Morgunblaðið - 13.04.2018, Qupperneq 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018
✝ Erla SigríðurHallgrímsdóttir
fæddist í Reykjavík
8. apríl 1975. Hún
lést á Landspítal-
anum við Hring-
braut 2. apríl 2018.
Foreldrar henn-
ar eru Hallgrímur
Hallgrímsson bygg-
ingarverkfræð-
ingur, f. 12. októ-
ber 1947, og
Guðríður Júlíana Guðmunds-
dóttir hjúkrunarfræðingur, f.
8. júlí 1947. Systkini Erlu Sig-
ríðar eru: 1) Elín, f. 19. mars
1972, maki Steinn Guðmunds-
son, börn: Þórdís Elín, Hildur
og Vilborg Júlíana. 2) Berg-
vík. Erla Sigríður útskrifaðist
frá MR 1995, lærði félagsfræði
við Háskóla Íslands og tók
MA-gráðu í félagsráðgjöf frá
Háskólanum í Sydney í Ástr-
alíu árið 2003. Erla vann í Ár-
seli með skóla og vinnu í rúm
10 ár frá 1998 og sem félags-
ráðgjafi með unglingum hjá
Félagsþjónustu Reykjavíkur í
Mjódd frá 2001, en frá 2011
starfaði hún hjá Barnavernd
Reykjavíkurborgar. Hún vann
einnig sem ráðgjafi hjá Ís-
lenskri ættleiðingu frá árinu
2011 til ársins 2017.
Erla Sigríður stofnaði sitt
fyrsta heimili í Barmahlíð og
bjó þar þangað til hún hóf
sambúð með Jóni Bjarna
Magnússyni. Þau slitu sambúð
2017. Erla hafði nýlega keypt
stærri íbúð í Safamýri.
Útför Erlu Sigríðar fer
fram frá Grafarvogskirkju í
dag, 13. apríl 2018, klukkan
13.
lind, f. 1. febrúar
1979, maki Helgi
Skúli Friðriks-
son, börn: Birta
Júlía, Daníel
Freyr og Hilmar
Alexander. 3)
Guðmundur Sig-
urvin, f. 14. nóv-
ember 1984.
Dóttir Erlu
Sigríðar er Helga
Júlíana, f. 10.
september 2013, barnsfaðir
Jón Bjarni Magnússon.
Erla Sigríður ólst fyrstu tvö
árin upp í Hafnarfirði og síð-
an fluttist fjölskyldan til Reyð-
arfjarðar en sjö ára gömul
flutti hún í Selásinn í Reykja-
Það er þungbærara en orð fá
lýst að þurfa að kveðja hana
Erlu Sigríði okkar.
Öll viljum við óraskaða til-
veru þar sem allir eru á sínum
stað, en því miður er það ekki
alltaf raunin. Við sjáum ekki né
skiljum alltaf tilgang þessa
heims og finnst óréttlátt að ung
kona sé hrifin burt frá óloknu
dagsverki. Ef til vill er einhver
æðri tilgangur sem okkur er
hulinn, en Erla Sigríður er
horfin. Hún tæmdi þann bikar
sem henni var réttur.
Allan þann tíma sem Erla
Sigríður barðist við veikindin
sín sýndi hún mikið hugrekki
og stillingu. En það hryggði
hana mjög þegar hún áttaði sig
á því að hún mundi ekki sjá
Helgu Júlíönu sína vaxa úr
grasi. Eftir erfið veikindi var
hvíldin óumflýjanleg. Eigingirn-
in hellist þó yfir og það er erfitt
að sleppa takinu. Þannig var
það einnig með Erlu, hún átti
erfitt með að sleppa takinu á
lífinu.
Erla hafði brennandi áhuga á
lífinu og öllu sem í kringum
hana var. Hún var góður vinur
enda vinamörg og passaði alltaf
upp á að engum væri gleymt.
Erlu fannst líka gaman að úti-
vist og hreyfingu. Hún æfði
fimleika á yngri árum og seinna
meir var hún mjög dugleg að
hlaupa og æfa crossfit. Erla
Sigríður ferðaðist mikið og eina
heimsálfan sem hún átti eftir að
heimsækja var Suðurskauts-
landið.
