Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Mark Zuckerberg, stofnandi Face- book, þótti koma óskaddaður að mestu út úr fundum með nefndum beggja deilda Bandaríkjaþings á þriðjudag og miðvikudag þegar hann svaraði spurningum þing- manna í alls tæpar tíu klukkustund- ir. Zuckerberg sagði að hann teldi það „óhjákvæmilegt“ að settar yrðu nýjar reglur um starfsemi sam- skiptamiðla til að vernda persónu- upplýsingar notenda en lagði áherslu á að fara þyrfti varlega í þeim efnum. Hann varði einnig við- skiptalíkan Facebook og sagði það nauðsynlegt til að afla fyrirtækinu tekna. Zuckerberg baðst afsökunar á því hvernig Facebook hefur tekið á vaxandi óánægju notenda sam- skiptamiðilsins eftir að í ljós kom að hann deildi upplýsingum um 87 milljónir manna með breska fyrir- tækinu Cambridge Analytica, sem starfaði meðal annars fyrir kosn- ingaskrifstofu Donalds Trump fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkj- unum í nóvember 2016. Tókst að róa fjárfesta Fréttaskýrandi The Wall Street Journal sagði að Zuckerberg hefði reynt að sigla milli skers og báru þegar hann svaraði spurningum þingmannanna. Hann hefði annars vegar reynt að sefa áhyggjur þing- manna af öryggi persónuupplýs- inga, sem samskiptamiðlar safna, og hins vegar áhyggjur fjárfesta sem óttast að strangari reglur um vernd persónuupplýsinga skerði möguleika miðlanna til að afla tekna. Svo virðist sem Zuckerberg hafi tekist að róa fjárfestana, að minnsta kosti um sinn, þar sem gengi hlutabréfa í Facebook hækk- aði um alls 5,5% dagana sem hann kom fyrir þingnefndirnar. Áður hafði markaðsvirði fyrirtækisins minnkað um nær 80 milljarða doll- ara, jafnvirði tæpra 8.000 milljarða króna, frá því um miðjan mars þeg- ar mál Cambridge Analytica komst í hámæli. Ólíklegra er að Zuckerberg hafi tekist að róa þingmennina. Margir þeirra létu í ljós gremju í garð Facebook en mikil óeining virðist þó vera á meðal þeirra um hvernig herða eigi reglurnar og eftirlit með samskiptamiðlunum. Fréttaskýrandi The Wall Street Journal, Dan Gallagher, segir að Zuckerberg hafi einnig notið góðs af því að flestum þingmannanna virtist vera meira umhugað um að ganga í augun á kjósendum með því að slá pólitískar keilur en að fá gagnleg svör frá stofnanda Face- book. Þetta hafi gert honum kleift að halda sig að mestu við þau skila- boð sem hann vildi hamra á til að koma í veg fyrir að reglunum yrðu breytt þannig að þær stefndu við- skiptalíkani Facebook í hættu. Erfið „heimaverkefni“ Fréttaskýrandi The Guardian, David Smith, tekur í sama streng og segir að „miðaldra þingmenn öldungadeildarinnar“ hafi oft sýnt vanþekkingu á samskiptamiðlunum þegar þeir lögðu spurningar fyrir Zuckerberg í um fimm klukku- stundir á þriðjudag. Frammistaða þingnefndar fulltrúadeildarinnar hafi verið betri daginn eftir. Spurn- ingar fulltrúadeildarmannanna hafi verið beinskeyttari og Zuckerberg stundum átt í erfiðleikum með að svara þeim. Fréttaskýrandi BBC, Dave Lee, bendir á að Zuckerberg vékst und- an því að svara rúmlega 20 spurn- ingum og lofaði því að hann og aðstoðarmenn hans myndu gera það síðar. Að sögn Lee geta sum þessara „heimaverkefna“ verið mikið áhyggjuefni fyrir Facebook, til að mynda spurning fulltrúa- deildarþingmannsins Bens Lujan, demókrata frá Nýju Mexíkó. „Þú hefur sagt að allir geti stjórnað því hvernig farið er með upplýsingar um þá, en þið safnið samt upplýs- ingum um fólk sem er jafnvel ekki á Facebook og hefur aldrei samþykkt notendaskilmála Facebook,“ sagði þingmaðurinn. Zuckerberg viður- kenndi að fyrirtækið safnar upplýs- ingum um fólk sem er ekki á Face- book og hefur því ekki samþykkt notendaskilmálana. Hann sagði það gert í „öryggisskyni“ og lofaði að svara því síðar hvers konar upplýs- ingum fyrirtækið safnaði um þá sem eru ekki á Facebook. Hann lof- aði einnig að svara spurningu um hvernig fyrirtækið getur fylgst með Facebook-notendum þegar þeir hafa skráð sig út úr samskiptamiðl- inum, að sögn BBC. Fréttaskýrandi fréttasjónvarps- ins CNN, Dylan Byers, segir þess- ar spurningar vera þær mikilvæg- ustu sem lagðar hafi verið fyrir Zuckerberg á fundunum með þing- nefndunum. Zuckerberg sagði að notendur Facebook veldu það sjálfir að gera upplýsingar um sig aðgengilegar á samskiptamiðlinum. Þótt hann teldi það „óhjákvæmilegt“ að setja nýjar reglur um vernd persónuupplýs- inga væri nauðsynlegt að fara var- lega í þeim efnum. Hann benti t.a.m. á að þótt það gæti verið auð- velt fyrir stór tæknifyrirtæki að fara eftir reglunum gætu þær verið íþyngjandi fyrir minni sprotafyrir- tæki. Gætu markað þáttaskil Zuckerberg sagði að það væri „mjög algengur misskilningur“ að Facebook seldi auglýsendum per- sónuupplýsingar. „Við seljum ekki auglýsendum gögn. Við seljum ekki neinum gögn.