Morgunblaðið - 08.05.2018, Page 4

Morgunblaðið - 08.05.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Fjarðarpósturinn Síðasta forsíða. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þegar nær dregur kosningum aukast beiðnir um birtingu greina og þá minnum við á að greinar frá fram- boðum sem auglýsa hjá okkur ganga að sjálfsögðu fyrir, “ segir m.a. í skilaboðum frá Fjarðarpóstinum til þeirra framboða sem bjóða fram lista í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Fjarðarpóstsins, staðfestir í samtali við Morgunblaðið að framboðin hafi fengið þessi skilaboð. Hefur blaðið ekki áður gripið til þessa ráðs, og eft- ir því sem Morgunblaðið kemst næst er um nýjung að ræða hér á landi þegar kemur að birtingu aðsendra greina í blöðum. „Við settum þessa reglu núna til að benda fólki á að það er ekki enda- laust pláss í þessu umbroti sem blað- ið er í. Eins og þetta er núna náum við að birta átta eða níu aðsendar greinar í hverju blaði. Til að geta komið sem flestum fyrir höfum við hámarkslengd hverrar greinar 250 orð. Við höfum til þessa náð að birta allar greinar, sem betur fer. Við vilj- um kappkosta það. En þegar nær dregur kosningum, þegar fleiri greinar fara að bætast við og vantar auglýsingar á móti, til að hafa fjöl- breytni í blaðinu, þá verðum við að grípa til þessa ráðs. Mér finnst eðli- legt að þeir sem hafa verið duglegir að auglýsa hjá okkur fái þá greinar frekar birtar,“ segir Olga. Spurð hvort þessi vinnuregla tak- marki ekki möguleika framboða á að birta greinar í blaðinu telur Olga ekki svo vera, þar sem allir geti feng- ið grein birta á vefsíðu Fjarðarpósts- ins. Til að tryggja fjölbreytni greina sé einnig höfð sú regla að birta ekki fleiri en eina grein frá hverju fram- boði. Brot á fjölmiðlalögum? Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, lög- fræðingur fjölmiðlanefndar, segir mál af þessum toga ekki hafa komið á borð nefndarinnar. Við fyrstu sýn svipi þessu til máls Hringbrautar fyrir þingkosningar 2016, þegar sjónvarpsstöðin bauð upp á kynning- arþætti gegn greiðslu, sem hluta af auglýsingapakka. Var þáttunum rit- stýrt af flokkunum. Fjölmiðlanefnd skilaði áliti um þetta og taldi að Hringbraut hefði brotið gegn 26. gr. laga um fjölmiðla. Var það mat nefndarinnar að fyllstu hlutlægni og nákvæmni hefði ekki verið gætt þegar stjórnmálaöflum var boðið að gera þessa kynningar- þætti. Fjölmiðlum bæri að gæta jafnræðis í umfjöllun í aðdraganda kosninga og gæta þess að sjónarmið allra flokka kæmu fram. „Ganga að sjálfsögðu fyrir“  Fjarðarpósturinn minnir framboð í Hafnarfirði á að aðsendar greinar þeirra njóti forgangs ef auglýst er í blaðinu  Svipar til máls Hringbrautar fyrir kosningar 2016, segir lögfræðingur Fjölmiðlanefndar Tuttugu segja upp Tuttugu þjón- ustufulltrúar í Hörpu ákváðu að segja upp eftir fund með Svan- hildi Konráðs- dóttur, forstjóra Hörpu, í gær. Fundurinn var boðaður vegna þjónustufulltrúa sem ofbauð og sagði upp eftir að laun forstjórans voru hækkuð á meðan laun þjónustu- fulltrúanna voru lækkuð. Á fundinum staðfesti Svanhildur að þjónustufulltrúar Hörpu hefðu verið þeir einu sem fengu beina launalækk- un, en þeir voru fyrir launalægstir allra starfsmanna Hörpu. Þjónustu- fulltrúarnir voru mjög ósáttir við skýringar forstjórans á því af hverju engir aðrir starfsmenn hefðu þurft að taka á sig launalækkun. Upplifðu þeir vanþekkingu stjórnenda Hörpu á störfum sínum á fundinum og ákváðu 20 að segja upp störfum.  