Morgunblaðið - 08.05.2018, Síða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ 2018
✝ María Krist-insdóttir fædd-
ist 24. júlí 1938 í
Hafnarfirði. Hún
lést á Landspít-
alanum 29. apríl
2018.
Móðir hennar var
Þórunn Ketils-
dóttir, f. 5. október
1916, d. 10. febrúar
1962.
Kjörforeldrar
Maríu eru Hallfríður Jónsdóttir
og Kristinn Símonarson.
Hálfsystkini hennar eru
Helga, f. 1948, Erna, f. 1949,
Jóna, f. 1951, Jóhanna, f. 1953,
Finnbjörn Þ., f. 1955, og Kristján
Þór, f. 1956.
María giftist Daníel Halldórs-
syni, f. 1934, d. 2013. Dóttir
þeirra er Krístín Halla, f. 17.10.
1957. Börn hennar og Guð-
mundar Vignis
Haukssonar eru
Haukur Svanberg,
f. 1976, og Kristinn
Dan, f. 1981. Krístín
Halla er gift Gunn-
laugi Rafni Trausta-
syni. Börn þeirra
eru Trausti Viktor,
f. 1985, og Pálína
María, f. 1987.
Seinni eiginmað-
ur Maríu var Krist-
ján Finnbjörnsson frá Aðalvík, f.
14. apríl 1921, d. 7. júní 2002.
María ólst upp í Stórholtinu í
Reykjavík. Hún fór í húsmæðra-
skóla á Norðurlandi eftir að
grunnskóla lauk. María vann ým-
is störf, m.a. hjá HB & co Akra-
nesi og hjá Múlalundi.
Útför Maríu fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8. maí
2018, og hefst athöfnin kl. 13.
Elsku „Mæjamma“ er dáin.
Þetta er mögnuð saga, og þetta
er kannski bara mín saga, eins og
ég heyrði hana í bernsku.
Stúlka var gefin til ættleiðingar
þegar hún var ung vegna þess að
mamma hennar var svo veik af
krabba, samgöngur frá Reykjavík
til Bolungarvíkur voru lélegar, svo
henni var ráðlagt að gefa barnið til
ættleiðingar. Nokkrum árum
seinna fann stúlkan svo móður
sína og systkini, sennilega orðin
ung kona þá.
Svo liðu um sex ár, blóðmamm-
an sem hún fann, dó þá frá sex
börnum úr krabbameini. Mæja þá
orðin 24 ára og tók mömmu mína
að sér sem var þá 13 ára gömul. Á
þessum tíma var algengt að systk-
inahópum væri splittað, feðrum
sem voru með stóran barnahóp
var ekki hjálpað heldur börnin
send í fóstur.
Ég segi alla vega að mamma
mín var svo heppin að fara til þín
og Danna.
Kannski aðallega því pabbi
minn leigði herbergi hjá ykkur
Danna (enda frændi hans).
Mamma, 13 ára, og pabbi minn
nokkrum árum eldri fengu sama
herbergið. Mamma og pabbi minn
giftu sig þegar mamma var 16 ára
og þau áttu sitt fyrsta barn sama
ár. Fagna 52 ára brúðkaupsaf-
mæli sínu núna í sumar.
Svo skildi leiðir þíns og Danna
og mörgum, mörgum árum seinna
hittir þú afa (pabba mömmu) og
þið áttuð góð ár saman.
Ég man bara eftir þér sem
„Mæjömmu“. Magnað hvað ég
lærði mikið af þér. Ég ákvað til
dæmis 13 eða 14 ára að kjósa að
vera jákvæð í lífinu. Að reiði fær
ekki orku hjá mér. Ef einhver vill
mig ekki þá á hann mig ekki skilið.
Þetta lærði ég af þér. Ég held mig
til hlés eins og þú orðaðir það.
Ég kom oft og gisti hjá ykkur
afa á Reykjavíkurveginum, alltaf
tókuð þið vel á móti mér, þú alltaf
kát og glöð.
Við eigum ekki að eyða lífinu í
reiði. Lífið er allt of stutt til þess.
Takk fyrir allt, elsku „Mæj-
amma“, ég veit að Helga systir
tekur vel á móti þér og allir hinir.
Þangað til næst.
Himneskt
er að vera
með vorið
vistað í sálinni,
sólina
og eilíft sumar
í hjarta.
Því hamingjan
felst í því
að vera með
himininn
í hjartanu.
Lifi lífið!
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Þín
Hulda Birna.
Elsku Mæja amma mín.
Ég komst ekki til þín á spítal-
ann og langar mig því að skrifa um
þig nokkrar línur.
