Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Pappelina gólfmotta, 70 x 100 cm Verð 12.500 kr. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hægagangur í skipulagskerfinu í Reykjavík hefur tafið mikið fyrir uppbyggingu á Höfðatorgi. Það hefur aftur tafið fyrir afhendingu íbúða með tilheyrandi kostnaði fyrir byggingaraðila og íbúðakaupendur. Þetta segir Pétur Guðmundsson, stjórnarformaður Eyktar, sem telur mikið skorta á að borgin þjónusti viðskiptavini sína. Eykt hafi til dæm- is greitt yfir milljarð í gatnagerðar- gjöld á Höfðatorgi en fengið veru- lega ófullnægjandi þjónustu. Pétur nefnir nokkur dæmi af Höfðatorgi máli sínu til stuðnings. Í fyrsta lagi hafi skipulagsyfirvöld gert kröfur um að sorpgeymslur við Bríetartún 9-11 yrðu ekki neðan- jarðar. Sorphirðan skuli enda vera ofanjarðar. Jafnframt hafi skipu- lagsyfirvöld gert kröfu um að sorpið yrði flokkað til endurvinnslu. Við því hafi Eykt brugðist með því að láta teikna djúpgáma fyrir sorp. Þegar útfærslan lá fyrir hafi fulltrúar borg- arinnar hins vegar gert kröfu um að sorpið skyldi flokkað í sex flokka eða fleiri en áður var krafist. Pétur segir að með því hafi verið gerðar meiri kröfur en nú tíðkast í borginni. Vegna þessa hægagangs hafi fram- kvæmdir við Bríetartún 9-11 tafist um fjóra til sex mánuði. Afhendingu íbúða hafi seinkað sem því nemur en nú á að afhenda þær í janúar og febr- úar. Tók 11 mánuði að fá samþykki Í öðru lagi hafi það tekið borgina 11 mánuði að ganga frá eignaskipta- lýsingu á Bríetartúni 9-11. Lýsingin hafi verið lögð fram í apríl í fyrra og ekki verið samþykkt fyrr en í mars síðastliðnum. Hún bíður enn stað- festingar hjá sýslumanni. Pétur seg- ir þetta hafa tafið mikið fyrir sölu íbúða í húsinu. Afleiðingin sé meðal annars hærri vaxtakostnaður. Eykt geti ekki gengið frá kaupsamningum á íbúðum þótt íbúðir séu fráteknar. Beinn kostnaður sé að minnsta kosti vel á annað hundrað milljónir. Í þriðja lagi hafi Eykt fengið það svar frá byggingarfulltrúa að það rúmaðist innan deiliskipulags að heimila gistileyfi á 38 íbúðum í vesturbyggingu Bríetartúns 9-11. Til aðgreiningar frá venjulegum íbúðum stóð til að leigja fyrstu átta hæðirnar af 12 í byggingunni. Hópur 25 einstaklinga og fjárfesta vildi kaupa þessar íbúðir. „Við töldum þetta samræmast deiliskipulagi. Síðan breytir borgin aðalskipulagi án þess að tilkynna okkur það. Auðvitað fór það í lög- formlegt tilkynningarferli. Þegar heilum reitum er hins vegar breytt, og settar stífari kvaðir, er æskilegra að það sé kynnt mönnum. Slíkt var ekki gert. Eftir þetta áttum við fund með fulltrúa skipulagsins og kynnt- um áform um síðustu bygginguna. Þar getum við byggt íbúðir, sem rúmast innan ramma þess aðal- skipulags sem farið er fram á. Við erum að tala um 100-110 íbúðir.“ Vildi skrifa undir í febrúar Pétur segir þessa breytingu á notkun óbyggða hússins leiða til beins fjártjóns fyrir Eykt. Félagið hafi látið teikna atvinnuhúsnæðið og verið með áhugasama leigutaka. „Það var aðili sem vildi skrifa und- ir leigusamning í febrúar en við frestuðum því vegna anna. Við ætl- uðum að klára allt húsið í lok apríl. Það fellur þá um sjálft sig. Tuga milljóna kostnaður við hönnun er farinn í súginn vegna þess að okkur var ekki gerð grein fyrir þessu nýja aðalskipulagsákvæði um skýlausa kröfu blöndu íbúðar- og atvinnu- húsnæðis á Höfðatorgi. Það er mikil eftirspurn eftir atvinnuhúsnæði. Menn geta alltaf slegist á móti mark- aðnum. Það færist í vöxt að fyrirtæki kjósi að hafa skrifstofur í öðrum sveitarfélögum. Nú síðast fór Tryggingastofnun úr borginni og í Kópavog.