Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 ✝ Erla SigríðurHallgrímsdóttir fæddist í Reykjavík 8. apríl 1975. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 2. apríl 2018. Foreldrar henn- ar eru Hallgrímur Hallgrímsson bygg- ingarverkfræð- ingur, f. 12. októ- ber 1947, og Guðríður Júlíana Guðmunds- dóttir hjúkrunarfræðingur, f. 8. júlí 1947. Systkini Erlu Sig- ríðar eru: 1) Elín, f. 19. mars 1972, maki Steinn Guðmunds- son, börn: Þórdís Elín, Hildur og Vilborg Júlíana. 2) Berg- vík. Erla Sigríður útskrifaðist frá MR 1995, lærði félagsfræði við Háskóla Íslands og tók MA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskólanum í Sydney í Ástr- alíu árið 2003. Erla vann í Ár- seli með skóla og vinnu í rúm 10 ár frá 1998 og sem félags- ráðgjafi með unglingum hjá Félagsþjónustu Reykjavíkur í Mjódd frá 2001, en frá 2011 starfaði hún hjá Barnavernd Reykjavíkurborgar. Hún vann einnig sem ráðgjafi hjá Ís- lenskri ættleiðingu frá árinu 2011 til ársins 2017. Erla Sigríður stofnaði sitt fyrsta heimili í Barmahlíð og bjó þar þangað til hún hóf sambúð með Jóni Bjarna Magnússyni. Þau slitu sambúð 2017. Erla hafði nýlega keypt stærri íbúð í Safamýri. Útför Erlu Sigríðar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 13. apríl 2018, klukkan 13. lind, f. 1. febrúar 1979, maki Helgi Skúli Friðriks- son, börn: Birta Júlía, Daníel Freyr og Hilmar Alexander. 3) Guðmundur Sig- urvin, f. 14. nóv- ember 1984. Dóttir Erlu Sigríðar er Helga Júlíana, f. 10. september 2013, barnsfaðir Jón Bjarni Magnússon. Erla Sigríður ólst fyrstu tvö árin upp í Hafnarfirði og síð- an fluttist fjölskyldan til Reyð- arfjarðar en sjö ára gömul flutti hún í Selásinn í Reykja- Það er þungbærara en orð fá lýst að þurfa að kveðja hana Erlu Sigríði okkar. Öll viljum við óraskaða til- veru þar sem allir eru á sínum stað, en því miður er það ekki alltaf raunin. Við sjáum ekki né skiljum alltaf tilgang þessa heims og finnst óréttlátt að ung kona sé hrifin burt frá óloknu dagsverki. Ef til vill er einhver æðri tilgangur sem okkur er hulinn, en Erla Sigríður er horfin. Hún tæmdi þann bikar sem henni var réttur. Allan þann tíma sem Erla Sigríður barðist við veikindin sín sýndi hún mikið hugrekki og stillingu. En það hryggði hana mjög þegar hún áttaði sig á því að hún mundi ekki sjá Helgu Júlíönu sína vaxa úr grasi. Eftir erfið veikindi var hvíldin óumflýjanleg. Eigingirn- in hellist þó yfir og það er erfitt að sleppa takinu. Þannig var það einnig með Erlu, hún átti erfitt með að sleppa takinu á lífinu. Erla hafði brennandi áhuga á lífinu og öllu sem í kringum hana var. Hún var góður vinur enda vinamörg og passaði alltaf upp á að engum væri gleymt. Erlu fannst líka gaman að úti- vist og hreyfingu. Hún æfði fimleika á yngri árum og seinna meir var hún mjög dugleg að hlaupa og æfa crossfit. Erla Sigríður ferðaðist mikið og eina heimsálfan sem hún átti eftir að heimsækja var Suðurskauts- landið. Öllu ofar var Erla Sigríður móðir. Allt fram til síðustu stundar lýsti andlit Erlu upp þegar Helga Júlíana var nálæg. Hjá systkinabörnum var Erla Sigríður mikils metin, enda elskaði hún þau öll sem þau væru hennar. Þau litu upp til hennar og hún var þeim góð fyrirmynd. Við eigum mikið af fallegum minningum um Erlu Sigríði sem við munum halda á lofti og geyma alla tíð. Vonandi munu þær hjálpa okkur í gegnum þessa sorgartíð. Guð styrki Jón Bjarna og Helgu Júlíönu, litla sólargeisl- ann í lífi okkar. Hvíl í friði, elsku Erla Sigríð- ur okkar. Mamma, pabbi og systkini. Erla kom inn í líf okkar þeg- ar hún og Jón Bjarni sonur okkar hófu að stinga saman nefjum árið 2011. Hún var strax mjög frjálsleg í fasi, sjálfsörugg