Öllu ofar var Erla Sigríður
móðir. Allt fram til síðustu
stundar lýsti andlit Erlu upp
þegar Helga Júlíana var nálæg.
Hjá systkinabörnum var Erla
Sigríður mikils metin, enda
elskaði hún þau öll sem þau
væru hennar. Þau litu upp til
hennar og hún var þeim góð
fyrirmynd.
Við eigum mikið af fallegum
minningum um Erlu Sigríði
sem við munum halda á lofti og
geyma alla tíð. Vonandi munu
þær hjálpa okkur í gegnum
þessa sorgartíð.
Guð styrki Jón Bjarna og
Helgu Júlíönu, litla sólargeisl-
ann í lífi okkar.
Hvíl í friði, elsku Erla Sigríð-
ur okkar.
Mamma, pabbi og systkini.
Erla kom inn í líf okkar þeg-
ar hún og Jón Bjarni sonur
okkar hófu að stinga saman
nefjum árið 2011. Hún var strax
mjög frjálsleg í fasi, sjálfsörugg
og ófeimin og passaði inn í stór-
fjölskyldu Jóns Bjarna eins og
hún hefði alltaf verið ein af okk-
ur. Hún hafði víða ferðast og
heillaði okkur strax með fjör-
legri frásagnargleði sinni af
ferðum um Rómönsku Ameríku
og Suðaustur-Asíu. Hún var
víðsýn og greindi skemmtilega
frá náttúru og lifnaðarháttum
framandi þjóða og smitaði okk-
ur af ferðafýsn. Í framhaldi af
frásögn hennar um Víetnam
gerðum við alvöru úr ferð þang-
að árið 2013. Erla kom jafnan
færandi hendi úr ferðum sínum,
færði okkur t.d. Havanavindla
og kaffibaunir frá ferð sinni til
Kúbu en ekki fannst henni allt
fagurt sem hún sá þar.
Það fylgdi Erlu lífskraftur og
þau Jón Bjarni sameinuðust í
útivistaráhuga; gönguferðum,
hlaupaíþróttinni og heilnæmum
lífsstíl. Jafnan þegar þau komu
úr gönguferðum og litu inn í
kaffi eða mat fylgdi þeim fersk-
ur andblær úr fjallaskörðum
eða lyngmóa. Það var eins og
samvera úti í náttúrunni færði
þeim einnig aukna andagift.
Erla var jafnréttissinni og
tók jafnan málstað þeirra sem
minna máttu sín. Hún starfaði
lengst af sem félagsráðgjafi og í
barnavernd þar sem hún naut
þess að leiðbeina fólki og að-
stoða í lífsins ólgusjó, en gat
jafnframt verið ákveðin þegar
þurfti að setja skjólstæðingum
skýr mörk. Hún kunni sitt fag
og var þarna á réttri hillu.
Það var yndislegt að fylgjast
með þegar Helga Júlíana fædd-
ist og hve natin Erla var, og
þau bæði, við umönnun og upp-
eldi; enda hefur sú umhyggja
borið ríkulegan árangur. Móð-
urástin var hrein og tær, og allt
varð að vera vel úr garði gert
fyrir barnið. Erla útbjó tvær
ljósmyndabækur um fyrstu ár
Helgu Júlíönu, sem eru henni
dýrmæt minning.
Erla var vinmörg og átti
stóra og umvefjandi fjölskyldu.
Hún hafði góða nærveru og átti
auðvelt með að blanda geði við
alla, jafnt háa sem lága; unga
sem aldna. Hún var jafnan
mjög þakklát fyrir öll samskipti
okkar, ekki síst síðustu árin;
hvort heldur það voru myndir
af Helgu Júlíönu í tölvupósti
eða eitthvað annað. Okkar fólk
fylgdist vel með litlu fjölskyld-
unni frá upphafi. Það bar hag
Erlu mjög fyrir brjósti þegar
hún veiktist, sendi stuðnings-
kveðjur og góða strauma, og
hugurinn var hjá henni í ójafnri
baráttu við krabbameinið.
