Morgunblaðið - 13.04.2018, Page 25

Morgunblaðið - 13.04.2018, Page 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 ✝ Ása Eyjólfs-dóttir fæddist í Reykjavík 13. apríl 1918. Hún lést á Hrafnistu í Reykja- nesbæ 20. mars 2018. Foreldrar hennar voru Eyjólfur Jó- hannsson skipstjóri, f. 12.2. 1881 í Mels- húsum á Seltjarnar- nesi, d. 15.1. 1933, og Gíslína Sigríður Gísladóttir húsfreyja, f. 19.7. 1891 í Dalbæ í Gaulverjabæjarhreppi, d. 3.9. 1959. Systkini Ásu voru: Jó- hann Kristján f. 1914, Ingibjörg Steinunn, f. 1916, Gísli, f. 1920, Ingjaldur Geir, f. 1921, Gyða, f. 1923, Skúli, f. 1924, og Garðar, f. 1930. Þau eru öll látin. Hinn 19. desember 1942 gift- ist Ása Jóni Garðari Guðmunds- syni skipstjóra, f. 2.4. 1918, d. 4.1. 1960. Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson útgerðar- maður á Rafnkelsstöðum, f. 18.7. 1892, d. 10.4. 1984, og ótímabært fráfall föður síns fór Ása að vinna við ýmis störf. Hún starfaði við verslun, var ráðskona og var hún fyrsta starfsstúlkan á nýbyggðu Rauðakrossskýli í Sandgerði. Einnig vann hún á sauma- stofum í Reykjavík og við síld- arsöltun á Djúpavík og Siglu- firði. Árið 1942 giftist hún Jóni Garðari Guðmundssyni og flutt- ust þau þá í nýbyggt húsið Vík í Garði. Ása og Garðar eignuðust níu börn og var það hennar hlutskipti að hugsa um börnin og heimilið meðan Garðar stundaði sjómennsku. Árið 1960 lést Garðar í sjóslysi þegar mb. Rafnkell GK 510 fórst. Í kjöl- farið flutti Ása með börn sín til Sandgerðis að Austurgötu 11. Eftir að Garðar lést hóf Ása störf við fiskvinnslu og starfaði óslitið við hana til sjötugs. Við starfslok flutti Ása til Keflavík- ur og bjó á Kirkjuvegi 1 þar til fyrir tveimur árum er hún flutti á hjúkrunarheimili Hrafnistu á Nesvöllum. Útför hennar fór fram í kyrr- þey 28. mars 2018 frá Safn- aðarheimilinu í Sandgerði. Guðrún Kristbjörg Jónasdóttir hús- freyja, f. 12.8. 1895, d. 3.5. 1975. Börn Ásu og Garðars eru: 1) Eygló Dóra, f. 1942, maki Ög- mundur Magnús- son 2) Guðmund- ur, f. 1943, maki Brynhildur Guð- mundsdóttir. 3) Geir Guðmundur, f. 1945, maki Helga Ingimundardóttir. 4) Guðrún, f. 1946, maki Birgir Þórbjarnarson. 5) Eyjólfur, f. 1949, maki Kristín Magnús- dóttir. 6) Hafdís, f. 1950, maki Einar Jónsson. 7) Jórunn Jóna, f. 1951, maki Hilmar Magnús- son. 8) Garðar, f. 1953, maki Kristín Bárðardóttir. 9) Sig- urður, f. 1955, maki Lilja Ár- mannsdóttir. Afkomendur Ásu og Garðars eru 122 talsins. Ása ólst upp í foreldrahúsum í Efra-Sandgerði og síðar í Þrastarlundi, Sandgerði. Eftir Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð barna þinna, þú vildir rækta þeirra ættarjörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa, og eykur þeirra afl og trú, en það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum eins og þú. Í augum þínum sá ég fegri sýnir en sólhvít orð og tónar geta lýst, – svo miklir voru móðurdraumar þínir, þó marga þeirra hafi frostið níst. Sem hetja barst þú harmana og sárin, huggaðir aðra – brostir gegnum tárin, viðkvæm í lund, en viljasterk. Þau bregða um þig ljóma, liðnu árin. Nú lofa þig – þín eigin verk. Ég