og ófeimin og passaði inn í stór- fjölskyldu Jóns Bjarna eins og hún hefði alltaf verið ein af okk- ur. Hún hafði víða ferðast og heillaði okkur strax með fjör- legri frásagnargleði sinni af ferðum um Rómönsku Ameríku og Suðaustur-Asíu. Hún var víðsýn og greindi skemmtilega frá náttúru og lifnaðarháttum framandi þjóða og smitaði okk- ur af ferðafýsn. Í framhaldi af frásögn hennar um Víetnam gerðum við alvöru úr ferð þang- að árið 2013. Erla kom jafnan færandi hendi úr ferðum sínum, færði okkur t.d. Havanavindla og kaffibaunir frá ferð sinni til Kúbu en ekki fannst henni allt fagurt sem hún sá þar. Það fylgdi Erlu lífskraftur og þau Jón Bjarni sameinuðust í útivistaráhuga; gönguferðum, hlaupaíþróttinni og heilnæmum lífsstíl. Jafnan þegar þau komu úr gönguferðum og litu inn í kaffi eða mat fylgdi þeim fersk- ur andblær úr fjallaskörðum eða lyngmóa. Það var eins og samvera úti í náttúrunni færði þeim einnig aukna andagift. Erla var jafnréttissinni og tók jafnan málstað þeirra sem minna máttu sín. Hún starfaði lengst af sem félagsráðgjafi og í barnavernd þar sem hún naut þess að leiðbeina fólki og að- stoða í lífsins ólgusjó, en gat jafnframt verið ákveðin þegar þurfti að setja skjólstæðingum skýr mörk. Hún kunni sitt fag og var þarna á réttri hillu. Það var yndislegt að fylgjast með þegar Helga Júlíana fædd- ist og hve natin Erla var, og þau bæði, við umönnun og upp- eldi; enda hefur sú umhyggja borið ríkulegan árangur. Móð- urástin var hrein og tær, og allt varð að vera vel úr garði gert fyrir barnið. Erla útbjó tvær ljósmyndabækur um fyrstu ár Helgu Júlíönu, sem eru henni dýrmæt minning. Erla var vinmörg og átti stóra og umvefjandi fjölskyldu. Hún hafði góða nærveru og átti auðvelt með að blanda geði við alla, jafnt háa sem lága; unga sem aldna. Hún var jafnan mjög þakklát fyrir öll samskipti okkar, ekki síst síðustu árin; hvort heldur það voru myndir af Helgu Júlíönu í tölvupósti eða eitthvað annað. Okkar fólk fylgdist vel með litlu fjölskyld- unni frá upphafi. Það bar hag Erlu mjög fyrir brjósti þegar hún veiktist, sendi stuðnings- kveðjur og góða strauma, og hugurinn var hjá henni í ójafnri baráttu við krabbameinið. Erlu er sárt saknað. En minningin lifir um góða tengda- dóttur í okkar fjölskyldu og við hjálpumst öll að við að halda vel utan um snúllukrúsuna þeirra Jóns Bjarna. Hugheilar samúðarkveðjur til allra ástvina. Helga og Magnús. Nærri fjögurra áratuga vin- átta Erlu frá barnæsku, yfir á unglings- og fullorðinsár og í móðurhlutverki hefur mótað okkur allar, vinkonur og bekkjarsystur Erlu úr Árbæn- um. Þau ráð og sú leiðsögn sem við sóttum til hennar reyndust okkur ávallt vel því hún bjó yfir ígrunduðum skoðunum, mikilli visku og frá henni stafaði traust, sönn alúð og umhyggja. Víðsýni fékk Erla á ferða- lögum sínum út um allan heim þar sem hún kynntist ólíkum menningarheimum og styrkti vinabönd. Hún átti jafnan eina ferð skipulagða fram í tímann, ef ekki tvær, og sú eina sem kom með nægan pening heim úr margra vikna eða mánaða ferðalögum til að kaupa bíl eða sófasett. Heilbrigt líferni og skipulagt líf einkenndi Erlu sem alltaf átti nægan tíma fyrir vini sína. Hún var mikill þátttakandi og stuðningsmaður í lífi okkar vin- kvennanna, samgladdist okkur, fylgdist með og studdi í einu og öllu sama hvað gekk á í hennar lífi. Fyrir um tíu árum ákváðum við að skrifa niður það sem okk- ur langaði til að gera saman og upplifa, skipta því niður á mán- uði og skiptast á að skipuleggja og koma hópnum saman, undir dyggri stjórn Erlu. Þetta endurtókum við á 2-3 ára fresti og áttum yndislegar samveru- stundir auk margra daga til- hlökkunar fyrir hvert