Morgunblaðið - 25.04.2018, Side 20

Morgunblaðið - 25.04.2018, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2018 Af hverju það lag? Við vorum í rútuferð og heyrðum Bennie and the Jets spilað og hugs- uðum að við yrðum að syngja þetta lag ein- hvern tímann og söngkeppnin var fullkomið tækifæri til þess. Munuð þið syngja til einhvers í salnum? Við ætlum að syngja til Jófríðar Úlfarsdóttur. Uppáhaldslag til að syngja í sturtu? Kar- en: Uppáhaldslagið mitt til að syngja í sturtu er Oh darling eftir Bítlana, elsku bestu hljóm- sveit alheimsins, og svo syng ég líka stundum Chandalier eftir Siu, en það fer bara allt eftir skapinu. Soffía: Já, uppáhaldslagið mitt til að syngja í sturtu er Heaven eftir Bryan Adams. Ragnhildur: September eftir Earth, Wind & Fire, það eina sem kemur til greina. Palli (Páll Óskar) eða Bubbi (Bubbi Mort- hens)? Karen og Ragnhildur: Palli allan dag- inn! Hann á sérstakan stað í hjörtum okkar allra en virðist aðeins minna vera í hjarta Soffíu þar sem hún velur Bubba, hún fór meira að segja einu sinni úr afmæli Karenar til að fara á Bubba-tónleika. Draumastarf? Karen: Mig hefur alltaf dreymt um að leika á stóra sviðinu og gerast leikkona, en ég hef líka áhuga á því að verða læknir eða kannski eitthvað tengt náttúruvís- indum. En ef ég á að vera hreinskilin þá veit ég það ekki alveg. Ragnhildur: Það er svo margt! Rithöfundur, frönskukennari eða einhvers konar listamaður eru efst á lista yfir draumastörf. Soffía: Draumastarfið mitt er að verða leik- stjóri, koma mér inn í kvikmyndabransann og vinna við það. Lýsið ykkur í þremur orðum. Ragnhildur: Góð, bjartsýn og viðkunnanleg. Karen: Hláturmild, málglöð og flippkisi. Soffía: Dönsk, matgæðingur og kaldhæðin. Hver eru ykkar átrúnaðargoð? Ragnhild- ur: Vigdís Finnbogadóttir, allan daginn. Karen: John Lennon, allir sem þekkja mig vita það. Soffía: Átrúnaðargoðið mitt er Baltasar Kor- mákur. Hvert er planið eftir menntó? Við stefnum allar á áframhaldandi nám eftir menntaskóla. iOS vs android? iOS, engin spurning. Síðasta lygi sem þið sögðuð? Karen: Bróð- ir minn spurði hvort ég ætti tyggjó, ég sagði nei, ég átti samt tyggjó. Skrítnasti matur sem þið hafið borðað? Ragnhildur: Sniglar, þeir voru ekki góðir. Karen: Örugglega bara kattamatur. Soffía: Ég borða aldrei neitt skrítið. Hver er ykkar helsti ótti? Karen: Ég er bók- staflega hrædd við allt, en ég er mjög mjög mjög lofthrædd. Ragnhildur: Ég er mjög hrædd við kóngulær, þótt ég eigi erfitt með að viðurkenna það. Soffía: Engin pizza. Furðuleg staðreynd um ykkur? Karen: Þegar ég var yngri sá ég myndina Juno og eft- ir það hélt ég að maður yrði óléttur af því að drekka appelsínudjús þannig ég forðaðist að drekka hann í nokkur ár. Ragnhildur: Ég og vinkona mín settum stund- um fiskiflugur í Barbie-þvottavélar, þær dóu. Soffía: Ég strauk einu sinni að heiman á hest- baki því mig langaði ekki að fara í stærðfræði- tíma. Með hvaða fræga einstaklingi mynduð þið vilja festast í lyftu? Við erum allar sam- mála um það að okkur langar bara ekki neitt að festast í lyftu. Sykurskert kókómjólk eða bara kókó- mjólk? Karen finnur engan mun, Soffía er bara kókómjólkurmanneskja en Ragnhildur er „hater“ og drekkur ekki kókómjólk. Hundar eða kisur? Ragnhildur og Karen: Við erum algjörar kattamanneskjur og höfum báðar átt ketti allt okkar líf. Soffía: Ég elska hvort tveggja en ef ég þyrfti að velja myndi ég örugglega