Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við tökum undir áhyggjur lækna- ráðs í þessu efni enda hef ég og aðrir stjórnendur þegar vakið athygli á vandanum,“ segir Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, þegar borin er undir hann yfirlýsing stjórnar lækna- ráðs Landspítal- ans um vandræði vegna viðvarandi skorts á legurým- um á gjörgæslu- deild spítalans og skorts á sérhæfðu hjúkrunarfólki. Hafa þessi vandræði leitt til þess að oft þarf að fresta stærri aðgerðum á skurðstofum spítalans. Dæmi er um að hjartaaðgerð sjúklings hafi verið frestað sex sinnum. Læknaráðið hvetur til þess að nú- verandi húsnæði spítalans verði stækkað þar sem ljóst þyki að nýr spítali verði ekki tilbúinn til notkunar á allra næstu árum. Sameina og bæta við „Ein meginástæða þess að mikil- vægt er að hraða uppbyggingunni við Hringbraut er einmitt að sameina þjónustuna, þar með talið að sameina gjörgæslur og fjölga um leið gjör- gæslurýmum um meira en 50%,“ seg- ir Páll í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins. „Skortur á hjúkrun- arfræðingum og sérstaklega sér- hæfðum hjúkrunarfræðingum er mjög alvarlegur. Gjörgæslumeðferðir eru afar flóknar og í raun ætti að nálgast þessa þjónustu sem takmark- aða auðlind sem vandlega þarf að íhuga hvernig við nýtum. Alvarleg slys sem krefjast þessarar þjónustu hafa verið mörg og þung, sem leiðir til þess að spítalinn hefur ekki önnur úr- ræði en að færa skipulagðar aðgerðir sem krefjast gjörgæslu – jafnvel þótt um lífsnauðsynlegar aðgerðir sé að ræða,“ segir Páll og bætir við þegar hann er spurður um lausnir: „Þetta er snúinn vandi sem ekki verður leystur á einni nóttu en áríðandi að bregðast við með öllum tiltækum ráðum.“ Bráðaaðgerðir ganga fyrir Frestun á fyrirfram skipulögðum og ákveðnum aðgerðum var einnig til umræðu um miðjan janúar. Þá veitti Margrét Guðjónsdóttir, verkefna- stjóri skurðlækningasviðs, þær upp- lýsingar að stundum þyrfti að fresta skipulögðu prógrammi þegar bráða- aðgerðir væru fleiri en spítalinn réði við, svo sem vegna slysa og hálku. Einnig vantaði rúm til að útskrifa sjúklinga í viðeigandi úrræði og sjúkrarúm vegna skorts á hjúkrunar- fræðingum. Ekki önnur úrræði en frestun  Forstjóri Landspítalans tekur undir viðvaranir læknaráðs  Mörg alvarleg slys sem hafa orðið taka upp gjörgæsluplássið  Þarf að hraða uppbyggingu spítalans Páll Matthíasson Morgunblaðið/Eggert Hjúkrunarfræðingar Skortur á sérhæfðum hjúkrunarfræðingum er alvar- legur að mati Páls Matthíassonar sem tekur undir áhyggjur læknaráðs. „Ég er ekki kvíðinn að eðlisfari en var búinn að hugsa mikið um væntan- lega aðgerð og græja allt í vinnunni,“ segir Kristó- fer H. Helga- son, mat- sveinn hjá Árvakri, um aðgerð sem hann hafði verið boðaður í en var fyrst flýtt um hálfan mánuð en síðan seinkað aftur. Þegar aðgerðinni var frestað var Kristófer búinn að undirbúa sig vandlega. Hafði til dæmis fengið fólk til að leysa sig af og setja inn í starfið. Hann átti að fara í hnjáliðaskipti sem er mikil aðgerð. Henni var frestað vegna margra hálkuslysa sem fylltu plássið á spítalanum, meðal annars á gjörgæslu. Niðurstaðan varð síðan sú eftir færslur aftur og til baka að aðgerðin var gerð fimm dögum áður en upphaflega var áætlað. Var búinn að græja allt AÐGERÐ FRESTAÐ Kristófer H. Helgason Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Handbókband er bara listgrein. Það er allt svo fallegt við það. Lyktin og að snerta skinnið; gera þetta allt frá byrjun. Sauma sjálfur arkirnar og skila svo af sér fallega gylltri bók,“ sagði Einar Sveinn Ragnars- son, fertugur nemi í bókbandi. Hann dreymir um að geta unnið við að binda inn bækur í höndunum á tím- um þegar bókband er að mestu orðið vélvætt. Einar er fjórði ættliðurinn í bein- an karllegg sem leggur stund á bók- band. Faðir hans, Ragnar Gylfi Ein- arsson bókbindarameistari, rak m.a. Bóklist og kenndi bókband. Afi hans var Einar Helgason, bókbindara- meistari og kennari við Iðnskólann. Langafi Einars var Helgi Tryggva- son, einn þekktasti bókbindari landsins á sinni tíð, bókasafnari og bókakaupmaður, sem kenndi mörg- um bókband. Flestir sem vinna við bókband hér á landi í dag lærðu hjá föður eða afa Einars, að hans sögn. En hvers vegna ákvað hann að læra iðnina? „Ég var búinn að fikta við bók- band og leika mér við það hjá pabba. Svo kom að því að ég ákvað að ná mér í réttindi,“ sagði Einar. Hann lýkur námi í bókbandi frá Tækni- skólanum í vor og þarf svo að kom- ast