Morgunblaðið - 08.05.2018, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 8. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 107. tölublað 106. árgangur
MÓTIÐ VARÐ TIL
VIÐ ELDHÚS-
BORÐ Á SIGLÓ
STEFNIR AÐ
ÞVÍ AÐ KASTA
60 METRA
FÁ AÐ HEYRA
HVAÐ MARTA
KRISTÍN ER GÓÐ
HELGI SVEINSSON ÍÞRÓTTIR HAFNARBORG 32OFURTRÖLLAMÓTIÐ 12
Fjarðarpósturinn hefur tilkynnt
flokkum og listum sem bjóða fram í
Hafnarfirði í komandi sveitar-
stjórnarkosningum að aðsendar
greinar frá þeim framboðum sem
auglýsa í blaðinu gangi fyrir.
Olga Björt Þórðardóttir ritstjóri
segir að ekki hafi reynt á þetta
ennþá; allar greinar hafi fengist
birtar sem borist hafi, bæði í blaði
og á vefsíðu Fjarðarpóstsins.
Ákveðið hafi verið að hafa ein-
hverja viðmiðun á birtingum í
blaðinu, þar sem fjöldi greina berist
gjarnan þegar nær dregur kosn-
ingum. Að sögn Olgu hefur Fjarð-
arpósturinn ekki gripið til þessa úr-
ræðis áður.
Svipar málinu til þess er sjón-
varpsstöðin Hringbraut bauð flokk-
um kynningarþætti gegn kaupum á
auglýsingum. Var það talið brot á
fjölmiðlalögum. »4
Morgunblaðið/Ómar
Hafnarfjörður Fjarðarpóstinum er dreift í
öll hús vikulega, auk útgáfu á netinu.
Forgangur á greinar
ef framboð auglýsa
í Fjarðarpóstinum
„Fiskiskipaflotinn í heild sinni er
tiltölulega gamall þannig að við
áætlum út frá varfærnu mati að ár-
lega þurfi að fjárfesta fyrir 13-15
milljarða að meðaltali næstu árin til
þess að ná að halda í við endurnýj-
unarþörfina,“ segir Heiðrún Lind
Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, í
samtali við Morgunblaðið.
Þörf fyrir fjárfestingar í smíði
togara og vélskipa fram til ársins
2030 nemur um 180 milljörðum
króna, að sögn Heiðrúnar Lindar.
Miðað er við 35 nýja togara á þessu
tímabili fyrir um 84 milljarða og
110 vélskip fyrir um 95 milljarða. Í
þessum tölum er ekki mat á fjár-
festingarþörf í fiskvinnslu. »14
180 milljarðar í ný
fiskiskip til 2030
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fulltrúar Eyktar biðu í 11 mánuði
eftir því að Reykjavíkurborg af-
greiddi eignaskiptalýsingu á
Bríetartúni 9-11. Vegna þessa og
annarra tafa verði 94 íbúðir í húsinu
afhentar mun síðar en ella.
Þetta segir Pétur Guðmundsson,
stjórnarformaður Eyktar, og bendir
á að slíkum töfum fylgi mikill vaxta-
kostnaður. Fyrir vikið verði íbúðirn-
ar dýrari en ella.
Pétur nefnir í samtali við Morgun-
blaðið dæmi um hindranir sem borg-
in hafi sett í veg uppbyggingar á
Höfðatorgi. Til dæmis hafi verið
gerðar strangar kröfur um sorp-
hirðu. Þegar þeim var mætt hafi enn
strangari kröfur verið gerðar. Það
hafi tafið framkvæmdir við Bríetar-
tún 9-11 um fjóra til sex mánuði.
Tafði fyrir byggingu hótels
Pétur segir einnig að það hafi tek-
ið 11 mánuði að ganga frá eigna-
skiptalýsingu fyrir húsin og hún bíði
enn samþykktar sýslumanns. Þetta
hafi tafið mjög fyrir sölu íbúða.
Hann segir þetta verklag Reykja-
víkurborgar ekki bundið við Höfða-
torg. Til dæmis hafi uppbygging
hótels á Laugavegi 95-99 tafist mik-
ið vegna vinnubragða borgarinnar.
