Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 ✝ Steinunn Sigur-björg Úlfars- dóttir fæddist á Vattarnesi við Reyð- arfjörð 25. apríl 1931. Hún lést á Fossheimum, hjúkr- unardeild Heilbrigð- isstofnunar Suður- lands, 1. apríl 2018. Steinunn var dóttir Úlfars Kjart- anssonar, útvegs- bónda á Vattarnesi, f. 26. nóv. 1895, d. 22. mars 1985, og Maríu Ingibjargar Halldórsdóttur hús- freyju, f. 16. sept. 1897, d. 29. sept. 1939. Systkini Steinunnar eru: Kjart- an, f. 1917, d. 1917, Halldóra Hansína, f. 1918, d. 2000, Jón Karl, f. 1920, Eygerður, f. 1922, d. 1982, Indíana Björg, f. 1924, d. 2008, Bjarni Sigurður, f. 1926, d. 2013, Aðalbjörn, f. 1928, d. 2009, Kjartan Konráð, f. 1935, Hreinn, f. 1937, d. 2017, María Úlfheiður, f. 1939. Steinunn giftist hinn 15. sept. 1951 Gísla Vilhjálmi Gunnarssyni, f. 1925, d. 1991. Börn þeirra eru 1) Gunnar, f. 1952, d. 1966. 2) Úlf- ar, f. 1953. M. 1. Guðbjörg Dóra Malen og María Gló. M. 2. Þór- anna Einarsdóttir. Börn þeirra Adam Hrafn og Birta Líf. c) Elvar Örn. M. Sunneva Lind Ármanns- dóttir. Börn þeirra Jóhann Berg og Kristín Lind. 5) Konráð Sig- þór, f. 1962. M. 1. Margrét Guð- mundsdóttir. Sonur þeirra Gísli Vilhjálmur. M. Snæfríður Jóns- dóttir. M. 2. Elín Helga Hauks- dóttir. Dætur Elínar a) Kristín. M. Guðjón Þorsteinsson. Þeirra börn Þorsteinn Sölvi og Ástrós Helga. b) Guðlaug. M. Jón Theódór Jóns- son. Dætur þeirra Sigrún Alda og Elín Harpa. 6) Ragnar Svanur, f. 1965. M. 1. María Harðardóttir. Sonur þeirra Hörður. M. 2. Sig- ríður Margrét Snorradóttir. Dæt- ur þeirra Sara Margrét og Re- bekka Steinunn. 7) Gunnhildur Anna, f. 1967. Steinunn og Vilhjálmur byrj- uðu búskap í Tungu árið 1951. Þau stofnuðu nýbýlið Tunguholt þar sem þau bjuggu til ársins 1966. Þá fluttu þau á Selfoss og hefur Steinunn búið þar síðan. Steinunn vann við ýmis versl- unar-, þjónustu- og umönnunar- störf, en lauk sinni starfsævi hjá Sveitarfélaginu Árborg þar sem hún vann á leikskólanum Álf- heimum. Steinunn tók virkan þátt í starfsemi kirkjukvenfélags Sel- fosskirkju, um tíma sem formað- ur þess. Útför Steinunnar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 13. apríl 2018, kl. 14. Sverrisdóttir. Dætur þeirra a) Steinunn Elfa. M. Sveinn Kjartan Sverrisson. Börn þeirra Valur Freyr, Svanbjörg Anna og Birna Kar- en. b) Bára María. M. Eiríkur Andri Gunnarsson. Sonur þeirra Gunnsteinn Úlfar. M. 2. Elfa Bryndís Kristjáns- dóttir. Sonur þeirra Gunnar Theódór. Fyrir á Elfa Ólöfu. M. Birgir Sveinsson, þeirra synir Elf- ar Franz og Mikael Máni. Kristján Inga og Rúnu Hrönn, dóttir henn- ar er Dóróthea Dís. 3) Dóttir and- vana fædd 1958. 4) Sigdór, f. 1960. M. Guðbjörg Jóhannsdóttir. Þeirra synir a) Jóhann Gunnar. M. 1. Sandra Mjöll Tómasdóttir. Dóttir þeirra Rebekka Sól. M. 2. Guðrún Inga Hannesdóttir. Sonur þeirra Hannes Logi. M. 3. Hildur Ósk Rúnarsdóttir. Sonur þeirra Anton Orri. Fyrir á Hildur Ósk Natan Árna. M. 4. Erla Kristín Jónasdóttir sem á fyrir Lindu Sól, Mikael Inga og Elvar Mána. b) Vilhjálmur. M. 1. Anna Lind Friðriksdóttir. Dætur þeirra Elsa Á páskadag, þann 1. apríl, kvaddi elsku amma Steina þetta jarðlíf. Henni á ég svo ótal margt að þakka. Þær voru ófáar stundirnar okkar saman. Það var alltaf sama hvernig á stóð, alltaf var opið hús og opinn faðmur hjá ömmu, sama hvort mig langaði að æfa á píanó, fá aðstoð við handavinnu, fá einhvern til að spila við eða bara