Morgunblaðið - 08.05.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 08.05.2018, Síða 13
ríður segir krakkana í skíðafélagi Siglufjarðar leggja sitt af mörkum, þau vinni við mótið, hin ýmsu sjálf- boðastörf. „Þau sjá meðal annars um drykkjarstöðvar fyrir keppendur og standa sína vakt uppi í fjalli. Allir taka þátt í mótinu með einum eða öðrum hætti, bæði foreldrar og iðk- endur. Allur ágóði fer til barna- og unglingastarfsins hjá Skíðafélagi Siglufjarðar, svo þátttakendur leggja góðu málefni lið með því að koma og njóta,“ segir Sigríður og tekur fram að hægt sé að skrá sig á mótið fram á síðustu stundu. Fjör Það er alltaf gaman á Ofurtröllamóti. Sigríður ásamt Rúnari manni sín- um og Agli Inga Jónssyni og Halldóri Hreinssyni frá Fjallakofanum. Ljómynd/Jón Steinar Ragnarsson Á fullu í brekkunni Dóttir Sigríðar og Rúnars, Elísabet Alla, en hún ætlar að vinna við mótið í sjálfboðastarfi eins og annað ungt fólk í Skíðafélaginu. Upp upp mín sál Tómas Guðbjartsson læknir er verndari mótsins, hér alsæll á leiðinni upp á Ofurtröllamóti. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Kristrún Heimisdóttir stýrir fundinum ALDREI AFTUR! - FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA Vilhjálmur Bjarnason fv. alþingismaður Stefán Svavarsson endurskoðandi Andrea Petõ, prófessor í kynjafræði- deild við Central European University í Búdapest í Ungverjalandi, er áttundi og síðasti fyrirlesari í fyrirlestraröð RIKK – Rannsóknastofnunar í jafn- réttisfræðum og Jafnréttisskóla Há- skóla Sameinuðu þjóðanna (UNU- GEST) á vormiss- eri 2018. Fyrir- lestur hennar nefnist Ögrun and- femínískra hreyf- inga við mannrétt- indi og verður fluttur í stofu 23 í Veröld – Húsi Vig- dísar, kl. 12 til 13 í dag, þriðjudaginn 8. maí. Fyrirlest- urinn er á ensku og er öllum opinn. Í fyrirlestrinum kryfur Petõ stöðu andfemínískra hreyfinga í Evrópu og metur áhrif gagnaðgerða framsæk- inna afla. Hún heldur því fram að and- femínískar hreyfingar séu nýtt afl í evrópskum stjórnmálum sem kalli á nýjar aðgerðir og viðbrögð. Ef fram- sækin stjórnmál gleyma uppruna sín- um og gildum, í síkvikri grasrót, dugar ekki að notast við þær aðferðir sem hingað til hafa verið nýttar í jafn- réttispólitík, til að koma í veg fyrir að andfemínistahreyfingar nái yfirhönd- inni, þegar til lengri tíma er litið. Petõ er doktor í vísindum við Ung- versku vísindaakademíuna. Hún er kennari í námskeiðum um evrópska félags- og kynjasögu, kyn og stjórn- mál, kvennahreyfingar, eigindlegar rannsóknaraðferðir, munnlega sögu og Helförina. Þá hefur hún verið gestaprófessor við háskóla í Torontó, Búenos Aires, Stokkhólmi, Frankfurt og fleiri borgum. Síðasti fyrirlestur í fyrirlestraröð RIKK á vormisseri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fróðleikur Í Veröld - Húsi Vigdísar eru oft haldnir fróðlegir fyrirlestrar. Eru andfemínískar hreyfingar afl í evrópskum stjórnmálum? Andrea Petõ Sóla Hólm þekkja flestir landsmenn núorðið, hann er vin- sæll skemmtikraftur og hefur unnið bæði í sjónvarpi og útvarpi. Hann þurfti að draga sig í hlé á síðasta ári vegna veikinda en kemur nú tvíefldur til baka, hefur frá því í febrúar farið sigurför um landið með splunkunýtt uppi- stand. Pilturinn sá er óhræddur við að draga sjálfan sig og aðra sundur og saman í háði og nú geta Selfyssingar og nærsveitamenn notið skemmtunarinnar, því Sóli ætlar að vera með uppistand á Hótel Selfossi á morgun, miðviku- dag 9. maí, kl. 22. Miðasala er á Kaffi Selfossi og á Tix.is. Uppistand á Hótel Selfossi á morgun Sóli Hólm snýr aftur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sóli Hann hefur verið kynnir við ýmis tækifæri. Skráning fer fram á heimasíð- unni www.stsr.is, með því að senda tölvupóst á info@stsr.is eða í síma 899-1193.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.