Morgunblaðið - 08.05.2018, Page 20

Morgunblaðið - 08.05.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018 „Þetta reddast“ er frasi sem við Íslend- ingar eigum í skrýtnu sambandi við. Stund- um erum við mjög ánægð með þá heim- spekilegu hugsun sem kemur fram í fras- anum. Vísum til þess að við séum bjartsýn og ráðumst í verkefni í stað þess að mikla þau um of fyrir okkur. Að hlutir hafi tilhneigingu til að reddast gæti líka verið afsprengi þeirrar hugsunar að við búum í mikilli ná- lægð við oft á tíðum óblíð náttúruöfl en mætum þeim gallvösk þegar á reynir. Á hinn bóginn heyrist stundum að „Þetta reddast“ lýsi því hugarfari að við sjáum minni hvata en ella í að undirbúa það sem þarf að undirbúa. Séum jafnvel ekki best í heimi að gera langtímaáætlanir og sjáum e.t.v. takmarkaða ástæðu til að fara eftir slíkum áætlunum. Í umhverfismálum er aftur á móti gerð mikil krafa um fram- sýni, enda hafa ákvarð- anir sem við tökum í dag mikil áhrif á fram- tíðina. Gott dæmi úr fortíð okkar er hita- veituvæðing landsins sem hefur skilað þjóðarbúinu miklum sparnaði, lífsgæðum og þeirri staðreynd að við erum á toppi lista þjóða í heiminum sem nýta endurnýjanlega orku. Þannig hafa margar ákvarðanir dagsins í dag áhrif til lengri tíma, ýmist til góðs eða ills. Það krefst langtímaáætlunargerðar að berjast gegn skaðlegum loftslagsbreyt- ingum, þar duga engar reddingar. Nú liggur fyrir að við munum ekki ná að standa við Kýóto II skuldbind- ingar okkar. Við þurfum að endur- skoða eigin neyslu og þannig getum við dregið nægilega úr losun til að ná markmiðum. Til langframa felast lausnir á loftslagsvandanum því ekki í óbreyttri hegðun eða einungis stór- tækum bindingaraðgerðum í skóg- rækt eða votlendi. Aukin binding er vissulega liður í því að stefna að kol- efnishlutleysi en meginskuldbinding Íslendinga felst í því að draga úr neyslu og draga úr losun. Til að draga úr neyslunni og breyta henni þurfum við að breyta okkar hugsun. Við þurfum að vinna gegn sóun og huga betur að úrgangsmálum. Fjöruhreinsun ætti að vera óþörf innan tíðar. Best væri ef hægt yrði að nýta frumkvæðiskraft almenn- ings, t.d. „plokkarana“ góðu, til fleiri þarfra verka en hreinsa upp rusl eft- ir aðra. Ekkert reddast – af sjálfu sér. Þetta reddast – en ekki af sjálfu sér Eftir Kristínu Lindu Árnadóttur » „Þetta reddast“ er frasi sem við Íslendingar eigum í skrýtnu sambandi við. Kristín Linda Árnadóttir Höfundur er forstjóri Umhverfisstofnunar. Föstudaginn 11. maí verður eitt ár liðið frá andláti móður minnar, Jóhönnu Kristjóns- dóttur. Mamma var baráttukona fyrir betri heimi, og hún lét svo sannarlega verkin tala. Hún og félagar söfn- uðu milljónum í Fa- timusjóðinn, sem runnu óskertar til barna og kvenna, jafnt í Afríku sem Mið- Austurlöndum. Mamma var einn víðförulasti Íslend- ingur sinnar kynslóðar og opnaði okkur innsýn í framandi heima. Af öllum þeim löndum sem mamma heimsótti var Jemen í uppáhaldi, þetta bláfátæka arabaland; sem síð- ustu ár hefur verið að blæða út í hryllilegu stríði. Milljónir líða hung- ur, farsóttir geisa, sprengjur falla. Mamma lét verkin tala og í henn- ar minningu ætla ég að tefla skák- maraþon 11. og 12. maí í Pakkhúsi Hróksins við Reykjavíkurhöfn. Ég ætla að freista þess að tefla allt að 250 skákir, og safna áheitum og framlögum í þágu UNICEF og Fa- timusjóðsins. Söfnun minni fylgir enginn kostnaður, og hver króna fer í brýna neyðarhjálp. Ég vona að sem flestir leggi leið sína í Pakkhúsið þessa daga. Þótt til- efnið sé alvarlegt er full ástæða til að gleðjast saman og minnast konu sem hafði að sínum kjör- orðum: Til lífs og til gleði! Ef þið hafið tök á að senda sms-ið JEMEN í númer 1900 hjá