spjalla, það tók sama hlýjan og þolinmæðin á móti manni. Um tíma var ég svo heppin að fá að búa hjá ömmu og Gunnhildi á Víðivöllunum. Þá var ég nýfermd og lífið stundum svolítið snúið. Þá eins og svo oft áður og síðar var amma kletturinn minn. Við amma áttum ýmis sameig- inleg áhugamál. Til dæmis tónlist og handavinnu. Hún var óþreyt- andi að hjálpa mér og leiðbeina í hannyrðum og lagði áherslu á að passa ætti að vera vandvirkur og að helst ætti rangan að vera jafn falleg og framhliðin. Þær voru líka dýrmætar stund- irnar okkar eftir að hún var komin á Fossheima. Þó svo að amma hafi verið orðin veik var faðmurinn allt- af jafn hlýr og góður og vel tekið á móti manni. Amma sýndi alltaf áhuga á öllu sem var í gangi í mínu lífi og var ekki að barma sér þrátt fyrir veikindin. Það er ekki langt síðan ég tók gítarinn með mér til ömmu og við sungum saman nokkur lög. Það var yndisleg stund. Ég kveð elsku ömmu með þakk- læti fyrir allt og allt. Bára María Úlfarsdóttir. Maður kynnist mörgum á lífs- leiðinni sem setja mark sitt á líf manns. Steinunn var ein af þeim sem sem mótaði mitt líf. Ég kynnt- ist henni ung, aðeins fimmtán ára gömul. Hún tók mér opnum örm- um og bauð mig velkomna í fjöl- skylduna. Steinunn var ein af þessum sterku konum með sterkar skoð- anir og lét engan segja sér hvað hún ætti að hugsa eða gera. Hún hafði lifað tímana tvenna og reynt margt. Hún missti móður sína ung svo og tvö af sjö börnum sínum. Þegar seinna barnið dó brugðu þau Vilhjálmur búi og fluttu suður ásamt fjölskyldunni. Hún var fljót að taka ákvarðanir og það sem hún ákvað stóð. Þessi ákvörðun hennar leiddi til þess að ég kynntist syni hennar nokkrum árum seinna. Steinunn var mjög hjálpsöm. Hjálpsemi hennar náði til allra, ekki bara nánustu fjölskyldu. Ef henni fannst einhver þurfa hjálp eða líða skort vildi hún gera það sem hún gat til að bæta úr. Stein- unn var einnig dugleg með afbrigð- um og úrræðagóð. Á meðan hún bjó í sveitinni fyrir austan rak hún um tíma skóla. Það gerði hún án þess að vera kennaramenntuð. Hún var þó ekki ómenntuð, bara ekki langskólagengin. Enginn sem talaði við hana velktist í vafa um að þarna var fróð kona og sérlega góð íslenskumanneskja. Fljótlega eftir að ég kynntist Steinunni flutti ég inn á heimili hennar og bjó þar veturlangt. Ég var ung og uppreisnargjörn, hún ráðsett og traust. Við urðum vinir og ég leitaði til hennar með margt, kannski ekki þennan vetur en oft síðar. Hún kenndi mér þolinmæði sem ég átti lítið af á þessum árum. Það gerði hún t.d. með því að að kenna mér margskonar handa- vinnu. Ég man sérstaklega eftir því þegar hún leiðbeindi mér með að sauma bæði kápu og jakka og lét mig beita allri þeirri færni sem sönnum klæðskera sæmdi. Þar kom nálin og tvinninn meira við sögu en saumavélin sjálf. Þannig var Steinunn, hún gerði allt vel og af nákvæmni sem hún tók sér fyrir hendur. En hún kenndi mér þó trú- lega mest í þolinmæði með því að sýna mér, unglingnum, sem þóttist vera fullorðinn, endalausa þolin- mæði í einu og öllu. Fáeinum árum eftir að ég kynntist Steinunni eignaðist ég fyrsta barnið mitt og hún um leið fyrsta barnabarnið sitt, stúlku sem hlaut nafn hennar. Þær voru ekki fáar stundirnar sem sú stutta var hjá ömmu sinni, báðum til ánægju. Og þegar næsta barn fæddist beið hennar sama góða atlætið á heimili ömmu og afa. Þau voru samhentar og góðar manneskjur Vilhjálmur