flyt þér, móðir, þakkir þúsundfaldar, og þjóðin öll má heyra kvæðið mitt. Er Íslands bestu mæður verða taldar, þá mun þar hljóma fagurt nafnið þitt. Blessuð sé öll þín barátta og vinna, blessað sé hús þitt, garður feðra minna, sem geymir lengi gömul spor. Haf hjartans þakkir, blessun barna þinna, – og bráðum kemur eilíft vor. (Davíð Stefánsson.) Elsku mamma, með þökk fyrir allt og allt. Dóra, Guðmundur, Geir, Guðrún, Eyjólfur, Hafdís, Jórunn, Garðar og Sigurður. Áður en ég kynntist Ásu mundi ég alltaf eftir, frá því ég var barn, að með mikilli virðingu hafði mér verið sagt frá konu sem væri ekkja og ætti níu börn í rosaflottu, stærsta einbýlishús- inu í Sandgerði. Svo seinna þegar sambýlismaður minn, Geir, kynnti mig fyrir móður sinni, henni Ásu, trúði ég vart mínum eigin augum. Þvert á það sem ég var búin að ímynda mér, var hún lágvaxin, fíngerð og ljúf kona. En það kom fljótt í ljós hvern mann hún hafði að geyma; þrátt fyrir að vera ekki stór vexti, kom hún upp níu börnum, ekkja frá 41 árs aldri. Hún vann við fiskvinnslu eins og algengast var á þeim tíma eftir að eiginmaður hennar fórst og með samstilltu átaki hennar og eldri barnanna tókst henni að koma öllum vel til manns. Ég kynntist aldrei Garðari Guð- mundssyni, eiginmanni hennar sem fórst með allri áhöfn á m/b Rafnkeli í janúar 1960. Garðar var einn af aflasælustu skipstjór- um landsins þegar hann lést. En tvíburabróðir Garðars, Kristján Valgeir og hans kona Guðný Kjartansdóttir, bjuggu lengst af í húsi beint á móti þar sem ég var alin upp á Njarðvíkurbrautinni í Innri-Njarðvík og þekkti ég vel til þeirrar fjölskyldu. Ása lét sér fátt fyrir brjósti brenna; duglegri og ósérhlífnari konu hef ég vart kynnst. Það var alveg greinilegt hvað skipti hana mestu máli, það var fjölskyldan sem hún lifði fyrir. Hafandi verið móðir níu barna, eru afkomendur hennar stór hópur, langt á annað hundraðið og hafði Ása góða yf- irsýn yfir alla; mundi eftir öllum afmælisdögunum og var vel með- vituð um hvað flestir væru að fást við. Hún var vel minnug alveg fram á síðustu daga ævinnar. Sérlega áhugavert var að heyra hana segja frá gamalli tíð; upp- vaxtarárunum í Sandgerði þegar hún eða systkini hennar þurftu að gerast sendiboðar um allt byggðarlagið því á heimili hennar var eini síminn í Sandgerði og þegar hún ung að árum starfaði sem sjúkraliði í fyrsta sjúkra- skýli Rauða krossins á Íslandi þar í Sandgerði. Það var auðséð þegar við heimsóttum Ásu á jól- unum ásamt hinum systkinum Geirs hversu myndarleg hún var og rausnarleg. Rjóma-, súkku- laði- og brauðtertunum ásamt miklu úrvali af jólasmákökum var vel veitt af og heitu súkkulaði. Uppáhaldsuppskriftin sem hún gaf mér var af „fromage“ sem ég hef alltaf á aðfangadagskvöld og hugsa ég með þakklæti til hennar þá. Við Geir munum sakna góðr- ar móður og vinkonu og biðjum henni Guðs blessunar. Helga S. Ingimundardóttir. Í dag eru liðin hundrað ár frá fæðingu Ásu móðurömmu minn- ar en hún lést fyrir fáeinum dög- um. Það kom mér á óvart hversu flatt það kom upp á mig þegar ég áttaði mig á því að amma ætti ekki langt eftir. Amma, þessi