UNI- CEF millifærast 1.900 krónur. Svo er líka hægt að leggja beint inn á Fatimusjóðinn: Reikningsnúmer: 0512-04-250461 Kennitala: 680808-0580 Fyrirtæki, einstaklingar og félög sem vilja heita á mig eru beðin um að senda mér tölvupóst í hrafnjokuls@hotmail.com. Til lífs og til gleði Eftir Hrafn Jökulsson Hrafn Jökulsson »Mamma var baráttukona fyrir betri heimi og hún lét svo sannarlega verkin tala. Hrafn Jökulsson er forseti Hróksins og hefur unnið með Rauða krossinum á Íslandi og Grænlandi, UNICEF á Íslandi, Barnaheillum, SOS- barnaþorpum, Hjálparstarfi kirkj- unnar og fleiri samtökum. Safnanir á vegum Hróksins eru ávallt skipulagð- ar þannig að ekki króna fari í kostnað. Morgunblaðið/Ómar Jemen Milljónir líða hungur, farsóttir geisa, sprengjur falla. Víðförul Jóhanna Kristjónsdóttir opnaði Íslendingum innsýn í framandi heima. Skóli án aðgrein- ingar er það skólakerfi sem boðið hefur verið upp á síðustu áratugi. Fyrirkomulagið hefur ekki gengið upp. Til þess að svo hefði mátt vera hefði styrkur til skólanna þurft að vera meiri. Nauðsynlegt hefði verið að hafa fleiri þroskaþjálfa, tal- meinafræðinga, sálfræðinga og ann- að aðstoðarfólk til að styðja við kennara og þá nemendur sem þarfn- ast sérúrræða og kennslu aðlagaða að sínum þörfum. Flokkur fólksins vill mæta náms- þörfum allra barna án tillits til færni þeirra og getu. Við viljum að sértæk- um, fjölbreyttum skólaúrræðum verði fjölgað til að hægt sé að sinna nem- endum sem þarfnast sérúrræða þegar al- mennur hverfisskóli hentar ekki. Foreldrar þekkja börnin sín best. Við viljum að foreldrar hafi val um skóla með eða án aðgreiningar fyrir börn sín. Mark- miðið er að þörfum allra barna verði mætt. Það er ekki hægt að setja alla undir sama hatt. Börn eru eins misjöfn og þau eru mörg. Stundum tekst að aðlaga nemendur sem glíma við vitsmu- nafrávik eða hegðunarvanda vel að jafnöldrum sínum og jafnaldrana að þeim. Í sumum tilfellum hefur einnig tekist að aðlaga skólahúsnæðið að nemandanum en í öðrum tilfellum hefur það ekki tekist svo fullnægj- andi sé. Aftur á móti ef þroski barns er mörgum árum frá jafnöldrum breikkar bilið því eldri sem nem- endur verða. Þá er hætta á að nem- andinn einangrist jafnvel þótt hann sé með stuðningsfulltrúa og sam- nemendur duglegir og góðir við hann. Nemendur með mikla þroska- hömlun eru fljótir að skynja ef þeir eru ekki meðal jafningja. Réttur allra barna er að fá að stunda nám og leik meðal jafningja sinna þar sem þau geta upplifað sig félagslega og námslega sterk. Flokkur fólksins vill að allir nem- endur geti stundað nám á eigin for- sendum og að þeir geti notið styrk- leika sinna. Ávallt þarf að hugsa fyrst um félagslegan þátt nemenda þegar velja á skólaúrræði. Annars mun barninu líða illa félagslega og getur þá síður nýtt getu sína að fullu. Börn sem eru með alvarlegan hegðunarvanda eiga ekki alltaf kost á að vera í almennum skóla, t.d. í þeim tilvikum þar sem hætta er á að þeir skaði sig eða aðra nemendur. Flokkur fólksins vill að fleiri úr- ræði en nú eru til staðar standi börn- um með þroskafrávik eða djúp- stæðan hegðunarvanda til boða í Reykjavík. Þjónustan þarf að vera heildstæð. Með heildstæðri skóla- þjónustu er átt við að hún sé veitt alla virka daga ársins, skóli sem og frístund ásamt annarri íhlutun, s.s. sálfræðiþjónustu, tal-, iðju- og sjúkraþjálfun. Í úrræði sem þessu er staða hvers nemanda metin og útbú- in einstaklingsnámskrá í samvinnu við foreldra. Farsæl skólaganga byggist á því að barninu líði vel í skólanum, hlakki til að fara í skólann, njóti veru sinnar þar og komi ánægt heim. Eins og staðan er núna líður mörgum börn- um illa. Þessi börn eru kvíðin og óör- ugg. Sum börn eru komin á þann stað að þau einfaldlega neita að fara í skólann. Flokkur fólksins gerir þá sjálf- sögðu kröfu til samfélags okkar í borginni og um land allt að öllum börnum séu skapaðar skólaaðstæður og úrræði við hæfi svo þau geti glöð og róleg stundað nám og leik við jafnaldra sína á eigin forsendum. Réttur til að stunda nám meðal jafningja Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur » Farsæl skólaganga byggist á því að barninu líði vel í skól- anum, hlakki til að fara í skólann, njóti veru sinn- ar þar og komi ánægt heim. