Morgunblaðið - 08.05.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti til-
kynnti í gærkvöldi á Twitter að hann
hygðist kynna ákvörðun sína í dag,
þriðjudag, um það hvort Bandaríkin
styðji við kjarnorkusamkomulagið
sem gert var árið 2015 við Íran eða
hvort hann muni draga landið út úr
því. Trump hefur verið mjög gagn-
rýninn á samkomulagið og meðal
annars sagt það eitt hið versta sem
Bandaríkin hafi nokkurn tímann átt
þátt í.
Helstu bandamenn Bandaríkj-
anna, Bretar og Frakkar, sem hvorir
tveggja eru aðilar að samkomulag-
inu, hafa hvatt Trump til að standa
við það þar sem aðrir kostir í boði
séu ekki fýsilegir til þess að koma
böndum á kjarnorkuvopnaáætlanir
Írana. Boris Johnson, utanríkisráð-
herra Breta, fór í sérstaka heimsókn
til Washington, höfuðborgar Banda-
ríkjanna, í gær til þess að freista
þess að telja ráðamenn þar á að
styðja við samkomulagið. Fundaði
Johnson með Mike Pompeo, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, og Mike
Pence varaforseta, auk þess sem
hann mætti í spjallþáttinn „Fox and
friends“, sem Trump fylgist víst
grannt með, til þess að tala máli sam-
komulagsins.
Fyrr um daginn hafði Hassan
Rouhani, forseti Írans, sagt að Ír-
anar myndu styðja við samkomulag-
ið, jafnvel þó að Bandaríkin drægju
sig frá því, en bara ef hin aðildarríkin
ákvæðu að halda sig einnig við það.
Sagði Rouhani ennfremur að Banda-
ríkin myndu tapa mest á því ef
Trump ákvæði að slíta samkomulag-
inu.
Kynnir ákvörðun sína í dag
Boris Johnson, utanríkisráðherra Breta, hvetur Bandaríkin til að styðja við
kjarnorkusamkomulagið Rouhani segir að Bandaríkin muni tapa mestu
AFP
Bandamenn Þeir Boris Johnson og
Mike Pompeo ræddu saman um
kjarnorkusamkomulagið í gær.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti sést hér halda til sér-
stakrar messu í Kreml eftir að hann sór embættiseið
sinn í fjórða sinn í gær. „Ég lít á það sem skyldu mína
og markmið lífs míns að gera allt mögulegt fyrir Rúss-
land, fyrir nútíð þess og framtíð,“ sagði Pútín í ræðu
sinni við embættistökuna, en á meðal gesta voru hasar-
myndaleikarinn Steven Seagal, sem nú hefur rúss-
neskan ríkisborgararétt, Gerhard Schröder, fyrrver-
andi kanslari Þýskalands og Naina Jeltsína, ekkja
Borisar Jeltsín, fyrrverandi Rússlandsforseta.
AFP
Til fundar við hið geistlega vald
Peter Madsen,
uppfinningamað-
urinn sem dæmd-
ur var í lífstíðar-
fangelsi fyrir
morðið á sænsku
blaðakonunni
Kim Wall, áfrýj-
aði í gær lengd
dómsins. Hann
ákvað hins vegar
ekki að áfrýja
sakfellingunni fyrir morðið.
Héraðsdómstóll í Kaupmanna-
höfn sakfelldi Madsen hinn 25. apríl
síðastliðinn fyrir að hafa myrt Wall,
bútað lík hennar í sundur og varpað
í sjóinn í ágúst síðastliðnum, en
Wall var að taka viðtal við Madsen
vegna kafbáts sem hann hafði smíð-
að. Madsen hélt því fram að andlát
Walls hefði ekki borið að með sak-
næmum hætti, en játaði að hafa
reynt að dylja afdrif hennar. Dóm-
stóllinn taldi hins vegar sannað,
þrátt fyrir skort á vitnum, að hann
hefði myrt hana.
Madsen áfrýjar
lengd dómsins
Peter
Madsen
DANMÖRK
Mike Pence,
varaforseti
Bandaríkjanna,
kynnti í gær nýj-
ar refsiaðgerðir
landsins gegn
stjórnvöldum í
Venesúela. Auk
þess kallaði
Pence eftir því
að forsetakosn-
ingunum, sem
fara eiga fram 20. maí næstkom-
andi yrði frestað, þar sem þær
væru í raun „falskar“. Stjórnarand-
staðan hyggst sniðganga kosning-
arnar.