Deiliskipulagi hafi verið breytt eftir
að allra tilskilinna leyfa hafði verið
aflað og til stóð að rífa það í janúar
sl.
Pétur segir þetta koma niður á
borginni. Með slæmri þjónustu verði
hún af miklum tekjum og fæli frá
fyrirtæki. Tafirnar auki vaxtakostn-
að og leiði að lokum til hærra íbúða-
verðs. »6
Gerir nýju íbúðirnar dýrari
Morgunblaðið/Hari
Höfðatorg Eykt byggir á svæðinu.
Þar er atvinnuhúsnæði og íbúðir.
Stjórnarformaður Eyktar gagnrýnir seinagang Reykjavíkurborgar
Hulda Valtýs-
dóttir, fyrrver-
andi borgar-
fulltrúi og blaða-
maður, lést sl.
sunnudag, 92 ára
að aldri.
Hulda starfaði
hjá Morgun-
blaðinu frá barn-
æsku, sat um árabil í stjórn Árvak-
urs, útgáfufélags blaðsins, og var
varaformaður stjórnar félagsins
um tíma.
Hulda þýddi meðal annars barna-
leikrit norska leikskáldsins Thor-
bjørns Egners á íslensku. »2
Hulda Valtýs-
dóttir látin
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Samkomulag hefur enn ekki náðst í
kjaradeilu ljósmæðra við íslenska
ríkið, en fundað var í níunda sinn hjá
ríkissáttasemjara síðdegis í gær.
Næsti fundur verður haldinn 16.
maí, en óformlegur vinnufundur
verður haldinn á morgun.
Yfir tuttugu ljósmæður hafa sagt
upp störfum á Landspítalanum og
viðbúið er að þjónusta spítalans
skerðist mjög í sumar. Sumar þeirra
sem sagt hafa upp hafa þegar ráðið
sig til annarra starfa eða skráð sig til
náms. Helmingur ljósmæðra á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja hefur
sagt upp störfum.
Vill svör frá forsætisráðherra
Hljóðið í ljósmæðrum verður
þyngra með hverjum degi sem líður í
deilunni, að sögn Guðrúnar Gunn-
laugsdóttur, ljósmóður á Landspít-
alanum. Hún vandar ráðamönnum
ekki kveðjurnar, ekki síst vegna um-
mæla fjármálaráðherra um helgina
um að kröfur ljósmæðra væru um
20% umfram það sem svigrúm rík-
isins leyfði.
„Ég er reglulega ósátt og gáttuð,
sérstaklega vegna ummæla fjár-
málaráðherra. Ég skil ekki að hann
skuli ekki geta talað á dálítið fallegri
nótum,“ sagði hún, en nefndi þó
einnig að Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra hefði orðið tvísaga
og Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hefði ekki lagt ljósmæðrum lið
til þessa.
„Hvar er hún, spyr ég. Það hefur
hvorki sést til hennar né heyrst.
Þetta er kona sem hefur í mörg ár
talað fyrir kvenréttindum og með
kvennastéttum. Ég veit ekki hvar
hún er og kalla eftir viðbrögðum. Er
hún með okkur eða á móti?“
Ljósmæður lögðu í gær fram
sömu röksemdir og áður fyrir kjara-
bót og engin útfærsla að lausn var
lögð fram af hálfu ríkisins. Samtal er
þó hafið að sögn formanns samn-
inganefndar ljósmæðra.
Enn virðist langt í land
Ljósmæður orðnar þreyttar og ósáttar Viðbragða forsætisráðherra óskað
Leita í störf í öðrum atvinnugreinum Helmingur sagt upp á Suðurnesjum
MLjósmæður leita í önnur störf »2
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samstaða Ljósmæður sýndu samstöðu fyrir fundinn í gær. Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndarinnar, stillti sér upp fyrir fjölmiðlafólk,
en ljósmæður höfðu útbúið boli sem þær mættu í. Tilefnið var tilmæli fjármálaráðuneytisins um að þeim væri óheimilt að neita að taka að sér yfirvinnu.