Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 21

Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Út að leika Vorið kallar fram löngun margra til að gera eitthvað skemmtilegt úti við. Fólk vill bregða á leik, æfa sig í færni og stæla sinn kropp, rétt eins og þessi gerði nýlega við Reykjanes. Kristinn Magnússon Það er misskilningur að hetjuskapur eigi nokkuð skylt við þann málstað sem barist hef- ur verið fyrir. Þannig berjast ráðherrar að jafnaði fyrir málefnum ráðuneyta sinna. Þó kemur fyrir að ráð- herrar berjist gegn málstað og málaflokki sem þeir telja að til- heyri sínu ráðuneyti. Þegar ráðherrar halda framhjá sínum málaflokki þá er það álíka af- sakanlegt og að halda framhjá danskri konu. Það gerist því miður oft að ráðherrar fara út af spori. Þráhyggja Í þau fjögur ár, sem sá er þetta ritar hefur til þessa setið á Alþingi, voru eilífar deilur um gjaldtöku af ferðaþjónustu. Atvinnugreinar greiða ekki gjöld. Það eru við- skiptavinir, sem greiða gjöld. At- vinnugreinar í ferðaþjónustu búa við almenn starfskilyrði sem Al- þingi setur. Þau starfskilyrði taka mið af samkeppnisaðstæðum. Það eru til önnur flugfélög en Ice- landair og WOW Air, sem fljúga yf- ir Norður-Atlantshaf. Þýskir ferða- menn horfa til austurs og suðurs þegar valkosturinn í norður er met- inn. Ísland er einn kostur af mörg- um, sem ferðamenn geta valið úr. Stjórnvöld eiga að gera landið að- laðandi, ekki aflaðandi fyrir ferða- menn. Tekjur ríkisins af ferðamönnum Ráðherrar tala oftar en ekki svo að ferða- þjónusta skili engum tekjum til ríkissjóðs. Svo er alls ekki. Þá eru til þingmenn sem vilja selja Flug- stöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík. Um skynsemi þess má lengi deila. Kannski kann sú deila að leiða til þess að Flugstöðin verði að rúst í draumalandinu. Grunur minn er sá að hver sá stjórnmálaflokkur sem fer í herferð til að selja FLE, tapi þeirri orrustu. Hvað hefur ríkis- sjóður lagt af mörkum til uppbygg- ingar Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar? Sennilega ekkert! Á móti framlagi Bandaríkjamanna, sem hernaðarhluta flugstöðvarinnar, komu lántökur íslenska ríkisins. Þau lán yfirtók FLE OHF. FLE hefur greitt af þeim lánum eftir vígslu og síðan hefur öll uppbygging alfarið verið fjármögnuð af eigin fé og með lántökum, sem rekstur FLE hefur endurgreitt. Það er síðan eðlilegt að ISAVIA, sem er eigandi FLE, greiði arð í ríkissjóð. Arðsemi opinberra hlutafélaga er eðlileg en arður ekk- ert annað sá hluti ávöxtunar fjár- muna, sem úthlutað er til eigandans. Svo virðist sem bílaleigubílar skili um 5 til 6 milljörðum í eldsneytis- gjöld í ríkissjóð. Fer það allt til vega- mála? Samgönguráðherra vill leggja á sérstakt komugjald til landsins, væntanlega til vegamála. Hver eru tengslin? Þrátt fyrir að þær atvinnu- greinar, sem mynda ferðaþjónustu séu í nokkurri uppbygginu og fái því mikinn innskatt endurgreiddan í virðisaukaskattsuppgjöri, þá skilar ferðaþjónusta í heild nettó á milli 35- 40 milljörðum í ríkissjóð. Til saman- burðar skilar sjávarútvegur, það eru veiðar og vinnsla á afla, engum virð- isaukaskatti í ríkissjóð. Svo er einnig um orkufrekan iðnað sem framleiðir útflutningsvörur. Allar eiga þessar atvinnugreinar það sammerkt að þetta eru útflutningsgreinar. Skattspor og þráhyggja Það er ekki óeðlilegt að mat sé lagt á það hvað atvinnurekstur og starfsfólk leggja af mörkum til