Morgunblaðið - 13.04.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 13.04.2018, Qupperneq 13
hreyfingu og íþróttum eða tónlist og listum ýmiskonar. Vinsamlegt og uppbyggilegt samtal fjölskyldunnar um námið er að hans mati líklegt til að skila árangri. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að börn njóta ekki jafnræðis að þessu leytinu og vega þau rök einna þyngst hjá þeim sem vilja minnka heimanám barnanna. Flóttabörn og innflytj- endur eru hvað verst sett, en á ráð- stefnunni er fjallað um stöðu þeirra innan skólakerfisins frá ýmsum sjón- arhornum. Fjölskyldur af erlendum uppruna „Þótt foreldrar af erlendum upp- runa hafi miklar væntingar og séu all- ir af vilja gerðir, skilja þeir oft ekki hvernig þeir geta stutt börn sín í námi. Sama á reyndar stundum við um aðra foreldra, sem átta sig ekki hlutverki sínu í heimanámi barnanna.“ Guðmundur er þeirrar skoðunar að affarsælast sé að skólinn skoði og hafi samvinnu og samráð við hverja fjölskyldu fyrir sig. „Ingibjörg Auðunsdóttir, fyrr- verandi sérfræðingur hjá MSHA, kemur inn á samskipti og samráð for- eldra og kennara í lykilerindi á ráð- stefnunni. Hún bendir á að milli þeirra séu þegar töluverð samskipti, en minna um samráð. Samskiptin séu oft einhliða því í rauninni hafi kenn- arinn allar forsendur í hendi sér.“ Guðmundur segir að aukið sam- ráð myndi tvímælalaust bæta sam- skiptin verulega og væntanlega stuðla að því að barnið fengi heima- nám sem væri í takti við þarfir þess og áhuga. Og sem samstarfsmenn skólans væru foreldrar tilbúnir til að leggja sitt af mörkum. Nei, hættu nú alveg! „Ég vil horfa á heimanámið með opnum huga og öðruvísi gleraugum, skoða lykilþræðina og hvernig sauma má úr þráðunum stakka eftir mis- munandi vexti barna og fjölskyldna,“ segir Guðmundur. Spurður um yfirskrift fyrirlest- ursins útskýrir hann að hún vísi í ímyndað svar í umræðunni um heimanám sem annað slagið blossi upp, en viðkvæðið hefur stundum verið: Nei, hættu nú alveg – á enn eina ferðina að ræða um heimanám? En það ætlar hann einmitt að gera og finnst full þörf á. Nú sé öldin enda önnur en þegar hann var ungur sveitadrengur og heimakverið var helsta kryddið í tilverunni. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Mikilvægt Í umfjöllun og afstöðu fólks gleymist oft mikilvægi þess að laga heimanám að mismunandi þörfum og áhuga nemenda, eins og þykir orðið sjálfsagt innan veggja skólans, segir Guðmundur Engilbertsson, lektor við HA. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Félagið Afríka 20:20 stendur fyrir dúndur afrísku balli í kvöld, föstudag 13. apríl, í Iðnó. Dansað verður við líf- lega afríska dægurtónlist, en fjörið hefst um leið og húsið er opnað kl. 21 og stendur til tvö eftir miðnætti. Sér- stakur gestur er Cheick Bangoura, sem slær djembe trommur kl. 22.20 og afrískir göturéttir verða á boð- stólum. Markmið félagsins Afríka 20:20 eru m.a. að skapa vettvang fyrir frjóa umræðu um málefni Afríku sunnan Sahara á Íslandi og stuðla að auknum menningarlegum samskiptum milli Íslendinga og þjóða Afríku. Iðnó AFP Dans Í Afríku er mikil dansmenning. Dúndur afrískt dansiball Nýstofnaður Gospelkór Smára- kirkju, Sporhömr- um 3, heldur gospeltónleika kl. 20 í kvöld, föstu- daginn 13. apríl í kirkjunni. Kórinn var stofnaður í febrúar og mun flytja lög úr ýms- um áttum sem hann hefur verið að æfa. Stjórnandi kórsins er Matthías V. Baldursson (Matti sax) sem einnig stjórnar Rokk- kór Íslands og Lögreglukórnum. Með kórnum verður hljómsveit skipuð þeim Hákoni Möller, Rafni Hlíðkvist Björgvinssyni, Þóri Rúnari Geirssyni, Þorbergi Ólafssyni og Matta sax. Gospelkór Smárakirkju Lög úr ýms- um