Mér fannst gaman að koma til
þín í heimsókn í Kópavoginn, þú
varst alltaf svo góð við mig og
kysstir mig og faðmaðir. Þú leyfð-
ir mér að leika mér að seglunum á
ísskápnum þínum og þú lékst
stundum við mig með þeim.
Oft fékk ég að liggja uppi í rúmi
hjá þér og horfa með þér á sjón-
varpið. Þú áttir líka marga
skemmtilega hluti eins og stóru
dúkkuna og puntdúkkurnar flottu.
Takk fyrir að hafa verið til og
verið amma mín og þakka þér fyr-
ir allt sem þú hefur gert fyrir mig
og verið mér.
Elska þig og sakna þín mest af
öllum. Þín
Kalla María.
Elsku Mæja mín er dáin. Ég
man þegar við systkinin hittum
þig fyrst heima í Bolungarvík.
Ótrúlega heppin að eignast eldri
systur.
Mamma grét af gleði, en hún
þurfti að gefa þig til ættleiðingar
vegna veikinda þegar hún var
ung.
Þarna var ég sjö ára gömul með
stjörnur í augunum. Þú varst svo
flott og svo glæsileg. Við vorum
svo ánægð með þig.
Við fluttum svo til Hafnarfjarð-
ar seinna og þá hittumst við oftar.
Svo þegar mamma okkar dó tókst
þú mig í fóstur. Ég var 13 ára og
bjó hjá ykkur Danna og Kristínu
Höllu litlu. Ég er þakklát fyrir
þennan tíma.
Þarna var ég var svo heppin að
Baldur lífsförunautur minn
(frændi Danna) leigði herbergi hjá
ykkur. Þar hittumst við, byrjuðum
saman og höfum verið gift í 52 ár.
Þú varst svo lífsglöð og fólk
sóttist eftir að vera í kringum þig.
Frábær kokkur og svo myndarleg
í höndunum að prjóna og hekla.
Það liggja mörg meistarastykkin
eftir þig. Ég lærði margt á þessum
tíma um að halda heimili.
Seinna þegar árin liðu lágu leið-
ir ykkar pabba saman og þið áttuð
góð efri ár.
Elsku Mæja mín, ég vil þakka
fyrir allan tímann sem við áttum
saman. Þú varst alltaf svo glöð og
kát.
Síðustu ár einkenndust af veik-
indum hjá þér og dái ég kraftinn í
þér og dugnaðinn að takast á við
þessi erfiðu veikindi. Þú ert sko
nagli. Lífið hefur ekki alltaf verið
dans á rósum hjá þér en þú tókst á
við það með stökustu ró.
Í veikindunum síðustu mánuði
varst þú send upp á Akranes á
meðan þú beiðst eftir plássi á
hjúkrunarheimili. Þú tókst því vel
og fannst gott að vera á Skagan-
um.
Við hittumst oft. Þú fékkst svo
pláss á hjúkrunarheimilinu sem
þú óskaðir eftir.
Ég veit að þú ert í faðmi
mömmu og pabba, Helgu systur
og allra hinna sem bíða eftir þér,
frábæra Mæja mín. Hvíl þú í friði
og guð geymi þig.
Þangað til næst.
Lærir sá er lifir hér
langanir sem bærast eru
hér og hvar
sem þú sért þar.
Hún fylgir mér á endanum í áttina til
þín
því eilífðin er framundan ég veit hvað
bíður mín
En hún sem öllu eirir og af sér gefur
sú sem höndum sínum lífið vefur
segir mér þú bíðir mín
hjá sér í Paradís.
(Einar Örn Jónsson)
Þín
Erna systir.
María
Kristinsdóttir
Kær vinkona
mín, Valdís Björg-
vinsdóttir eða Vallý
eins og hún var
alltaf kölluð, hefur kvatt og
minningarnar streyma fram.
Sumarið er 1969, ég er nýorð-
in 17 ára með glænýtt gagn-
fræðapróf upp á vasann þegar
ég fékk mína fyrstu alvöru
vinnu. Ég var s.s. ráðin í launa-
deild hafnarverkamanna hjá
Eimskipafélagi Íslands. Á
fyrsta degi var ég kynnt fyrir
samstarfskonu minni og læri-
meistara, henni Vallý. Við náð-
um vel saman, urðum fljótt góð-
ar vinkonur þrátt fyrir að Vallý
væri þarna helmingi eldri en ég.
