Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.05.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 Goðafoss Ferðalangar taka mynd af sér við Goðafoss í Skjálfandafljóti. Samkvæmt þjóðsögum varpaði Þorgeir Ljósvetningagoði goðalíkneskjum sínum í Goðafoss eftir að hann tók kristni. Hari Á ferðum okkar í kosningabaráttunni höfum við frambjóð- endur Miðflokksins séð margt sem hefur komið mjög á óvart. Á meðan verið er að byggja glæsibygg- ingar í 101 og þess freistað að fylla þær af dýrustu merkja- vöru heims eru aðrir hlutar borgarinnar ekki eins flóð- lýstir og glæsilegir. Reykjavík er höfuðborg landsins og ber hún sem slík miklar skyld- ur gagnvart öllum íbúum þessa lands háum sem lágum. Höfuðborgarvandamál eru þekkt í öllum ríkjum heims. Líka í velferðarríkjum. Oftast við- urkenna stjórnvöld ekki vandann og láta eins og hann sé ekki til. Versta birtingamynd þessa í Reykjavík er líklega sú staðreynd að heimilislaus kona svaf í kjallara ráðhússins, musteri borgarinnar, í marga mánuði án þess að þeir sem borginni stjórna gerðu neitt í mál- unum. Hundruð eru óstaðsett í hús í Reykjavík, þ.e. þeir sem ekki eru með skráð lögheimili, og fjölg- un þeirra er hröð. Það verður að fara í meiriháttar átak til að koma fólki í húsaskjól. Sumir hafa að- stöðu í Laugardalnum, sumir halla höfði sínu í Gistiskýlinu, Samhjálp rekur áfangaheimili, aðrir sofa í bílunum sínum. Þegar þessi mál eru rædd þá er oftast sagt sem svo að þessum hópi sé ekki hægt að hjálpa vegna neyslu ýmiss konar vímuefna. Það er rangt, sumir í þessum hópi stunda atvinnu, aðrir eru öryrkjar. Þessi hópur á það sameiginlegt að hafa ekki ráð á því að eiga eða leigja húsnæði. Sumir misstu hús- næðið sitt árin eftir bankahrunið. Þetta er fólk eins og við öll og á við tímabundna erfiðleika að stríða. Er þetta sú velferð sem við viljum sjá? Er þetta boðlegt í okkar ríka landi? Er þetta mannúðin sem talað er um á hátíð- arstundum? Við í Miðflokknum viðurkennum aukið vandamál vegna vímuefnaneyslu og fjölgun heim- ilislausra og ætlum að beita okkur í bar- áttunni gegn þessu þjóðfélags- meini. Við ætlum að beita okkur fyrir því að Reykjavíkurborg óski eftir samstarfi við SÁÁ og aðra fagaðila í samráði við ríkið og önnur sveitarfélög til að vinna bug á þessu vandamáli. Við ætl- um að koma á fót virkniúrræði fyrir einstaklinga sem eru að koma inn í samfélagið á nýjan leik að lokinni meðferð eða betr- unarvist og finna varanlegra lausn í málefnum heimilislausra og útigangsfólks í samstarfi við fagaðila og félagasamtök. Lykill- inn að því að koma þessum mál- um í lag er að byggja upp fé- lagslegt húsnæði og leggja til bráðalausnir í húsnæðismálum. Að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft er besta lækningin í lífi þeirra sem eiga í þeim tíma- bundnu vandamálum sem að ofan greinir. Miðflokkurinn ætlar að taka til í þessum málaflokki. Eftir Vigdísi Hauksdóttur »Heimilislaus kona svaf í kjallara ráð- hússins, musteri borg- arinnar, í marga mánuði án þess að þeir sem borginni stjórna gerðu neitt í málunum. Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og er borgarstjóraefni Miðflokksins. Er velferð í Reykjavík? Notkun ýmiss konar öryggisbúnaðar er fyr- ir löngu orðinn sjálf- sagður í umferðinni. Við spennum beltið án umhugsunar og kom- um börnum kirfilega fyrir í sérstökum bíl- stólum. Stjórnvöld leggja mikið upp úr umferðarfræðslu og eftirliti. Alvarleg um- ferðaratvik fá mikla at- hygli, vekja óhug og hafa forvarn- argildi. Það truflar okkur ekki tilfinnanlega þó að kostnaður við ein mislæg gatnamót sé um milljarður króna. Við notum öryggishjálma í leik og starfi. Enginn vefengir þörf fyrir bætt umferðaröryggi og aldrei virðist nóg gert. Þetta var ekki alltaf svona. Mín kynslóð man vel þá tíma að börn voru laus í bílum og notkun öryggis- belta þótti óþarfa taugaveiklun. Fáir notuðu öryggishjálm á hjóli eða skíð- um. Öryggisvitund og viðbúnaður okkar í umferðinni hefur aukist til muna sem betur fer. Við eru í miðri