Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 VINNINGASKRÁ 50. útdráttur 12. apríl 2018 122 9023 18216 29822 40594 50494 62507 72070 453 9115 18288 29862 40691 50509 62581 72225 1182 9391 19215 30913 40893 52011 62649 72737 1356 9854 19306 31208 41107 52376 63203 72743 1493 10613 19388 31428 41566 52433 63251 72757 1615 10906 19405 31479 41724 52748 63424 73006 2073 11072 19606 31753 41853 52808 63824 73350 2142 11131 19617 31808 41878 53448 64013 73924 2209 11183 19647 31829 43537 53788 64097 74671 3294 12178 19732 31974 43635 54387 64648 74673 3373 12352 19934 32081 44123 54701 64889 74738 3464 12923 20572 33374 44212 55566 64925 74938 3569 13289 20583 33527 44844 55582 65168 74992 4091 13661 21462 33533 44964 56278 65682 75147 4241 13733 21519 33913 45008 56291 65700 75149 4618 14046 22612 33977 45326 56405 65860 75157 4741 14628 22714 34259 45351 56415 66510 75338 5302 14851 22741 34719 45624 56546 67040 75647 5501 15071 22770 35289 45731 57309 67247 76175 5517 15312 23173 35525 46057 57346 67622 76567 5797 15368 23196 35738 46167 57900 67922 77023 5815 15403 23893 36133 46195 57922 68047 77337 5900 15708 24266 36831 46630 58125 68206 77389 5937 15908 24894 37181 46743 58393 68440 77441 6051 16346 25036 37589 46927 58490 68450 78217 6195 16356 25755 37646 47293 58586 68685 78684 6407 16504 25805 37709 47434 58780 69064 79055 6449 16617 25943 38072 47561 59321 69701 79526 6793 16626 25983 38132 47646 59800 69925 79846 7079 16905 26156 38310 48034 60332 69946 79873 7138 16943 26404 38342 48956 60426 70047 79946 7386 17264 27494 39497 49313 60849 70293 7523 17591 28095 39531 49475 61109 70585 7658 17641 28246 39576 49511 61789 70849 8397 17696 28938 39596 49738 61920 71006 8409 17799 29389 40144 49884 62040 71158 8688 18136 29566 40512 50488 62335 71567 972 11470 19543 30030 37650 49820 59281 74188 1052 11621 19779 30725 37952 51242 59660 75050 1510 12101 20004 31136 39070 52073 60859 75822 3142 13978 20652 31245 40273 52875 63632 76903 3506 14461 20708 31406 40430 52904 64302 76986 3885 15313 21208 31679 40483 53660 64652 78200 4231 15811 21628 32493 40716 55275 65813 78316 6430 17911 21911 32573 41593 55546 65870 78782 6626 18371 25369 32806 42122 56043 66395 79214 7090 19028 25831 33151 43890 56616 67065 8586 19199 26619 33308 45040 56868 68430 9818 19211 27098 33388 46887 58749 71683 11203 19432 29446 34682 48858 59066 73635 Næstu útdrættir fara fram 18. & 26. apríl 2018 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 20287 34024 46515 68006 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 2259 13720 22257 43375 53671 66847 2695 15815 25411 48316 58590 67979 2892 16825 27387 48681 65419 68202 3673 21314 30270 52477 66840 77552 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 3 5 3 1 1 Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Því miður er talsvert um að kostn- aður einstaklinga við að leita sér hjálpar sé of hár. Þá skiptir sköpum hvort viðkomandi á bakland sem get- ur komið til hjálp- ar eða ekki,“ segir Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar. Morgunblaðið leitaði viðbragða samtakanna við viðtali í blaðinu í gær þar sem móð- ir lýsti þrauta- göngu dóttur sinnar í geðheilbrigðis- kerfinu. Hún hefur sjálf þurft að bera mikinn kostnað vegna veikinda dóttur sinnar. Fram kom að kostnaður við þjónustu sálfræðings, læknishjálp og lyf hafi á síðasta