Ég man fyrsta dag minn hjá
Eimskip eins og gerst hafi í gær
og ég man vel hvað flaug í gegn-
um huga minn þegar ég var
kynnt fyrir Vallý, „á ég nú að
fara að vinna með einhverri
kellingu“ og í gegnum hennar
huga flaug eitthvað á þessa leið
„oh, enn einn stelpukrakkinn
sem ég þarf að dröslast með“,
við trúðum hvor annarri fyrir
þessum hugrenningum okkar
seinna, eftir að við vorum orðn-
ar trúnaðarvinkonur, og hlógum
mikið að.
Vallý var einstök á allan hátt.
Hún hafði fallegan dillandi hlát-
ur, bráðgáfuð, mjög listhneigð,
hafði sterkar skoðanir og rétt-
lætiskennd og einstaka frásagn-
argáfu. Hún var lágvaxin og fín-
gerð en var í raun stór kona.
Við unnum saman í rúm átta
ár og hún kenndi mér margt
fleira en að reikna út dagvinnu
og eftirvinnu og telja aura í
launaumslög. Hún kenndi mér
margt um lífið og tilveruna, hún
kenndi mér að meta klassíska
Valdís
Björgvinsdóttir
✝ Valdís Björg-vinsdóttir
fæddist 18. mars
1935. Hún lést 24.
apríl 2018.
Útför Valdísar
fór fram 2. maí
2018.
tónlist þannig að ég
fór að heyra fagra
tóna í staðinn fyrir
sinfóníugaul, hún
kenndi mér að
meta ljóðlist þannig
að ég fór að skilja
merkingu ljóðanna
og hrynjandi svo
ekki var lengur um
eitthvert ljóðastagl
að ræða, hún
kenndi mér að
meta alls kyns listaverk og list-
málara þannig að ég fór að sjá
falleg málverk í stað klessu-
verka, hún kenndi mér að meta
íslenska rithöfunda og ljóðskáld
og síðast en ekki síst þá kenndi
hún mér að standa á rétti mín-
um og láta ekki vaða yfir mig.
Vinátta okkar var traust og
sterk og hélst áfram þrátt fyrir
að við hættum að vinna saman.
Það var alltaf svo notalegt að
heimsækja Vallý og hann
Magga, lífsförunaut hennar.
Alltaf tekið svo vel á móti mér
og mínu fólki hvort heldur var á
Tómasarhaganum eða á Lækj-
argötunni í Hafnarfirði þar sem
þau hjón bjuggu síðustu ár.
Sterkt faðmlag, alls kyns sögur,
kaffi og kökur og svo sterkt
kveðjufaðmlag einkenndi þessar
heimsóknir, frá þeim streymdi
væntumþykja og góðmennska.
Þau verða tómleg Þorláks-
messukvöldin núna þegar ekki
verður lengur hægt að kíkja inn
til Vallýjar og Magga til að
skiptast á jólapökkum, fá
skemmtilegar sögur og smakka
á jólasmákökunum.
Ég votta dætrunum, Hebu og
Lindu, og fjölskyldum þeirra
mína innilegustu samúð.
Ég minnist Vallýjar með
gleði í hjarta og þakklæti fyrir
hennar traustu vináttu öll þessi
ár.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Valdimar Briem)
Steinunn M. Benediktsdóttir.
Lífið er fiskur
og fótbolti og fátt
við því að segja ef
þorp við sjóinn var
hluti af þinni æsku.
Það fór sjaldan lítið fyrir Malla
og hann var áberandi hvort
sem það var á sjó eða þurru
landi að þjálfa ungar stúlkur í
fótbolta og reyndar brautryðj-
andi í þeim efnum.
Malli hló hátt og þótti ekki
leiðinlegt að skapa aðstæður
sem leiddu til hláturs, gott ef
hann var ekki stríðinn. En
hann þurfti líka að taka
skammt af eigin meðali og þeg-
ar ég vann með honum við að
koma málningu á fleti, þá fór
stór hluti vinnudagsins í að
koma á hann bragði. Síðast
þegar við hittumst, þá hló hann
mikið þegar ég minnti hann á
kúffullan málningarbakkann
sem sífellt var að rata akkúrat
fyrir neðan lægstu tröppuna í
stiga fórnarlambsins.
En það var ekkert einfalt við
Malla og hann tók hlutina al-
varlega þegar það átti við og
hafði sínar skoðanir hvort sem
Marel
Andrésson
✝ Marel Andr-ésson fæddist
13. janúar 1937.
Hann lést 10. apríl
2018.
Útför Marels var
gerð 18. apríl 2018.
málin snérust um
stjórnmál lands
eða sveitar, hvað
þá ef um eitthvað
nærtækara var að
ræða. Það var því
lítið um óþægilegar
þagnir þegar ég
var svo heppinn að
borða heima hjá
Malla og Mæju.