ótrúlega sterka og magnaða kona, var í huga mínum einhvern veginn ódauðleg. Amma var mér mikil fyrirmynd enda var hún engin venjuleg kona, hún var sannkölluð hversdagshetja. Frá því að ég man eftir mér hef ég hugsað um ömmu af mikilli virð- ingu og þakklæti og hefur hún haft mikil og sterk áhrif á mig sem konu. Hún tókst á við verk- efni sín af miklu æðruleysi og þrautseigju. Hennar stærsta verkefni í lífinu hefur líklega ver- ið að standa frammi fyrir því rúmlega fertug að verða ekkja, móðir níu barna á aldrinum fjög- urra til sautján ára. Ég hef svo oft hugsað til þess hvernig henni skyldi hafi liðið, hvernig henni tókst að ganga fram af þvílíkri festu og æðruleysi eins og hún gerði og koma öllum barnaskar- anum til manns, innræta þeim gott gildismat, heiðarleika og hjálpsemi. Amma lét engan segja sér fyrir verkum og má segja að ekkert hefi verið gert af hálfum huga. Uppeldi barnanna var í föstum skorðum og höfum við frændsystkinin oft fengið að heyra sögur af því hvernig hún stýrði mannskapnum af mikilli lagni, hafði reglu á hlutunum og gaf skýr skilaboð um framkomu og siðferði. Í dag á amma 122 af- komendur í beinan legg, afkom- endur sem eiga henni svo margt að þakka. Amma var einstaklega gjaf- mild og rausnarleg, ósjaldan vor- um við sem heimsóttum hana leyst út með gjöfum og ávallt fór- um við pakksödd frá henni því amma vissi fátt betra en að gefa gestunum sínum að borða en settist sjaldnast sjálf til borðs. Amma hafði einstaka næmni fyr- ir fólki, var áhugasöm um fólkið sitt, þekkti hvert og eitt okkar vel og vissi einhvern veginn alltaf hvað allir voru að bardúsa. Hún fann til með þeim sem minna máttu sín, sendi gjafir, bænir og hlýjar hugsanir til þeirra sem stóðu höllum fæti því hún vissi sannarlega hvað það var að standa frammi fyrir sorginni þrátt fyrir að bera þær ekki á torg eða ræða almennt um erf- iðleika í lífi sínu. Amma hafði gott skopskyn og fannst gaman að slá á létta strengi en aldrei þó þannig að það færi úr böndunum enda hógværðin uppmáluð. Þegar amma hrósaði fólkinu sínu þá var innistæða fyrir hrósinu því amma var sönn í einu og öllu, heiðarleg og hreinskiptin. Þetta eru eigin- leikar sem ég tek mér að hjarta og verð ánægð ef ég kemst með tærnar þar sem amma hafði hæl- ana. Þrátt fyrir háan aldur fylgir fráfalli þessarar mögnuðu konu mikil sorg og eftirsjá. Hún lifði merkilegu lífi, löngu lífi og með henni fer mikil vitneskja og saga. Hún var einhvers konar samein- ingartákn stórrar fjölskyldu, var sterkur hlekkur í langri keðju fjölmenns hóps afkomenda, sú sem hafði yfirsýnina og stjórnina. Það er óhætt að segja að amma hafi sett mark sitt á hvert og eitt okkar og ég veit að við sem eftir lifum munum halda minningu hennar í heiðri og miðla henni áfram til komandi kynslóða enda ærin ástæða til. Minningin um Ásu Eyjólfs- dóttur lifir. Anna Hulda Einarsdóttir. Í dag, 13. apríl, hefði amma mín og nafna Ása Eyjólfsdóttir orðið 100 ára gömul, hún var búin að segja okkur í fjölskyldunni að hún ætlaði ekki að halda upp á það með okkur ættingjunum sín- um. Hún ætlaði að fagna því með Garðari eiginmanni