sam- félagsins. Sennilegt má telja að Ice- landair hf. og starfsfólk þess leggi af mörkum sem nemur 35 milljörðum í opinber gjöld á síðasta ári. Það eru um þreföld framlög ríkissjóðs í bein- greiðslur til bænda, til að viðhalda eymd í sveitum. Miðað við skattspor Icelandair og hlutdeild fyrirtækisins í ferðaþjón- ustu má ætla að heildargreiðslur ferðaþjónustu séu sem næst 90 millj- arðar. Þráhyggjan er sú að ráðherrar eru alltaf að upphugsa einhver lúa- brögð til að finna nýjar álögur á ferðaþjónustu. Það kann að vera að rétt sé að inn- heimta þjónustugjöld þar sem þjón- usta er veitt. Einfaldasta þjónusta sem veitt er, er leiga á bílastæði. Þjónustugjaldið á að endurspegla kostnað við veitta þjónustu en á ekki að vera fjárplógsstarfsemi. Ferðaþjónusta og áhætta Ferðaþjónusta er ekki laus við áhættu frekar en annar atvinnu- rekstur. Nægir þar að nefna að ferðaþjónusta er háð þróun efna- hagsmála í öðrum löndum. Aðrir augljósir þættir eru vextir af lánsfé og olíuverð. Augljósast er þó að nátt- úruhamfarir geta lagt atvinnugrein- ina í rúst. Þó var það svo að gos í Eyjafjalljökli snerist upp í næst- bestu markaðssetningu sögunnar. Náttúruhamfarir af mannavöldum vegna misviturlegra ákvarðana ráð- herra og þingmanna eru engu betri en þær hamfarir sem eiga sér upp- runa í náttúrunni sjálfri. Þeir sem valdið hafa, hafa aðeins eina skyldu og hún er sú að skapa almenn skil- yrði til að smáathafnamenn geti starfað í atvinnurekstri. Væntingar um frið við stríðslok Við lok síðari heimsstyrjaldar- innar voru miklar væntingar um frið í heiminum og aukinn skilning milli manna. Þær væntingar byggðust á því að forystumenn hins frjálsa heims höfðu sýnt merki þess að þjóðir ættu að vinna saman, efla heimsviðskipti og auka kynni sín með friðsamlegum hætti. Aukin kynni verða með ferðalögum. Það var í þeim tilgangi sem Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn og Al- þjóðabankinn voru stofnaðir árið 1944. Það sama ár var stofnuð Al- þjóðaflugmálastofnunin, ICAO. Ís- land er stofnaðili að þessum þrenn- um samtökum, sem stofnuð voru til að efla frið. Í sáttmála Alþjóðaflugmálastofn- unarinnar eru ákvæði þess efnis að þjóðirnar skuldbindi sig til þess að leggja ekki hömlur á ferðir milli landa með gjaldtökum. Öll hugsun um komugjöld og nátt- úrpassa ganga beinlínis gegn þeirri hugsun sem lögð er til grundvallar í sáttmálum stofnana sem stofnaðar voru til að efla frið í heiminum. Ráherra, syndir og skattar Þær voru aldir að menn trúðu því að Búlandstindur væri ljótur og and- styggilegur staður eins og Mývatn hefði orðið til af því að fjandi mé á móti sólinni en draugar sendir í Gull- foss. Svo sagði Skáldið. Ráherrar eru mannlegar verur. Það virðist sem þeir þrái hina mestu sælu, en hún er sú að syndga. Næst- mesta sælan er ásetningurinn til að syndga. Að þessu leyti eru ráðherrar eins og dýrlingar því þeir þrá að syndga. En þegar öllu er á botninn hvolft sér maður að mannkynið er aumt, eins og þegar maður lítur á það eins og það er í raun og veru. Ráðherrar verða ekki miklir stjórnmálamenn af því eina að finna upp gjöld, sem eru í raun dulbúnir skattar. Eftir Vilhjálm Bjarnason »Það er ekki óeðlilegt að mat sé lagt á það hvað atvinnurekstur og starfsfólk leggja af mörk- um til samfélagsins. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Þráhyggja um ferðaþjónustu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.