Erlu er sárt saknað. En
minningin lifir um góða tengda-
dóttur í okkar fjölskyldu og við
hjálpumst öll að við að halda vel
utan um snúllukrúsuna þeirra
Jóns Bjarna.
Hugheilar samúðarkveðjur
til allra ástvina.
Helga og Magnús.
Nærri fjögurra áratuga vin-
átta Erlu frá barnæsku, yfir á
unglings- og fullorðinsár og í
móðurhlutverki hefur mótað
okkur allar, vinkonur og
bekkjarsystur Erlu úr Árbæn-
um. Þau ráð og sú leiðsögn sem
við sóttum til hennar reyndust
okkur ávallt vel því hún bjó yfir
ígrunduðum skoðunum, mikilli
visku og frá henni stafaði
traust, sönn alúð og umhyggja.
Víðsýni fékk Erla á ferða-
lögum sínum út um allan heim
þar sem hún kynntist ólíkum
menningarheimum og styrkti
vinabönd. Hún átti jafnan eina
ferð skipulagða fram í tímann,
ef ekki tvær, og sú eina sem
kom með nægan pening heim
úr margra vikna eða mánaða
ferðalögum til að kaupa bíl eða
sófasett.
Heilbrigt líferni og skipulagt
líf einkenndi Erlu sem alltaf
átti nægan tíma fyrir vini sína.
Hún var mikill þátttakandi og
stuðningsmaður í lífi okkar vin-
kvennanna, samgladdist okkur,
fylgdist með og studdi í einu og
öllu sama hvað gekk á í hennar
lífi.
Fyrir um tíu árum ákváðum
við að skrifa niður það sem okk-
ur langaði til að gera saman og
upplifa, skipta því niður á mán-
uði og skiptast á að skipuleggja
og koma hópnum saman, undir
dyggri stjórn Erlu. Þetta
endurtókum við á 2-3 ára fresti
og áttum yndislegar samveru-
stundir auk margra daga til-
hlökkunar fyrir hvert skipti.
Bogfimi, skvísubíó, sushi-gerð,
handsnyrting, fondant-kökur,
brjóstsykursgerð, gönguferðir,
New York-ferð, keila, fjallgöng-
ur, morðgátumatarboð í fullum
skrúða, búðarferðir, ljósmynda-
samkeppni, skautar, fiskisúpa
með mæðrum okkar, golf og
þar fram eftir götunum gerði
okkur aftur að stelpunum sem
kynntust í grunnskóla og léku
sér saman.
Erla barðist af fullri hörku
hvert einasta augnablik í veik-
indunum með gleði og jákvæðni
að leiðarljósi. Hún kunni að
koma líðan sinni í orð og sækja
styrk til fjölskyldu og allra
vinahópanna sem hún tilheyrði.
Við þökkum Óskari lækni fyrir
hvatninguna og stuðninginn við
Erlu sem hún mat mikils því
hann varð nokkurs konar með-
limur í okkar hópi og fundir
okkar vinkvennanna réðust oft
mikið til af því hvað Óskar var
með á prjónunum fyrir Erlu.
Erla lifði fyrir Helgu Júlíönu
í fyllsta skilningi og var henni
yndisleg móðir og fyrirmynd.
Hún bjó yfir takmarkalausri
þolinmæði og áhuga á uppeld-
inu og var okkur vinkonunum
fullkomið fordæmi. Birtuna og
lífsgleðina sem fylgdi Erlu alla
tíð sjáum við í Helgu Júlíönu
sem mun búa að þeirri um-
hyggju og elsku sem Erla um-
vafði hana með.
Erla gerði heiminn betri og
munum við ávallt búa að vin-
skapnum sem mótaði okkur fyr-
ir lífstíð. Við kveðjum Perluna
okkar með mikilli sorg í hjarta
og sendum Helgu Júlíönu og
fjölskyldu Erlu okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Adda Mjöll, Björg Rós,
Ingunn og Pálína.
Ég var svo heppinn að vera
bæði frændi og vinur Erlu
perlu og höfum við verið til
staðar fyrir hvort annað í gegn-
um súrt og sætt. Skemmt okkur
saman og tókum reglulega
spjall um lífið og tilveruna, nú
eða um allt og ekkert. Við Erla
vorum systkinabörn og ólumst
upp við það að ómissandi partur
af jólagleðinni var þegar spiluð
var framsóknarvist með ömmu
og öllum skyldmennunum.