sínum sem hún missti fyrir tæpum sextíu ár- um. Hún ætlaði að fagna með honum á grænni grundu. Hvern- ig skyldu endurfundir þeirra hafa verið eftir öll þessi ár? Já, hún amma mín var orðin ekkja fjöru- tíu og eins árs gömul með níu börn og voru hún og Garðar afi að byggja hús í Sandgerði fyrir sig og börnin sín þegar Garðar afi féll frá á besta aldri. Hún hélt sínu striki og hélt vel utan um börnin sín og vann myrkranna á milli til að geta séð fyrir sér og sínum. Eldri börnin hennar hjálpuðu til við heimilishaldið og aðstoðuðu móður sína við að láta hlutina ganga upp og seinna meir hjálpaðist allur hópurinn að við heimilisstörfin. Það fór nú ekki mikið fyrir henni ömmu minni, hún gerði bara það sem þurfti að gera og gerði það vel. Amma var róleg og yfirveguð og hún gerði hlutina eins og hún vildi, hún var ákveðin og fór vel með það. Hún var ekki mikið fyrir athygli og ég hef oft hugsað um það hvað hún var flott og góð fyrirmynd. Hún var kona sem hefði átt að fá fálka- orðu fyrir dugnað sinn og elju- semi. Kom öllum börnunum sín- um til manns og gott betur. Sjórinn spilaði stórt hlutverk í lífi ömmu, sjórinn gaf og sjórinn tók. Amma vann við fiskvinnslu þar til hún var sextíu og sjö ára og ætl- aði hún að hætta þá. En henni leiddist að hafa ekki neitt að gera þannig að hún fór aftur í frysti- húsið og vann þar til sjötugs. Það var oft mikið fjör í kringum ömmu með alla þessa afkomend- ur sína sem voru orðnir eitt hundrað og tuttugu og tveir þeg- ar hún kvaddi okkur. Hún vildi ekki tala mikið um þennan stóra hóp sinn, en hún var stolt af hópnum sínum. En hafði það bara fyrir sig. Amma bjó lengst af í Sand- gerði og þegar ég var lítil stelpa vann ég á sumrin í frystihúsinu eins og Ása amma og fyrsta sum- arið mitt fékk ég að gista hjá henni virku dagana og fór heim í Keflavík um helgar. Þetta var mjög góður tími og gott að fá að vera hjá henni og það var dekrað við mann. Við amma áttum alltaf mjög gott skap saman og var allt- af gott að koma til hennar. Amma var ákaflega gjafmild kona, henni fannst gaman að geta gefið eitt- hvað, hún var alltaf að lauma ein- hverju að manni og á seinni árum að dætrum mínum. Amma sagði að þeir sem væru gjafmildir fengju það til baka. Amma flutti til Keflavíkur í Hornbjargið og átti hún þar mörg góð ár með því góða fólki sem þar bjó og átti hún góðar vinkonur í því húsi. Hún sá um sig sjálf þar til fyrir tveimur árum. Þá fór hún á hjúkrunar- heimilið Hrafnistu á Nesvöllum og þar átti hún góðan tíma, þar til yfir lauk. En nú er komið að kveðju- stund, elsku amma mín og nafna, ég er stolt af að heita í höfuðið á þér. Blessuð sé minning þín og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín nafna Ása Guðmundsdóttir. Elsku langamma. Það var alltaf svo gaman að heimsækja þig í Hornbjargið og svo á Nesvelli. Þú varst alltaf svo góð við mig og gjafmild. Það var alltaf til nammi sem ég gat nælt mér í hjá þér. Ég sakna þín mjög mikið og ég mun aldrei gleyma þér. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Garðar Guðmundsson. Ása Eyjólfsdóttir ✝ Ómar Elíssonfæddist 17. maí 1932 á Brunnastöð- um Vatnsleysu- strönd. Hann lést á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 30. mars 2018. Móðir hans var Guðlaug Guðjóns- dóttir húsfreyja, f. í Vorhúsum á Vatns- leysuströnd. 27. febrúar 1909, d. 19. ágúst 1968. Faðir hans var Elís R. Guðjónsson sjómaður og síð- ar verkamaður, f. í Sanddals- tungu í Norðurárdal 27. janúar 1906, d. 21. sept. 1980. Ómar var elsta barn þeirra, á eftir honum komu þau; Guðrún Margrét, f. 1933, Vilborg, f. 1934, Pétur, f. 1936, Vilhelmína Steinunn, f. 1938, d. 2001, Ingv- ar, f. 1941, Guðbjörg, f. 1944. Eftirlifandi eiginkona er Ingibjörg Þorleifsdóttir hús- móðir, f. 1934, frá Siglufirði, dóttir Þorleifs Sigurðssonar tré- smiðs, f. á Reykhóli á Bökkum í Skagafirði 28. okt. 1897, d. 16. jan. 1986, og Soffíu Davíðs- dóttur húsfreyju, f. á Hvamms- tanga 7. des. 1904, d. 9. maí 1981. Ómar og Ingibjörg giftu sig á Akranesi 1955 og bjuggu lengst af á Háholtinu. Börn þeirra hjóna eru fjögur. Guðjón, f. 1956, Sigþór, f. 1957, kvæntur Ragnheiði Þóru, börn þeirra eru Andri Þór og Frið- rik Berg, fyrir átti Ragnheiður Sigríði og Benedikt. Þau eiga þau þrjú tengdabörn, sex barnabörn og tvö barnabarnabörn. Soffía Guðrún, f. 1962, gift Sigurbirni Björns- syni, börn þeirra eru Ómar Freyr, Arnar Þór og Ingibjörg Steinunn. Fyrir átti Sigurbjörn dótturina Thelmu Hrund. Þau eiga fjögur tengdabörn og átta barnabörn. Grétar Már, f. 1965, á hann Sigurð Inga, Arnór Bjarka og Guðlaugu Ásrúnu, á hann þrjú tengdabörn og tvö barnabörn. Hann er í sambúð með Halldóru Einarsdóttur. Ómar var sjómaður alla ævi, byrjaði ungur til sjós en vann stuttan tíma við múrverk í landi, hann vann á síldarskipum, fraktskipum, sementsskipi og endaði sinn starfsaldur sem bátsmaður á Akraborginni. Útför Ómars fer fram frá Akraneskirkju í dag, 13. apríl 2018, klukkan 13. Ég kveð þig, minn faðir, nú komin er stund sem kveið ég svo fyrir að lifa. En þú ert nú horfinn á feðranna fund með fögnuði tekið á himneskri grund. Í söknuði sit ég og skrifa. (Birgitta H. Halldórsdóttir) Elsku pabbi, upp koma ýmsar yndislegar minningar um þig og okkar samverustundir saman og eru þær mér dýrmætar núna á þessum erfiðum tímun, þegar ég kveð þig. Ég hef alltaf verið mikil pabbastelpa enda áttir þú bara eina stelpu sem þú gast dekrað við. Það var alltaf gaman þegar ég var lítil og þú komst heim af sjónum í frí eftir að hafa verið í siglingum, þá fékk ég flottar dúkkur, dúkku- vagn, og fleira fallegt, en skemmti- legast fannst mér að fá þig heim því þá vorum við öll saman. Þú varst alltaf svo rólegur og góður pabbi, alltaf að vinna eða dunda eitthvað til að halda heimilinu okk- ar fallegu, þú fylgdir því líka vel eftir að við lærðum heima og fær- um eftir fyrirmælum, kæmum vel fram og værum kurteis. Ég var svo heppin að fá að vinna með þér á Akraborginni þegar ég var unglingur og þá kynntist ég því betur hvað þú varst frábær maður skemmtilegur, mikið snyrtimenni, traustur og duglegur. Þú varst mikill og góður afi, lað- aðir börnin að þér og sinntir fjöl- skyldunni þinni mjög vel, þú naust þess mikið að vera með barnabörn- unum og