Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú vilt hafa hlutina í röð og reglu en
skalt varast það að ganga of langt í þeim efn-
um. Ekki leyfa neinum að tala þig út í að gefa
fé, sem þú hefur unnið fyrir hörðum höndum.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu óhræddur við að segja hug þinn
og fara eftir sannfæringu þinni. Reyndu að yf-
irstíga hömlur sem eðlislæg varkárni og óör-
yggi setja.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú færð fullt af góðum hugmyndum
sem bætt gætu stöðu þína hvað varðar vinnu
og tekjur. Hafðu augun hjá þér þegar nýir
möguleikar opnast.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er engin ástæða til þess að velta
sér upp úr öllum sköpuðum hlutum. Láttu
stoltið ekki hindra þig í að leita aðstoðar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú þegar þú ert að gera breytingar á lífi
þínu skaltu hafa hugfast að allar góðar breyt-
ingar gerast hægt. En reyndu að finna þinn
eigin takt og halda honum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að taka ákvörðun sem snertir
fleiri en sjálfan þig og þá skiptir öllu máli að
allir séu á eitt sáttir. Góður vinur þarfnast að-
stoðar þinnar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að leysa vandamál sem krefst
mikillar einbeitingar og yfirsýnar. Fylgstu vel
með því sem er að gerast í kring um þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert vinsæll í vinahópi og nóg
er um að velja í félagsstarfinu. Líttu á stund-
irnar sem þú hefur sem verðmæti og sjáðu
hvort það breytir því hvernig þú ferð með
þær.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er líklegt að einhver mis-
skilningur eigi sér stað í samskiptum þínum
við annað fólk í dag. Forðastu að láta draga
þig inn í deilur en gefðu þau ráð sem þú held-
ur að gefist best.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú kannt að fá merkilegar upplýs-
ingar sem gætu á endanum haft breytingar í
för með sér. Gerðu það að takmarki þínu að
gera sem mest úr hæfileikum þínum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hittir fólk sem er ekki alltaf í
góðu sambandi við sannleikann. Þú hefur
orðið fyrir vonbrigðum og þarft því að gera
þér grein fyrir hvaða væntingar þú gerir til
annarra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinnan verður tómt strit í dag og yfir-
maðurinn einstaklega önugur í viðmóti. Ekki
láta sannfæra þig um eitthvað sem þér er á
móti skapi.
Helgi R. Einarsson segir frá því ítölvupósti að Sverrir Thor-
stensen vinur hans á Akureyri hafi
þá áráttu að merkja fugla. Hann er
með gildrur í garðinum sínum og
fangaði tugi auðnutittlinga og einn
smyril. Þá varð þetta til:
Fótsnyrtingar fá
fuglar Sverri hjá.
Mælir, metur,
merkin setur
litlar lappir á.
Sverrir er góðmenni sem ekki
gæti gert flugu mein, en árátta
hans er að fanga fugla og merkja.
Skráir fugla af miklum móð
meira en flestir aðrir.
Sem valur fer um veiðislóð
þó vanti klær og fjaðrir.
Fyrst við erum að tala um fugla
fær þessi að fylgja með – „rímið
tekur völdin“:
Gamalli aliönd
engin héldu bönd.
Er frelsi hlaut
og flaug á braut
þá flaug hún upp á rönd.
Í Íslenskum þjóðsögum segir, að
Kolugil heiti bær einn framarlega í
Víðidal fyrir austan Víðidalsá. Þar
bjó tröllkona ein, sem Kola hét og
dró bærinn nafn af henni. Fyrir
neðan bæinn er dimmt og djúpt gil
að Víðidalsá og foss einn í gljúfrinu
svo hár að enginn lax fer yfir hann
og því er engin veiði framar í ánni
en í kerinu undir fossinum.“ – Hall-
mundur Guðmundsson birtir á
Boðnarmiði þessa vísu við stór-
fallega mynd af fossinum og Kolu-
gili:
Kankvís þarna Kola er
komin úr ísaböndum.
