Morgunblaðið - 08.05.2018, Side 16

Morgunblaðið - 08.05.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Draghálsi 18-26, 110 Reykjavík | Sími: 588 1000 | netsofnun.is Við bjóðum upp á hentugar og infaldar fjáröflunarleiðir fyrir élagasamtök og einstaklinga. þróttafélög • starfsmannafélög • k emendafélög • saumaklúbbar • o. Kíktu á www.netsöfnun.is og kynntu þér möguleikana. e f í n órar fl. Fjáröflun 8. maí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 101.91 102.39 102.15 Sterlingspund 137.92 138.6 138.26 Kanadadalur 79.13 79.59 79.36 Dönsk króna 16.305 16.401 16.353 Norsk króna 12.617 12.691 12.654 Sænsk króna 11.501 11.569 11.535 Svissn. franki 101.44 102.0 101.72 Japanskt jen 0.932 0.9374 0.9347 SDR 145.51 146.37 145.94 Evra 121.46 122.14 121.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.8871 Hrávöruverð Gull 1309.35 ($/únsa) Ál 2315.0 ($/tonn) LME Hráolía 73.74 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri Mannvits, hefur til- kynnt stjórn félags- ins þá ákvörðun sína að láta af störf- um. Sigrún Ragna, sem áður var m.a. forstjóri VÍS, tók við starfinu í desember síðastliðnum. Í stuttri tilkynningu frá Mannviti er haft eftir Sigrúnu að það hafi verið spennandi og áhugavert að koma inn í fyrirtækið og kynnast nýrri atvinnugrein. „Framtíðarsýn mín og lykileigenda fer þó ekki saman og því er best að ljúka þessu nú á sem farsælastan hátt.“ Mannvit er eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði tæknilegrar ráðgjafar og nýsköpunar. Auk aðalskrifstofu í Kópa- vogi rekur Mannvit átta starfsstöðvar hérlendis og skrifstofur í fimm öðrum löndum. Fyrirtækið er að fullu í eigu starfsmanna. Sigrún Ragna lætur af störfum hjá Mannviti Sigrún Ragna Ólafsdóttir STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Jón Ágúst Þorsteinsson forstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Klappa grænna lausna hf., sem framleiðir lausnir fyrir umhverfisstjórnun og var skráð á First North hlutabréfa- markaðinn í september 2017, sagði á fræðslufundi KPMG á dögunum að ef félagið hefði ekki farið á markað hefði vöxtur þess orðið einungis 0-10% á milli ára, í stað 70% eins og reyndin hefur orðið. Jón Ágúst sagði að útrás væri haf- in hjá félaginu, með sölu á vörum til Litháen, og skráning félagsins léki þar stórt hlutverk. Hún þýddi að félagið væri tekið alvarlega á erlend- um mörkuðum. „Það styrkir ímynd félagsins að vera skráð, og það fær yfirbragð trausts félags á norrænum mörkuðum,“ sagði Jón. Mælir með skiptingu bréfa Á fundinum mælti hann með því fyrir vaxtarfyrirtæki í svipaðri stöðu að skipta hlutabréfum við skráningu í A og B bréf. A bréf Klappa væru þannig í eigu frumkvöðlanna, sem réðu för í fyrirtækinu, en B bréfin væru skráð á markað. Þetta fyrir- komulag veitti ákveðna minnihluta- vernd, og kæmi í veg fyrir yfirtöku. Á fundinum ræddi Páll Harðarson forstjóri kauphallarinnar almennt um First North markaðinn, og sagði að hér á landi þyrftu menn að hugsa þann markað alveg upp á nýtt, enda gæfi hann mikla möguleika og væri mikið notaður í Evrópu. Hann sagði að eftir fyrirhuguð kaup Iceland Seafood á Solo Seafood ehf. þá væru samtals þrjú íslensk fyrirtæki á meðal 20 stærstu fyrir- tækja á First North í Evrópu. Hin eru Kvika banki og Hampiðjan. Hann sagði að í Evrópu væru ein- staklingar drífandi kraftur á bak við fjárfestingar á First North. „Meðal- hlutafjárútboð á First North er 6-700 milljónir íslenskra króna. Minnsta út- boðið var 150 milljónir króna en það stærsta sex milljarðar.“ Páll sagði að fyrirtækin nýttu svo markaðinn í framhaldinu til að sækja sér aukið hlutafé. „Hér er lítill gaum- ur gefinn að þessu hlutverki mark- aðarins. Skráning á markað á ekki að vera endastöð.