Áfram hélt þessi siður eftir
daga ömmu þar til árið 2010 að
systkinin ákváðu að láta staðar
numið, amma hefði orðið 100
ára og systkinin öll að eldast.
Við systkinabörnin settumst þá
niður að tilstuðlan Erlu og
sögðum; þau eru hætt en við er-
um ekki hætt. Við Erla höfum
alltaf verið miklar félagsverur
og til að tryggja að ættarhitt-
ingurinn héldist áfram settum
við okkur í tveggja manna
nefnd yfir þessu verkefni sem
skipist á að vera framsóknar-
vist og útilega annað hvert ár.
Elín, systir Erlu, kom svo inn í
nefndina þegar Erla veiktist í
fyrra skiptið en Erla var áfram
virk eftir því sem þróttur leyfði.
Erla var einstaklega dugleg að
rækta vini sína, var vinamörg
og hún var sannur vinur.
Lífið er stundum ósanngjarnt
og stundum er erfitt fyrir okk-
ur fullorðna fólkið að skilja til-
gang lífsins og hvað þá börn.
Þannig var ég að undirbúa
Högnu, 7 ára dóttur mína, und-
ir það sem verða vildi. Kveikt-
um við á kertum fyrir Erlu þeg-
ar ljóst var hvernig baráttan
við krabbameinið myndi enda.
Sagði ég Högnu að við værum
að kveikja á kertum fyrir Erlu
frænku. Er Erla frænka dáin?
spurði Högna og ég sagði henni
að hún færi að deyja á næstu
dögum, hún væri mjög veik.
„En hún á Helgu, sem er svo
ung. Það er svo erfitt að missa
mömmu sína þegar maður er
svona ungur,“ sagði Högna.
Erla dó fjórum dögum síðar.
Já, það er erfitt að missa
mömmu, dóttur, systur,
frænku, vinkonu og vin. Stund-
um finnst manni lífið ósann-
gjarnt en lífið heldur áfram og
ljósið er allar þær góðu minn-
ingar sem Erla skyldi eftir sem
og Helga Júlíana sem ég veit að
verður umvafin ást.
Ég votta fjölskyldunni samúð
mína.
Lúðvík Kristinsson.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu
þá aftur huga þinn, og þú munt sjá,
að þú grætur vegna þess sem var
gleði þín.“
(Kahlil Gibran)
Þessi orð úr Spámanninum
koma okkur í huga á þessari
sorgarstundu þegar við minn-
umst gleðigjafans, nöfnu okkar
Erlu Sigríðar sem í dag er til
moldar borin eftir hetjulega
baráttu við illvígan sjúkdóm.
Það er sárt fyrir okkur, ætt-
ingja og vini, að sjá á eftir þess-
ari glæsilegu og vel menntuðu
konu sem á besta aldri var frá
okkur tekin á svo grimmilegan
hátt.
En mestur er þó missirinn
hjá fimm ára dótturinni sem sjá
má á eftir elskaðri móður svo
skyndilega.
Við minnumst nöfnu okkar
með söknuði og þakklæti í huga
fyrir allar gleðistundirnar sem
hún gaf okkur.
Við sendum Helgu Júlíönu og
Jóni Bjarna, foreldrum, syst-
kinum og fjölskyldum þeirra,
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og óskum þeim allra
heilla í framtíðinni.
Erla Eiríksdóttir og
Sigurður Hallgrímsson.
Vinátta okkar hófst fyrir
tæpum tuttugu árum. Við vor-
um allar starfsmenn Félagsmið-
stöðvarinnar Ársels þar sem
starfsandinn einkenndist af
gleði, vináttu og virðingu og var
Erla þar fremst í flokki.