langafabörnum. Skemmtilegt fannst þér að fylgjast með fótboltanum því þar voru bæði sonur þinn, frændur og barnabörn að spila. Alltaf komstu og hjálpaðir okk- ur þegar við þurftum aðstoð, þú varst duglegur að koma í heimsókn til mín eftir að ég fór að búa og eftir að þú hættir að vinna hjólaðir þú svo oft við hjá mér, og áttum við þá gott spjall saman. Þú fræddir mig mikið um ættina og ýmislegt annað skemmtilegt. Þakklát er ég fyrir að hafa fengið að upplifa það að hafa ykkur mömmu hjá okkur á jólun- um eftir að ég fór sjálf að búa. Yndislegar minningar á ég frá því að þú komst með okkur til Costa del Sol, þar naust þú þín mjög vel með okkur fjölskyldunni. Ég gæti endalaust talið upp góðar minningar, ég ætla að rifja þær upp og varðveita þær, ég sakna þess að eiga ekki eftir að fá gott spjall við þig og sjá þig njóta allra barnanna. Ég trúi því að þú sért kominn á góðan stað og þér líði vel. Þú ert mín besta fyrirmynd, með þökk fyrir allt, elsku pabbi minn. Þín lundin var sköpuð af gimsteinagerð og gæska úr hjartanu sprottin. Mig langar að þakka þér farsæla ferð með friðsælli gleði ég kveðja þig verð. Nú geymir þig dýrðlegur Drottinn. (Birgitta H. Halldórsdóttir) Þín dóttir Soffía. Ómar mágur og svili okkar and- aðist 30. mars sl. eftir veikindi sem hafa staðið yfir í langan tíma. Óm- ar var sjómaður nær allan sinn starfsaldur á Lagarfossi, síldar- bátnum Sigrúnu AK 71, Sements- flutningaskipinu Freyfaxa og tveimur Akraborgum, sem háseti og bátsmaður, um tíma starfaði hann við múrverk, sem hann greip í þegar hann og ættingjar þurftu á því að halda, þess nutum við líka er við vorum að setja upp sólbekki í Flúðaselinu. Hann var stundum fenginn sem matsveinn um borð sem hann leysti vel af hendi eins og annað. Hann var afar laghentur og allt lék í höndunum á honum, hús þeirra hjóna ber þess merki hversu vandvirkur og passasamur hann var um eigur sínar, þau fengu viðurkenningu fyrir framúr- skarandi viðhald húss og varð- veislu byggingarforms á Háholti 29, Akranesi, eins og sagt er á við- urkenningarskjalinu. Bílar þeirra voru líka vel hirtir í gegnum árin. Ekki fóru barnabörnin á mis við það þegar þurfti að lagfæra reið- hjólin þeirra, þá var gott að leita til Ómars afa og fá úrlausn mála, stundum átti hann varahluti í hjól- in. Ómari kynntist ég fljótlega eftir að við Ása, systir Imbu, fórum að vera saman eða upp úr 1963, við ferðuðumst saman um Vestfirði þar sem Sigrún systir þeirra bjó, fórum til Siglufjarðar nokkrum sinnum og á þjóðhátíð á Þingvöll- um 1974. Ómar naut sín vel á ferðalögum. Oft áttum við góða og líflega samveru í Búrfelli í fermingum, af- mælum og við að grilla úti í garði, við Ómar náðum vel saman, reyndar áttum við margt sameig- inlegt, t.d. að hafa allt vel við hald- ið, bíla hreina og að reyna að end- urnýta sem flesta hluti. Ómar beitti sér í kjaramálum sinna fé- laga og var trúnaðarmaður þeirra um tíma. Við Ása og fjölskylda okkar vottum Imbu og fjölskyldu hennar dýpstu samúð við fráfall Ómars mágs og svila okkar. Benedikt og Áslaug. Ómar Elísson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.