á samning í 48 vikur. Einar hefur farið í verknám á vegum skólans í nokkur fyrirtæki og kynnst vél- væddu bókbandi. Nú er hann í verk- námi hjá Stefáni Jóni Sigurðssyni, yfirbókbindara í Þjóðarbókhlöðunni, þar sem handverkið er í hávegum haft. Þess má geta að Stefán var nemandi og samkennari afa Einars. En þarf Einar Sveinn að læra fagið, er honum það ekki í blóð borið? „Jú, maður þarf alltaf að læra. Ég reyni að sanka að mér allri þeirri þekkingu sem ég get fengið frá pabba. Kannski er ég kominn með þetta svolítið í puttana,“ sagði Einar. Faðir hans á öll bókbandsverkfæri og hafa þau safnast frá gengnum kynslóðum. Einar nefndi afa sinn, afabróður og vinafólk afa síns í því sambandi. Þeir feðgar, Einar og Ragnar, settu upp lítið „dundverk- stæði“ þar sem Einar fæst við að binda inn bækur í frístundum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bókband Einar Sveinn Ragnarsson nemur bókband og stefnir að því að binda inn bækur í höndunum. Það er allt svo fallegt við handbókbandið  Einar Sveinn Ragnarsson fetar í fótspor forfeðranna Þrjú nema nú bókband við Upp- lýsingatækniskóla Tækniskól- ans og útskrifast í vor, tvær stúlkur og einn piltur. Þá tekur við 48 vikna starfsnám áður en þau taka sveinspróf. Fremur erfitt er að koma nemum á samning, að sögn Sófusar Guð- jónssonar, kennara. Hann reikn- ar með að bókbandsnemarnir komist þó allir á samning. „Það er farið að vanta bók- bindara. Þetta er með elstu starfsstéttum. Starfandi bók- bindarar eru margir komnir á sjötugsaldur eða á eftirlaun. Það hefur verið lítil endurnýjun undanfarin ár,“ sagði Sófus. Hann vissi af einum sem ætlar að hefja nám í bókbandi í haust. Þrjú ljúka námi í vor BÓKBANDSIÐNIN LIFIR Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Steingrímur J. Sigfússon, forseti Al- þingis, segir að ekki sé frágengið á milli stjórnmálaflokkanna á Alþingi hvaða mál verði pólitísk samstaða um að afgreiða fyrir þingfrestun í maí, en þó séu nokkur mál, sem fyrir liggi að verði afgreidd fyrir frestun. „Það liggur engin slík niðurstaða þingflokkanna fyrir. Það sem blasir auðvitað við að þingið afgreiði, er lögbundið mál, eins og fjármálaáætl- unin. Augljóslega verður hún af- greidd á þessu þingi,“ sagði Stein- grímur í samtali við Morgunblaðið í gær. Þarf að klára gömul loforð „Auk þess þarf þingið að klára gömul loforð, eins og þessi stóru mál, NPA og endurskoðun á lögum um fé- lagsþjónustu sveitarfélaga, sem hangir saman. Annars vegar not- endastýrða persónulega aðstoð við fatlaða (NPA) og innleiðingu sátt- mála Sameinuðu þjóðanna, hins vegar. Þessi stóru mál eru inni í vel- ferðarnefnd þingsins og það styttist í af- greiðslu þeirra út úr nefndinni. Þetta eru mál sem ekki bara stjórnarmeiri- hlutinn, heldur þingið allt hefur skuldbundið sig til þess að klára,“ sagði Steingrímur. Hann segir að formenn allra flokka hafi gefið mjög skýr loforð fyrir kosningar síðasta haust um að þessi mál yrðu afgreidd á yfirstand- andi þingi. Steingrímur segir að aðrar um- ræður á milli stjórnmálaflokkanna og þingflokksformanna um af- greiðslu þingmála á þessu þingi séu ekki hafnar, en reiknar með að slíkar viðræður fari í gang áður en langt um líður. Alþingi verður að afgreiða fjármála- áætlun og NPA  Forseti Alþingis segir umræðu um af- greiðslu mála fyrir frestun ekki hafna Steingrímur J. Sigfússon Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 2,4% árið 2017 eða tæplega 3.000 manns. Er þetta mesta íbúafjölgun í Reykjavík í tæp 30 ár og sú mesta á einu ári í Reykjavík síðan 1988, þeg- ar Grafarvogurinn var að byggjast upp, segir í fréttatilkynningu frá borginni. Í einstökum hverfum er fjölgunin mest í Úlfarsárdal eða rúm 38% en þar hefur verið byggt mikið á undan- förnum árum. Í Hamrahverfi í Graf- arvogi fjölgar einnig um rúm 12%. Þar skýrir uppbygging í Bryggju- hverfi fjölgunina en þar eru 280 íbúðir að byggjast upp. Íbúafjölgun í Bryggjuhverfinu sjálfu er tæp 30%. Einnig verður veruleg íbúafjölgun í Norðurmýri eða rúmlega 7%, en inn- an þess hverfis eru meðal annars ný- byggingar í Smiðjuholti þar sem Búseti hefur byggt 203 íbúðir. Íbúafækkun milli ára í rótgrónum hverfum heyrir til undantekninga en það er einkum í eldri úthverfum, austan Elliðaáa, sem greina má fækkun milli ára. Undantekningin frá þessu er í Efra-Breiðholti en þar er óvenju mikil fjölgun. Íbúum fjölgaði um 2,4% í Reykjavík  Mesta fjölgunin 2017 í Úlfarsárdal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.