Lægst launuðu í Hörpu fengu lækkun Svanhildur Konráðsdóttir Um 500 manns höfðu í gær kosið ut- ankjörfundar hjá sýslumannsemb- ættinu á höfuðborgarsvæðinu vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Á landinu öllu höfðu um 750 slík at- kvæði borist og er þetta heldur betri þátttaka en á sama tíma fyrir kosn- ingarnar 2014. Bergþóra Sigmundsdóttir, sviðs- stjóri þinglýsinga- og leyfasviðs hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæð- inu, segir ágæta þátttöku utan kjör- fundar núna ekkert segja til um góða kjörsókn á kjördag, 26. maí. Þar hafi í flestum kosningum lítið samhengi verið á milli. Fjölmargir þættir geti haft áhrif á kosn- ingaþátttöku. Fram til þessa hefur verið hægt að greiða atkvæði á afgreiðslutíma sýslumannsembættanna, eins og í Hlíðasmára 1 í Kópavogi frá kl. 8.30 til 15 á virkum dögum. Þar hefur einnig verið hægt að kjósa um helg- ar frá kl. 12-14. Frá og með næsta föstudegi munu starfsmenn sýslumanns á höfuð- borgarsvæðinu opna kjörstað utan kjörfundar í Smáralind. Þar verður opið frá kl. 10-22 alla daga vikunnar fram að kosningum, að því undan- skildu að lokað verður á hvítasunnu- dag, 20. maí. Einnig verður hægt að kjósa utan kjörfundar á sjálfum kjördeginum en þá bera kjósendur ábyrgð á því að atkvæði þeirra skili sér tímanlega í viðkomandi sveitarfélag. bjb@mbl.is Um 500 hafa kosið utan kjörfundar  Opnað í Smáralind næsta föstudag Keilir er áberandi kennileiti á Reykjanesi og laðar til sín fjölmarga göngumenn ár hvert. Hæsti toppur fjalls- ins er í tæplega 400 metra hæð yfir sjávarmáli og í björtu veðri má þaðan njóta stórbrotins útsýnis. Þegar ljósmyndari sá Keili voru birtuskilyrðin eilítið drama- tísk, snjóföl yfir svæðinu og dimm él með köflum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Keilir á Reykjanesi í svölu maíhreti Kynnt var á blaðamannafundi í gær skýrsla sem unnin var af ráðgjöfum KPMG um framtíð atvinnulífs á Suð- urnesjum fram til ársins 2040, en þar eru settar fram fjórar sviðsmyndir um mögulega framtíðarþróun á svæðinu í þeim efnum. Fram kemur í skýrslunni, sem unnin var fyrir Þróunarfélag Kefla- víkurflugvallar - Kadeco, Isavia og Samband sveitarfélaga á Suðurnesj- um, að atvinnulíf á Suðurnesjum hafi tekið stakkaskiptum á undanförnum árum. Ótrúleg uppbygging hafi þannig átt sér stað í kjölfar áfalla vegna brotthvarfs Bandaríkjahers og alþjóðlegs efnahagshruns. Farið er yfir þróun síðustu ára í atvinnulífi Suðurnesja og settar upp eftirfarandi sviðsmyndir: Fyrsta sviðsmyndin er nefnd Iðn- aðarsvæðið þar sem gert er ráð fyrir að verulegur samdráttur verði í flug- starfsemi og samhliða fólksfækkun. Áherslan hafi fyrir vikið færst yfir á magnframleiðslu í iðnaðarstarfsemi og sjávarútvegi. Önnur sviðsmyndin gengur út á að flutningur á ferskum afurðum með flugi hafi stóraukist. Ekki síst á markaði í Asíu. Samhliða því hafi hafnir á Suðurnesjum tekið að sér að sjá um umskipun á varningi frá Asíu um Norðurskautið. Þriðja sviðsmyndin byggist minna á flugtengdri starfsemi í kjölfar minni vaxtar í ferðaþjónustu og meira á virðisauka í atvinnustarf- semi, uppbyggingu í nýsköpun og öflugu rafrænu samfélagi. Fjórða sviðsmyndin gerir ráð fyrir mikilli tengingu við umheiminn og áherslu á virðisauka í atvinnustarf- semi, uppbyggingu á alls konar starfsemi í kringum Keflavíkurflug- völl, svo sem vegna verslunarrekst- urs og ráðstefnuhalds, og mikilli fjölgun erlendra íbúa á Suðurnesjum sem verði fleiri en innfæddir Suður- nesjamenn. Minnt er á í lok skýrslunnar að ákvarðanir sem teknar séu í dag geti haft áhrif um langa framtíð. Hvatt er ennfremur til þess að skýrslan og sviðsmyndirnar sem dregnar eru upp í henni verði notaðar af sem flestum til þess að máta við stefnur eða viðskiptamódel sín miðað við ólíka framtíðarþróun atvinnulífs á Suðurnesjum. hjortur@mbl.is Möguleg framtíð sett á svið  Fjórar sviðsmyndir lýsa mögulegri framtíðarþróun atvinnulífs á Suðurnesjum  Minnt á að ákvarðanir sem teknar eru í dag geti haft áhrif um langa framtíð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framtíð Miklir framtíðarmögu- leikar eru á Suðurnesjum. Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Kvartbuxur Kr. 8.900 • Str. 36-52 4 litir: Beige, hvítt, svart og dökkblátt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.