skipti. Bogfimi, skvísubíó, sushi-gerð, handsnyrting, fondant-kökur, brjóstsykursgerð, gönguferðir, New York-ferð, keila, fjallgöng- ur, morðgátumatarboð í fullum skrúða, búðarferðir, ljósmynda- samkeppni, skautar, fiskisúpa með mæðrum okkar, golf og þar fram eftir götunum gerði okkur aftur að stelpunum sem kynntust í grunnskóla og léku sér saman. Erla barðist af fullri hörku hvert einasta augnablik í veik- indunum með gleði og jákvæðni að leiðarljósi. Hún kunni að koma líðan sinni í orð og sækja styrk til fjölskyldu og allra vinahópanna sem hún tilheyrði. Við þökkum Óskari lækni fyrir hvatninguna og stuðninginn við Erlu sem hún mat mikils því hann varð nokkurs konar með- limur í okkar hópi og fundir okkar vinkvennanna réðust oft mikið til af því hvað Óskar var með á prjónunum fyrir Erlu. Erla lifði fyrir Helgu Júlíönu í fyllsta skilningi og var henni yndisleg móðir og fyrirmynd. Hún bjó yfir takmarkalausri þolinmæði og áhuga á uppeld- inu og var okkur vinkonunum fullkomið fordæmi. Birtuna og lífsgleðina sem fylgdi Erlu alla tíð sjáum við í Helgu Júlíönu sem mun búa að þeirri um- hyggju og elsku sem Erla um- vafði hana með. Erla gerði heiminn betri og munum við ávallt búa að vin- skapnum sem mótaði okkur fyr- ir lífstíð. Við kveðjum Perluna okkar með mikilli sorg í hjarta og sendum Helgu Júlíönu og fjölskyldu Erlu okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Adda Mjöll, Björg Rós, Ingunn og Pálína. Ég var svo heppinn að vera bæði frændi og vinur Erlu perlu og höfum við verið til staðar fyrir hvort annað í gegn- um súrt og sætt. Skemmt okkur saman og tókum reglulega spjall um lífið og tilveruna, nú eða um allt og ekkert. Við Erla vorum systkinabörn og ólumst upp við það að ómissandi partur af jólagleðinni var þegar spiluð var framsóknarvist með ömmu og öllum skyldmennunum. Áfram hélt þessi siður eftir daga ömmu þar til árið 2010 að systkinin ákváðu að láta staðar numið, amma hefði orðið 100 ára og systkinin öll að eldast. Við systkinabörnin settumst þá niður að tilstuðlan Erlu og sögðum; þau eru hætt en við er- um ekki hætt. Við Erla höfum alltaf verið miklar félagsverur og til að tryggja að ættarhitt- ingurinn héldist áfram settum við okkur í tveggja manna nefnd yfir þessu verkefni sem skipist á að vera framsóknar- vist og útilega annað hvert ár. Elín, systir Erlu, kom svo inn í nefndina þegar Erla veiktist í fyrra skiptið en Erla var áfram virk eftir því sem þróttur leyfði. Erla var einstaklega dugleg að rækta vini sína, var vinamörg og hún var sannur vinur. Lífið er stundum ósanngjarnt og stundum er erfitt fyrir okk- ur fullorðna fólkið að skilja til- gang lífsins og hvað þá börn. Þannig var ég að undirbúa Högnu, 7 ára dóttur mína, und- ir það sem verða vildi. Kveikt- um við á kertum fyrir Erlu þeg- ar ljóst var hvernig baráttan við krabbameinið myndi enda. Sagði ég Högnu að við værum að kveikja á kertum fyrir Erlu frænku. Er Erla frænka dáin? spurði Högna og ég sagði henni að hún færi að deyja á næstu dögum, hún væri mjög veik. „En hún á Helgu, sem er svo ung. Það er svo erfitt að missa mömmu sína þegar maður er svona ungur,“ sagði Högna. Erla dó fjórum dögum síðar. Já, það er erfitt að missa mömmu, dóttur, systur, frænku, vinkonu og vin. Stund- um finnst manni lífið ósann- gjarnt en lífið heldur áfram og ljósið er allar þær góðu minn- ingar sem Erla skyldi eftir sem og Helga Júlíana sem ég veit að verður umvafin ást. Ég votta fjölskyldunni samúð mína. Lúðvík Kristinsson. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran) Þessi orð úr Spámanninum koma okkur í huga á þessari sorgarstundu þegar við minn- umst gleðigjafans, nöfnu okkar Erlu Sigríðar sem í dag er til moldar borin eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Það er sárt fyrir okkur, ætt- ingja og vini, að sjá á eftir þess- ari glæsilegu og vel menntuðu konu sem á besta aldri var frá okkur tekin á svo grimmilegan hátt. En mestur er þó missirinn hjá fimm ára dótturinni sem sjá má á eftir elskaðri móður svo skyndilega. Við minnumst nöfnu okkar með söknuði og þakklæti í huga fyrir allar gleðistundirnar sem hún gaf okkur. Við sendum Helgu Júlíönu og Jóni Bjarna, foreldrum, syst- kinum og fjölskyldum þeirra, okkar innilegustu samúðar- kveðjur og óskum þeim allra heilla í framtíðinni. Erla Eiríksdóttir og Sigurður Hallgrímsson. Vinátta okkar hófst fyrir tæpum tuttugu árum. Við vor- um allar starfsmenn Félagsmið- stöðvarinnar Ársels þar sem starfsandinn einkenndist af gleði, vináttu og virðingu og var Erla þar fremst í flokki. Þetta var frábær hópur af fólki, sem var saman kominn til að vinna með unglingum, hafa áhrif á þá og hugsanlega ná að sá fræjum til að gera þá enn betri. Þetta var mjög skemmti- legur tími og alveg ótrúlega öfl- ugur starfsmannahópur, sterk liðsheild. Við vorum alltaf að skipuleggja eitthvað skemmti- legt, bæði með unglingunum og svo líka við starfsfólkið eins og utanlands- og sumarbústaða- ferðir og í einni slíkri ferð urðu einmitt til einkunnarorð okkar sem oft voru notuð: Við erum úr Árseli, við erum í klíkunni og við erum laaaangflottastar! Með árunum fór að tínast úr starfsmannahópnum og var þá ákveðið að við myndum halda í vináttuna og rækta hana með því að hittast reglulega. Þetta hefur verið yndislegur tími og við höfum getað fylgst með og tekið þátt í lífi hver annarrar í gegnum súrt og sætt. Við höf- um stutt hver aðra, leitað ráða og hvatt áfram, tekið þátt í gleði og sorg. Nú er stórt skarð komið í fallega vinkvennahóp- inn okkar, perlan okkar er farin frá okkur. Þegar Erla greindist þá hafði það mikil áhrif á okkur allar. Við stóðum þétt við bakið á Erlu, hittumst allar reglulega og pössuðum upp á hana. Erlu fannst best að fá að vera hún sjálf þegar hún var með okkur, ekkert vera að tala um veik- indin heldur bara hlæja, slúðra og hafa gaman. Alveg eins og áður. Hún var ótrúlega sterk og jákvæð fram á síðasta dag, það var til eftirbreytni. Hún trúði á betri tíð og kveikti vonarneista í brjósti okkar allra. Hún fór í gegnum þetta erfiða ferðlag al- veg eins og hún var, töffari með hjarta úr gulli. Sumir hverfa fljótt úr heimi hér skrítið stundum hvernig lífið er, eftir sitja margar minningar Þakklæti og trú. Þegar eitthvað virðist þjaka mig þarf ég bara að sitja og hugsa um þig, þá er eins og losni úr læðingi lausnir öllu við. (Ingibjörg Gunnarsdóttir) Elsku besta vinkona okkar, Erla perla. Mikið sem við eig- um eftir að sakna þín. Við þökkum fyrir vináttuna, kær- leikann, gleðina, slúðrið og hlát- urinn. Við hugsum fallega til þín og komum til með að halda þínum heiðri á lofti. Minning þín lifir í hjarta okkar alla tíð. Hugur okkar og kærleikur er hjá elsku mömmugullinu þínu Helgu Júlíönu, systkinum, for- eldrum og öðrum ástvinum. Hvíldu í friði, elsku perlan okkar. Þínar vinkonur Anna, Ágústa, Ása, Kristrún, Kristín, Sigrún og Sigurbjörg Elsku Erla, nú ertu orðin engill allt of snemma, hversu ósanngjarnt getur lífið verið? Mikið hefur verið á þig lagt undanfarið og ég vona að þér líði betur en missir okkar sem eftir lifum er mikill. Ég datt heldur betur í lukku- pottinn fyrir tuttugu árum þeg- ar við Erla gengum inn á sama vinnustaðinn að hefja okkar fyrsta starfsdag á nýjum vinnu- stað. Strax þennan dag tókst með okkur frábær vinskapur enda manneskja eins og Erla vandfundin. Erla var ekki bara eldri, klárari og mun skynsam- ari en