Pence kynnti þetta á fundi sam-
taka Ameríkuríkja, OAS, í Wash-
ington, en þar kom einnig fram að
refsiaðgerðirnar gegn Venesúela
tengdust þátttöku stjórnvalda þar í
flutningi og sölu fíkniefna, en ýmsir
af bakhjörlum Nicolas Maduros,
forseta Venesúela, eru sagðir hafa
tengsl inn í slík viðskipti.
Bandaríkin kynna
nýjar refsiaðgerðir
Mike
Pence
VENESÚELA
Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu í
gær að stærsta bólusetningar-
herferð sögunnar gegn kóleru væri
hafin í Afríku, en henni er ætlað að
hamla útbreiðslu sjúkdómsins víðs-
vegar um álfuna.
Stefnt er að því að meira en
tvær milljónir manna muni fá bólu-
efni gegn kóleru í fimm ríkjum
Afríku; Malaví, Nígeríu, Suður-
Súdan, Úganda og Sambíu, og er
stefnt að því að dreifingu efnisins
verði lokið um miðjan júní.
Að minnsta kosti 12 ríki Afríku
glíma nú við kólerufaraldur, en
sjúkdómurinn herjar á á bilinu
1,3-4 milljónir manna á hverju ári
og drepur 21.000-143.000 manns,
einkum í þróunarríkjum.
Þá var einnig tilkynnt að áþekk
herferð væri hafin í Jemen, en
meira en 2.200 manns hafa látist
úr kóleru þar á síðustu 12 mán-
uðum.
Stærsta her-
ferðin gegn
kóleru hafin
Um tvær millj-
ónir fá bóluefni
Andrej Babis, forsætisráðherra
Tékklands, hafnaði í gær staðhæf-
ingum Milos Zemans, forseta
landsins, um að Tékkar hefðu
framleitt Novichok-taugaeitrið
sem sagt er að hafi verið notað í
banatilræðinu við rússneska njósn-
arann Sergeij Skrípal og dóttur
hans í enska bænum Salisbury í
mars síðastliðnum.
Zeman vakti töluverða athygli
fyrir helgi þegar hann hélt því
fram að land sitt hefði framleitt
Novichok, en áður höfðu Rússar
sakað Tékka um að hafa framleitt
efnin sem notuð voru í tilræðinu í
Bretlandi.
„Tékkland hefur aldrei fram-
leitt, þróað eða geymt nokkurt efni
af Novichok-gerð,“ sagði Babis á
twittersíðu sinni í gær og vísaði í
njósnaskýrslur bæði tékknesku
leyniþjónustunnar og hersins máli
sínu til stuðnings.
Í sérstakri tilkynningu frá for-
sætisráðuneyti landsins var enn-
fremur tekið fram að landið hefði
framleitt smáan skammt af Novi-
chok A-230 árið 2017 til þess að
þróa varnir gegn því. Efninu hefði
síðan verið eytt þegar í stað. Tekið
var sérstaklega fram að slíkt væri
ekki talið „framleiðsla“ á efna-
vopnum, auk þess sem efnið sem
notað var í árásinni í Salisbury
hefði verið af gerðinni A-234.
Zeman sagði á föstudaginn að
Novichok hefði verið framleitt og
prófað í Tékklandi. Ráðamenn í
Rússlandi fögnuðu orðum Zemans
og sögðu þau staðfesta sakleysi
Rússlands í málinu en tékkneskir
stjórnmálamenn gagnrýndu flestir
Zeman harkalega og sökuðu hann
um að vera „Moskvuagent“.
Hafnaði orðum
forsetans
Segir Tékka
ekki hafa framleitt
Novichok
AFP
Salisbury Talsverður viðbúnaður
var í Salisbury eftir árásina í mars
síðastliðnum, en deilt er um hvaðan
efnið sem notað var er upprunnið.
Nýjar glæsilegar
sumarvörur
• Bolir
• Kjólar
• Túnikur
• Stuttbuxur
• Kvartbuxur
• Leggings
• Jakkar
• Vesti
• Peysur
Vinsælu bómullar- og velúrgallarnir til
í mörgum litum og í stærðum S-4XL
Verið velkomin
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170