og Steinunn. Samband dætra minna og ömmu og afa var ávallt gott, fallegt og kærleiksríkt. Samfylgd mín við tengdamóður mína stóð í rúm tuttugu ár, þá skildu leiðir. Við hittumst þó af og til á förnum vegi, í veislum og eins þegar ég heimsótti hana með barnabörnin í suðurferðum þeirra. Þá voru fagnaðarfundir, kærleik- urinn hverfur nefnilega ekki þótt leiðir skilji. Með þakklæti í huga kveð ég Steinunni tengdamóður mína. Börnum hennar, barnabörnum og öðrum aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Dóra. Steinunn Sigur- björg Úlfarsdóttir ✝ ÞormóðurHaraldsson fæddist í Reykja- vík 6. september 1932. Hann and- aðist á Landspítal- anum 31. mars 2018. Foreldrar hans voru þau Haraldur Axel Pétursson, safnhúsvörður og fræðimaður, f. 15. ágúst 1895 á Arnarstöðum í Hraungerðishreppi, d. 1. jan- úar 1982, og kona hans, Mar- grét Þormóðsdóttir, f. 7. nóv- ember 1896 í Holtakotum í Biskupstungum, d. 29. apríl 1988. Systkini Þormóðs: 1) Pétur Þórir, f. 17. október 1922, d. 1. maí 1924. 2) Pétur, kaupmaður og fræðimaður, f. 3. júlí 1925, d. 28. júlí 1993, kvæntur Hall- dóru Hermannsdóttur, f. 1929, kaupkonu. Börn þeirra eru: a) Sigríður, f. 1953, kennari, gift sr. Hreini S. Hákonarsyni, fangapresti þjóðkirkjunnar, og eru börn þeirra fjögur. b) Har- aldur, f. 1955, d. 1972, mennta- skólanemi. c) Margeir, f. 1960, héraðsdómslögmaður og stór- meistari í skák, kvæntur Sig- ríði Indriðadóttur kennara og eiga þau eina dóttur. d) Vigdís, f. 1962, læknir, gift Ævari Að- alsteinssyni, múrara og tóm- stunda- og félagsmálafræðingi, og eiga þau tvær dætur. 2) Guðbjörg Haralds- dóttir Bay, fyrrv. sjúkraliði, f. 16. janúar 1928, búsett í Holbæk í Dan- mörku, gift Axel Bay, prentmynda- smið, f. 1922, d. 1990. Synir þeirra eru: a) Haraldur Jóhannes, f. 1950, félagsfræðingur, kona hans er Linda Andersen prófessor, og eiga þau þrjá syni. b) Pétur, f. 1952, kennari, og á hann tvær dætur. c) Hans Henrik, f. 1963, tónlist- armaður, kona hans er Sus- anne Bechmann tónlistar- maður og eiga þau tvö börn. Sambýliskona Þormóðs var Ágústa Jónsdóttir, f. 17. janúar 1920, d. 2. janúar 1989. Hún var dóttir Ágústu Gunnlaugs- dóttur, f. 1888, d. 1951, og Jóns Kornelíusar Péturssonar, f. 1889, d. 1925. Þormóður og Ágústa voru barnlaus. Þormóður lauk námi frá Gagnfræðaskóla Reykjavíkur og vann hjá póstinum á yngri árum. Síðan vann hann við Búrfellsvirkjun og lauk starfs- ævi sinni hjá ullarverksmiðj- unni Álafossi. Þormóður var áhugamaður um samfélagsmál og fylgdist vel með þjóðmálaumræðu. Útför hans fer fram frá Ás- kirkju í dag, 13. apríl 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Við minnumst Þomma frænda okkar með hlýhug og söknuði. Hann var ávallt hress þegar hann bar að garði og hlýr þegar hann kvaddi; skemmtileg- ur viðræðu, öllum mönnum fróð- ari, áhugasamur um menn, mál- efni, lífið og tilveruna. Með þessum orðum kveðjum við kæran frænda með þökk fyr- ir samfylgd og vináttu. Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjörnur skína og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína en alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir) Halldóra (Dóra), Haraldur, Jóhanna og Pétur. Þormóður Haraldsson lést laugardaginn fyrir páska eftir stutta sjúkrahúslegu. Hann hafði átt við veikindi að stríða en í hjarta sínu var hann nokkuð viss um að þau yrðu yfirstigin. En eigi má sköpum renna, eins og orðtakið segir. Þegar Þommi – en svo var hann ætíð kallaður í fjölskyld- unni – hætti að vinna fyrir ald- urs sakir var hann á vissan hátt dálítið einn á báti. Sína ágætu sambýliskonu, Ágústu Jónsdótt- ur, hafði hann misst árið 1989, en þau höfðu búið saman hátt í þrjátíu ár. Seinni hluta starfsævinnar vann Þommi á Álafossi þar sem hann kunni vel við sig og var ánægður. Í samráði við Þomma var ákveðið að við myndum hafa reglulegt símasamband við hann eftir að hann hætti að vinna, því að fátt segir af einum. Samtölin við hann voru skemmtileg og aldrei kom mað- ur að tómum kofunum hjá hon- um þegar hvers kyns málefni bar á góma. Hann var ættfróður eins og hann átti kyn til, vissi deili á mönnum í þjóðlífinu, kunnum sem ókunnum; sagði sömuleiðis frá skemmtilegum atvikum og eftirminnilegum. Oft hugsaði maður með sjálfum sér að þetta og hitt þyrfti að skrá niður eftir honum en asi nú- tímans olli því að það var ógert látið. Þommi var ótrúlega fróður um alla staðhætti á Íslandi. Það var gaman að ferðast með hon- um um landið hvort heldur lengri eða styttri ferðir. Við ferðuðumst með honum bæði um Vestfirði og Austurland. Hann undirbjó sig mjög vel fyr- ir allar ferðir og var eins og hann hefði komið þar oft áður enda þótt hann væri að koma á staðina í fyrsta sinn. Hann fylgdist alla tíð vel með þjóð- málum og öllu því sem var að gerast. Þess vegna var það hon- um mikil upplifun að fara með okkur að Kárahnjúkavirkjun á sínum tíma. Honum þótti stór- merkilegt að sjá þessar mestu og umdeildustu framkvæmdir í sögu Íslands. Í sumar fór hann með okkur til Danmerkur til að vera við- staddur skírn í fjölskyldunni, hann var langafabróðir barns- ins. Honum þótti ferðin skemmtileg og notaði tækifærið til að heimsækja Boggu systur sína sem hefur búið í Danmörku hátt í sjötíu ár. Hann heimsótti hana annað hvert ár um árabil og þau töluðu saman í síma á sunnudögum árum saman. Drjúgan hluta ævi sinnar glímdi hann við áfengissýki sem var honum fjötur um fót og olli sjálfum honum og aðstandend- um hans miklum ama. En síð- ustu árin lifði hann reglusömu lífi þar sem allt var í nokkuð föstum skorðum. Mikilvægur liður í því var að fara í hádeg- ismat á Vitatorgi og ræða málin við borðfélaga. Þomma var kappsmál að mæta í síðdegiskaffi á hverjum föstudegi hjá Halldóru mágkonu sinni. Þar hitti hann allt sitt nánasta fólk og tók þátt í fjör- legum vikuloksumræðum. Hans verður saknað við það borð. Börnum okkar og barnabörn- um sýndi hann ætíð mikla rækt- arsemi og hafði áhuga á öllu sem snerti unga fólkið í fjölskyld- unni. Hann var í afmælum og fjölskylduboðum, frændinn sem hafði ekki hátt en fræddi þau um margt. Guð blessi minningu Þormóðs Haraldssonar. Sigríður Pétursdóttir, Hreinn S. Hákonarson. Þormóður Haraldsson ✝ ÞorgerðurGuðmunds- dóttir (Gerða) fæddist 13. desem- ber 1926 á Vestur- Hamri við Hamars- braut í Hafnarfirði. Hún lést 5. apríl 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur Jón Þorvaldsson, f. 7.12. 1900, d. 11.1. 1944, og Friðrikka Bjarna- dóttir, f. 21.1. 1905, d. 1.11. 2001. Systkini Þorgerðar eru: Sól- borg, f. 9.8. 1925, d. 16.5. 2012, Bjarnfríður, f. 19.2. 1928, d. 11.7. 1999, Lúter, f. 22.3. 1929, d. 12.1. 1941, Guðmundur Kr., f. 21.2. 1931, d. 25.7. 2003, Ingi- ur, kvæntur Hörpu Einarsdótt- ur, synir þeirra eru Einar Birnir og Björn Breki. 