ég heldur var hún ein- stök og við skildum hvora aðra svo vel, þurftum stundum ekk- ert að tala því við skildum hvor aðra. Erla byrjaði fljótt að leggja mér lífsreglurnar og beindi mér á beinu braut lífsins, sagði að ég þyrfti ekkert að sofa á morgnana meðan hún væri í Háskólanum, heldur ætti ég að drífa mig í háskóla og nýta tímann vel. Við Erla gerð- um margt saman utan vinnu- tíma og það er gaman að skoða myndaalbúmin frá þessum ár- um þar sem Erla er á annarri hverri mynd og gleðin allsráð- andi. Við brölluðum ýmislegt saman og fórum í mjög mörg ferðalög, þau sem standa helst upp úr eru skemmtilegar úti- legur í Þórsmörk, á Búðum og fleiri fallegum stöðum innan- lands, sumarbústaðarferðir svo ekki sé talað um utanlandsferð- irnar. Þó að síðari ár hafi sam- vera okkar ekki verið eins mikil og árin þar á undan var vin- áttan einstök, alltaf þegar við hittumst eða töluðum saman í síma var eins og við hefðum hist í gær. Erla reyndi nokkr- um sinnum að fá mig aftur sem samstarfsmann sinn og hringdi ávallt í mig þegar lögfræðistörf losnuðu í vinnunni hjá henni. Erla var sannur vinur og und- anfarna mánuði minnti hún mig reglulega á það að frumburð- urinn minn, Tandri Snær, væri svolítið mikið henni að þakka og hún liti svo á að hún ætti alltaf smá í honum. Fyrir þetta og vináttu okkar verð ég henni æv- inlega þakklát og mun ég reyna að kenna honum allt sem hún kenndi mér. Minning um Erlu mun lifa að eilífu í hjarta mínu. Hvíldu í friði, elsku Erla. Elsku Helga Júlíana, fjöl- skylda Erlu og aðrir aðstand- endur, hugur minn er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Þín vinkona, Ása Bergsdóttir Sandholt. Komið er að góðra vina kveðjustund, allt of fljótt. Hvern hefði grunað að maður ætti eftir að sitja hér og skrifa minningargrein um sína bestu vinkonu í blóma lífsins. Manni er það óskiljanlegt hvers vegna ung kona veikist og deyr frá ungu barni sínu. Efst er mér í huga þakklæti fyrir einstaka vináttu allt frá unglingsárum og munu dásamlegar minningar ylja mér um hjartarætur um ókomna tíð. Erla kunni að lifa lífinu og hvernig hún gerði það var til fyrirmyndar eins og allt sem hún tók sér fyrir hendur. Dugn- aður, skynsemi, sjálfsagi, skipu- lagshæfileikar og góðmennska eru orð sem lýsa henni vel. Hún átti ógrynni góðra vina því hún var stórskemmtileg og traustur vinur. Ævintýraþráin leiddi hana til allra heimsálfa utan Suðurskautslandsins og fannst henni ekkert tiltökumál að skella sér í framhaldsnám alla leið til Sydney. Prakkarastrikin á unglings- árunum voru nokkur en ég held þeim fyrir mig. Þá var stofn- aður klúbbur nokkurra góðra vinkvenna sem við köllum Maf- íuna og hafa reglulega verið haldnir háleynilegir mafíufundir þar sem mikið var hlegið. Er nú stórt skarð höggvið í hópinn. Ég á Erlu svo margt að þakka. Í tvo vetur passaði hún elstu dóttur mína vikulega svo ég gæti lokið námi í kvöldskóla sem var ómetanlegt fyrir ein- stæða unga móður. Erla gant- aðist stundum með að hún væri stjúppabbi dóttur minnar og þær voru miklir vinir. Sumarið 1998 dvaldi Erla í Kaupmanna- höfn og heimsóttum við mæðg- ur hana þangað og brölluðum við þá margt skemmtilegt. Erla var góður námsmaður og menntaði sig í félagsráðgjöf. Með háskólanámi vann Erla í félagsmiðstöðinni Árseli og sagðist hún elska unglinga, þeir væru svo skemmtilegir. Það sýnir glöggt hve barngóð hún var enda starfaði hún síðustu árin hjá Barnavernd. Ótal góðar minningar skjót- ast upp í kollinn, svo sem sum- arbústaðaferðir og útilegur en eftirminnilegust er heimsókn sem við fórum saman í til Fríðu vinkonu okkar og fjölskyldu í Erla Sigríður Hallgrímsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.