áttum Ljúfir tónar Með hljómsveit og kór. Af fyrirlestrum á vorráðstefn- unni, sem ekki eru nefndir í við- talinu við Guðmund, eru þessir helstir: Mælifellshnjúkar í fjarska - samræður við foreldra, sem Ingi- björg Auðunsdóttir, fyrrverandi sérfræðingur hjá MSHA, flytur. Hún fjallar líka, ásamt Maríu Að- alsteinsdóttur, kennara við Odd- eyrarskóla, um 15 ára reynslu af fjölskylduheimsóknum umsjón- arkennara Oddeyrarskóla í öðrum fyrirlestri, og í þeim þriðja hvern- ig árangursríkt samstarf heimila og skóla þróast. Hermína Gunnþórsdóttir, dós- ent við HA, fjallar um hvort gera þurfi meiri kröfur til nemenda, innflytjendur í námi og viðhorf kennara og foreldra til náms og kennslu. Hanna Ragnarsdóttir, prófessor við HÍ, og Susan Rafik Hama, doktorsnemi við HÍ, flytja erindi um flóttabörn í íslenskum skól- um, Þorlákur Axel Jónsson, að- júnkt við HA, um stöðu innflytj- enda og nokkrir taka til máls um nemendur frá Sýrlandi í íslensk- um skólum. Þá eru ótaldir nokkrir fyrir- lestrar, en allir fjalla þeir með einum eða öðrum hætti um leiðir til farsæls samstarfs heimila og skóla. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni www.msha.is Sterkari saman VORRÁÐSTEFNA UM MENNTAVÍSINDI Morgunblaðið/Hari Leikur að læra heima? Uppi eru skiptar skoðanir um gildi heimanáms. 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Upplýsingarnar sem mögu-legt er að afla sér á verald-arvefnum eru svo gottsem endalausar. Samhliða auknu upplýsingaflæði eykst krafan um að hver einstaklingur taki upp- lýstar ákvarðanir. Þessar ákvarðanir geta snúið að stjórnmálum eða um- hverfismálum eða í raun hverju sem er. Þær upplýsingar sem hver og einn getur aflað sér ættu nefnilega að sjá til þess að við gætum tekið bestu ákvörð- unina hverju sinni. Auðvitað er mikið af fölskum upplýsingum á vefnum en það er líka á ábyrgð hvers og eins að gera greinarmun þar á. Nægar upplýsingar eru til um það hversu stórt vandamál gróðurhúsa- lofttegundir eru í heiminum, og flest vitum við innst inni að best væri t.d. að leggja einkabílnum og byrja þess í stað að taka strætó, hjóla eða ganga. Sjálf á ég bíl og afsaka þann lífsstíl minn hvað helst með því hversu langt ég bý bæði frá Háskólanum og frá vinnustaðn- um, jú og því hversu langt vinnu- staðurinn er frá Háskólanum. Ég veit samt að ég gæti lifað bíllausum lífsstíl en eins og staðan er í dag er ég ekki tilbúin að fórna dýr- mætum tíma mínum í almenningssamgöngur. Það sem ég furða mig hvað helst á er þó sú staðreynd að stærst- ur hluti fólks lokar augunum fyrir slæmum umhverfis- áhrifum landbúnaðar. Vissuð þið t.d. að gróðurhúsaáhrif frá landbúnaði í heiminum eru a.m.k. jafn mikil ef ekki meiri en gróðurhúsa- áhrif samgöngukerfisins í heild sinni. Fyrir utan það þá er hvað helst við landbúnað að sakast þegar kemur að eyðingu regnskóga, dauðum haf- svæðum og útrýmingu dýrategunda. Upplýsingar um áhrif landbúnaðar á jörðina verða sífellt aðgengilegri á net- inu, sem og upplýsingar um slæma meðferð á dýrum og heilsufarslegan ávinning þess að sniðganga dýra- afurðir. Ef þér er annt um jörðina en ert ekki tilbúin/n að gefa einkaökutækið upp á bátinn þá er þetta tilvalin leið til að leggja þitt af mörkum. Ég fagna þeirri þróun að sí- fellt fleiri kjósa að taka upp- lýstar ákvarðanir sem eru þeim sjálfum, samfélaginu og heiminum öllum til góða. Bresk rannsókn leiddi nýlega í ljós að 7% bresku þjóðarinnar telja sig vera vegan. Heimur batnandi fer. »Það sem ég furða mighvað helst á er þó sú staðreynd að stærstur hluti fólks lokar augunum fyrir slæmum umhverfisáhrifum landbúnaðar. Heimur Þorgerðar Önnu Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.