Þetta var frábær hópur af
fólki, sem var saman kominn til
að vinna með unglingum, hafa
áhrif á þá og hugsanlega ná að
sá fræjum til að gera þá enn
betri. Þetta var mjög skemmti-
legur tími og alveg ótrúlega öfl-
ugur starfsmannahópur, sterk
liðsheild. Við vorum alltaf að
skipuleggja eitthvað skemmti-
legt, bæði með unglingunum og
svo líka við starfsfólkið eins og
utanlands- og sumarbústaða-
ferðir og í einni slíkri ferð urðu
einmitt til einkunnarorð okkar
sem oft voru notuð: Við erum
úr Árseli, við erum í klíkunni og
við erum laaaangflottastar!
Með árunum fór að tínast úr
starfsmannahópnum og var þá
ákveðið að við myndum halda í
vináttuna og rækta hana með
því að hittast reglulega. Þetta
hefur verið yndislegur tími og
við höfum getað fylgst með og
tekið þátt í lífi hver annarrar í
gegnum súrt og sætt. Við höf-
um stutt hver aðra, leitað ráða
og hvatt áfram, tekið þátt í
gleði og sorg. Nú er stórt skarð
komið í fallega vinkvennahóp-
inn okkar, perlan okkar er farin
frá okkur.
Þegar Erla greindist þá hafði
það mikil áhrif á okkur allar.
Við stóðum þétt við bakið á
Erlu, hittumst allar reglulega
og pössuðum upp á hana. Erlu
fannst best að fá að vera hún
sjálf þegar hún var með okkur,
ekkert vera að tala um veik-
indin heldur bara hlæja, slúðra
og hafa gaman. Alveg eins og
áður. Hún var ótrúlega sterk og
jákvæð fram á síðasta dag, það
var til eftirbreytni. Hún trúði á
betri tíð og kveikti vonarneista
í brjósti okkar allra. Hún fór í
gegnum þetta erfiða ferðlag al-
veg eins og hún var, töffari með
hjarta úr gulli.
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér
skrítið stundum hvernig lífið er,
eftir sitja margar minningar
Þakklæti og trú.
Þegar eitthvað virðist þjaka mig
þarf ég bara að sitja og hugsa um
þig,
þá er eins og losni úr læðingi
lausnir öllu við.
(Ingibjörg Gunnarsdóttir)
Elsku besta vinkona okkar,
Erla perla. Mikið sem við eig-
um eftir að sakna þín. Við
þökkum fyrir vináttuna, kær-
leikann, gleðina, slúðrið og hlát-
urinn. Við hugsum fallega til
þín og komum til með að halda
þínum heiðri á lofti. Minning
þín lifir í hjarta okkar alla tíð.
Hugur okkar og kærleikur er
hjá elsku mömmugullinu þínu
Helgu Júlíönu, systkinum, for-
eldrum og öðrum ástvinum.
Hvíldu í friði, elsku perlan
okkar.
Þínar vinkonur
Anna, Ágústa, Ása,
Kristrún, Kristín,
Sigrún og Sigurbjörg
Elsku Erla, nú ertu orðin
engill allt of snemma, hversu
ósanngjarnt getur lífið verið?
Mikið hefur verið á þig lagt
undanfarið og ég vona að þér
líði betur en missir okkar sem
eftir lifum er mikill.
Ég datt heldur betur í lukku-
pottinn fyrir tuttugu árum þeg-
ar við Erla gengum inn á sama
vinnustaðinn að hefja okkar
fyrsta starfsdag á nýjum vinnu-
stað. Strax þennan dag tókst
með okkur frábær vinskapur
enda manneskja eins og Erla
vandfundin. Erla var ekki bara
eldri, klárari og mun skynsam-
ari en ég heldur var hún ein-
stök og við skildum hvora aðra
svo vel, þurftum stundum ekk-
ert að tala því við skildum hvor
aðra. Erla byrjaði fljótt að
leggja mér lífsreglurnar og
beindi mér á beinu braut lífsins,
sagði að ég þyrfti ekkert að
sofa á morgnana meðan hún
væri í Háskólanum, heldur ætti
ég að drífa mig í háskóla og
nýta tímann vel. Við Erla gerð-
um margt saman utan vinnu-
tíma og það er gaman að skoða
myndaalbúmin frá þessum ár-
um þar sem Erla er á annarri
hverri mynd og gleðin allsráð-
andi. Við brölluðum ýmislegt
saman og fórum í mjög mörg
ferðalög, þau sem standa helst
upp úr eru skemmtilegar úti-
legur í Þórsmörk, á Búðum og
fleiri fallegum stöðum innan-
lands, sumarbústaðarferðir svo
ekki sé talað um utanlandsferð-
irnar. Þó að síðari ár hafi sam-
vera okkar ekki verið eins mikil
og árin þar á undan var vin-
áttan einstök, alltaf þegar við
hittumst eða töluðum saman í
síma var eins og við hefðum
hist í gær. Erla reyndi nokkr-
um sinnum að fá mig aftur sem
samstarfsmann sinn og hringdi
ávallt í mig þegar lögfræðistörf
losnuðu í vinnunni hjá henni.