ári slagað hátt upp í eina milljón króna. Móðirin, sem er geðhjúkrunarfræðingur að mennt og hefur starfað innan kerfisins, segir að ef hún tæki saman kostnað við alla þá heilbrigðisþjónustu við dótturina sem hún hefur greitt úr eigin vasa á undanförnum 11 árum, og það vinnu- tap sem hún hefur orðið fyrir, myndi upphæðin líklega hlaupa á tugum milljóna. Anna segir að þjónusta geðlækna sé niðurgreidd en kostnaðarhluti fólks með geðraskanir hafi hækkað um 30% að meðaltali með nýlegum breytingum á lögum um sjúkratrygg- ingar. Sálfræðiþjónusta sé aftur á móti ekki niðurgreidd, en hver tími hjá sálfræðingi kostar að meðaltali á bilinu 12 til 15 þúsund krónur. Það er fljótt að verða há upphæð ef viðtölin eru mörg og á löngu tímabili. „Þegar fólk sem er kannski aðeins með 250 þúsund krónur í örorku- bætur fyrir skatt þarf að leita oft til sálfræðings duga bæturnar einfald- lega ekki fyrir þessari þjónustu,“ seg- ir Anna. „Nú eru að vísu komnir sál- fræðingar á heilsugæslustöðvarnar á höfuðborgarsvæðinu en þeir sinna fyrst og fremst börnum. Svo þyrfti að hafa svipað kerfi með sálfræðingana og er gagnvart þjónustu sjúkra- þjálfara, en þjónusta þeirra er niður- greidd komi menn með tilvísun frá lækni.“ Samkvæmt gildandi stefnu og að- gerðaráætlun í geðheilbrigðismálum átti aðgengi fólks að sálfræðingum á heilsugæslustöðum að vera orðið 50% í lok árs 2017. „En nú þegar komið er fram á vor 2018 er aðeins einn sál- fræðingur fyrir fullorðna á höfuð- borgarsvæðinu,“ segir Anna. Hún segir að aðgengið að sálfræð- ingum eigi að vera orðið 90% í árslok 2019. „Með tilvísun til þess skorum við á stjórnvöld að spýta í lófana og sjá til þess að þetta verði að veru- leika,“ segir hún. Geðhjálp hafi ný- lega kannað framkvæmd geðheil- brigðisstefnunnar. „Við sjáum ekki betur en að aðeins sé búið að ýta úr vör um helmingi þeirra verkefna sem eiga að vera komin af stað.“ Anna Gunnhildur segir að eins og dæmið í Morgunblaðsgreininni sýni geti ráðið úrslitum fyrir sjúkling að hafa sterkt bakland varðandi aðgang að þjónustu. „Jafnvel þótt fyrir hendi séu reglur og ferlar, mat og viðmið og annað slíkt, þá skiptir máli að ýtt sé á viðeigandi aðila til að sjúklingurinn fái þjónustuna. Baklandið, hvort sem það eru ættingjar eða vinir, getur ver- ið sterkur þrýstihópur fyrir viðkom- andi og oft haft breiða sýn á hvað er í boði. Stuðningurinn getur ráðið miklu um bata sem menn fá og líka tækifæri viðkomandi í lífinu, svo sem varðandi virkni og búsetu.“ „Það er staðreynd að fólk sem ekki hefur sterkt bakland stendur hallari fæti en aðrir þegar það glímir við geð- heilbrigðiskerfið,“ segir Anna. Hún bendir jafnframt á að sterkt bakland geti þó líka hjálpað þeim sem eru án þess með því að vekja athygli á því hvar þjónustu vanti og með því að þrýsta á kerfið að gera úrbætur sem allir muni njóta þó vissulega eigi að- gengi allra að vera jafnt. Þegar spurt er hvort fólk sem á erf- itt með að borga fyrir sálfræðiþjón- ustu geti látið niðurgreidda geðlækn- isþjónustu nægja segir Anna að vandinn sé að mikill skortur sé á geðlæknum en nóg framboð af sál- fræðingum. Sums staðar, eins og til dæmis á Vestfjörðum, er enginn geð- læknir starfandi. Meðferðaúrræðin geta líka verið ólík og mismunandi hvað hentar. „Við erum sífellt að þrýsta á stjórn- völd í þessum efnum,“ segir Anna. „En því miður virðist ekki nægjanlegt fé hafa verið eyrnamerkt geðheil- brigðisáætluninni og annarri geðheil- brigðisþjónustu. Hins vegar hefur það sannað sig í svipuðum samfélög- um og okkar erlendis að fjármagn í þennan málaflokk hefur ekki aðeins skipt sköpum fyrir viðkomandi ein- staklinga, heldur er það samfélags- lega arðbært að veita sálfræðiþjón- ustu gegn lágri eða engri greiðslu. Það kemur m.a. í veg fyrir að vanda- mál og veikindi vindi upp á sig og skil- ar sér því fljótt til samfélagsins.