Mörg síðustu ár og
þessar síðustu vik-
ur hafa síðan sýnt mér hversu
samheldin og góð fjölskylda
hefur skapast í kringum þau
Malla og Mæju, og hvað hún
hefur skipt þau bæði miklu
máli þegar kom að kveðju-
stundinni dimmu.
En þessi sterki og háværi
maður var auðmjúkur sem
lamb þegar við Una hittum
hann síðast og hann sagði okk-
ur frá Mæju sinni sem hann
greinilega saknaði mikið. Þar
hjálpaði þögnin honum og við
leyfðum henni að ráða.
Malli og Mæja, eins og hluti
af laglínu í ljóði sem oft var
sungið á bjartri sumarnótt eftir
góðan leik, og Malli sagði okk-
ur Dúdda að dröslast inn – það
væri að koma nýr dagur.
Við Una sendum Dúdda,
Kollu og Lóu ásamt þeirra fjöl-
skyldum innilegar samúðar-
kveðjur.
Óskar S. Magnússon.
Stígur hún við stokkinn,
stuttan á hún sokkinn,
ljósan ber hún lokkinn,
litli telpuhnokkinn.
(Höf. ók.)
Hjartkær frænka er gengin og
minningarnar eru margar sem
koma upp í hugann. Litla systir
Elín Hrund Jónsdóttir
✝ Elín Hrund Jóns-dóttir fæddist
15. júní 1964. Hún
lést 24. apríl 2018.
Útför Elínar Hrund-
ar fór fram 4. maí
2018.
Óla og Gunnu; svo
yndisleg og falleg.
Leikirnir urðu
margir og litlu
systkinin fengu oft-
ast að vera með;
boltaleikir, dúkku-
leikir og feluleikir í
garðinum hjá ömmu
og afa á Egilsstöð-
um og svo mætti
lengi telja. Þegar við
hugsum til baka er
Elín Hrund alltaf svo ljós, skín-
andi og glöð. Hún var eins og
geislandi lítil stjarna sem lýsti upp
tilveruna fyrir okkur öll. Hún hélt
áfram að lýsa; hún gifti sig ung og
eignaðist fjögur yndisleg og
mannvænleg börn; hún var sú
besta af mæðrum. Börnin voru allt
í lífi hennar; einnig eiginmaður,
foreldrar og systkini.
Söknuðurinn og sorgin er stór,
við vottum fjölskyldu Elínar okk-
ar innilegustu samúð.
Elsku kæra Elín Hrund;
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Hjartans kveðjur frá
Elínu, Ragnhildi, Sigríði
og Gunnlaugi
(Elu, Löggu, Siggu og Gulla).
Kær vinur er fallin
frá. Heiða, eins og
hún var ávallt kölluð,
var eftirtektarverð
persóna sem gekk
hreint til verks á öllum sviðum.
Hún var hreinskiptin, hafði
sterkar skoðanir á flestum hlut-
um sem skiptu máli, glettin og
hafði gott skopskyn, sem kom
vel fram í öllum samskiptum við
hana.
✝ HeiðbjörtBjörnsdóttir
fæddist 16. sept-
ember 1930. Hún 10.
apríl 2018.
Heiðbjört var jarð-
sungin 18. apríl 2018.
Mikil og hlý
gestrisni fylgdi
henni alla tíð. Það
fengum við hjónin
að upplifa þegar við
bjuggum á Vopna-
firði. Hún og maður
hennar, Tryggvi,
opnuðu heimili sitt
fyrir okkur þegar
við hófum búsetu í
firðinum fagra.
Í sláturtíðinni
komu þau hjón og buðu fram að-
stoð sína og áttum við oft
skemmtilegar stundir saman.
Heiða var vel máli farin og
var mikið í mun að við Íslend-
ingar vönduðum málfar okkar og
benti hún oft á hvað mætti betur
fara í töluðu máli. Henni var
annt um að við hin legðum máli
okkar lið með vandaðri málnotk-
un.
Ég talaði við hana í síma fyrir
allnokkru og var hún ótrúlega
hress í anda og sagði mér fréttir
af barnabörnum sínum sem hún
var afar stolt af.
Í lokin minntist hún á hvað
henni þætti leitt hvað margar
ambögur væru í málfari manna,
enn var hugurinn virkur í
málfarsumræðu dagsins.
Við hjónin þökkum elskulegt
viðmót og góð kynni og sendum
öllum afkomendum Heiðu okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sólveig Helga og
Einar Long.
Heiðbjört Björnsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og
börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja
mynd skal senda hana með æviá-
gripi í innsendikerfinu. Hafi
æviágrip þegar verið sent er ráð-
legt að senda myndina á net-
fangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina
vita.
Minningargreinar