“ Vildu breytingu á húsinu Í fjórða lagi hafi Hjálmar Sveins- son, formaður umhverfis- og skipu- lagsráðs, óskað eftir því að lífgað yrði upp á Fosshótelsturninn í Þór- unnartúni 1. Um níu mánuðir voru þá í afhendingu hússins til hótelsins. Forsaga málsins er sú að til stóð að hótelið yrði byggt í sömu hæð og hæsti hluti byggingarinnar er nú. Hótelið er nú 16 hæðir en óskað var eftir að byggja allt að 18 hæðir sem hefðu rúmast innan hæðartak- markana deiliskipulagsins. Hæsti punkturinn er nú lyftuhús. Pétur segir Eykt hafa óskað eftir því að byggja 18 hæðir gegn því að fækka fermetrum í óbyggðum hús- um á Höfðatorgi. Færa hafi átt 600- 700 fermetra til milli byggingarreita. Því hafi hins vegar verið hafnað. Nánast eignaupptaka „Hjálmar sagðist hins vegar tilbú- inn að heimila þetta ef fimm til sex þúsund fermetrar yrðu felldir út á móti. Það hefði verið eignaupptaka. Það hefði nánst þurft að fella út eina byggingu. Þegar hótelið fer að rísa hefur Hjálmar skoðanir á útliti þess og óskar eftir fundi með mér til að ræða hvað sé hægt að gera til að létta á byggingunni. Við hittumst og förum yfir það með arkitektum. Hann óskaði eftir tillögu og við gerð- um teikningar að útsýnishæð sem yrði ofan á 16. hæðinni. Ég sagði að við værum á lokametrunum að steypa húsið og þetta yrði að vinnast hratt. Panta þyrfti nýja víra í lyftur, breyta burðarþoli og svo framvegis. Þetta væri kostnaður sem Eykt myndi ekki leggja út í nema það væri 99% öruggt að farið yrði í málið. Hjálmar telur svo vera og það er far- ið í þetta með miklum hraði. Teikningarnar voru svo sendar ráðgjafarhópi arkitekta á vegum Reykjavíkurborgar sem mælti ein- dregið með þessu. Þegar mig var farið að lengja eftir samþykkt fékk ég símtal frá Hjálmari og hann til- kynnir að það verði ekki af þessu. Það hafi verið óeining innan bygg- ingar- og skipulagsnefndar og hún ekki viljað gera þetta af því að þetta var Höfðatorg. Þar við sat,“ segir Pétur og bendir á að þessi umskipti hafi kostað Eykt tugi milljóna. Þá hafi fulltrúar Fosshótela verið búnir að handsala leigusamning á útsýnis- hæð sem ekki var byggð. „Haustið 2015 birtist viðtal við Hjálmar í Morgunblaðinu. Tilefnið var samþykki fyrir útsýnisbar á nýju hóteli við Hörpu. Þar kom fram hjá honum að eigandinn hefði sótt svolít- ið fast að gera þetta,“ segir Pétur sem telur þetta lýsandi fyrir geð- þótta borgarinnar. Hjálmar vanhæfur í málinu Pétur telur Hjálmar Sveinsson vanhæfan í málum Höfðatorgs. „Ég veit ekki hvort það hefur með það að gera að áður en Hjálmar Sveinsson komst til valda var hann með útvarpsþætti um skipulagsmál í Ríkisútvarpinu. Taldi sig vita mikið um þau. Þar níddi hann niður mörg byggingarverkefni í borginni. Þar á meðal var Höfðatorg sérstakt áhugamál. Hjálmar var síðan með gönguferðir um Reykjavíkurborg og níddi niður ný og fyrirhuguð bygg- ingarverkefni í borginni. Það er mjög sérstakt að svona skuli við- gangast. Ég fór í eina gönguna sem endaði á Höfðatorgi. Þar hellti Hjálmar sér yfir Höfðatorgsverk- efnið, sagði það dæmi um skipulags- slys. Hvernig á svona maður að geta fjallað um málið á eðlilegan hátt þeg- ar hann er orðinn formaður skipu- lagsnefndar? Ég tel hann vanhæfan til að fjalla um Höfðatorg, enda hef- ur það komið berlega í ljós.