarfirði í gær-
kvöldi. Haukar vinna ein-
vígið 3:0 og leika annað-
hvort við Val eða Keflavík
í úrslitum. Þótt lið Hauka
hafi gjarnan verið öflugt
síðustu árin þá eru þó liðin
níu ár frá síðasta Íslands-
meistaratitli liðsins. »3
Haukakonur leika
til úrslita
Liverpool og Roma eru komin í und-
anúrslitin í Meistaradeild Evrópu í
knattspyrnu. Liverpool sigraði Man-
chester City 2:1 á útivelli og 5:1 sam-
anlagt en Rómverjar gerðu sér lítið
fyrir og slógu Barcelona óvænt úr
keppninni með
því að vinna
seinni leik lið-
anna á sínum
heimavelli,
3:0. »1
Liverpool og Roma
komin í undanúrslitin
Fyrsti leikur KA og HK í úrslita-
keppninni í blaki karla fór fram á Ak-
ureyri í gærkvöld. KA tók forystuna í
rimmunni og hafði betur 3:1. Þrjá sig-
urleiki þarf til að hampa Íslands-
meistaratitlinum en HK-ingar eru
ríkjandi meistarar. Liðin mætast
næst í Kópavogi annað kvöld klukkan
20 en KA á heimaleikjaréttinn ef til
oddaleiks kemur. »2
KA vann fyrsta leikinn í
úrslitarimmunni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Það er alger nauðsyn fyrir okkur til
að geta haldið sýningunni gangandi
að sjómenn hafi okkur í huga og
margir þeirra hafa verið mjög dug-
legir,“ segir Margrét Lilja Magn-
úsdóttir, safnstjóri í Sæheimum í
Vestmannaeyjum, um samstarf við
sjómenn á Eyjaflotanum. Í vikunni
fékk safnið nokkra krabba og humra,
sem verða settir í ker í safninu, en
þar er að finna fjölda lifandi fiska og
annarra sjávarlífvera.
Gaddakrabbi, tröllakrabbi, humr-
ar og kolkrabbi fengu nýtt lögheimili
í Sæheimum þegar skipverjar á
Drangavík VE komu færandi hendi á
mánudag. Í fyrra komu þeir með
óvenjustóran nornakrabba, sem því
miður var dauður við komuna í safn-
ið.
Óvenjulegt litarafbrigði
Margrét nefnir einnig skipverja á
Eyjaskipunum Þórunni Sveins-
dóttur og Maggý, sem oft hafi kom-
ið með fiska eða önnur sjávardýr í
safnið. Þannig hafi skipverjar á
Maggý komið með stóra rauð-
sprettu í vetur, sem var talsvert frá-
brugðin systrum hennar í safninu.
„Reyndist þetta vera óvenjulegt
litarafbrigði af rauðsprettu, sem
veiddist í Álnum milli lands og
Eyja … Við höfum áður verið með
rauðsprettur sem voru nánast
hvítar, en enga sem líkist þessari,“
má lesa á heimasíðu Sæheima.
Rauðsprettan dafnar vel og var
vel tekið af hinum rauðsprettunum.
„Þær voru ekkert að æsa sig yfir
undarlegu útliti hennar, bara létu
eins og ekkert væri og lögðust við
hliðina á henni,“ segir Margrét.
Hún segir að yfirleitt gangi ágæt-
lega að halda lífinu í kröbbunum, en
misjafnlega með fiskana. Þannig
séu steinbítur og koli lífseigir, en
karfi, ýsa, langa og keila mjög við-
kvæm. Hugsanlega þoli sundmagi
þeirra ekki þegar fiskurinn er
veiddur á nokkru dýpi og dreginn
um borð.
Góð byrjun á humarvertíð
Sæheimar voru áður Fiska- og
náttúrugripasafn Vestmannaeyja
sem var opnað árið 1964, en hafa
verið hluti af Þekkingarsetrinu í
Eyjum frá árinu 2010. Margrét seg-
ir að gestum hafi fjölgað mjög á síð-
ustu árum og þeir hafi verið um 20
þúsund í fyrra. Þegar spjallað var
við Kjartan Guðmundsson, skip-
stjóra á Drangavík, í gær voru þeir á
humarveiðum í Breiðamerkurdýpi.
Hann segir að þegar þeir séu á humri
komi oft ýmislegt forvitnilegt í troll-
ið. Þeir hugsi gjarnan til safnsins í
Sæheimum þegar þeir fái eitthvað
sérstakt eða sjaldgæft og í þeim efn-
um haldi Jón Högni Stefánsson vél-
stjóri mönnum við efnið og dragi
vagninn. Drangavíkin byrjaði á
humarvertíð í byrjun mánaðarins og
segir Kjartan að hún hafi farið mun
betur af stað en í fyrra, samkvæmt
því sem reyndari menn segi, en hann
tók við skipinu í júní í fyrra.
Talsvert sé af smærri humri, sem
vart hafi sést síðustu ár og því virðist
sem einhver nýliðun hafi loksins átt
sér stað. Humarvertíðin hafi verið
aum undanfarin ár, en vonandi verði
breyting á því í ár.
Krabbar fá nýtt lögheimili
Ljósmynd/Kristján Egilsson
Koma færandi hendi Jón Högni Stefánsson og Egill Valgarðsson á Drangavík.
Sjómenn hugsa til
safnsins í Sæheimum
Margir duglegir
Krabbar Sjómenn hugsa oft til Sæ-
heima fái þeir eitthvað sérstakt eða
sjaldgæft í veiðarfærin.
Margrét safnstjóri Í Sæheima í
Eyjum er árlega komið með fjölda
fugla sem eru hjálparþurfi.
Rauðspretta Þrátt fyrir sérstakt
litaafbrigði var henni vel tekið.
Ljósmynd/Margrét Lilja Magnúsdóttir