“ 70% undir fimm milljörðum Páll varpaði fram ýmissi áhuga- verðri tölfræði um First North mark- aðinn í Evrópu á fundinum. Þannig kom fram í máli hans að um 70% fyr- irtækja á markaðnum væru með markaðsvirði undir fimm milljörðum íslenskra króna. Þá var nærri helm- ingur fyrirtækja sem komu ný inn á First North árið 2017 með innan við 100 milljónir í tekjur. „14-15 fyrir- tæki höfðu engar tekjur.“ Hann sagði að 70% nýskráðra fyr- irtækja á markaðnum árið 2017 hefðu verið rekin með tapi. „Það er allt í lagi, því markaðurinn á að hjálpa til við að snúa tapi í hagnað, hann á að gefa fyrirtækjunum vængi.“ Þá sagði Páll að miðgildi fjölda starfsmanna nýrra fyrirtækja árið 2017 hefði verið 19. Páll birti að lokum spá sína um þróun First North markaðarins, en þar kom fram að búast mætti við 2-4 nýjum fyrirtækjum á ári á markaðinn hér á Íslandi. Þau mundu þar afla 2-4 milljarða króna í hlutafé í frum- útboðum árlega. Að auki yrði 5-10 milljarða aflað árlega með útgáfu nýs hlutafjár þegar skráðra fyrirtækja. Þá spáði hann því að 20 fyrirtæki yrðu skráð á First North hér á landi að fimm árum liðnum, en í dag eru þau fimm talsins. Hraðari vöxtur vegna skráningar á First North Morgunblaðið/Kristinn First North Vöxtur Klappa var 70% milli ára eftir skráningu, í stað 0-10%. Klappir og First North » First North er fyrir vaxtar- fyrirtæki í Evrópu. » Klappir voru með 210 millj- ónir króna í tekjur í fyrra og -12% EBITDA. » Fyrirtæki í viðskiptum við þá hafa náð 12,3% orkusparnaði. » Viðskiptavinir eru 150, not- endur 1.500 og hluthafar 328. » Eigið fé 259 mkr. » 64 fyrirtæki í Evrópu hafa á þessum áratug flust frá First North yfir á aðallista.  Þrjú íslensk fyrirtæki á meðal 20 stærstu á First North mörkuðum í Evrópu Lán lífeyrissjóða til heimila námu 350 milljörðum króna í lok þriðja ársfjórðungs, samkvæmt nýjum tölum á vef Seðlabanka Íslands. Sjóðfélagalán stóðu í 329 milljörð- um króna um áramótin og því nemur vöxtur útistandandi lána til heimila 21 milljarði króna á fyrsta fjórðungi ársins. Alls námu ný útlán lífeyrissjóð- anna 12 milljörðum króna í mars. Þar af voru verðtryggð lán 8,9 milljarðar króna. Ný útlán lífeyr- issjóðanna á fyrsta fjórðungi árs- ins námu samtals 33 milljörðum króna. Þar af voru 25,2 milljarðar króna í verðtryggðum lánum. Fjárhæð nýrra útlána lífeyrissjóð- anna á fyrstu þremur mánuðum ársins er um tveimur milljörðum hærri en á fyrsta ársfjórðungi 2017. Alls veittu lífeyrissjóðirnir 579 lán í mars. Samkvæmt því var meðalfjárhæð lána í þeim mánuði um 20,7 milljónir króna. Meðal- lánsfjárhæð á fyrsta ársfjóðungi var 20,2 milljónir króna . Sjóðfélagalán 350 milljarðar Farþegar Icelandair í apríl voru 268 þúsund og fækkaði þeim um 2% frá aprílmánuði í fyrra. Sætanýting var 77,2% í mánuðinum, en til saman- burðar var sætanýting 82,6% í apríl í fyrra. Í tilkynningu Icelandair Group til Kauphallar kemur fram að farþegum félagsins hafi fjölgað á N- Atlantshafsmarkaðinum á milli ára en fækkað á ferðamannamarkaðin- um til Íslands og heimamarkaðinum frá Íslandi. Tekið er fram að á árinu 2017 voru páskar í apríl en í mars í ár og hafi það áhrif á samanburð á milli ára. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru millilanda- farþegar Iceland- air tæplega 928 þúsund, sem er um tvö þúsund færri farþegar en á sama tímabili í fyrra. Á sama tíma hefur fram- boðnum sætis- kílómetrum fjölg- að um 5%. Sætanýting var 76,7% fyrstu fjóra mánuði ársins en til samanburðar var nýtingin 78,9% í þessum hluta ársins í fyrra. Sætanýting 77% hjá Icelandair í apríl Flug Farþegum fækkaði í apríl.  Farþegafjöldi helst nær óbreyttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.