“ Í fimmta lagi hafi niðurrif á Laugavegi 95-97 tafist um marga mánuði. Framkvæmdin hafi fengið öll tilskilin leyfi og til staðið að byrja að rífa í janúar. Síðan hafi borgin tal- ið að breyta þyrfti deiliskipulagi og það tafið verkefnið um fjóra mánuði. Telur Pétur þetta sérkennilegt í ljósi þess að byggt verður samskonar hús og rifið var og framkvæmdin þegar verið samþykkt. Þetta tefji opnun hótelsins um marga mánuði. Pétur segir allar þessar tafir bitna mest á borginni sjálfri. Hún verði af fasteignagjöldum og öðrum tekjum. Tafirnar auki m.a. vaxtakostnað og leiði til hærra íbúðaverðs. Tafirnar gera íbúðirnar dýrari  Forstjóri Eyktar segir hægagang í skipulagskerfinu í Reykjavík leiða til hærra verðs á íbúðum  Afhending íbúða á Höfðatorgi hafi tafist mikið sem og framkvæmdir við nýtt hótel á Laugavegi Morgunblaðið/Hari Bríetartún 9-11 Miklar tafir hafa orðið á afhendingu 94 íbúða. Morgunblaðið/Hari Laugavegur 95-97 Hefja átti niðurrifið í byrjun árs. Verkið tafðist mikið. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Félagsmenn í Félagi framhaldsskóla- kennara (FF) og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS) samþykktu nýgerðan kjara- samning með yfir- gnæfandi meiri- hluta í atkvæðagreiðslu sem lauk í gær. Alls voru 1.498 á kjörskrá og greiddu 1.043 at- kvæði eða 69,63%. Já sögðu 720 eða 69,03% en 304 sögðu nei, eða 29,15%. Guðríður Arnardóttir, formaður Fé- lags framhaldsskólakennara, er mjög ánægð með afgerandi úrslit kosning- anna. „Þetta var skynsamleg niður- staða hjá félagsmönnum,“ segir hún. „Sjálfsagt hafa félagsmenn hugsað þetta með sama hætti og samninga- nefndin gerði að það væri skynsam- legt að samþykkja stuttan samning með þessum launahækkunum núna,“ segir hún í samtali. Gildistími samningsins er út mars á næsta ári. Launahækkanir skv. honum eru í takt við það sem ríkið hefur samið um að undanförnu við fé- lög BHM eða 4,21%. Skrifað var und- ir kjarasamninginn 21. apríl. 69% í FF/FS sögðu já 69% í FG sögðu nei Félag grunnskólakennara felldi á dögunum kjarasamning sem samn- inganefnd þeirra hafði gert við sveit- arfélögin sem átti líka að gilda til 31. mars á næsta ári, með tæplega 69% atkvæða eða sama hlutfalli atkvæða og samþykkti kjarasamning fram- haldsskólakennara í atkvæðagreiðsl- unni sem lauk kl. 14 í gær. Spurð um þetta segist Guðríður ekkert geta svarað fyrir grunnskóla- samninginn „en við í samninganefnd- inni mæltum með því við félagsmenn að þeir myndu samþykkja þennan samning. Við töldum að lengra yrði ekki komist í þessari lotu. En það verður að halda því til haga að það er enginn hoppandi og hífandi glaður með þessar launahækkanir sem hafa staðið okkur opinberum starfsmönn- um til boða í samhengi við þær hækk- anir sem æðstu stjórnendur bæði hjá ríki og á almennum markaði hafa ver- ið að fá í gegnum ákvarðanir kjara- ráðs og ákvarðanir stjórna fyrirtækja á almennum markaði“, segir Guðríð- ur. „Skynsamleg niðurstaða“  Samþykktu kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta Guðríður Arnardóttir „Þegar við fórum að steypa upp Katrínartún 4 unnum við eftir sam- þykktum teikningum, stimpluðum af byggingarfulltrúa. Við óskuðum eftir úttekt. Síðan mætti úttektar- maður frá byggingarfulltrúa og neitaði að taka út. Það var ekkert að framkvæmdinni. Honum líkaði ekki hönnunin. Við þurftum því að kalla til hönnuði. Síðan bættust við fleiri hæðir. Þá fékkst það svar frá yfirmanni mannsins að hann væri að fara í frí og þá væri hægt að klára málið. Við erum að greiða fyrir þessa þjónustu hjá borginni sem hún er síðan ekki að veita okkur. Við þurftum að greiða aftur fyrir hana hjá hönnuðunum til að sannreyna að allt væri í lagi. Byggingaraðilar sem greiða tugi, eða hundruð milljóna, í þjón- ustugjöld til borgarinnar fá litla sem enga þjónustu,“ segir Pétur. Neitaði að taka út húsið FULLTRÚI VAR ÓSÁTTUR VIÐ ÚTLIT KATRÍNARTÚNS 4 Morgunblaðið/Hari Katrínartún 4 Húsið er rauðlitað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.