1.2) Arnór, sam- býliskona hans er Irmý Ósk Ró- bertsdóttir, dóttir þeirra er Steinunn Mía. 1.3) Fannar og 1.4) Þorfinnur Máni. 2) Hafdís Hafsteinsdóttir Miller, f. 1.10. 1978, gift Justin Shawn Miller, f. 13.7. 1979, dætur þeirra Isabella Freyja og Annabelle Birna. 3) Guðrún Halla Hafsteinsdóttir, f. 25.9. 1980, gift Theodóri Frið- bertssyni, f. 12.9. 1981, synir þeirra Leon Freyr, Hafsteinn Þór og nýfæddur óskírður drengur. Ólöf Dóra er gift Aðalbirni Ara Sigurfinnssyni, f. 30.12. 1957, og eiga þau tvö börn: 1) Elfa Björg Aradóttir, f. 27.2. 1981, gift Herði Má Jónssyni, f. 23.7. 1981, börn þeirra eru Aldís Helga, Hjördís Svava og Nökkvi Hrafn. 2) Ellert Þór Arason, f. 1.4. 1982, kvæntur Hrafnhildi Láru Ragnarsdóttur, f. 4.5. 1981, börn þeirra Aron Hugi, Viktor Muni og Embla Guðrún. Gerða ólst upp á Selvogsgötunni í Suð- urbæ Hafnarfjarðar. Hún fór ung að aldri að vinna hjá Svein- birni Sveinssyni skreðara, ásamt systur sinni Fríðu, og lærðu þær fatasaum hjá honum. Seinna fór hún að vinna í versl- uninni Framtíðinni og eftir að hún giftist vann hún hjá Kaup- félagi Hafnfirðinga sem versl- unarstjóri yfir vefnaðarvöru- deild. Samhliða vinnu var hún í Bréfaskóla SÍS, nam þar ís- lensku og verslunarreikning. Jafnframt sótti hún námskeið í Samvinnuskólanum og lærði út- stillingar og framsetningu vöru. Gerða vann í 35 ár hjá Kaup- félaginu og margir Hafnfirð- ingar þekkja hana sem Gerðu í Kaupfélaginu. Gerða var félagi í Slysavarnafélaginu Hraunprýði og Kvenfélaginu Hringnum. Útför Þorgerðar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 13. apríl 2018, og hefst athöfnin kl. 11. björg, f. 14.1. 1934, og Lovísa, f. 16.11. 1939. Þorgerður giftist 8. september 1951 Þórhalli Halldórs- syni, f. 25.6. 1922, d. 21.3. 1998, verk- stjóra hjá Eim- skipafélagi Íslands. Dætur þeirra eru Guðmunda Birna, f. 1.6. 1952, og Ólöf Dóra, f. 7.8. 1956. Guðmunda Birna er gift Haf- steini Frímanni Aðalsteinssyni, f. 14.11. 1949, og eiga þau þrjár dætur. 1) Þorgerður Hafsteins- dóttir, f. 18.5. 1970, gift Birni Þorfinnssyni, f. 28.9. 1967, og eiga þau fjóra syni: 1.1) Þórhall- Elsku amma Gerða, takk fyrir að vera alltaf svona góð. Við sökn- um þín. Heimsins þegar hjaðnar rós og hjartað klökknar. Jesús gefðu mér eilíft ljós sem aldrei slökknar. (Höf. ók.) Þín ömmubörn, Þórhallur, Arnór, Fannar, Þorfinnur Máni, Leon Freyr, Hafsteinn Þór, Einar Birnir, Björn Breki og Steinunn Mía. Í dag kveðjum við elsku fallegu ömmu okkar. Amma sem alltaf var svo glöð og góð, glæsileg og vel til höfð á háu hælunum sínum. Amma sem öll börn elskuðu. Amma sem kenndi okkur svo margt og okkur þykir endalaust vænt um. Amma sem alltaf stóð með okkur, hjálpaði og leiðbeindi. Við erum svo óendanlega þakklátar fyrir allar yndislegu stundirnar sem við áttum með þér. Við eigum alltaf eftir að sakna þín mikið en getum yljað okkur við óteljandi fallegar minn- ingar. Þú varst okkur amma svo undur góð og eftirlést okkur dýran sjóð, með bænum og blessun þinni. Í barnsins hjarta var sæði sáð, er síðan blómgast af Drottins náð, sá ávöxtur geymist inni. Við allt viljum þakka amma mín, indælu og blíðu faðmlög þín, þú vafðir oss vina armi. Hjá vanga þínum var frið að fá þá féllu tárin af votri brá, við brostum hjá þínum barmi. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Guð geymi þig, elsku amma okkar. Þínar Þorgerður, Hafdís og Halla. Þorgerður Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.