Erla var sannur vinur og und-
anfarna mánuði minnti hún mig
reglulega á það að frumburð-
urinn minn, Tandri Snær, væri
svolítið mikið henni að þakka og
hún liti svo á að hún ætti alltaf
smá í honum. Fyrir þetta og
vináttu okkar verð ég henni æv-
inlega þakklát og mun ég reyna
að kenna honum allt sem hún
kenndi mér. Minning um Erlu
mun lifa að eilífu í hjarta mínu.
Hvíldu í friði, elsku Erla.
Elsku Helga Júlíana, fjöl-
skylda Erlu og aðrir aðstand-
endur, hugur minn er hjá ykkur
á þessum erfiðu tímum.
Þín vinkona,
Ása Bergsdóttir Sandholt.
Komið er að góðra vina
kveðjustund, allt of fljótt.
Hvern hefði grunað að maður
ætti eftir að sitja hér og skrifa
minningargrein um sína bestu
vinkonu í blóma lífsins. Manni
er það óskiljanlegt hvers vegna
ung kona veikist og deyr frá
ungu barni sínu. Efst er mér í
huga þakklæti fyrir einstaka
vináttu allt frá unglingsárum og
munu dásamlegar minningar
ylja mér um hjartarætur um
ókomna tíð.
Erla kunni að lifa lífinu og
hvernig hún gerði það var til
fyrirmyndar eins og allt sem
hún tók sér fyrir hendur. Dugn-
aður, skynsemi, sjálfsagi, skipu-
lagshæfileikar og góðmennska
eru orð sem lýsa henni vel. Hún
átti ógrynni góðra vina því hún
var stórskemmtileg og traustur
vinur. Ævintýraþráin leiddi
hana til allra heimsálfa utan
Suðurskautslandsins og fannst
henni ekkert tiltökumál að
skella sér í framhaldsnám alla
leið til Sydney.
Prakkarastrikin á unglings-
árunum voru nokkur en ég held
þeim fyrir mig. Þá var stofn-
aður klúbbur nokkurra góðra
vinkvenna sem við köllum Maf-
íuna og hafa reglulega verið
haldnir háleynilegir mafíufundir
þar sem mikið var hlegið. Er nú
stórt skarð höggvið í hópinn.
Ég á Erlu svo margt að
þakka. Í tvo vetur passaði hún
elstu dóttur mína vikulega svo
ég gæti lokið námi í kvöldskóla
sem var ómetanlegt fyrir ein-
stæða unga móður. Erla gant-
aðist stundum með að hún væri
stjúppabbi dóttur minnar og
þær voru miklir vinir. Sumarið
1998 dvaldi Erla í Kaupmanna-
höfn og heimsóttum við mæðg-
ur hana þangað og brölluðum
við þá margt skemmtilegt.
Erla var góður námsmaður
og menntaði sig í félagsráðgjöf.
Með háskólanámi vann Erla í
félagsmiðstöðinni Árseli og
sagðist hún elska unglinga, þeir
væru svo skemmtilegir. Það
sýnir glöggt hve barngóð hún
var enda starfaði hún síðustu
árin hjá Barnavernd.
Ótal góðar minningar skjót-
ast upp í kollinn, svo sem sum-
arbústaðaferðir og útilegur en
eftirminnilegust er heimsókn
sem við fórum saman í til Fríðu
vinkonu okkar og fjölskyldu í
Erla Sigríður
Hallgrímsdóttir