“ Sálfræðiþjónustu ætti að niðurgreiða  Samfélagslega arðbært að auka fé til geðheilbrigðismála Morgunblaðið/Sverrir Geðheilsa Þunglyndi, kvíði og aðrir sálrænir kvillar leggjast þungt á marga einstaklinga. Fé til málaflokksins er samfélagslega arðbært. Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Loftrýmisgæsla Atlantshafs- bandalagsins við Ísland er að hefj- ast að nýju með komu flugsveitar danska flughersins, segir í tilkynn- ingu frá Landhelgisgæslunni. Alls munu um 60 liðsmenn danska flug- hersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi. Flug- sveitin kemur til landsins með fjór- ar F-16 orrustuþotur. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að vara- flugvöllum á Akureyri og Egils- stöðum 12. til 17. apríl. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ráðgert er að verkefninu ljúki um mánaðamótin apríl/maí. Verkefnið er fram- kvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia. Loftrýmisgæsla við Ísland að hefjast SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018 Rúnar Gunnarsson, sem rekur flutningaþjónustu Eim- skips á Austurlandi, leiðir lista Miðflokksins í Fjarða- byggð í sveitarstjórnarkosningunum þann 26. maí næst- komandi. Í tilkynningu frá Miðflokknum segir að Miðflokks- félag Fjarðabyggðar hafi verið formlega stofnað 7. apr- íl og að þar hafi verið samþykkt að flokkurinn myndi bjóða fram í sveitarfélaginu. Í tilkynningunni segir einnig að áherslumál listans verði að vinna að betri sameiningu íbúa í Fjarðabyggð til að styrkja samfélagið í heild og að rýna í fjármál sveitarfélagsins. Listinn í heild verður kynntur síðar. Rúnar Gunnarsson Rúnar í 1. sæti Miðflokksins í Fjarðabyggð Píratar og Viðreisn, ásamt óháð- um, hafa kynnt sameiginlegt framboð til sveitarstjórnar- kosninga 2018 í Árborg undir nafninu Áfram Árborg og verður listabókstafur framboðsins Á. Efstu sæti listans skipa: 1. Sig- urjón Vídalín Guðmundsson, jarð- fræðingur. 2. Álfheiður Eymars- dóttir, stjórnmálafræðingur. 3. Sigurður Á. Hreggviðsson, ör- yrki. 4. Guðfinna Gunnarsdóttir, framhaldsskólakennari. 5. Gunn- ar E. Sigurbjörnsson, tómstunda- og forvarnarfulltrúi. 6. Ingunn Guðmundsdóttir, viðskipta- fræðingur. Píratar og Viðreisn saman í Árborg Framboðslisti X-Á býður fram í Árborg. Einar Jón Pálsson, stöðvarstjóri og forseti bæjar- stjórnar í Garði, leiðir lista Sjálfstæðismanna og óháðra í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis. Á stofnfundi við sameiningu Sjálfstæðisfélaganna í bæjunum var skipuð uppstillingarnefnd sem auglýsti eftir frambjóðendum í báðum sveitarfélögum. Tillaga nefndarinnar að framboðslista var síðan samþykkt samhljóða. Í 2. sæti listans er Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, flugverndarstarfsmaður og bæjarfulltrúi og í 3. sæti er Haraldur Helgason yfirmatreiðslumaður. Einar Jón Pálsson Einar í fyrsta sæti X-D í Garði og Sandgerði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.