Um bergið hvítu frissi fer
og fínum skessuhöndum
Sigurlín Hermannsdóttir skrifar
á Leirinn að einhverra hluta vegna
hafi hún farið að hugsa um hversu
merkileg þau eru þessi austurevr-
ópsku sérheiti sem eru (næstum)
ekkert nema samhljóðar:
Þegar Jarmíla Brlnka frá Brno
byrjaði setningu á: „you know“,
þá vissu það flestir,
jafn vinir sem gestir
að nú stefndi í stórkostlegt trúnó.
Ónefnd kona orti:
Eg hef beðið uppdubbuð
allan þennan vetur
og beðið þess að góður guð
gefi mér hann Pétur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fuglamerkingar, Kola
og samhljóðar
Í klípu
„VIÐ HEFÐUM ÁTT AÐ TAKA STIGANN“.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MUN FRÚIN KOMA AFTUR, HERRA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að bíða eftir þér.
Í DAG ER LIÐIÐ ÁR SÍÐAN
VALTÝR MAÐURINN MINN
KVADDI
ÉG ÁT HANN
TAKK,
HELENA
HVAÐ KOM ANNARS
FYRIR VALTÝ?
TENGDAMÓÐIR MÍN ELSKAÐI MIG EINU SINNI!
HVAÐ GERÐIST?
ÉG HÆTTI MEÐ HENNI OG GIFTIST
DÓTTUR HENNAR!
ÞETTA HLÝTUR AÐ
VERA SVO ERFITT.
MÉR ÞYKIR ÞETTA
LEITT, AGNES
Víkverja þykir einkennilegur þessihnífstungufaraldur sem geisað
hefur í London á árinu. Víkverji las
um þessa óöld í SunnudagsMogg-
anum þar sem ein helsta skraut-
fjöður Árvakurs, Orri Páll Ormars-
son, tók saman ýmsar staðreyndir
varðandi málið.
x x x
Þar kom til dæmis fram að í mars-mánuði einum hefðu tuttugu og
tveir látist af stungusárum í London.
Þar er aðeins verið að ræða um eina
borg, einn mánuð og einungis þá
sem létust. Gera má ráð fyrir því að
fleiri hafi orðið fyrir hnífstungum en
sloppið lifandi. Í greininni var bent á
að fjöldi þeirra sem myrtir voru í
New York í mars var tuttugu og
einn.
x x x
Hverju sem lögum um skotvopna-eign hjá ríkjum heimsins líður
þá er ljóst að mannskepnan finnur
leiðir til að drepa og meiða með ýms-
um hætti. Ofbeldið og grimmdin hjá
þessari tegund sem á að vera sæmi-
lega þróuð er illskiljanleg, nú sem
fyrr.
x x x
Í sama blað skrifaði umsjónarmað-urinn, Eyrún Magnúsdóttir, pistil
þar sem hún benti á að ekki væri
boðið upp á almenningssamgöngur
við aðstöðu allra íþróttafélaga í
borginni. Nefndi hún Valssvæðið á
Hlíðarenda sem dæmi.
x x x
Hún bendir á að hjá Strætó gleym-ist þarfir barna og unglinga.
Hópar sem einmitt þurfa gjarnan á
slíkum samgöngum að halda enda
ekki á bílprófsaldri.
x x x
Á dögunum kom Víkverji einmittinn á tímann sem fer í skutlið
hjá foreldrum varðandi íþrótta- og
tómstundaiðkun barna sinna. Kjörn-
ir fulltrúar á höfuðborgarsvæðinu
ættu að geta ráðið við að hafa al-
menningssamgöngur sem valkost
fyrir börn og unglinga. Með minna
skutli minnkar umferðaþunginn eins
og Eyrún nefnir í pistlinum.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Innan skamms mun heimurinn ekki
sjá mig framar. Þér munuð sjá mig
því ég lifi og þér munuð lifa.
(Jóh: 14.19)
• Gamli lykillinn
virkar áfram
• Vatns- og
vindvarinn
Verð: 39.990 kr.
LYKILLINN ER Í SÍMANUM
Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli
til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum
þegar þér hentar og hvaðan sem er.
Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með
umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir
börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að
fara heim eða lána lykil.
Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.