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur skipar 1. sæti Flokks fólks- ins í Reykjavík. Borg er rammi um mannfélag, og höf- uðborg þarf að vera heimahöfn heillar þjóð- ar og þeirra sem sækja hana heim. Þar þurfa íbúar og gestir að hafa aðgang að þjónustu og nauðsynlegum inn- viðum, en jafnframt er þeim nauðsynlegt að geta auðveldlega nálg- ast þá afþreyingu og hugarfarslegu ögrun sem fólgin er í menningu og listum. Á því sviði hefur margt verið ákaflega vel gert í Reykjavík á und- anförnum árum og það er afar mikils vert að halda því góða starfi áfram og helst efla það. Það viljum við í Samfylkingunni gjarna gera í ljúfu samstarfi við alla þá aðila sem yrkja menningarakurinn. Margir hafa þá samfélagslegu sýn að yfirvöld eigi sem minnst að koma að menningarmálum; þar eigi að fást við það eitt sem stendur undir sér eða nýtur náðar hjá einkafyrir- tækjum. Sjálfur er ég þeirrar skoð- unar að yfirvöld gegni mikilvægu hlutverki í því að skapa vettvang fyr- ir listiðkun og aðra menningar- starfsemi enda fegrar slíkt mannlífið og gefur af sér margvíslegan arð. Menningarstarfið göfg- ar okkur; gerir borgina okkar bæði athyglis- verðari og skemmti- legri en ella væri. Tónlistarborgin Reykjavík iðar af lífi allan ársins hring, þar sem hjartað slær í fal- legu Hörpu sem skilar hagnaði, sem ekki verður einungis mæld- ur í krónum og aurum. Myndlistarborgin Reykjavík hefur einnig upp á fjöldamargt að bjóða og starf- semi safna á því sviði er öflug. Í sjón- máli er uppbygging í Gufunesi sem setur Reykjavík enn rækilegar á kortið sem kvikmyndaborg. Leiklist- arborg er Reykjavík líka að sönnu; með öflug atvinnuleikhús og frjóa grasrót. Sjálfur þekki ég best til Bókmenntaborgarinnar, enda fékk ég að taka þátt í því á sínum tíma að sækja um að Reykjavík yrði viður- kennd sem ein af Bókamenntaborg- um UNESCO, og kæmist þannig inn í net skapandi borga á heimsvísu. Bókmenntaborgin er sprelllifandi, með tíðum upplestrum og mál- þingum, og hér er haldin alþjóðleg bókmenntahátíð annað hvert ár sem hefur tignarstöðu í huga erlendra sem innlendra rithöfunda, útgefenda og umboðsmanna þótt hún teljist ekki til stærstu hátíða. Nú hillir líka undir að Hús íslenskunnar rísi á há- skólasvæðinu og þá verður loks unnt að sýna handritasafnið okkar, merk- asta framlag okkar til heimsmenn- ingarinnar, á þann myndarlega hátt sem það á skilið. Í Reykjavík opnast þá heimili handritanna og ég efast ekki um að borgarbúar og gestir munu flykkjast til að berja þær ger- semar augum og fræðast nánar um þau. Ég er stoltur af menningarborg- inni okkar allra og ítreka mikilvægi þess að góðu starfi verði fram haldið. Af þeim sökum er nauðsynlegt að minna á þessa starfsemi í aðdrag- anda kosninga. Menningarborgin okkar allra Eftir Sigurð Svavarsson » Greinin fjallar um mikilvægi lista og menningar fyrir þá sem búa í borgarumhverfi og skyldur Reykjavíkur sem höfuðborgar á menningarsviðinu. Sigurður Svavarsson Höfundur er bókaútgefandi og skipar 30. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. sigurdur@opna.is fasteignir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.