“ Fréttaskýrandi CNN telur þetta ekki alveg rétt hjá Zuckerberg og segir að viðskiptalíkan Facebook byggist á verslun með persónu- upplýsingar. Fyrirtækið safni slík- um upplýsingum, noti þær til að selja auglýsendum aðgang að ákveðnum markhópum og bjóða þeim þannig auglýsingar sem séu líklegri til að bera árangur en aug- lýsingar í öðrum miðlum. Nokkrir fréttaskýrendur telja þó að fundir Zuckerbergs með þing- nefndunum geti haft mikla þýðingu fyrir þróun samskiptamiðlanna. „Svör Zuckerbergs sýna að fyrir- tækið hefur þroskast á síðustu tíu árum, einkum viðurkenning hans á því að Facebook beri ábyrgð á efni sem deilt er á samskiptamiðlinum,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Dannagal Young, prófessor við Delaware-háskóla. „Viðurkenn- ingin á því að fyrirtækið beri ábyrgð á efninu ætti að breyta því hvernig Facebook stjórnar aðgangi að miðlinum og sannreynir stað- hæfingar, ásamt því hvernig hægt væri að setja reglur um samskipta- miðlana.“ Jennifer Grygiel, prófessor við Syracuse-háskóla, tekur í sama streng og segir að fundirnir með þingnefndunum geti markað þátta- skil. „Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að setja þær reglur sem þarf,“ hef- ur AFP eftir henni. Hún telur að þingfundirnir hafi sýnt að ekki dugi að láta samskiptamiðlana um að setja reglurnar heldur þurfi ríkis- valdið að gera það og hafa eftirlit með því að reglurnar séu virtar. Varði viðskiptalíkan Facebook  Zuckerberg svaraði ekki mikilvæg- um spurningum á fundi með þing- nefndum en lofaði að gera það síðar Lönd með meira en fimmmilljónir notenda Tíu lönd með flesta facebook-notendur Tíu fjölbýl lönd og svæði meðhæsta hlutfall facebook-notenda Indland Bandaríkin Brasilía Indónesía Filippseyjar Mexíkó Víetnam Taíland Tyrkland Bretland Hlutfall þeirra af íbúafjöldanum Fjöldi notenda 8% 240 100 30 85% í milljónum í milljónum 241 240 139 126 69 69 64 57 56 44 í prósentum Byggist á upplýsingum á vefsíðu InternetWorld Stats Júní 2017 Facebook-notendur í heiminum Heimild: IWS *Sameinuðu arabísku furstadæmin SAF* Taíland Taívan Bandaríkin Chile Tyrkland Hong Kong Argentína Víetnam Brasilía 85,1 82,4 76,9 73,4 71,4 69,6 68,9 67,1 66,3 65,9 Reglur ESB fyrirmynd? » Mark Zuckerberg benti á að nýjar reglur Evrópusambands- ins um vernd persónuupplýs- inga ættu að taka gildi 25. maí og sagði að þær gætu að nokkru leyti verið fyrirmynd nýrra reglna í Bandaríkjunum. » Hann staðfesti að Facebook myndi fylgja sumum af reglum ESB í Bandaríkjunum og víðar í heiminum. Ármúla 11 108 Reykjavík Sími 568-1581 ÞÓR FH Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 9:00 - 18:00 Lokað um helgar Tölvuverslun - Reykjavík: Vefsíða og netverslun: www.thor.is Hraðari & hagkvæmari kynslóð af WorkForce ÝR EPSONWORKFORCE Helstu kostir: • Hraðvirk hágæða prentun Allt að 24 síður á mínútu í svörtu og í lit. • Prentar, skannar, ljósritar og faxar. 4 tæki í 1 með og prentar beggja megin. • Miklir tengimöguleikar Þráðlaust net, WiFi Direct, NFC, USB og venjul. nettenging. • Stór blekhylki Hægt að prenta út allt að 5000 blaðsíður með stóru hylki • Prentun og skönnun beint úr síma Ókeypis app til að prenta og skanna beint úr síma. EPSONWORKFORCE PROWF-C5710DW A4 10.9cm 24 ppm ISO 1200 Ný kynslóð af þráðlausum EPSONWorkForce fjölnotatækjum (Prentari/skanni/ljósritun), ný hönnun, hraðari prentun, hagkvæmara blek og umhverfisvænni umbúðir. A4 4.800 x 1.200 dpi Upplausn. PrecisionCore prenthaus og 4 stök blekhylki (DURABrite Ultra) Hægt að tengja með USB, Ethernet/WiFi eða með iPhone/android Appi. Prentar og skannar báðum megin (Duplex) - Þægilegur snertiskjár Alþjóðlega efna- vopnastofnunin OPCW hefur staðfest niður- stöðu rann- sóknar breskra yfirvalda á taugaeitrinu sem beitt var gegn Sergej Skrípal, fyrrverandi rúss- neskum njósnara, og dóttur hans í Bretlandi 4. mars. Boris Johnson, utanríkisráðherra Bretlands, sagði niðurstöðu OPCW sýna að enginn vafi léki á því að rússnesku tauga- eitri hefði verið beitt gegn Skrípal. Rússar væru þeir einu sem hefðu getað beitt eitrinu og haft ástæðu til að reyna að ráða Skrípal af dög- um. Rússar sögðu að þeir myndu ekki samþykkja niðurstöðu OPCW nema rússneskir sérfræðingar fengju að rannsaka sýni sem alþjóðastofnunin rannsakaði. SKRÍPAL-MÁLIÐ Niðurstaða breskra yfirvalda staðfest Boris Johnson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.