velja hunda. Eruð þið femínistar? Já. Á hvernig tónlist hlustið þið? Ragnhildur: Ég hlusta mikið á 80’s og 70’s tónlist, en ann- ars þykir mér flestar gerðir tónlistar skemmti- legar. Karen: Ég elska gamalt rokk og 80’s tónlist. Bítlarnir eru það besta sem hefur komið fyrir mannkynið og hlusta ég mjög mikið á þá, ég hlusta líka mikið á Led Zeppelin, Bee Gees, David Bowie og Pink Floyd. Soffía: Lana Del Rey og Bryan Adams eru í miklu uppáhaldi en ég hlusta bókstaflega á allt, gamalt og nýtt. Bláir eða svartir pennar? Við erum allar „hardcore“ aðdáendur svartra penna. Friends eða How I met your mother? Fri- ends, við elskum Friends. Þær Karen Ósk Björnsdóttir, Soffía Mjöll Thamdrup og Ragnhildur Elín Skúladóttir eru á sautjánda ári og keppa fyrir Menntaskólann á Egilsstöðum. Þær syngja lagið Bennie and the Jets eftir sir Elton John. Lagið ákveðið í rútuferð Af hverju það lag? Vegna þess að bæði held ég rosalega upp á Amy Winehouse sem lista- mann og svo tel ég að lagið klæði röddina mína nokkuð vel. Muntu syngja til einhvers í salnum? Það var ekki hugsað þannig þegar ég tók ákvörð- unina um þetta lag en allir þeir sem taka text- ann til sín mega túlka flutninginn þannig. Uppáhaldslag til að syngja í sturtu? Það mætti segja að allur minn söngferill eigi rætur sínar að rekja til sturtunnar svo lagalistinn er langur … Cry me a river með Justin Timber- lake er klassík samt, hljóðið úr sturtuvatninu skapar ákveðna stemningu fyrir því líka. Palli (Páll Óskar) eða Bubbi (Bubbi Mort- hens)? Páll Óskar sem einstaklingur en Bubbi Morthens sem listamaður, ég hlusta meira á Bubba. Fullkomið stefnumót? Það er afstætt. Tinder vs. Hot or not? Ég kynntist kærast- anum mínum á Tinder svo ég verð að segja … Hot or not. Nei, djók. Uppáhaldslag með Beyoncé? Hlusta lítið á Beyoncé en auðvitað segi ég Touch my body. Uppáhaldssnappari? Að sjálfsögðu Jeppa- kall69 Doperman Rakki. Svartur húmor í sínu fínasta pússi. Ertu góð í að syngja? Nei, það mætti helst flokka atriðið mitt sem gjörning frekar en eitt- hvað annað. Hefur löggan stoppað þig? Ég hef einu sinni verið stoppuð af löggunni, þá var ég búin að vera með bílpróf í tæpa viku. Hver er þinn helsti ótti? Minn helsti ótti væri örugglega að lifa innantómu lífi eða að festa mig í einhvers konar aðstæðum sem valda mér sársauka. Ef þú gætir eytt einum degi með ein- hverjum frægum, hver væri það og hvað mynduð þið gera? Ég væri alveg mjög mikið til í að vera vinkona Lönu Del Rey. Ekki að- eins er hún frábær tónlistamaður heldur virk- ar hún mjög jarðbundin týpa sem ég væri til í að eyða tíma með. Ertu í sokkum? Eins og er þá er ég ber- fætt … þannig að nei. Sykurskert kókómjólk eða bara kókó- mjólk? Bara kókómjólk. Hlölli eða Subway? Subway, Hlölli er of sveittur að mínu mati. Hundar eða kisur? Hvort tveggja … kis- ur … elska samt hunda!! Á hvernig tónlist hlustar þú? Ég hlusta á ALLT en það er alls ekki sama hvað það er. Snap eða insta? Já, instagram. Ertu með opið instagram eða snapchat? Opið instagram, lokað snapchat. Friends eða How I met your mother? How I met your mother, finnst Friends ekki fyndn- ir … kærðu mig. Magdalena Eldey Þórsdóttir er 18 ára nemandi við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Hún flytur lagið Love is a losing game eftir Amy Winehouse. Innantómt líf mest ógnvekjandi Við styðjum okkar keppendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.