nettæknibyltingin sem sér ekki fyrir endann á. Á heim- ilum, vinnustöðum og í umferðinni er þegar fjöldi nettengdra tækja og fer fjölgandi. Flest göngum við með öfluga nettengda tölvu í vasanum. Hraðinn eykst og öppin eru ótelj- andi. Margt freistar og frelsið á net- inu er heillandi. Nettengd snjalltæki verða stöðugt mikilvægari í lífi okk- ar. Margt bendir hins vegar til þess að öryggisvitund og viðbúnaði okkar í net-umferðinni sé verulega ábóta- vant. Við Íslendingar búum almennt við góðar nettengingar. Markmið stjórnvalda til skamms tíma er að 99,9% landsmanna hafið aðgang að a.m.k. 100 Mb. nettengingu. Það er metnaðarfullt og eftirsóknarvert. Færir landinu mikil sóknarfæri og lífsgæði. En það er ekki bara nóg að komast hratt á netinu. Við verðum að geta treyst því að í upplýsinga- og sam- skiptakerfum á netinu séu mannréttindi, per- sónuvernd og athafna- frelsi í heiðri höfð. Áreiðanleg og örugg upplýsingatækni er ein meginstoð hagsældar á Íslandi, studd af örygg- ismenningu og traustri löggjöf. Samfélagið þarf því að vera vel bú- ið á hverjum tíma til að sporna við netglæpum, árásum, njósnum og misnotkun persónu- og viðskipta- upplýsinga. Almenn þekking almennings á því hvaða aðilar sjá spor okkar á netinu og hvernig hægt er að misnota slíkar upplýsingar þarf að aukast. Hvernig minnkum við líkur á að óvandaðir aðilar komast „inn“ til okkar, róti í dótinu okkar við hentugleik, skemmi og selji jafnvel? Grunninnviðir samfélagsins eru hér einnig undir svo sem fjar- skiptakerfin sjálf, raforkukerfið og önnur veitukerfi, samgöngukerfi, fjármálastarfsemi, heilbrigð- isstarfsemi og stjórnsýslan. Þörf er á samstilltu landsátaki Efla þarf almenning, fyrirtæki, stofnanir og stjórnvöld hvað varðar vitund, þekkingu og getu til að halda hvers konar netógnum í skefjum. Bæta þarf getu til greiningar, við- búnaðar og viðbragða sem eru lyk- ilþættir í bættu áfallaþoli. Hin löndin á Norðurlöndum eru töluvert lengra komin. Net- og upplýsingaöryggi þarf að vera samofinn þáttur í þróun og viðhaldi mikilvægra net- og upp- lýsingakerfa. Íslensk löggjöf þarf að endur- spegla alþjóðlegar kröfur og skuld- bindingar á sviði netöryggis og per- sónuverndar á hverjum tíma. Löggjöfin þarf jafnframt að styðja við nýsköpun og uppbyggingu þjón- ustu sem byggist á öruggum gagna- tengingum innanlands og til útlanda. Netöryggissveitin hóf störf 2013. Markmiðið með starfsemi sveit- arinnar er að fyrirbyggja og draga úr hættu á netárásum og öðrum ör- yggisatvikum og sporna við og lág- marka tjón af þeim sökum á ómiss- andi upplýsingainnviði samfélagsins. Efla og útvíkka þarf starfsemi sveit- arinnar án mikillar tafar. Opinberri stefnu og aðgerðaáætl- un í net- og upplýsingarörygg- ismálum frá 2015 fylgdu ekki fjár- munir. Framkvæmdin ber þess merki. Fjármunir í málaflokkinn eru heldur ekki sjáanlegir í drögum að ríkisfjármálaáætlun 2019-2023. Hvernig ætlum við sem samfélag að hrinda í framkvæmd endurnýjaðri stefnu og heildarlöggjöf í mála- flokknum sem nú er langt komin í smíðum? Oxford-háskóli vann nýverið stöðugreiningu um net- og upplýsingaöryggismál fyrir íslensk stjórnvöld. Þar eru taldar upp 120 mismunandi úrbætur á þessu sviði. Hvernig viljum við að stíga inn í það umbótastarf? Tryggja þarf fjárveitingar í mála- flokkinn þannig að styrkur verði til að huga að ógnum, greiða fyrir upp- lýsingum, efla samvinnu og leið- beina. Þekking og fræðsla er jafn- framt nauðsynleg til að gera líf okkar allra betra og öruggara. Alþingi má ekki sofna á verðinum og gefa því ekki gaum að í fjár- málaáætlun sem nú er þar til með- ferðar er lítil áhersla á net- og upp- lýsingaöryggismál. Enn er lag að breyta. Eftir Harald Benediktsson » Alþingi má ekki sofna á verðinum og gefa því ekki gaum að í fjármálaáætlun sem nú er þar til meðferðar er lítil áhersla á net- og upplýsingaöryggismál. Enn er lag að breyta. Höfundur er alþingismaður. Spennum beltin í net-umferðinni Haraldur Benediktsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.